Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Page 64
flutningi Hringbrautar gefast möguleikar á að stækka
barnaspítalann í framtíðinni.
Barnahjúkrunarfræðingar hafa bent á að það skorti á
aðstöðu fyrir langveik börn önnur en krabbameinsveik
börn. Krabbameinsveikum börnum hefur verið sköpuð
góð aðstaða sem þau geta gengið að án þess að fara í
gegnum hið venjubundna móttökuferli bráðveikra. Ekki
hefur verið gert ráð fyrir sambærilegri aðstöðu fyrir börn
með aðra langvinna sjúkdóma. Þá hafa barnahjúkrunar-
fræðingar bent á að endurskoða þurfi aðstöðu fyrir
langveik börn á sjúkradeildum, m.a. til að vernda þau fyrir
ýmiss konar breytingum og ónæði.
Barnahjúkrunarfræðingar hafa einnig gert athugasemdir
við starfsaðstöðu hjúkrunarfræðinga á deildum, t.d.
staðsetningu vaktherbergis og annarri vinnuaðstöðu þeirra
á deild. Aðstaða starfsfólks til að sinna störfum sínum er
afar mikilvæg og ástæða til að gefa því sérstakan gaum.
Það er von okkar að sá samstarfsvettvangur, sem
skapaður hefur verið milli fagdeildar barnahjúkrunarfræð-
inga og stýrihóps um byggingu barnaspítala, verði til þess
að góður barnaspítali verði enn betri. Skoðanaskipti þurfa
að vera hreinskiptin og byggð á gagnkvæmri virðingu fyrir
mismunandi sjónarmiðum og skoðunum. Markmið allra
aðiia er hið sama, að vinna að hagsmunamálum sjúkra
barna og aðstandenda þeirra og skapa góðan barna-
spítala sem mætir þörfum þeirra sem þangað leita og þar
starfa."
Vagitrim æfingakúlur
- gefur betri tilfinningu fyrir
grindarbotnsvöðvunum
- stuðlar að reglubundinni þjálfun
- bætir árangur æfinga
- gerir þér kleift að kanna styrk
grindarbotnsvöðvanna
- minnkar eða kemur í veg fyrir þvagleka
- bætir kynlíf
Contrelle þvaglekatappinn
Finnur þú fyrir bráðaþvagleka þegar þú
hóstar, hlærð eða við áreynslu? Contrelle
þvaglekatappinn getur hjálpað þér. Hann
kemur í veg fyrir þvagleka.
Nánari upplýsingar og ráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi í síma 515 1335. Opið alla virka daga frá kl. 9-18 að Grjóthálsi 5.
n
ÖSSUR
64
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999