Ráðunautafundur - 15.02.2002, Blaðsíða 145
143
um að allur stjóm- og merkjabúnaður skuli þannig komið fyrir að ökumaður þurfí ekki að
beina athygli frá akbraut. Ef breyta á ökutæki frá því sem gerðarviðurkenning segir til um
skal eigandi sækja um breytingar til skráningastofu.
GERÐARVIÐURKENNING
Til að skrá megi ökutæki þurfa þau að standast tæknilega skoðun, svonefiida gerðarviður-
kenningu. Framleiðandi eða innflytjandi er ábyrgur fyrir að slík skoðun fari ffarn. Hún tekur
til allra raðsmíðaðra ökutækja. Þegar um er að ræða almenna viðurkenningu er hún nefnd
gerðarviðurkenning og er þá átt við íslenska þjóðarviðurkenningu, nema annað sé tekið ffam.
Heildarviðurkenning er byggð á EBE tilskipunum sem gildir í öllum EES ríkjunum. Enn-
ffemur er unnt að veita einstökum „kerfum“ á ökutækjum gerðarviðurkenningu, t.d. hemla-
búnaði, ljóskeijum og dráttarbeislum samkvæmt EBE tilskipunum. Með umsókn um gerðar-
viðurkenningu þarf hlutaðeigandi að leggja ffam margvísleg gögn er taka til byggingu
tækisins, tæknilegs búnaðar, ýmissa stærðar- og þyngdarhlutfalla. Varðandi áletranir og merki
eru ýmis ákvæði, t.d. að varanlega skal skrá á vélina verksmiðjunúmer, en það getur síðar
meir reynst eigandanum mikils virði.
ÁKVÆÐIUM TÆKNILEGAN BÚNAÐ
• Stýrisbúnaður. Flestar nýrri gerðir dráttarvéla eru með aflstýribúnað (vökvastýri), en
með því er átt við að hjálparafl ffá mótor kemur til að auðvelda stjómun. Stýri á
dráttarvélum má bæði verka á fram- eða afturás og einnig á báða í einu. Ekki má
hafa loft- eða rafmagnstengingu milli stýris og stýrðra hjóla. Útfærsla búnaðarins
skal uppfylla ákvæði í tilskipun EBE, svo og fyrirkomulag þyngdaklossa.
• Hemlabúnaður. Hemlakerfí gegnir því hlutverki að hægja á ökutæki eða stöðva það
og halda því í kyrrstöðu. Kerfið skiptist í stjómtæki, yfirfærslubúnað og hemlabúnað
hjóla. Margvísleg ákvæði em til staðar varðandi tæknilega útfærslu og efhisval.
Hvað snertir dráttarvélar em sérákvæði um að aksturhemill skuli virka á bæði hjól,
a.m.k. á einum ási, og þar sem sérástig er fyrir hvort hjól skal vera unnt að tengja þá
saman. Hemlunargeta á að vera hið minnsta 3 m/s2. Ásetningstími aksturshemils má
ekki vera meiri en 0,5 s. Stöðuhemill má vera læsibúnaður á aflás og skal geta haldið
vélinni kyrri í allt að 12% halla. Áskilin hemlageta skal nást við 70 daN (um 70 kg)
fetilkraft, en með handvirkum hemli við 60 daN átakskraft. Ef stjómbúnaður
hemlunar er tengdur dráttarvél með hemlunarlögnum þurfa þær að uppfylla tiltekna
tilskipun.
• Ljósker og glitaugu. Á ökutæki má einungis nota ljósker af viðurkenndri gerð. Itar-
leg ákvæði em um gerð og staðsetningu þeirra. Þau helstu em að framvísandi glit-
augu skulu vera hvít, hliðaraugu gul og afturvísandi rauð. Á dráttarvélum er áskilið
að hafa aðalljósker, há og lág, hættuljósker, númeraljósker og stefhuljós. Einnig
stöðuljós, tvö ffamvísandi og tvö afturvísandi. Þá er einnig áskilið að vera með tvö
afturvísandi glitaugu í að a.m.k. 150 cm hæð yfir akbraut. Ýmis önnur ljósker em
leyfð ef þau uppfylla viðkomandi reglugerðarákvæði. Rétt er að benda á að nota má
varúðarljós (gult blikkandi) á dráttarvélar. Þau em m.a. ætluð þegar unnið er við
flutninga sem geta verið til hættu fyrir umferð.
• Aðbúnaður ökumanns og farþega. Á ökutækinu er svæði sem ökumanni er einum
ætlað. Innan þess er stýrishjól og önnur stjómtæki, mælar og annar búnaður sem
nauðsynlegur er við akstur. Sætin skulu vera traust og vel fest. Á þeim mega ekki
vera hvassar brúnir eða útstæðir hlutir. Dráttarvél má því aðeins vera búin farþega-
sæti að það sé innan við öryggishús, ekki hætta á að farþegi torveldi notkun stjóm-
tækja og hann geti haldið sér föstum í akstri. Gerð ökumannshús og farþegasætis,