Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.2006, Blaðsíða 22

Freyr - 01.08.2006, Blaðsíða 22
SAUÐFJÁRRÆKT Yfirlit um skýrsluhald fjárræktarfélaganna árið 2005 IEftir Jón Viðar Jónmundsson, Bændasamtökum íslands Á íslandi er almennari þátttaka sauðfjárbænda í skýrsluhaldi en dæmi eru um í nokkru öðru landi í heiminum. Tímamót í þessum efnum urðu samt árið 2004 þegar tekin var upp gæðastýring í íslenskri sauðfjárrækt. Það leiddi til þess að fast að því 90% af sauðfjár- stofninum í landinu eru nú skýrslu- færð í skýrsluhaldi fjárræktarfélag- anna. Það er ekki aðeins að umfang þessa starfs sé meira hér á landi en í öðrum löndum heldur á þetta starf sér dýpri rætur en hjá öðrum þjóðum. Öflugt skýrsluhald á vegum fjárræktarfélaganna hefur verið til staðar hér á landi í rúmlega hálfa öld. Niðurstöður skýrslu- haldsins sundurgreindar eftir einstökum fjárræktarfélögum er að finna yfir allt þetta tímabil og eru þar komnar samfelldar heimildir um þróun í sauðfjárrækt og fjárbúskap í einstökum sveitum eða héruðum hér á landi. Hér á eftir verður gerð grein fyrir nokkrum helstu niðurstöðum úr skýrsluhaldinu árið 2005 og verður það gert með líku sniði og éður þannig að greinin geti nýst lesendum sem heimild um þróun búskaparins með sam- anburði við eldri hliðstæð yfirlit. Meginhluti af tölulegum niðurstöðum kemur fram í töflu 1 þar sem allar helstu fjölda- og meðaltalstölur fyrir einstök fjárræktarfélög er að finna. Hins vegar eru ekki lengur birtar töflur um afurða- hæstu bú þar sem slík yfirlit má orðið finna á mjög aðgengilegu formi á Netinu. GÓÐUR SAMANBURÐARGRUNNUR Á síðasta ári var allur samanþurður við eldri niðurstöður örðugur sökum hinnar feikilega miklu aukningar sem varð þá í skýrsluhald- inu vegna innleiðingar gæðastýringarinnar. Núna er hins vegar fyrir hendi mjög góður samanburðargrunnur við síðasta ár vegna þess að nýir skýrsluhaldarar á árinu nema aðeins þeim fjölda sem hætti fjárbúskap haustið 2004. Þannig eru I uppgjörinu að þessu sinni nákvæmlega jafnmörg fjárrækt- arfélög og árið 2004, eða 134 samtals, og bú sem koma til uppgjörs eru einnig ná- kvæmlega jafnmörg eða 1.550 bæði árin. Þegar gæðastýringin var tekin upp var skýrsluhöldurum gefinn kostur á að vera þátttakendur án þess að vera skráðir í fjár- ræktarfélag. Þetta form hafa nokkrir aðilar, aðallega í Austur-Húnavatnssýslu og á Suð- urlandi, nýtt sér og eru um 3% skýrslu- haldsins á þessum grunni. Niðurstöður fyrir þessi bú birtast hvergi í yfirlitum úr uppgjör- inu á einstaklingsgrunni, þau koma ekki inn í meðaltöl eða fjöldatölur einstakra fjár- ræktarfélaga en eru hins vegar með í sýsl- umeðaltölum og landsmeðaltölum. YFIRLIT UM FJÖLDA SKÝRSLUFÆRÐRA ÁA Fullorðnu ærnar sem koma til uppgjörs eru samtals 304.902 (303.435 árið 2004) og veturgömlu ærnar 57.528 (55.139 árið 2004) og fjölgar þeim veturgömlu því hlut- fallslega heldur meira en fullorðnu ánum. Líklega má aðallega rekja það til þess að nánast allir skýrsluhaldarar skila nú skýrslum um veturgömlu ærnar líkt og reglur gæða- stýringarinnar gera ráð fyrir en slíkt var áður ögn breytilegt meðal skýrsluhaldara í félög- unum. Skýrslufærðar ær í félögunum á ár- inu 2005 urðu því samtals 362.430 (358.574 árið 2004). Þessar tölur sýna því að meðalbúið stækkar lítillega eða úr 231 á í tæplega 234 ær. Vanhöld af fullorðnu ánum voru samtals 4.112 ær (3.641 árið 2004) eða 1,3% á tímabilinu frá hausti til byrjunar sauðburðar. Af gemlingunum voru það hins vegar 431 (316 árið 2004) eða 0,7% sem hlutu slík ör- lög á sama tíma. Þessi vanhöld eru nokkru meiri en áður hefur verið. Ég hygg að þar sé samt ekki um raunverulega marktæka aukningu að ræða, heldur sé þetta þáttur sem áður var að einhverju leyti vantalinn í skýrsluhaldinu eins og áður hefur verið bent á. Þær ær sem hér er fjallað um koma vitan- lega hvergi við sögu þegar kemur að út- reikningi framleiðslu eftir hverja á. Frekari skoðun á fjöldatölunum sýnir að í tveimur héruðum er fjöldi skýrslufærðra áa yfir 30 þúsund en það er f Skagafirði, þar sem þær eru 32.201, og í Norður-Múlasýslu þar sem fjöldinn er 31.874 ær. f einstökum fjárræktarfélögum er fjöldi skýrslufærðra áa langsamlega mestur í Sauðfjárræktarfélagi Sveinsstaðahrepps þar sem þær eru 11.103 en félagssvæðið spannar margar sveitir í Austur-Húnavatnssýslu. Þá eru þrjú önnur félög þar sem fleiri en 7.000 ær eru skýrslu- færðar. Sauðfjárræktarfélagið Jökull á Jök- uldal er með 7.663 ær, Sauðfjárræktarfé- lagið Stefnir í Bæjarhreppi með 7.392 ær 22 FREYR 08 2006

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.