Smárit Hvítabandsins - 01.01.1903, Side 5
5
Upp frá þeirri stundu varð maður þessi allur
annar en hann hafði áður verið, og hann sást al-
drei framar á drykkjuknæpum nje við spilaborð,
hvorki á föstuaaginn langa, né endrar nær.
Ó, maður nú, þenk þar um þú,
þinn hugur. blygðast skyldi,
guð þyrstir hér að hjálpa þér,
en hjarta þitt er óþyrsl —
eptir hans mildi. (H. P.)
Fróðlegt saintal á „Hótel Island.44
(Aðsent.)
Eg skrapp um daginn inn til Halbergs og hitti
þar 2 kunningja mina, hann Árna embættismann
og Bjarna bókhaidara. Þoir sátu þar við ölkönn-
urnar eins og optar.
Eg veit ekki annað en þeir séu velmetnir hér
um slóðir og fremur duglegir báðir tveir.
Árni er mesti reglumaður, því að hann drekk-
ur ætíð „hálfan bjór“ með miðdegisverði, og hefir
aldrei sézt ósjáifbjarga af vinnautn. Bjarni er nú
ekki eins vanafastur, og hirðir ekki þótt þær sfari“
tvær eptir máitíð, hvort sem það er kvöld, morgun
eða nón.
Á borðinu hjá þeim lá nýútkomið blað af
„Reykjavíkinni,''' og mjer varð litið á auglýsingu,
þar sem stóð með feitu letri: „holt og styrkjandi
brennivín.4
„En að menn skúli ekki fyrirverða sig fyriv