Ljóri - 01.11.1980, Page 5
Síðan hélt Gunnlaugur Haraldsson safnvörður á Akranesi fyrir-
lestur sem hann kallaði: Um fjorðungsminjaverði, þar sem hann
lagði áherslu á að komið væri nýju skipulagi á safnamál. Lagði
hann til að stofnuð væri serstök þjóðminjastofnun og safnastofnanir
£ hverjum fjórðungi. Við safnastofnanirnar skyldu starfa
fjórðungsminjaverðir. Þeir skyldu efla samvinnu safna og
samræma störf þeirra og vera fulltrúar Þjóðminjastofnunar í
sínum fjórðungi. Einnig taldi Gunnlaugur brýnt að hraða endur-
skoðun þjóðminjalaganna frá 1968.
Umræður. Hafði fólk almennt áhuga á að sett væru á stofn
embætti fjórðungsminjavarða sem gætu aðstoðað starfsmenn
byggðasafnanna.
Þv£ næst kynntu fulltrúar byggðasafnanna söfn s£n, og var þá
komið að matmálst£ma.
Eftir hádegi talaði Guðný G, Gunnarsdóttir um skólaþjónustu.
Hún ræddi um mikilvægi skolaheimsokna 1 starfsemi safnanna og
nauðsyn þess að útbúa undirbúningsverkefni fyrir börn áður
en ]3au kæmu á safnið. Væru kennara send gögn, lesmál og myndir
og ábendingar um heppilegar heimildir sem bekkurinn ætti að
kynna sér. Þegar £ safnið er komið er sérstökum verkefnum
dreift milli nemenda og eiga þeir að vinna úr verkefnunum £
safninu.
Þv£ næst flutti Kristin H. Sigurðardóttir erindi um forvörslu,
þar sem hún lagði áherslu á ao haldið væri réttu rakastigi £
sýningarsölum og fylgst með þv£ og að útbúnar væru heppilegar
geymslur fyrir safngripina.
Umræður. Rætt var um hvernig væri æskilegast að geyma filmur
og myndir. Var bent á að hægt væri að panta heppileg umslög
hjá Þjóðminjasafninu.
Gunnlaugur Haraldsson las s£ðan upp ályktun þar sem skorað
var á menntamálaráðherra að sjá til að hraðað verði endur-
skoðun þjóðminjalaganna og var hún samþykkt samhljóða.
Þvi næst flutti Elsa E. Guðjónsson safnvörður við Þjóðminja-
safnið erindi með litskyggnum 1 tengslum við sýninguna Forvarsla
textila £ Þjóðminjasafninu.
Síðan var farið £ Þjóðminjasafnið og m.a. skoðuð forvörslu-
sýningin. Guðmundur úlafsson safnvörður sagði frá skráningu
muna og flokkunarkerfi og frá þjóðminjaskráningu og aðstoðuðu
hann Inga Lára Baldvinsdottir og Agúst úlafur Georgsson.
Að enöingu var farið £ Höfða £ boði borgarstjórnar Reykjavikur.
* * *
GAMALL FATNAÐUR
PjÓ5minjasafn fslands óskar eftir að fú ymiskonar fatnað fra
fyrri hluta þessarar aldar eSa fyrr, bœSi hversdagsklœSnaS
og spariföt. ASrir búningar koma einnig til greina.
Uppl. f sfma: 1 32 64.
5