Læknaneminn - 01.03.1949, Síða 20
20
LÆKNANEMINN
leiðslu á mænusóttarvírus í stærri
stíl. Hann telur ólíklegt, að fram-
leiðsla bóluefnis út frá virus geti
orðið til mikils gagns né heldur
slík bólusetning, meðan allt er í
jafn lausu lofti og nú er um ástæð-
urnar fyrir tauga-affinitet virus-
ins. Meðan svo er, geti bólusetning
gegn mænusótt ekki komið til
greina á sama grundvelli og gegn
öðrum sóttum. Auk þess beri ávallt
að hafa í huga þær hættur, sem
samfara eru slíkum aðgerðum,
meðan svo mörg af hinum fyrr-
töldu atriðum eru ókunn. — Hins
vegar er þetta mikilvægt rannsókn-
aratriði í kjölfar hinna áður upp-
töldu rannsókna á neurotropi, sero-
logi og ónæmissvörunum mænu-
sóttar.
Höfundur bendir að lokum enn
einu sinni á, hve geysi umfangs-
mikillar rannsóknar hér er þörf.
Hann telur æskilegustu leiðina
nána samvinnu þriggja aðila:
Rannsóknarstofa, sjúkrahúsa og
heilbrigðisyfirvalda. Auk þess bend-
ir hann á, hve æskileg og tíma-
sparandi náin alþjóða-samvinna
um þetta mál myndi vera. Þá yrði
e. t. v. komizt hjá dýrum tvíverkn-
aði og undirbúningsathugunum,
sem ávallt er hætta á, er vísinda-
menn í mörgum löndum starfa að
sömu vandamálum, en hafa litlar
fréttir hver af öðrum.
La Presse Medicale, jan. ’49.
Fréttir úr deildinni.
Framh. af bls. 11.
að Reykjalundi þannig að því, að
vistmenn geti sem öruggastir hafið
lífsbaráttuna að nýju, er þeir hafa
sigrazt á sjúkdómi sínum. Miklu
hefir þegar verið áorkað að Reykja
lundi, en byggingarframkvæmd-
um er þó enn ekki lokið. Verður
þess vonandi skammt að bíða. Frá
Reykjalundi var síðan haldið heim
á leið til Reykjavíkur.
Ferðalag þetta tókst vel og komu
flestir fróðari en þeir fóru. Lækna-
nemar þakka hinar góðu móttök-
ur á báðum stöðunum og alla þá
vinsemd, er ferðalöngunum var
sýnd. Stjórn Félags læknanema
hafði alla forystu í ferðalagi þessu
og kostaði félagið förina. Er von-
andi, að hér sé aðéins um byrjun
að ræða og að framvegis verði far-
inn einn slíkur ,,vísindaleiðangur“
— minnst — á ári hverju.
Árshátíð læknanema.
Stjórn Félags læknanema hafði
hug á að efna til „árshátíðar lækna-
nema“. Undirbúningi varð þó ekki
lokið. Hefði öllum læknanemum
verið boðin þátttaka, en kostnað-
ur allur greiddur af Félagi lækna-
nema. Er betta nýtt mál og verð-
ur að líkindum vinsælt á næsta ári.
Bókakaupin.
Eins og kunnugt er, hefir undan-
farin ár starfað bókakaupanefnd
á vegum félags læknanema, sem
séð hefir um kennslubókakaup
fyrir deildina að mestu, öllum að-
iljum til hinna mestu hagsbóta.
Blaðið hefir fregnað hjá bóka-
kaupanefndinni, að bókapantanir
hafi verið með mesta móti nú um
áramótin, því að alls voru pant-
aðar bækur fyrir um 25 þúsund
krónur. Innflutningsleyfi hefir nú
fengizt fyrir meginhluta þessarra
bóka, og er von á þeim til lands-
ins alveg á næstunni.
Bókanefndin vonar, að allir þeir,
sem pantanir hafa sent, verði
fljótir til að leysa bækurnar út,
þegar þær koma. Jafnframt vill