Helgarpósturinn - 21.09.1979, Page 1
|:
f
t:
%:
■
hin nýja
sunnudags-
afþreying
sjónvarpsins
nnn.
Föstudagur21. september 1979
Sími 81866
Endalok Scanhouse-ævintýrisins í Nigeriu:
Starfsmennirnir
eiga enn 70 millj.
kr. útistandandi
Fyrir fjórum árum könnuöu
tveir af þáverandi eigendum
Breiöholts h/f möguleika á aö
hefja by ggingaframkvæmdir i
Nigeriu. Það leiddi til þess, aö
einn eigandi fyrirtækisins keypti
hlut hinna. sem siöan stofnuöu
verktakafyrirtækið Scanhús. Þeir
stofnuöu aftur hlutafélag meö
Scanhouse Nigeria, sem er I eigu
þarlendra fjármálamanna og
hófu umfangsmiklar bygginga-
framkvæmdir I landinu.
Um áramótin 1977/78 héldu 24
Islendingar og fimm Skotar á
vegum fyrirtækisins til starfa I
Nigeriu. En ævintýrið stóð bara i
hálft ár. Þá urðu íslensku hluthaf-
arnir af ýmsum ástæðum að
draga sig út úr fyrirtækinu, en
Nigeriumennirnir héldu áfram.
íslensku starfsmennirnir unnu
áfram til áramóta, en héldu þá
heim sökum þess, að miklir erfið-
leikar voru á því að fá greidd
laun. Og þau mál eru ekki komin
á hreint. Enn eiga þeir útistand-
andi 70 milljónir króna, sem þeir
reyna að rukka inn hjá Scanhouse
Nigeria.
tslensku hluthafarnir virðast
hinsvegar hafa komið út úr ævin-
týrinu á sléttu, þótt ekki séu allir
sammála um það. Ymsir telja, að
þeir hafi haft hagnað af þvi.
Helgarpósturinn hefur kannaö
þetta mál. Við höfum leitað upp-
lýsinga hjá eigendum fyrirtækis-
ins og fyrrverandi starfs-
mönnum, og skýrum frá til-
drögum ævintýifsins,
og hvernig allt
liðaðist sundur
að lokum.
Hægrí sveiflan og lang-
lífi ríkisstjórnarinnar
1 Svfþjóö stendur Gösta
Bohman, leiötogi hægri manna
uppi sem sigurvegari kosning-
anna. t sveitarstjórnarkosning-
unum i Noregi gætti sömuleiðis
verulegrar hægri sveiflu. Leiö-
togar vinstri flokkanna hér á
landi i núverandi stjórn hljóta aö
ihuga þessi kosningaútslit í þess-
um tveimum grannrikjum okkar.
Þótt samkomulagið sé ekki upp
á það besta innan rikisstjórnar-
innar um þessar mundir i kjölfar
búvöruhækkunarinnar og menn
brjóti sifellt heilann um það
hvenær upp úr sjóði, þá er þó ekki
loku fyrir það skotið að óttinn við
samsvarandi hægri sveiflu hér á
landi og á hinum Noröurlöndun-
um kunni að halda stjórninni eitt-
hvað lengur saman. Amk. er
kappsamlega unniö að þvi um
þessar mundir innan stjórnarinn-
ar að finna leið út úr ógöngunum
samhliða þvi sem reynt er að
berja saman fjárlög en þar geng-
ur þó á ýmsu.
—Sjá Innlenda
og Erlenda yfirsýn
„Margur hefur allt sitt
átt innan gæsalappa” 0
Að kunna að kasta fram
kviðlingi hefur löngum
þótt hin mesta íþrótt hér á
landi. í blaðinu í dag er
fjallað um hagmælsku og
spjallað við nokkra hag-
yrðinga, þeirra á meðal
Egil Jónasson á Húsavík,
sem gert hefur margar
landsf leygarvísur um dag-
ana.
LEIÐARVfSIR HELGARINNAR 0
BIRTAST
LATNIR?
Þaö er ekki á hverjum degi,
aömenn geta virt fyrir Sér and-
lit látinna ástvina, séö þau
hreyfast og jafnvel gera tilraun
til aö koma upp oröum. Slikt
hefur þó gerst tvisvar sinnum
úti á Seltjarnarnesi i þessari
viku. Fyrir þvi stóö breski
transmiðillinn Queenie Nixon,
en hún er hér I heimsókn á
vegum Sálarrannsóknafélags
tslands.
Þetta eru ekki venjulegar
skyggnilýsingar, sem hún hefur
sýnt hér, heldur nokkuð sem
kallast ummyndunarfyrirbæri.
Það felst I þvi, að hinir látnu
mynda svip sinn á andliti
miðilsins meö hjálp efnis sem
kallast útfrymi.
Það voru hin óllkustu andlit
sem birtust. A fundi þeim sem
Helgarpósturinn fylgdist með,
birtist m.a. Thor Jensen og á
fundi siðastliðiö þriðjudags-
kvifld kom enginn annar en
sjálfur Jóhannes Kjarval*
Það er ekki svo auövelt aö
lýsa þessum ummyndunum
meö orðum, en eitt er hægt að
segja, að þær eru furðulegar,
A þessari mynd sjáum við
Queenie Nixon og systir Edith,
sem er einn af stjórnendum
hennar. Fremri likaminn, sem
sést greinilega á myndinni, var
ekki sýnilegur áhorfendum. Það
var einungis myndavélin sem
nam hann, þar sem þetta er að
hennar sögn, hinn andlegi
likami hennar.