Helgarpósturinn - 11.03.1983, Side 10
10
Van Morrison
Föstudagur 11. mars 1983 ,rinn
Söngvarinn Van Morrison er
fæddur í Belfast árið 1945. Það
má eiginlega segja að hann hafi
strax í upphafi drukkið í sig tón-
listina með móðurmjólkinni, því
móðir hans var söngkona, en fað-
ir hans var plötusafnari mikill og
safnaði hann einkum blues og
jazzplötum og mun t.d. Leadbelly
hafa verið í miklum metum hjá
honum.
Þrettán ára gamall var Morri-
son farinn að leika á gítar, munn-
hörpu og saxófón. Fimmtán ára
varð hann atvinnutónlistarmaður
og næstu þrjú árin flæktist hann
víða. Einkum léku hljómsveitir
hans í Þýskalandi og þar var hann
fenginn til að leika jazzleikara í
kvikmynd.
Árið 1963 varð hljómsveitin
Them til og náðu þeir fljótlega
töluverðum vinsældum í Belfast
og nágrenni. Eitthvað hlýtur
hróður hljómsveitarinnar að hafa
borist víðar, því önnur litla platan
sem þeir gáfu út, innihélt Big Joe
Williarps lagið Baby Please Don’t
Go, komst í áttunda sæti breska
vinsældarlistans í janúar 1965.
Vegna þessa flutti hljómsveitin sig
um set, frá Belfast til London, og
komst þá í kynni við enska upp-
tökustjórann Bert Berns.
Berns þessi hafði m.a. samið
lögin Hang On Sloopy, fyrir The
McCoye, og TWist & Shout, fyrir
Isley Brothers, en síðarnefnda
lagið er líklega þekktara hér á
Iandi í flutningi Bítlanna. Berns
samdi líka lagið Here Comes The
Night Them, en það fór í annað
sæti breska listans og í 24. sæti
þess bandaríska í apríl 1965.
Þegar kom að því að Them
skyldu gera stóra plötu, þá var
sem Berns vantreysti þeim á ein-
hvern hátt, því hann réði session
menn til að leika inn á hana með
Morrison og var t.d. Jimmy Page
einn þessara manna. Fór þetta
mjög fyrir brjóstið á Morrison og
má eiginlega segja að þetta hafi
verið upphaf stríðs þess, sem
hann hefur alla tíð síðan átt í við
hina svokölluðu „músik bísness
menn”. En það eru verur sem
hann telur gjörsamlega óþarfar
og einhver hvimleiðustu sníkju-
dýr veraldar. Them gerðu aðra
plötu og heitir hún Them Again.
Þeir ferðuðust mikið en eftir
hljómleikaferð um Bandaríkin
vorið 1966, hætti Morrison í
hljómsveitinni og hélt heim til
Belfast að nýju. Það má einnig
geta þess að upphitunarhljóm-
sveit Them í þessari síðustu ferð
þeirra var ung og upprennandi
bandarísk hljómsveit sem bar
nafnið The Doors. I dag er Iagið
Gloria Iíklega þekktasta lag
Them, en það hefur verið flutt af
hundruðum hljómsveita og
söngvara víðsvegar um heim, en
það náði hins vegar aldrei neinum
verulegum vinsældum með Them
á sínum tíma.
í næstum heilt ár tók Morrison
það rólega á heimaslóðum sínum
í Belfast en í mars 1967 kom kall
frá Bert Berns, sem þá var fluttur
til Bandaríkjanna, um að koma
nú vestur um haf og hefja að nýju
plötugerð og nú hjá nýstofnuðu
fyrirtæki Berns, sem hafði fengið
nafnið Bang Records. Eitt af þeim
lögum sem Morrison þá gerði var
Brown Eyed Girl, sem komst inn
að topp tíu bæði vestan hafs og
austan. Bang fylgdi plötu þessari
eftir með útgáfu stórrar plötu,
sem heitir Blowin’ Your Mind. Var
Morrison hinn óhressasti yfir út-
gáfu þessari, því hann hafði sung-
ið lögin inn í þeirri trú að einhver
þeirra yrðu gefin út á litlum plöt-
um en alls ekki á stórri plötu. Til
að bæta fyrir þetta gaf Bang hon-
um frjálsar hendur um gerð ann-
arrar stórrar plötu, sem hlaut
nafnið The Best Of Van Morri-
son. Raunar segir hann nú að bet-
ur væri við hæfi að kalla hana
The Worst Of Van Morrison.
Ekki urðu plöturnar fleiri sem
hann gerði fyrir Bang, því fyrir-
tækið lognaðist út af við dauða
Bert Berns seint á árinu 1967.
Morrison gerði þá samning við
Warner Brothers og fyrsta plata
hans hjá því fyrirtæki var Astral
Weeks, sem var fyrst í röð margra
meistaraverka Morrisons. Astral
Weeks var tekin upp á 48 tímum,
sumarið 1968 og er hún enn þann
dag í dag, að áliti margra, meðal
merkustu rokkplatna allra tíma.
Raunar er ákaflega erfitt að telja
plötu þessa til rokkplatna, því á
henni ægir saman ýmsum tónlist-
arstefnum og líklega fer minnst
fyrir því sem kalla mætti rokk.
Tónlistin er órafmögnuð að
mestu eða öllu leyti og undir mikl-
um áhrifum þjóðlagatónlistar, en
mikið fer einnig fyrir áhrifum
blúesins. Ofan á þetta bætast svo
jazzáhrif, sem gætir helst i notk-
un blásturshljóðfæra. Já, þetta og
Astral Weeks er vissulega sérstæð
plata.
í febrúar 1970 kom svo út plat-
an Moondance, sem af mörgum er
álitin jafnvel enn betri plata en
Astral Weeks og er ég einn þeirra
sem þeirrar skoðunar er. Morri-
son var þó ekki alls kostar ánægð-
ur með árangurinn en hann hefur
alltaf verið alveg einstaklega
gagnrýninn á verk sín. Tónlistin á
Moondance er all ólík þeirri sem er
á Astral Weeks. í útsetningunum
voru það nú málmblásturshljóð-
færin sem voru mest áberandi,
þar sem strengir höfðu að miklu
leyti borið Astral Weeks uppi.
Segja má að Moondance gefi tón-
inn að þvi sem Van Morrison átti
eftir að senda frá sér næstu árin.
Næsta plata var His Band And
His Street Choir, sem út kom í
september 1970, en hún olli mörg-
um nokkrum vonbrigðum. Á
henni er þó að finna eitt allra vin-
sælasta lag Morrisons, en það
heitir Domino. Sjálfur'segist hann
hafa misst tökin á gerð plötunnar
einhvers staðar í miðju kafi. Á
næstu plötu var hann þó aftur í
topp formi. Hún heitir Tupelo
Honey en lög hennar voru ástar-
óður til konu hans.
Vinsældir Morrissons jukust
með hverri plötunni sem hann gaf
út og næstu plötur, St Domino
Preview (1972) og Hard Noise To
Highway (1973), gerðu ekkert
nema bæta þar við. Á St. Domin-
ics Preview er t.d. að finna lagið
Jackie Wilson Said, sem Dexý’s
gerðu vinsælt í fyrra, en sú hljóm-
sveit sækir alls ekki svo lítið í tón-
list Morrisons.
Þegar hér var komið sögu ferð-
aðist Morrison um með 11 manna
hljómsveit, sem hann nefndi
Caledonian Soul Orchestra, en
hún innihélt m.a. strengjasveit.
Hljómsveit þessi ferðaðist víða
við góðar undirtektir og í febrúar
1974 sendi hún frá sér tveggja
platna hljómleikaalbúm, sem
heitir It’s Too Late Too Stop Now
og eru plötur þessar taldar með
bestu hljómleikaplötum sem út
hafa komið. Plöturnar gefa líka
rétta mynd af tónleikum því
Morrison neitaði algerlega að
„dubba” eða yfirtaka einn einasta
tón.
Árið 1974 leysti Morrison
skyndilega upp hljómsveit þessa
og stofnaði þess í stað fimm
manna hljómsveit. Platan Veed-
on Fleece leit dagsins ljós en með
henni má segja að vissum kapitula
í sögu Morrisons ljúki. Ný plata
kom ekki frá honum næstu þrjú
árin. Sagt er að Veedon Fleece sé
sú plata sem Morrison hafi verið
ánægðastur með frá því hann
gerði Astral Weeks.
Sögur segj a að f rá því að Morri-
son gerði Veedon Fleece og þar til
næsta plata hans, A Period Of
Transition, kom út, hafi hann að
minnsta kosti lokið við gerð fjög-
urra platna sem hann vildi þó ekki
að litu dagsins ljós. A Period Of
Transition var heldur ekki nógu
góð en á næstu plötu þar á eftir,
sem heitir Wavelength, er hann á
ný í fínu. formi. Næstu tvær plötur
Into The Music (1979) og Comm-
on One (1980) eru einnig ágætar,
þó er ég þeirrar skoðunar að sú
síðarnefnda sé kannski heldur í
daufara lagi.
Fyrir um það bil ári síðan kom
svo út platan Beautiful Vision,
sem er líklega besta plata Morri-
sons síðan Veedon Fleece, þó
Wavelength standi henni mjög
nærri hvað gæði varðar. Á plötu
þessari gætir ýmissa áhrifa, svo
sem frá keltneskri tónlist en í
mörgu minnir þó tónlistin á gull-
aldartima Morrisons. Hún er í
senn ljúf en þó ekki of fínpússuð
og rödd Morrisons hefur alltaf
yfir sér vissan harðneskju blæ og
kraft, enda maðurinn af mörgum
talinn besti hvíti soul söngvari
sem uppi hefur verið og get ég
heils hugar tekið undir það.
Væntanleg er ný plata frá Van
Morrison og hefur heyrst að það
gæti orðið hans síðasta plata. Af
hverju Morrison hefur látið þau
boð út ganga veit líklega enginn
enda hefur hann oftast farið eigin
leiðir. Hann gaf snemma skít í
tónlistarbíssnessinn og hefur ver-
ið sinn eigin herra í mörg ár. Það
er þó vonandi ekki rétt að hann sé
í þann veginn að setjast í helgan
stein, því það væri óbætanlegur
skaði.
IITVAKP
Föstudagur
11. mars.
07.10 Gull í mund. Hringahrund hringar
sig á kodda. Stefán Jón er góður
maður. Svo hlær hann lika alveg
eins og viö hin.
10.30 Mér eru fornu minnin kær. Þá er
það lögformlega staðfest, að
maðurinn (Einar frá Hermundar-
felli) er orðinn lítillar stúlku afi. Til
hamingju Einar minn.
14.30 Vegurinn að brúnni. En brúin var
brend að baki. Saga eftir Stefán
Jónsson.
16.20 Hvitu skipin. Þau sigla og sigla um
heimsins höf, þau sigla oft fram á
ystu nöf. Barnasaga.
22.40 Um vináttu. Vertu vinur vina þinna
og óvina þeirra. Því frændur eru
frændum verstir.
23.05 Kvöldgestir. Jónas Jónasson leiðir
okkur enn á ný inn i töfraheim
mannlegra samskipta.
Laugardagur
12. mars.
07.25 Leikfimi. Jónina, hún er sæí.
09.30 Óskalög sjúklinga. Lóa ér líka sæt'.
11.20 Hrimgrund. Barnatiminn. Sverrir
er líka sætur.
15.10 f dægurlandl. Svavar Gest sér um
sætan þátt. Er hann líka sætur?
16.40 íslenskt mál. Mörður Árnason og
móðurmálið. Heilög tvennd, sem
vert er aö bera virðinau fvrir.
20.30 Kvöldvaka. Bræöingurinn á fullu.
Nútiminn og sá gamli.
21.30 Hljómplöturabb. Þorsteinn
Hannesson segir okkur frá tónsnill-
ingum og bregður tóndæmum fyrir
sig.
23.05 Laugardagssyrpa. Þorgeir og Páll
velja nýjustu lögin. Skemmtilegur
þáttur.
Sunnudagur
13. mars
8.35 Morguntónleikar. Andleg upp-
lyfting i hálfbirtu helgidagsins.
éach, Mozart og Rossini. Mér liður
snökktum betur.
10.25 Út og suður. Ekki versnar liðanin
nú, er ég læt mig dreyma og svíf um
á filseyrum minum. Ferðalagaþátt-
ur Friöriks Páls.
11.00 Messa. Sunnansjávarmenn
sinn skammt og skal ekki amast
við þvi, enda komast þeir næst
guðs eigin landi allra landsmanna.
13.10 Fráliðlnniviku. Léttrabbmeð bliðri
tónlist. Hvaö fór framhjá mér? Páll
Heiðar Jónsson.
14.00 Hver var Karl Marx? Andlegur faðir
Stalins, sem lofsunginn var hér um
daginn? Pétur Gunnarsson ætlar
aö reyna aö svara þvi á 100 ára ártið
Kalla litla með skeggiö.
15.00 Ríkharður Wagner. Haraldur G.
Blöndal kemur I fjórða sinn.
18.00 Það var og. Þráinn er engum líkur.
Og ekki einu sinni sjálfum sér.
19.25 Veistu svarlð? ??? spurðana
Málmfriði, hún veit hvortsemer allt.
21.30 Kynni mfn af Kína. Ragnar Bald-
ursson fer aö verða kominn meö
heila bók i orðum mælt, ekki orð-
um.
23.00 Kvöldstrengir. Margfræg rúsina i
margfrægum pylsuenda. Hilda
Torfadóttir býr enn að Laugum i
Reykjadal.
SJÓKVAKI*
Föstudagur
11. mars.
20.40 Með nefinu. Birna Hrólfsdóttir
sýnir okkur hverju næmt þefskyn
getur áorkaö. Menningarviðburð-
irnir eru að sliga þjóðina. Hún sýnir
okkur fram á það, en þó ekki með
vilja.
20.50 Skonrokk. Dægurfluguþáttur. Ný
íslensk náttúrulífsmynd um fjöl-
skrúðugt Iff i stofugluggum allra
venjulegra húsa. Þorgeir Ástvalds-
son annaðist stjórnina.
21.20 Kastljós. Vikan tekin og sneidd í
sundur, skoöuö og greind. Margrét
Heinreksdóttir og Sigurveig Jóns-
dóttir eru greindar stúlkur.
22.20 Örlagabraut (Zwischengleis). -
Þýsk biómynd frá siöustu misser-
um. Leikendur: Mel Ferrer, Pola
Kinski, Martin Lxitge. Leikstjóri:
Wolfgang Staudte. Fyrir tuttugu
árum. Kona ætlar að stytta sér ald-
urogvið fáum aðsjá hvaö ligguraö
baki þessari ákvörðun hennar.
Raunasaga, sem hefst í striðslok
með flótta undan Rauða hernum.
Þjóðverjar eru engum líkir, þegar
þeir bregða sér í kvikmyndagerð-
ina.
Laugardagur
12. mars.
16.00 íþróttir. Þróttmiklir kraftlyftinga-
menn reyna með sér á skautasvell-
inu.
18.00 Hildur. Páfrem með danskeunder-
visningen.
18.25 Steinl og Olli. Þegar ég var polli.
Hættessu skrolli.1 Steini og Olli.
Álíka fyndið og þetta.
18.45 Enska knattspyrnan. Búbú. Búbú.
20.35 Þriggjamannavist. Greiðum birn-
inum með bjarnargreiðu. Það er
hálfgerður bjarnargreiði.
21.00 Hálfnað er verk þá hafið er. Blátt
eins og augaö eygir. Kanadísk
teiknimynd.
21.15 Suöur-Kyrrahaflð (South Pacific).
Bandarísk bíómynd, árgerð 1958,
gerö eftir söngleik Rogers og
Hammerstein. Leikendur: Mitzi
Gaynor, RossanoBrazzi, Ray Wals-
ton, John Kerr. Leikstjóri: Joshua
Logan. Sungið og dansaö á meðal
bandarískra hermanna I siðasta
heimsstríði. Hver segir svo aö
hernaöur sé ömurlegur? Hér er
málstaöurinn góður. Logan stóð sig
bara vel.
Sunnudagur
13. mars.
16.00 Sunnudagshugvekja. Þórhallur
Höskuldsson prestur á Akureyri
kallar til okkar aö norðan. Hrópandi
i eyðimörkinni.
16.10 Húsið á sléttunni. Nýr bandariskur
barnamyndaflokkur um tvöfalt sið-
gæði, hræsni og annan undirlægju-
skap. Morgunbænirnar i heiðri
hafðar.
17.00 Ó, mín flaskan fríða. Hættu mér að
striða. Áfengismálamynd endur-
sýnd. Ekki veitir nú af. Spillingin
gegnsýrir þjóðfólag okkar. Ég er
bara farinn i klaustur ef svona held-
ur áfram.
18.00 Hundurinnokkar. BryndisogViðar
segja okkur hryllingssögur.
20.35 Sjónvarp næstu viku. Hallelúja.
20.50 Glugginn. Skýggnst innum skitug-
ar rúöur menningarvitanna. Þeir
• eruaðbrennaút.Tölvanleysirþáaf
hólmi.
21.35 Kvöldstund með Agötu. Fjórði
maðurinn veldur undarlegum hlut-
um. Undarlegt samband tveggja
stúlkna.
22.25 Chico Hamilton. Djass fyrir mig,
djass fyrir þig. Djass fyrir Venna
vin.