Morgunblaðið - 28.03.1987, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987
STÓRHUGA
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Því verður á engan hátt mót-
mælt, að Guðrún Arndís
Tryggvadóttir sé stórhuga í list-
sköpun sinni.
Hér er þá ekki endilega vísað til
stærða málverka hennar, heldur
vinnubragða, metnaðar og hugsun-
arháttar.
í M}mdlista- og handíðaskólanum
var hún öll árin einna atorkusam-
asti nemandinn, sem mætti snemma
í skólann og fór seint — vann fram-
eftir, þegar verkefnin tóku hug
hennar allan og það var býsna oft.
Eiginlega halda slíkir nemendur
listaskólum gangandi, nákvæmlega
eins og sömu eiginleikar halda allri
list gangandi, og væru leiðbeinend-
ur illa settir, ef þeirra nyti ekki við.
Guðrún Amdís er nú með fyrstu
stóru einkasýningu sína, og að sjálf-
sögðu hefur hún lagt undir sig
stærsta sal Kjarvalsstaða, og hér
vantar ekki stóru málverkin, en
minni stærðir fljóta með í bland.
Minnir þessi ferill hennar furðumik-
ið á viðhorfín, sem ríktu, er ég og
mínir líkir voru að koma fram fyrir
rúmum þijátíu árum. Sú hugsun
var fjarlæg að halda opinbera sýn-
ingu fyrr en að loknu námi og
nokkurri glímu við viðfangsefnin,
þar til upp höfðu safnast nægilega
mörg verk á hressilega sýningu í
Listamannaskálanum gamla. Það
fer oft saman, að þeir sem gæddir
eru eiginleikum Guðrúnar eiga iðu-
lega erfitt með að marka sér
ákveðna stefnu í list sinni, þeir vilja
helst gleypa allt með húð og hári
sem fyrir verður, og mála hvert
viðfangsefni, eins og það kemur
þeim fyrir sjónir og þeir upplifa
það, en ekki samkvæmt einhverri
sérstakri formúlu. Þeir teljast því
oft vera ósamstæðir í listsköpun
sinni, sem er þó alrangt, því að hér
er frekar um frjósemi að ræða og
löngun til að sjá hlutina hveiju sinni
í nýju ljósi. Það má á einfaldan
hátt útskýra þetta þannig, að í lista-
skóla nota þeir stöðugt nýja liti við
málun fyrirsæta sinna í stað þess
að koma sér upp ákveðnu kerfi —
eru stöðugt að rannsaka nýja mögu-
leika í samsetningu lita, línu og
forma.
Slíkir hafa til skamms tíma átt
erfíðara með að ná fótfestu á al-
mennum listamarkaði og verið
ásakaðir um línudans, á meðan hin-
ir einhæfu, sem ekki geta hugsað
sér að breyta út af afmarkaðri,
áunninni tækni og litameðferð eru
hafnir til skýjanna sem persónuleg-
ir og traustir listamenn.
Þetta allt er mikilvægt að athuga
við skoðun sýninga Guðrúnar
Amdísar, ef menn vilja skilja hana
til nokkurrar hlítar.
Guðrún Amdís fer létt með að
byggja upp myndflöt á strangflatar-
legum formum og viðhafa hér mikla
nákvæmnisvinnu — gæti auðveld-
lega haslað sér völl með glæsibrag
á þvf sviði.
Ymsum mun máski þykja það
fáránlegt, að ég kem auga á skyld-
leika milli þessara mynda og hinna
stóm umbúðalaust máluðu akryl-
mynda á pappír. En málið er, að í
þeim nær hún á köflum jafnvægi,
sem einungis er á valdi þeirra, sem
hafa myndbygginguna í blóðinu, og
nefni ég hér sérstaklega myndina
„Við höfnina" (12), sem er ekki
einasta kröftug og hamslaus, heldur
býr yfir jafnvægi, sem er sjaldgæft
að sjá í slíkum myndum hérlendis.
Leitt, að þessi mynd skuli ekki hafa
verið gerð á betra eftii, en mögu-
, 'l
íbúð í Kópavogi
Nýkomin til sölu mjög falleg 3ja herb. íb. á efri hæð í
fjórbhúsi við Kársnesbraut. Parket á gólfum. í kj. 1
herb. með sérinng. Stórar svalir. Bílsk. Fallegt útsýni.
Opið í dag frá kl. 13.00-16.00.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
^ /
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS'
L0GM J0H Þ0RÐARS0N H0L
Vorum að fá í sölu m.a.:
3ja herb. góða íb. v/ Drápuhlíð
f kj. um 75 fm nettó. Parket á gólfum. Sórhiti. Nýl. gler. Ákv. sala.
Góðar sérhæðir — Stórir bflskúrar
Kirkjuteig. Neðri hæð 91,9 fm. 4ra herb. Allt sér. Sólsv. Trjág.
Blönduhlíð. Efri hæö 117,4 fm. 5 herb. Sólrík forstofuherb. Trjág.
Skammt frá Borgarspítalanum. Neðri hæð (tvíb. 4ra herb. m/góðum
bílsk. 145 fm. Ný úrvals eign. Allt sór. Sérhönnuð fyrir fatlaöa. Teikn.
á skrifstofunni.
3ja herb. mjög góð ib. vlð Furugrund Kóp. á 1. hæö 67 fm nettó.
Nýl. Stórar sólsvalir. Fullgerö sameign.
Með útsýnl við Eyjabakkann. 4ra herb. mjög göð fb. á 3. hæð 88,5
fm nettó. Sór þvotta- og vinnuherb. Sólsv. Góð sameign. Verð aöeins
kr. 3-3,2 millj.
Ennfremur úrvalsgóðar 4ra herb. íbúðir í eftirsóttum hverfum borgarinnar.
2ja herb. íb. við
Jöklasel. Á 2. hæö 64,7 fm nettó. Ný endaíb. Sérþvhús. Ágæt sam-
eign. Langtímalán kr. 1,2 m. fylgir. Ákv. sala.
Básenda. 75,3 fm nettó. Stór og mjög góð lítiö niöurgr. í kj. Sérhiti.
Trjág. Þríb. Ákv. sala.
Nokkur einbýlishús
Höfum á skrá nokkur rúmg. einb.- og tvfbhús. Meðal annars í: Breið-
holti, Mosfell88veit, Garðabæ, Seltjarnanesi og Fossvogi. Nánari
upplýs. aðeins á skrlfstofunni. Telkningar fyrirl. á skrifstofunni.
Fjöldi fjársterkra kaupenda af íbúðum.
Einkum miösvæðis i borginni með bílskúrum. Sérhæðum í borginni og
nágrenni og ennfremur nokkrir mjög fjársterkir kaupendur að einb-
húsum og raðhúsum, sérstaklega aö eignum á einni hæö. Margskonar
eignaskipti möguleg. Margir kaupenda óska eftir góðum eignum
gegn útborgun.
Opiðfdag
kl. 10-12
og kl. 13-16
AIMENNA
FASTEIGNASALAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Guðrún Amdís Tryggvadóttir
legt væri að líma pappírinn á léreft,
festa á blindramma og ramma inná
einfaldan hátt. Þá sæju menn stór-
um betur, hve sterk og vel gerð
þessi mynd er í raun og veru.
Hinar stóru fígúratífu myndir
Guðrúnar eru og vel uppbyggðar,
þótt maður sé ekki jafnan sammála
útfærslunni. Það er vegna þess að
listakonan vinnur með hugmyndir,
sem liggja alls ekki í augum uppi,
og hér verður skoðandinn að lesa
á milli línanna líkt og í óræðum
skáldskap. Hér er hugmyndafræði
á ferð, sem á stundum gengur of
langt, t.d. í málverkinu. „Hetju-
mynd“ (6) þar sem hinn vel málaði
og svipsterki hestur virkar af holdi
og blóði, en riddarinn hugumprúði
líkast plastkalli. Myndin stendur
alveg fyrir sínu án riddarans, en
hér þurfti víst að umbylta hefð-
bundnu viðhorfí, þótt það sé alls
ekki neitt óvenjulegt, að maður sitji
hest. Hesturinn, sem sýnist á harða-
spretti, liggur bara flatur í grasinu,
sem ber svip af teppi og hefði það
allt verið nægilega frumlegt. Auk
þess er ekki sömu málunartækni
beitt á manninn, sem er öllu stífari
í formum og eitthvað svo óraun-
verulegur.
Andstæðar myndheildir falla bet-
ur saman í myndinni „Egypsk
mynd“ (7), og hér kemst hið dul-
ræna ágætlega til skila, jafnframt
því sem myndin er vel máluð.
Hið dulræna og trúarlega er stór
þáttur í myndsköpun Guðrúnar um
þessar mundir og mun vera liður í
sjálfskönnun.
Það er að mínu áliti rétt stefna
hjá Gu8ðrúnu að vinna að þeim
hugmyndum, sem sækja á hana
hveiju sinni, og það kann að bera
dijúgan árangur, þegar fram í sæk-
ir, og tímann hefur hún fyrir sér,
því að hún er einungis 28 ára.
Guðrún Amdís er víst engum að
þóknast nema sjálfri sér í þessum
myndum sínum, og það er aðal
hvers skapandi og metnaðargjams
listamanns. Menn verða svo annað
tveggja að leggja sig nokkuð fram
til að skilja myndhugsun hennar eða
melta hana við nánari kynni. Ennþá
er þetta svo nýtt og óvenjulegt, að
það kemur mörgum í opna skjöldu,
auk þess sem margur þykist sjá í
listakonunni meiri hæfileika en
fram koma á sýningunni.
Víst á Guðrún Amdís nóg í list-
rænum sarpi sínum, og nú er það
framtíðarinnar að skera úr um
hvemig henni nýtist sá forði. Lista-
konan er enn einu sinni að stokka
upp spilin og leggja land undir fót
og fylgja þessum línum bestu óskir
um giftudijúga athafiiasemi.
AUKATÓNLEIKAR
Tönlist
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá:
Mozart: Sinfónía nr. 40
Ravel: Gæsamömmu-svítan
Rachmaninoff: Píanókonsert
nr. 3
Einleikari:
Dimitris Sgouros
Stjórnandi:
Petri Sakari
Tónleikamir hófust á þeirri fer-
tugustu eftir Mozart, einhverri
fallegustu sinfóníu sem samin
hefur verið, þó einhveijir kenn-
ingamenn hafi talið verkið létt-
meti og lítinn vanda að semja
svona sætar „melódíur". Sinfóní-
an var vel íeikin undir stjóm
Sakari og ýmislegt skemmtilegt
dregið fram í litbrigðum og stefja-
leik verksins. Annað verkið var
„Gæsamamma", svíta sem notið
hefur töluverðrar hylli. Verkið er
ekki stórbrotið en fallega skifað
fyrir hljómsveitina og var margt
fallega hljómandi í flutningi henn-
ar. Þessi svíta er í fimm þáttum
og er fyrsti þátturinn aðeins tutt-
ugu taktar og heitir Dans þymi-
rósu. Annar þátturinn á að túlka
söguna um Tuma þumal, er hugð-
ist rata til baka með því að strá
brauðmolum þar sem hann fór en
uppgötvaði sér til undrunar, að
fuglamir höfðu borðað þá, svo
hann rataði ekki heim til sín.
Efni seinni þáttanna er einnig
tekið úr bamaævintýrum og er
þessi tónlist kjörin sem ballettefni
fyrir börn en heldur dauflegt tón-
verk, þó falleg sé, fyrir tónleika
sem þessa. Síðasta verkið á efnis-
skránni var þriðji píanókonsertinn
eftir Rachmaninoff. Snillingurinn
og undraunglingurinn Dimitris
Sgouros lék þennan erfiða konsert
eins og ekkert væri og með af-
brigðum vel. Hljómsveitin var
mun betur á verði með að halda
hljómaninni í skefjum en oft áður
og er það blátt áfram stór nauð-
syn í verkum eins og píanókon-
sertum eftir Rachmaninoff, því
ritháttur sá sem hann notar oft-
lega fyrir hljómsveitina er mjög í
ætt við „pedal“-hljóman píanósins
og á því að mynda eins konar
hljómrænan bakgmnn. Kunnátta
og tækni hins unga píanósnillings
em hreint undur og verður fróð-
legt að fylgjast með þroska hans
sem listamanns, en hann mun sem
betur fer hafa margvísleg önnur
áhugamál til að glíma við en tón-
listina og ætti því ekki að lokast
inni í „búningsherbergjum" tón-
leikasalanna, eins og frægur
píanóleikari sagðist hafa gert og
harmaði mjög.
Skora á deilu aðila að
leita allra leiða til sátta
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn
Samtaka foreldra- og kennarafé-
laga í grunnskólum Reykjavíkur
(SAMFOK);
kennarafélags og fjármálaráðu-
neytis vill stjóm SAMFOKS skora
á báða deiluaðila að leita allra leiða
við að ná samningum sem fyrst í
deilu þessari.
Dragist sættir á langinn verða
nemendur fyrir miklu tjóni, enda
þegar orðið verulegt.
Það er viðurkennt af öllum
stjómmálaflokkum að laun kennara
hafi verið óeðlilega lág, og hefur
það bitnað rnjög á skólastarfi. Góð
menntun er þjóðfélaginu nauðsyn,
fyrir því eru bæði efnahagsleg rök
og menningarleg, lýðræði byggir
og á menntun.
Nauðsynlegt er því að starfskjör
kennara séu bætt svo að starfið
verði eftirsóknarvert."
í stjóm Samtaka foreldra- og
kennarafélag í grunnskólum
Reykjavíkur eru Valgarður Egils-
son, Magnús Skúlason, María
Norðdahl, Erla Jóhannsdóttir og
Bogi Amar Finnbogason.
„Vegna kjaradeilu Hins íslenska
MEDEINUSfMTAU
erhægt að breyta innheimtuad-
2J2Uj2!tííIDI2HEin2iIHi23ííiíSÍ
argjöldin sku
viÖkomandi greiðslukortareikn-
SIMINNER
691140
691141