Morgunblaðið - 28.03.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MARZ 1987
13
BRIPS
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Kvenna
Eftir þijár umferðir í parakeppni
félagsins er staða efstu para orðin
þessi:
Lovísa Eyþórsdóttir —
Garðar Sigurðsson 399
Sigrún Pétursdóttir —
Sveinn Sigurgeirsson 371
Nanna Ágústsdóttir —
Sigurður Ámundason 364
Guðrún Jörgensen —
Þorsteinn Kristjánsson 364
Ingibjörg Halldórsdóttir —
Sigvaldi Þorsteinsson 363
Soffía Theodórsdóttir —
Eggert Benónýsson 349
Aldís Schram —
Ellert B. Schram 350
Erla Eggertsdóttir —
Hálfdán Hermannsson 346
Ólafía Jónsdóttir —
Baldur Ásgeirsson 345
Þorgerður Þórarinsdóttir —
Ólafur Als 345
Fjórða umferðin verður spiluð
næsta mánudag í Sigtúni 9.
Bridsfélag
Tálknafjarðar
Sveitakeppni félagsins auk með
sigri sveitar Ævars Jónassonar.
Með honum voru: Jón H. Gíslason,
Guðlaug Friðriksdóttir og Steinberg
Ríkharðsson.
Röð sveitanna varð þessi:
Sv. Ævars Jónassonar 63
Sv. Brynjars Olgeirssonar 46
Sv. Bjöms Sveinssonar 34
Sv. Guðmundar S. Guðm. 30.
Annan mánudag hefst svo
þriggja kvölda firmaeinmennings-
keppni.
Opna Daihatsu-stór-
mótið á Loft-
leiðum um páskana
Yfír 30 pör eru þegar skráð til
leiks á opna Daihatsu-stórmótið,
sem spilað verður á Loftleiðum á
skírdag og föstudaginn langa. Eins-
og fram hefur komið er þetta
veglegasta bridsmót sem haldið
hefur verið á Norðurlöndum til
þessa. Heildarverðmæti vinninga
eru á sjöunda hundrað þúsund.
Aðeins er gert ráð fyrir þátttöku
42 para (barometer m/3 spilum
milli para, alls 123 spil) og rennur
frestur til skráningar út miðviku-
daginn 8. apríl nk. Skráð er hjá
Bridssambandi íslands, hjá Stefáni
Pálssyni og Suðurlandsvideó á Sel-
fossi (Aðalsteini Jörg.), auk þess
sem skráð er á spilakvöldum hjá
Bridsfélagi Reykjavíkur næstu tvo
miðvikudaga. Keppnisgjald er að-
eins kr. 7.000 á par, sem verður
að teljast í lægri kantinum, þar sem
þau renna öll til verðlauna. Spilað
verður um silfurstig og Agnar Jörg-
ensson mun sjá um stjómun.
Utreikningur fer fram í tölvu undir
stjóm Kristjáns Haukssonar.
Opna Daihatsu-stórmótið er opið
öllum spilurum. Engin takmörkun
verður á þátttöku, stigalega séð eða
búsetulega séð. Þeir sem skrá sig
fyrstir ganga fyrir.
Vakin er sérstök athygli á því,
að keppnisgjaldið, kf. 7.000 pr.
par, verður að greiðast í síðasta
lagi miðvikudaginn 8. apríl, vegna
fyrirkomulags. Greiðslu má koma
til Ólafs Lárussonar hjá BSÍ, póst-
hólf 272 — 121 Reykjavík eða beint
í Sigtún 9.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
381. þáttur
Ég er stundum í vandræðum
með orðið snjór. Hvemig er það
t.d. í eignarfalli eða bara í fleir-
tölu? Er eignarfallið snjós,
snjóvar eða snjóar? Er fleirtal-
an snjóvar eða snjóar? Ámi
Böðvarsson hefur líka verið í
vanda um þetta, þegar hann
samdi orðabókina miklu, því að
hann hefur þar alla möguleikana
sem ég spurði um hér að framan.
Nú má segja að orðið snjór
sé einnig til í afbrigðunum snjár
og snær. Er þetta allt talið sama
orðið í Fritzner. Ekki fer milli
mála um upphaflega beygingu.
Þetta var (eða þetta voru) wa-
stofn(ar). Eignarfall eintölu
hefur þá verið snjóvar, snjávar,
snævar, þágufall eintölu snjóvi,
snjávi, snævi og nefnifall fleir-
tölu eins og eignarfall eintölu.
En ýmislegt í beygingarending-
um wa-stofna hefur reynst
endingarillt, einkum vi-endingin
í þágufalli eintölu, sbr. þó snævi,
þakinn.
Hyggjum annars að nokkmm
gömlum dæmum, þar sem ein-
hveijar myndir af snjór, snjár,
snær koma fyrir, sbr. einnig
mismunandi samsetningar eins
og Snjófríður, Snjáfríður og
Snæfríður.
í Grágás segir (um bamskím-
ir): „Nú náir eigi vatninu eða
sjó, getr snjó, hann skal gera
krossa á snænum ok kveða slík
orð yfir, sem hann skyldi á vatn-
inu, hann skal drepa baminu í
snæinn, hann skal bræða snæinn
með höndum sér ok ríða svá á,
at þat verði alvátt.“
í Baldurs draumi 5. vísu, seg-
ir:
Hvat er manna þat
mér ókunnra,
er mér hefir aukit
erfitt sinni?
Var ek snivin snjóvi
ok slegin regni
ok drifin döggu,
dauð var ek lengi.
Það er ekki dónalegt tal, að
hafa verið snivin(n) snjóvi.
Sjálfsagt hefur verið til í fymd-
inni * sníva — sneiv — snivum
— snivinn. í Fommanna sögum
segir: „Gerði at þeim veðr hörð,
ok fóru þeir villir — lagði á þá
snjáva ok útfærðir." Byskupa-
sögun „Þenna tíma vóru snjóv-
ar svá miklir á jörð, at menn
kómust varla bæja millum."
Heilagra manna sögur: „Fylgdi
hónum óvígr herr riddara, og
höfðu hvíta hesta, allir snjávi
hvítari," og enn í sömu ritum:
Karlkynið:
enginn
engan (öng(v)an)
engum (öng(v)um)
ft.
engir (öngvir)
enga (öng(v)a)
engum (öng(v)um)
engra (öngra)
„Þá sýndist allr líkami hans
snævi bjartari."
★
Þannig höfðu menn þetta í
gamla daga. En hvað skal nú
segja? Við erum úti f snjónum,
úti eru miklir snjóar, fénu er beitt
fram í fyrstu snjóa, vegna snjó-
anna voru hey á þrotum, en það
er eins og við veigrum okkur við
að hafa þetta orð í eignarfalli ein-
tölu snjósins, snóarins.
I stofnsamsetningum notum við
ýmist snjó-, snjá- eða snæ-, sbr.
kvennanöfnin fyrr í þessum kafla,
og alltaf fínnst mér þokki yfír
orðinu snjánám=leysing. Snær
hefur verið gert að skímamafni
karla, og verður eignarfallið af
því að vera Snæs, sbr. fomkonuna
Mjöll Snæsdóttur. Ef menn ætl-
uðu að nota eignarfallið Snævar,
tæki það að hljóma allt of líkt
nafninu Snævar(r):
Hér er orðið svo mikið af snjó
og mjöll, að blessaður Steinn er
farinn að hljóma í eyrum mér:
Snjór, snjór.
Brimhvt mjöll.
Eins og frosin lík af ljósum,
eins og haf af hvitum rósum
hylur mjöllin spor þín öll.
★
En fleiri orð en snjór hafa
ýmsar afbrigðilegar myndir.
Óákveðna fomafnið enginn
(engi) er eitt þeirra. í sumum
föllum eru þar til myndir með
ö-hljóði eða öllu heldur au-
hljóði, eins og nú er tíðast að
bera fram á landinu. Karlkynið
beygist þannig:
hvorugkynið:
ekkert (ekki)
ekkert (ekki)
engu (öng(v)u)
ft.
engin (engi)
engin (engi)
engum (öng(v)um)
engra (öngra).
I Hávamálum segir:
Ong er sótt verri
hveim snotrum manni
an sér engu at una.
I erfíljóðum um Jónas
Hallgrímsson (eftir Konráð
Gíslason ?) stendun
Nú hhistum vér og hlusta munum löngum,
en heyrum ei — því drottinn viskuhár
vill ekki skapa skáldin handa öngum;
nú skiljum vér hvað missirinn er sár;
í allra disa óvild nú vér göngum.
Og Rögnvaldur Rögnvaldsson
kvað:
Eitt sinn fyrir óralöngu
áttaði drottinn sig á því,
að skapað gæt’ ’ann allt úr öngu,
ef hann bara nennti því.
kvenkynið:
engin (engi, öng)
enga (öng(v)a)
engri (öngri)
ft.
engar (öng(v)ar)
engar (öng(v)ar)
engum (öng(v)um)
engra (öngra)
CITROEN BX
BEINTÁ GÖTUNA FYRIR KR. 529.500,-*
..
G/obus?
Lágmúla 5, sími 681555
Umboðiö á Akureyri:
Gunnar Jóhannsson, sími 96-25684.
*Með ryðvörn,
skráningu og fullum bensíntanki.