Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987 41 Viðræður Jóns Baldvins fara fram í fundarsal Dagsbrúnar: Formenn flokkanna þriggja hittast einir á fyrsta fundi bak við þennan samning væri þing- meirihluti, en alþýðuflokksmenn myndu vilja ræða framkvæmd samnmgsins hans. við ábyrgðarmenn Viðræðurnar verða fjórþættar JÓN Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins greindi fréttamönnum frá því í gær að hann hefði ákveðið að kveðja forystumenn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks til við- ræðna við alþýðuflokksmenn um myndun ríkisstjórnar þessara þriggja flokka. Fyrsti fundurinn fer fram í fundarsal Dagsbrúnar við Lindargötu nú fyrir hádegi og munu formenn flokkanna verða þeir einu sem sitja þann fund. Jón Baldvin sagði á fundi með fréttamönnum síðdegis í gær, að hann hefði haft samráð við formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks um efni viðræðnanna, og niðurstaða þess samráðs væri sú að hann legði til að efni viðræðn- anna yrði fjórskipt: 1. Meginmarkmið fyrirhugaðs stjómarsamstarfs. 2. Fyrstu aðgerðir. 3. Verkefnaskrá fyrir kjörtímabi- lið. 4. Verkaskipting milli ráðuneyta og skiptin starfa milli ráðuneyta. Jón Baldvin ræddi við Steingrím Hermannsson, formann Framsókn- arflokksins íu rúman klukkutíma í gærmorgun og lýstu báðir sig án- ægða með þær viðræður að fundin- um loknum. Steingrímur hélt síðan þingflokksfund kl. 13 í gær, þar sem afstaða var tekin til þátttöku í formlegum viðræðum við Alþýðu- flokk og Sjálfstæðisflokk. Var samþykkt að ganga til þeirra við- ræðna, en greinilegt var á þing- mönnum, að fundi loknum að skoðanir eru skiptar um það hvort þessi tilraun geti borið árangur. Greinilegt var af máli Páls Péturs- sonar, formanns þingflokks Fram- sóknarflokksins að hann hafði ekki ýkja mikla trúa á að ný ríkisstjóm yrði ávöxtur þessara viðræðna. Sagðist hann fremur hafa kosið að ræða fyrst við Borgaraflokkinn. Allur þingflokkur Framsoknar- flokksins segist einhuga um að ekki komi til greina stjómarþátttaka Framsóknarflokksins undir forsæti Jóns Baldvins Hannibalssonar. „Þegar við göngum til einhvers hlutar, þá stöndum við yfirleitt sam- an,“ sagði Steingrímur Hermanns- son er hann var spurður hvort það yrði ekki erfitt fyrir forystu Fram- sóknarflokksins að fara út í þessar viðræður með svo mikla andúð við samstarf við Alþýðuflokk innan Framsóknarflokksins. Steingrímur sagði að Framsókn- arflokkurinn hefði ekki hafnað þeim möguleika að Þorsteinn Pálsson yrði forsætisráðherra í slíkri þriggja flokka ríkisstjórn, en það kæmi ekki til greina að samþykkja Jón Baldvin Hannibalsson, sem forsæt- isráðherra. A blaðamannafundi síðdegis í gær, sagði Jón Baldvin um þetta atriði: „Við höfum sagt að við viljum að það sé gengið þessara viðræðna á algjörlega nýjum grundvelli, þ.e. a.s. við ræðum um málefni, við ræðum um verkaskiptingu og við ræðum um foiystu og það er allt til umræðu og samkomulags.“ Jón Baldvin sagði að alþýðu- flokksmenn legðu höfuðáherslu á nýtt fjármálakerfi og umbætur á stjórnkerfi íslands. í öðru lagi legðu þeir áherslu á einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn, traustan fjárhags- grundvöll húsnæðislánakerfisins og löggjöf um kaupleiguíbúðir. Jón Baldvin tíundaði einnig önnur áhersluatriði Alþýðuflokksins, en sagði jafnframt að í viðræðum Hvítasunnukappreiðar Fáks: Góð þátttaka í skeiði en lak- ari í stökkinu í DAG hefst hvítasunnumót Fáks- manna eða öllu heldur „Hvíta- sunnukappreiðar Fáks“ eins og þessi samkoma hefur verið kölluð í áraraðir. Dagskráin byijar klukkan sex í dag með dómum á B-flokki gæðinga, þ.e. klárhestar með tölti. Mótið stendur yfir í fjóra daga en því lýkur mánudag, ann- an í hvítasunnu. Þátttaka í stökkgreinum kappreiða er mjög lítil og gæti jafnvel farið svo að 250 metra unghrossahlaup falli niður þar sem einungis tveir hest- ar eru skráðir til leiks. Er þessi lélega þátttaka talin afleiðing af því að flestir fremstu kappreiða- menn landsins hafa nú sagt skilið við stökkgreinamar og ekki talið ósennilegt að þessar greinar heyri fortíðinni til ef ekki verður eitt- hvað að gert. Á föstudag klukkan 18.00 hefj- ast dómar á A-flokki gæðinga og laugardag klukkan 9.00 mæta unglingar 13-15 ára til leiks á Asavelli og strax á eftir þeim yngri flokkur unglinga. Klukkan 10.00 hefst töltkeppni á Hvamm- svelli en dagskrá eftir hádegi byijar með úrslitum í báðum flokkum unglinga á Asavelli. Dagskrá laugardagsins lýkur með báðum sprettum í 150 metra skeiði og 300 metra brokki. Á annan í hvítasunnu byijar dag- skráin klukkan 13.00 með úrslit- um í A- og B-flokki gæðinga og úrslitum í töltkeppninni. Verðlaun verða afhent strax að loknum úrslitum. Dagskráin endar síðan með kappreiðum og verða það stökkgreinar og báðir sprettir í 250 metra skeiði. Þótt stökkið eigi í vök að veijast virðist ekkert lát á vinsældum skeiðsins og má búast við spennandi keppni nú um helgina. Þess er skemmst að minnast að á síðustu Hvítasunnu- kappreiðum á síðasta ári var sett met í 250 metra skeiði og var þar að verki Leistur frá Keldudal og nú er bara að bíða og sjá hvað gerist næstkomandi mánudag. þriggja aðila væri eðlilegt að hver um sig legði áherslu á sín sérmál, ekki síst flokkur sem verið hefði í stjórnarandstöðu, en ætlaði sér að ganga til samstarfs við flokka sem verið hefðu ábyrgir fyrir stjóm landsins. Hann kvaðst því fastlega gera ráð fyrir að hinir flokkarnir myndu leggja áherslu á sín sérmál. „En við erum líka að ræða um mál sem hljóta að sameina þessa flokka, ella væri ekki grundvöllur fyrir þ^ssum viðræðum," sagði Jón Bald- Jón Baldvin var spurður hvort hann mæti svör framsóknarmanna í gær á þann veg að þeir hygðust af fullri alvöm taka þátt í þessari tilraun, og kvaðst hann ekki vilja væna neinn aðila sem gengi til svo alvarlegs hlutar sem stjórnarmynd- unarviðræður væru að hann gerði það með hangandi hendi eða hálfum huga. Hann sagði að landbúnaðarmálin yrðu erfíð í þessum viðræðum, en búvöruverðssamningurinn væri staðreynd sem ekki yrði breytt. Á Sjálfstæðismenn hafa lýst sig reiðubúna til þátttöku í þessum við- ræðum og þeir gera sér vonir um að þær geti skilað þeim árangri að starfhæf meirihlutastjóm verði mynduð, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Þeir leggja mikla áherslu á að farið sé út í þessar viðræður af fullri alvöru, en að þær séu ekki eins konar millileikur fyrir einhveija aðra stjómarmyndunartil- raun. Þeir sem taka þátt í þessum við- ræðum fyrir hönd Alþýðuflokks eru Jón Baldvin Hannibalsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson. Fyrir hönd Sjálfstæðisflokk verða þeir Þorsteinn Pálsson, Friðrik Sop- husson opg Ólafur G. Einarsson og fyrir hönd Framsóknarflokks þeir Steingrímur Hermannsson, Halldór Ásgrímsson og Guðmundur Bjama- son. Morgunblaðið/KGA Það var fjölmenni á fundi Jóns Baldvins Hannibalssonar formanns Alþýðuflokksins í gær, þar sem hann greindi fréttamönnum frá því að formlegar stjómarmyndunarviðræður Alþýðuflokks, Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks hæfust í dag. '~-rxT "hzr ’ST "1S8r '’rer *’?£>' 'ra *^T 'ast ■rer' 'vsf •rer 13 14 13 16 17 ‘ * 18 19 ’ 20 21 22 25 24 ~ 25 ■sar ‘%5r *55T 27 28 29 Encyclopædia Britannica 1987^ Fyrsta sendingin af 1987 útgáfunni er komin. 32 bindi + 1987 árbókin. Útborgun aðeins kr. 7.600,- og kr. 3.950,- á mánuði í 12 mánuði. Fjárfesting sem vit er L Bókabúð Steinars, 3S"7’
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.