Morgunblaðið - 16.04.1991, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 16.04.1991, Blaðsíða 59
MORQUNBLAÐIE) ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL, J9?l 59 " Böðvar Tómasson Akureyri - Minning Fæddur 10. ágúst 1910 Dáinn 7. apríl 1991 Hann Böðvar afi okkar er nú dáinn. Hann fæddist á Bústöðum í Austurdal í Skagafirði, sonur hjón- anna Þóreyjar Sveinsdóttur og Tómasar Pálssonar, bónda og odd- vita þar. Hann var einn af sjö systk- inum en auk þess ólu foreldrar hans upp tvær fósturdætur, þær Önnu Sveinsdóttur og Sólborgu Bjarna- dóttir. Elst systkinanna var Olafur, fæddur 12. júní 1901, annar í röð- inni var Páll, fæddur 4. október 1902, þriðji Sveinn fæddur 30. júlí 1904, fjórði Eyþór Helgi, fæddur 16. desember 1906, fimmti Guð- mundur, fæddur 3. júní 1908, sjötti var Böðvar og sjöunda Anna Þor- björg, fædd 25. janúar 1915, en hún dó ung. Þetta var stór stráka- hópur og skildist okkur á afa, að þar hefði oft verið fjör á ferðum og ýmislegt brallað. Afi og amma, Kristín Jóhannes- dóttir frá Syðra-Hvarfi í Skíðadal giftu sig 14. maí 1938. Þau bjuggu lengst af í Helgamagrastræti 49 á Akureyri, en amma dó fyrir 10 árum. Það var alltaf gott að koma í Helgamagrastræti til afa og ömmu. Minnisstæðastar eru samveru- stundirnar með þeim þegar við bræðurnir vorum litlir og komum í heimsókn til þeirra. Þá sagði hann okkur ýmsar sögur, t.d. söguna um Smjörbítil sem okkur þótti alltaf jafn skemmtileg. Það rifjast upp í huga okkar ýmsar góðar minningar um okkar Ijúfa og elskúlega afa. Afi var ekki eyðslusamur en var gestrisinn og hafði mjög gaman af því þegar ein- hver leit inn til hans. Hann passaði alltaf að eiga kökur með kaffinu og konfekt í búrinu. Manni fannst maður alltaf svo hjartanlega vel- kominn. Minning: Fæddur 5. ágúst 1914 Dáinn 7. apríl 1991 Hans Benedikt Garðar Bene- diktsson, eins og hann hét fullu nafni, fæddist 5. ágúst 1914 í Gerð- um í Garði. Hann lést að morgni sunnudagsins 7. apríl sl. á St. Jós- efsspítala í Hafnarfirði. Garðar var fimmta barn foreldra sinna Hansínu Marie Sentsíus Karlsdóttur og Benedikts Sæmundssonar. Faðir Garðars lést er móðir hans gekk með hann rétt ófæddan. Að þeirra tíðar hætti, þegar fyrii-vinnan var fallin frá, tvístraðist heimilið og eru til margar sorglegar sögur af slíku, bæði fyrr og síðar, en það skal ekki rakið hér. Hansína þurfti að láta börnin frá sér. Garðar fór þá til hjónanna Sigríðar Árnadóttur og Þórarins Eyjólfssonar er bjuggu í Kóngsgerði í Leiru. Garðar fer með fósturforeldrum sínum til Hafnarfjarðar er þau flytjast þang- að í hús sitt við Kirkjuveg er þau nefndu Kóngsgerði. Garðar er hjá þeim þar til hann stofnar sitt eigið heimili. Systkini Garðars voru: Klara Ólafía, Benedikt, Guðjón og Njáll. Af þeim lifa aðeins Guðjón og Njáll. Fóstursystkini hans voru: Katrín, Eyjólfur, Björn, Siguijón og Helgi. Áf þeim lifír aðeins Helgi. Eins og öllum mátti ljóst vera er tímar liðu, að mesta gæfuspor lífs sins steig Garðar 14. október 1939 er hpnn gekk að eiga Kristínu Sigurðardóttur, en foreldrar hennar voru Margrét Ólafsdóttir og Sigurð- ur Þórðarson sem aldraðir Hafnfirð- ingar minnast sem vellátins heið- ursfólks og hið sama má reyndar Nú þegar hann er farinn burt finnst manni að heimsóknir til hans hefðu mátt vera fleiri og meira hefði mátt fyrir hann gera. Hann afi var nefnilega svo nægjusamur og hógvær að hann bað sjaldan um aðstoð eða hjálp enda var hann allt- af duglegur að bjarga sér. Afi var líka mjög vinnusamur. Við munum t.d. vel eftir því þegar pabbi var að byggja viðbygginguna við húsið okkar, þá var afi óðfús að hjálpa til. Hann var einnig mjög vandvirkur smiður eins og sést best á húsgögnunum í Helgamagra- stræti. Við erum þakklátir fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur og fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Biessuð sé minning hans. Böðvar og Hlynur Tómassynir Böðvar Tómasson fæddist á Bú- stöðum, Lýtingsstaðarhreppi í Skagafirði þann 10. ágúst 1910. Böðvar kvæntist Kristínu Jóhannes- dóttur frá Syðra-Hvarfi í Svarfað- ardal og bjuggu þau öll sín búskap- arár á Akureyri. Böðvar var bygg- ingameistari og vann við húsasmíð- ar á Akureyri. Hann byggði þar mörg hús og eitt þeirra var hús þeirra Ujóna á Helgamagrastræti 49. Þau hjónin eignuðust einn son, Tómas Búa, sem starfar sem slökkviliðsstjóri á Akureyri. Hann er kvæntur Ragnheiði Stefánsdótt- ur og eiga þau tvo syni, Hlyn og Böðvar. Núna þegar Böðvar vinur minn hefur kvatt þennan heim koma upp í huga minn svo margar ljúfar minningar frá liðnum sumardögum á Helgamagrastræti 49. Einhvern veginn finnst mér eins og það hafi alltaf verið sólskin í garðinum hans Böðvars og rósirnar í gróðurhúsinu síblómstrandi. segja um fóstursystkini Garðars, er ég þekkti til. Garðar og Kristín voru samhent um að búa sér vist- legt og fagurt heimili. Garðar og Kristín stofnuðu fyrst heimili í Kóngsgerði, síðar bjuggu þau í eig- in húsnæði á Krosseyrarvegi 8, en lengst af á Hverfisgötu 7. Nokkur ár bjuggu þau á Miðvangi 8 og síðan á Hjallabraut 33. Börn þeirra hjóna eru: Sigurður Þór, Grétar Már, kvæntur Soffíu Karlsdóttur og eiga þau 4 syni; Kristinn Garðar, kvæntur Maríu Sigurðardóttur, eiga þau 2 syni, og Særún gift Magnúsi Jóhannssyni og eiga þau 2 dætur. Þá fæddist þeim drengur er dó samdægurs óskírður. Barnabörnin eru orðin 5. Garðar hóf ungur störf hjá Sigur- jóni Jóhannssyni við bólstrun. Þegar aldur leyfði hóf hann leigubifreiða- akstur og einnig akstur hjá Áætlun- arbifr. Hafnarfjarðar á milli Iiafn- arfjarðar og Reykjavíkur. 1. maí 1953 hóf Garðar störf sem bruna- vörður og síðar varðstjóri hjá slökkviliði Hafnarfjarðar og starf- aði þar óslitið til ársins 1983 eða í 30 ár er hann lét af störfum vegna aldurs. Garðar gegndi oft störfum stjórnanda slökkviliðsins í forföllum og afleysingum og reyndist farsæll í störfum sínum. Garðar hefur oft sem slökkviliðs- maður orðið að gegna útköllum bæði á nóttu og degi og háð bar- áttu í hita eldsins. Nú hefur Garðar gegnt síðasta kallinu, sem allir verða að gegna. Að leiðarlokum skulu honum færðar þakkir okkar slökkviliðsmanna. Megi góður Guð leiða hann styrkri hendi um ókomin Fyrsta heimsókn okkar hjónanna þangað var meðan Kristín kona Böðvars var enn á lífi, en hún var ömmusystir Ólafs mannsins míns. Kristín lést árið 1981 og veit ég að það var Böðvari mikill missir og hann saknaði hennar sárt. Vinátta okar helst óbreytt áfram og við heimsóttum hann oft eftir að hann var orðinn einn. Það var altaf jafngott að vera hjá honum Böðvari. Hans rólega viðmót, hóg- værð og hlýja hafði svo góð áhrif á okkur, spennta borgarbúana. Það var aldrei neinn asi á Böðvari og varð það oft til þess að ferðinni suður var frestað um einn dag eða tvo. I huga mínum eru Böðvar og Akureyri svo samofin að Akureyri verður aldrei söm fyrir mér þegar Böðvar er ekki lengur þar. Á þessum tímum hraða og spennu er svo dýrmætt að fá að kynnast manni eins og Böðvari, því trygglyndari manni hef ég sjaldan kynnst. Ég vii með þessum fátæk- legu línum þakka honum allt það sem hann var okkur. Við hjónin sendum Tómasi Búa og fjölskyldu okkar dýpstu samúð- arkveðjur og biðjum algóðan Guð að blessa minninguna um góðan föður, tengdaföður og afa. Guðrún Ása Brandsdóttir tilverustig. Jesús sagði: Ég lifi og þér munuð lifa. Sig. Þórðarson Hann afi Garðar er dáinn, horfinn okkur. Þessi lífsglaði og félagslyndi maður, sem var okkur svo góður og hlýr. Afi barðist hetjulega við ólækn- andi sjúkdóm í rúm tvö ár, og þeg- ar honum fór að hraka, var það ástríkri umönnun ömmu Stínu að þakka hversu lengi hann gat verið heima. Við erum þakklát fyrir stundirnar sem við áttum með afa Garðari, og biðjum góðan Guð að styrkja ömmu Stínu og okkur öll í sorginni. Gegnum Jesú helgast hjarta í himininn upp ég líta má, Guðs míns ástar birtu bjarta bæði fæ ég að reyna og sjá, hryggðarmyrkrið sorgar svarta sálu minni hverfur þá. (H.P.) Guð blessi minningu afa Garð- ars, hún lifir. Baniabörn og barnabarnabörn : Garðar Benedikts- son yfirvarðstjóri + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HREIÐAR LEVÝ JÓNSSON, Grettisgötu 71, Reykjavík, andaðist í Landspítalanum 14. apríl. Auður Ása Benediktsdóttir, Hildur Hrönn Hreiðarsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Ingibjörg Hreiðarsdóttir, Guðmundur Magnússon, Bogey R. Hreiðarsdóttir, Benedikt Sigurðsson, Logi Snævar Hreiðarsson, Helga Völundardóttir, Hreiðar Hugi Hreiðarsson, Rósa Waagefjörð og barnabörn. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI ÓLAFSSON bakarameistari, Dalbraut 21, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 19. apríl kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Kristín Einarsdóttir, Anna Gísladóttir, Einar Ó. Gíslason, Friðgerður Samúelsdóttir, Erlingur Gíslason, Brynja Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI HALLDÓR ÁRNASON, Suðurgötu16, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju miðvikudaginn 17. apríl kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness eða dvalarheimilið Höfða. Steinunn Þórðardóttir, Bjarni Ó. Árnason, SigríðurÁrnadóttir, Þórður Árnason, Emilía Petrea Árnadóttir, Ingibjörg Árnadóttir, Sigrún Arnadóttir, Árni Sigurður Árnason, Ólína Elín Árnadóttir, Steinunn Árnadóttir, Guðmundur Árnason, Aslaug Hjartardóttir, Kristján Kristjánsson, Sesselja Engilbertsdóttir, Guttormur Jónsson, Sigurður Ingimarsson, Jón Sverrisson, Sigrún Traustadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir og tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBORG SUMARLÍNA JÓNSDÓTTIR frá Suðureyri, Súgandafirði, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. apríl kl. 13.30. Ása Bjarnadóttir, Eyjólfur Bjarnason, Guðrún Bjarnadóttir, Þórhailur Bjarnason, Andrés Bjarnason, Anna Bjarnadóttir, Páll Bjarnason, Karl Bjarnason, Arnbjörg Bjarnadóttir, Borghildur Bjarnadóttir, Hermann Bjarnason, barnabörn og Vilhjálmur Óskarsson, Guðfinna Vigfúsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Magnús Hagalínsson, Sigrfður Gissurardóttir, Hiidur Þorsteinsdóttir, Eðvarð Sturluson, Jón Björn Jónsson, Pricilla Stockdale Bjarnason, barnabarnabörn. LOKAÐ Lokað frá kl. 12.00 vegna jarðafarar RÖGNU E. WENDEL. A. Wendel hf., umboðs- og heildverslun, Sörlaskjóli 26. Lokað Lokað í dag frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar SNORRA BRYNJÓLFSSONAR. Peysudeildin, Laugavegi 84. Lokað í dag frá kl. 12.00 vegna jarðarfarar RÖGNU E. WENDEL. H.P.H. díselvélaviðgerðir, Eldshöfða 16.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.