Morgunblaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 132. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Finna ummerki um fjöldagrafir Pristina, Washington, Belgrad, Moskvu, Kacanik. Reuters, AFP, AP. KFOR-FRIÐARGÆSLULIÐAR undir stjórn Atlantshafsbandalags- ins (NATO) fundu í gær að talið er þrjár fjöldagrafir 91 Kosovo-Al- bana í nágrenni Kacanik í suðurhluta Kosovo. Að sögn íbúanna gengu serbneskir hermenn berserksgang um þrjú þorp í nágrenni Kacanik, Rumjeva, Kothimce og Stagov, 8. og 9. apríl síðastliðinn. Sögðu íbú- arnir að hermennirnir hefðu drepið alla þá sem á vegi þeirra urðu, þar á meðal þriggja mánaða gamalt stúlkubarn, eftir að hafa lotið í lægra haldi í bardaga við liðsmenn Frelsishers Kosovo (UCK). Reynist frásagnir íbúanna réttar eru þetta fyrstu fjöldagrafir sem friðargæsluíiðar NATO finna í Kosovo og óttast menn að þær kunni að vera mun fleiri. Serbneskir hermenn og óbreytt- ir borgarar héldu þúsundum sam- an leið sína frá Kosovo á móti straumi KFOR-friðargæsluliða, sem sl. daga hafa aukið umfang friðargæslunnar í héraðinu. Spenna skapaðist víða í Kosovo er serbneskir íbúar hlóðu óttaslegnir farartæki sín og rútur áður en þeir yfirgáfu héraðið, en þeir hræðast margir hveijir endurkomu Albana í hefndarhug. Alþjóðlegi Rauði krossinn áætlar að yfir 11.000 Serbar hafi yfirgefið Kosovo frá því að friðarsamkomu- lag var undirritað í síðustu viku. Segja samvinnu við Rússa vera lykilatriði Eftir óvænta atburði helgarinn- ar, er um 200 rússneskir hermenn skutu NATO ref fyrir rass og héldu inn í Pristina, héraðshöfuð- borg Kosovo, og hertóku flugvöll- inn þar, héldu ráðamenn í Rúss- landi og Bandaríkjunum áfram að ræða hlutverk Rússa í KFOR-frið- argæsluliðinu. Að loknu símasamtali Bill Clint- ons, forseta Bandaríkjanna, við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, var ráðgert að William Cohen, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, og Igor Sergeyev, vamar- málaráðherra Rússlands, funduðu í Helsinki í vikunni til að leggja lokadrög að samkomulagi um hlut- verk Rússa í KFOR. Eru vonir bundnar við að sáttir um málið ná- ist fyrir helgi. „Við höfum náð verulegum ár- angri í dag,“ sagði Madeleine Al- bright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, er hún tilkynnti fund þeirra, en hún mun einnig funda með Igor Ivanov, utanríkisráð- herra Rússlands, í Finnlandi. Joe Lockhart, upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, sagði það lykilatriði að Rússar ynnu með NATO að friðar- gæslu í héraðinu og að allar her- sveitir Rússa yrðu undir sama hatt settar. ■ Árásir, eyðilegging/30-31 Reuters BRESKUR friðargæsluliði krýpur þar sem talin er vera fjöldagröf 91 Kosovo-AIbana í Kacanik í suðurhluta Kosovo. Slobodan Milosevic, forseti Júgóslavíu, ávarpar landa sína Reuters SLOBODAN Milosevic, forseti Júgóslavíu, heilsar íbúum Beska sem fögnuðu komu hans í gær. Stjórnir Belgíu og Ltíxemborgar féllu í þingkosningum um helgina Díoxín-hneykslið felldi Dehaene Brussel, Lúxemborg. Reuters. Boðar tíma endur- reisnar Belgrad. Reuters. SLOBODAN Milosevic, forseti Jú- góslavíu, sagði löndum sínum í gær að hið versta væri nú yfirstaðið fyrir Júgóslavíu og „nú er friði hefði verið komið á á ný, væri tími uppbyggingar runninn upp.“ Þetta er í fyrsta skipti sem forsetinn kemur opinberlega fram frá því hann tilkynnti þjóð sinni friðar- samkomulagið um Kosovo í sjón- varpi sl. fimmtudag. A sama tíma tilkynnti öfgaþjóð- emissinninn og aðstoðarforsætis- ráðherra Serbíu, Vojislav Seselj, að hann, ásamt fimmtán ráðherrum úr Róttæka flokknum (SRS), myndi ganga úr ríkisstjóminni. Astæðan er andstaða flokksmanna við þann hluta friðarsamkomulagsins sem felur í sér að hermenn NATO stígi fæti á ,júgóslavneska jörð“ eins og Seselj komst sjálfur að orði. „Okkur hefur ekki einungis tek- ist að verja móðurland okkar á hetjulegan hátt, heldur einnig að fá tryggingu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) fyrir sjálfstæði okkar og óskertu landsvæði Júgósiavíu," sagði Milosevic í ræðu sem hann hélt við athöfn sem markaði upp- haf endurgerðar á brúnni yfir Dóná í Beska, þorpi í um 20 km fjarlægð frá Novi Sad, héraðshöf- uðstað Vojvodina í Serbíu. Er brú- in eitt af mörgum mannvirkjum sem eyðilögðust í loftárásum Atl- antshafsbandalagsins á Jú- góslavíu. I kjölfar friðarsamkomulagsins hafa margir haldið því fram að tími Milosevic sé brátt á enda, ekki síst þar sem Vesturlönd hafa lýst því yfir að engu fjármagni muni varið til uppbyggingar í Serbíu svo lengi sem Milosevic er við völd. Fjarar undan Milosevic Nú er SRS, einn af þremur stjóm- araflokkum Serbíu, hefur hætt í rík- isstjóm þykir halla enn frekar und- an fæti fyrir forsetanum þar sem hann hefur sótt stóran hluta stuðn- ings síns í þinginu til SRS. I grein eftir John Simpson, fi'éttastjóra erlendra frétta BBC er birtist í The Daily Telegraph, segir hins vegar að margt bendi til að Milosevic sé ekki á förum. Hefur Simpson til að mynda eftir samstarfsmanni Milosevic að hann hafi áunnið sér traust meðal margra fyrir að ætla sér ekki að flýja þá að- stöðu sem hann er kominn í, ekki síst vegna ákæm stríðsglæpadóm- stóls SÞ fyrir glæpi gegn mannkyni. Ennfremur segir heimildarmaður hans Milosevic vera hæfastan til að stjóma landinu. Segir Simpson sannleikskorn að finna í þeim ummælum. Til að mynda hefur stjómarandstaðan í Serbíu sjaldan verið klofnari en nú og þeir sem líklegastir hafa verið taldir til að taka við af Milosevic hafa einnig verið ákærðir fyrir stríðsglæpi. STJÓRNIN í Belgíu féll í þingkosn- ingum sem fram fóm í landinu á sunnudag og afhenti Jean Luc- Dehaene, forsætisráðherra Belgíu, Alberti konungi afsagnarbeiðni sína í gær. Sagði Dehaene líklegt að hann hætti alfarið afskiptum af stjómmálum í kjölfar ósigurs Kristilega demókrataflokksins (CVP) í kosningunum. Stjórnin í Lúxemborg féll einnig í þingkosn- ingum á sunnudag, en kosningarnar í Belgíu og Lúxemborg vora haldn- ar samhliða kosningum til Evrópu- þingsins, sem fram fóru í öllum fimmtán aðildarlöndum Evrópu- sambandsins. „Ég mun taka sæti á næsta þingi en á þessari stundu veit ég ekki hvort ég muni sitja þar kjörtímabil- ið á enda,“ sagði Dehaene, sem er 58 ára gamall og hefur verið forsaet- isráðherra Belgíu frá 1992. „Ég fæddist ekki inn í stjórnmálin og ég ætla sannarlega ekki að verða elli- dauður í þeim.“ Dehaene kvaðst taka fulla ábyrgð á kosningaósigri CVP, sem talinn er eiga rætur að rekja til díoxín-meng- unarhneykslisins sem kom upp í Belgíu aðeins þremur vikum fyrir kosningarnar, og að hann myndi hætta formennsku í flokknum. Allir fjórir stjórnarflokkamir töpuðu reyndar fylgi en frjálslyndir og græningjar, sem vom í stjómarand- stöðu, bættu hins vegar við sig. Eftir að rannsóknir leiddu í Ijós að finna mátti díoxín-eiturefni í belgískum kjötvöram og eggjum hafa flest lönd í heiminum sett bann við innflutningi belgískra matvæla, og átti Dehaene von á því að belgískur efnahagur myndi fara í gegnum miklar þrengingar vegna málsins og að nauðsynlegt væri að ný stjórn tæki við sem allra fyrst svo bregðast mætti við vandanum. Fjöldi flokka er í Belgíu og er gert ráð fyrir að það muni reynast erfitt að mynda nýja ríkisstjórn í landinu. Dreifðust atkvæði með þeim hætti í kosningunum nú að næsta stjóm mun þurfa að verða fjölflokkastjórn, með þrjá til fjóra stjómmálaflokka innanborðs. Einnig stjómarskipti í Lúxemborg Stjórnin í Lúxemborg féll einnig í þingkosningum á sunnudag eftir að sósíalistar, sem stýrt hafa landinu ásamt kristilegum demókrötum (CSV) um fimmtán ára skeið, hlutu slæma útreið. Líklegt þótti að Jean- Claude Juncker, forsætisráðherra og leiðtogi CSV, myndi þegar hefja stjómarmyndunarviðræður við frjálslynda (DP). Niðurstöður þingkosninganna í Belgíu og Lúxemborg vora talsvert aðrar en niðurstöður Evrópukosn- inganna, en lokið var við talningu vegna þeirra í gær. Meginniðurstöð- ur kosninganna vora þær að vinstri flokkar og jafnaðarmenn fengu víða ráðningu, en mið- og hægriflokkar styrktu stöðu sína. ■ Vinstriflokkum/29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.