Fréttablaðið - 25.04.2007, Blaðsíða 41
Aðdáendur Bjarkar Guð-
mundsdóttur verða í
lykilhlutverki við gerð
myndbands við lagið
Innocence. Lagið er það
fyrsta af nýrri plötu
Bjarkar, Volta, sem gert
verður tónlistarmynd-
band við.
Á aðdáendasíðunni
bjork.com er efnt til
samkeppni, þar sem
fólki gefst færi á að gera
myndband við lagið.
Samkvæmt heimasíð-
unni er hugmyndin
komin frá Björk sjálfri,
og það verður jafn-
framt hún sem velur
besta myndbandið. Höf-
undur þess fær svo að
vinna með söngkonunni
við að leggja lokahönd á
verkið og feta þar með
í fótspor ekki óþekktari
manna en Spike Jonze
og Michel Gondry.
Á síðunni má nálgast myndir
af listaverkinu sem Björk klæð-
ist á umslagi plötunnar. Þar má
einnig finna hlekk á lagið sjálft,
sem og texta. Engar reglur gilda
um myndbandið aðrar en þær
að því þarf að skila í Quicktime
skjali, og að það þarf að hafa bor-
ist í byrjun júlí. Sigurvegarinn
og söngkonan munu hins vegar
leiða saman hesta sína í byrjun
ágúst. Nánari upplýsingar fást
með því að skrá sig á póstlista
keppninnar.
Samkeppni um
nýtt myndband
Vefritið GetReykjavík stendur
fyrir hæfileikakeppni fyrir upp-
rennandi tónlistarfólk í samstarfi
við Ölgerð Egils Skallagríms-
sonar og Reykjavík FM 30. apríl
næstkomandi. Keppnin sjálf fer
fram í Iðnó, en áheyrnarprufur
verða haldnar á Barnum í kvöld
og annað kvöld. Prufurnar eru
opnar fólki á öllum aldri, en skil-
yrði fyrir þátttöku er að keppend-
ur hafi ekki gefið út tónlist áður,
að netinu undanskildu.
„Það eru náttúrulega til nokkr-
ar tónlistarkeppnir, eins og bara
Músíktilraunir, en það eru allt-
af einhver aldurstakmörk,“ sagði
Carmen Jóhannsdóttir, ritstýra
GetReykjavík. „Það er fullt af
fólki í bænum sem hefur ekki gefið
neitt út nema á netinu, til dæmis
á Myspace, sem hefur ótrúlega
mikið „potential“. Við viljum bara
fá sem flesta til að koma,“ sagði
hún. GetReykjavík velur átta til
tíu keppendur úr áheyrnarprufun-
um sem fá að stíga á svið í Iðnó.
Það er til mikils að vinna fyrir
tónlistarfólk, því í fyrstu verðlaun
er útgáfusamningur og stúdíótími
í boði Cod Music. Í önnur verð-
laun er Logic Pro upptökuforrit
frá Apple.
Áheyrnarprufur fara fram á
milli 18 og 23 í kvöld og annað
kvöld. Keppnin í Iðnó, mánudag-
inn 30. apríl, hefst klukkan 22.
Útgáfusamningur í verðlaun
Rithöfundurinn Óttar Mart-
in Norðfjörð hefur sent frá
sér nýja bók. Í bókinni segir
frá afmælisveislu Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar at-
hafnamanns.
„Bókin er um það þegar Jón Ás-
geir heldur upp á afmælið sitt. Í
sögunni fær hann Michael Jack-
son til að spila. Hann býður svo
Davíð Oddssyni, Brad Pitt og fleira
frægu fólki og brallar svo eitthvað
með Kára Stefánssyni til að slá
endanlega út allar fyrri veislur,“
segir Óttar Martin Norðfjörð sem
var að gefa út sína fyrstu teikni-
myndasögu, Jón Ásgeir og afmæl-
isveislan.
„Hann ætlar að nota tækifær-
ið og hefna sín á Davíð í veislunni
en Davíð ætlar líka að gera það
þannig að þetta verður eins og í
Shakespeare-leikriti með tvær
andstæðar fylkingar. Jón Ásgeir
hefnir sín og Davíð hefnir sín á
móti, svo endar þetta auðvitað á
grand finale í lokin,“ segir Óttar.
„Kveikjan að bókinni voru allir
þessir ríku karlar sem hafa verið
að halda afmælisveislurnar sínar
undanfarið og hvernig þeir virð-
ast alltaf vera að reyna að toppa
hver annan. Halda dýr-
ari veislur og fá fræg-
ari skemmtikrafta.
Út frá þessu fór ég
að spá í hvernig það
yrði eiginlega þegar
Jón Ásgeir héldi upp
á afmælið sitt en
hann verður fertugur
á næsta ári. Hann verð-
ur augljóslega að toppa
alla hina.“
Óttar
hefur áður
gefið út
skáld-
sögu,
ljóða-
bæk-
ur
og
tveggja blaðsíðna metsölu„bók-
ina“ Hannes – Nóttin er blá,
mamma, um uppvaxtarár Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar
sem vakti mikla athygli fyrir síð-
ustu jól.
Þetta er fyrsta teiknimynda-
saga Óttars. „Ég datt niður á
teiknimyndaformið þegar ég var
að velta því fyrir mér hvern-
ig væri best að koma sögunni frá
mér. Það er svo auðvelt að nota
teiknimyndir til að fara alla leið.
Jón Ásgeir og pabbi hans búa til að
mynda í kastala og eru með kór-
ónur og Kári Stefánsson er orðinn
brjálaður vísindamaður sem býr
í geimstöð og er búinn að skapa
alls konar óskapnað úr þekktu
íslensku fólki. Eftir að hafa
prófað mig áfram fann ég
út að besta leiðin væri að
klippa út hausinn af fólkinu
og teikna svo restina.“
...Á STÆRÐ
VIÐ HNETU !
DIANE KEATON MANDY MOORE Háskólabíó
ANNAR ÞESSARA TVEGGJA
HEFUR
HEILA....
Saga öflugustu leyniþjónustu fyrr og síðar, CIA.
Úrvalslið leikara í magnaðri kvikmynd
undir tryggri leikstjórn Robert DeNiro
/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI
DIGITAL-3D
DIGITAL-3D
MÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA TRAINING DAY
Börn sjá meira en
fullorðnir gera sér grein fyrir!
HVER ÞARF UPPHÆÐIN AÐ VERA
SVO ÞÚ SVÍKIR ÞJÓÐ ÞÍNA...
SANNSÖGULEG MYND UM STÆRSTA
HNEYKSLISMÁL Í SÖGU FBI
SHOOTER kl. 8 - 10:20 B.i. 16
HOT FUZZ kl. 8 - 10:20 B.i. 16
BECAUSE I SAID SO kl. 8 Leyfð
MEET THE ROBINSSON kl 6 Leyfð
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 6 Leyfð
THE MESSENGERS kl. 8 B.i.16
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 Leyfð
ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 3:40 - 5:50 Leyfð
WILD HOGS kl. 5:50 - 8 - 10:20 b.i 7
SHOOTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i.16
SHOOTER VIP kl. 5:30 - 8 - 10:40
THE GOOD SHEPERD kl. 8 - 10:40 B.i.12
THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i.16
BREACH kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12
THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i.16
ROBINSON FJ... M/- ÍSL TAL kl. 6 Leyfð
MEET THE R... M/- ENSKU kl. 8:10 Leyfð www.SAMbio.is
BECAUSE I SAID SO kl. 5:50 - 8:10 Leyfð
MRS POTTER Engin sýning í dag Leyfð
300. kl.10:30 B.i.16
BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.12
TÍMAMÓT kl. 6 - 8 - 10 Leyfð
THE GOOD SHEPERD kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i.12
SV MBL
MMJ KVIKMYNDIR.COM
“Fyrsti sumarsmellurinn í ár”“Líflegur og hugvitssa-
mlegur spennutryllir”
SV MBL
HJ MBL
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Rafstöðvar
Bensín- og díselrafstöðvar
í stærðum 2,5 kW -4,2 kW.
HAGSTÆTT VERÐ