Morgunblaðið - 04.10.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.10.1959, Blaðsíða 24
fttrgttnMð&ifr 218. tbl. — Sunnudagur 4. október 1959 Katalínu ekki lagt ísafjarbarvöllur senniiega nothæfur i nóvember VEGNA votviðrisins að undanförnu hefur flugvallargerð á Isafirði ekki gengið sem skyldi að undanförnu, en menn vestra eru farnir að tala um fyrstu lendinguna í nóvember. Áætlað var, að Flugfé- 'iagið legði Kataiínubátnum fyrir fullt og allt nú í byrjun október, en samkvæmt þvi sem blaðið fregnaði í gær, hefur félagið fariö íram á það við Loftferðaeftirlit ríkisins að loftferðaskírteini flug bátsins verði framlengt fram í janúar. Fullvíst er talið, að framleng- ing þessi fáist, því sl. vetur var gagnger viðgerð framkvæmd á flugbátnum í Noregi og flugtím- ar hans eftir þá skoðun eru til- tölulega fáir, eða innan við þús- und. ★ Flug til Isafjarðar og annarra staða, sem Katalína hefur flogið til mun því ekki leggjast niður á þessu ári. Þá mun Flugfélagið hafa 1 hyggju að endurbæta þenn an flugbát enn á næsta vetri — og verða hlutar úr Katalínubátn- um, sem félagið lagði á hilluna í vor, notaðir til endurnýjunar þess eina, sem nú er enn í not- kun. Mun flugbáturkm stöðvazt í mánaðartíma meðan á þeim endurbótum stendur. Þetta er fagnaðarefni þeim byggðarlögum, sem enga flug- velli hafa og notið hafa flug- samgangna við Reykjavík með sjóflugvélum Flugfélagsins. ★ Félagið er nú farið að undir- búa breytingu þá, sem væntan- lega verður á fluginu til ísa fjarðar í vetur, en Douglasflugvéi ar munu eingöngu annazt það Vorboða-fundur- inn annað kvöld HAFNARFIRÐI: _ Annað kvöld er Vorboða-fundurinn í Sjálfstæð ishúsinu og hefst hann kl. 8,30. Frummælandi verður Alfreð Gislason bæjarfógeti Keflavík, en form. fulltrúaráðs Sjálfstæðis félaganna hér, Stefán Jónsson, flytur ávarp. Konur úr Sjálfstæð isfélaginu í Keflavík munu koma á fundinn. Eru allar Vor- boðakonur og aðrar stuðningskon ur Sjálfstæðisflokksins velkomn- ar á fundinn meðan húsrúm leyf- ir. — Er þess að vænta að konur fjölmenni á þennan fyrsta fund Vorboðans á haustinu. — Kaffi verður framreitt. flug eftir að flugvöllurinn verður tekinn í notkun. Hefur félagið m. a. ráðið Odd Pétursson á ísafirði til þess að annast alla fólks- og vöruflutn- inga milli flugvallarins á Skip- eyri og kaupstaðarins. ) s Fjórir F i S tilhfoá — Brezkir sjóstangaveiðimenn munu einnig taka þátt í keppni hér jbó íslenzk orð- sending í nthugun LONDON, 3. okt. (Einkaskeyti til Mbl.) OPINBER f dandi brezka utanríkisf.... „neytis- ins sagði í dag, að ráðu- neytinu hefði í gærkvöldi S borizt orðsending islenzku | ríkisstjórnarinnar, þar sem S þess er krafizt, að togarinn • Alcuin verði látinn koma til — og se athugun. s íslenzkrar hafnar ■ orðsendingin nú í s — Talið er, að utanríkisráðu s neytið bíði eftir skýrslu s flotamálaráðuneytisins um s málið. s FJÓRIR franskir sjóstanga- veiðimenn hafa nú ákveðið að koma hingað til lands í mai- mánuði næstkomandi, en þá er fyrirhugað að efna til keppni erlendra og innlendra sjóstangaveiðimanna hér. Skjótur árangur Þeir Jóhann Sigurðsson og Njáll Símonarson hafa skýrt Mbl svo frá, að brezki sjóstanga- veiðimaðurinn Norton Bracy, sem hér dvaldist fyrir skömmu við veiðar, hafi nú þegar gert áhugamönnum í heimalandi sínu og víðar, grein fyrir þeim mögu- leikum, sem hér séu fyrir hendi til sjóstangaveiða. Hefir sú kynning strax borið þann árangur, að fjórir franskir veiðiáhugamenn hafa ákveðið að koma hingað næsta ár, auk þess sem vonir standa til að a. m. k. jafnmargir Bretar sláist í förina. Mun þetta væntanlega verða í maí n. k. en þá er sjó- stangaveiðimót fyrirhugað hér. Mikill áhugi hérlendis Síðan hinn brezki sjóstanga- veiðimaður gerði tilraunir sínar til hámeraveiða hér í síðastliðn- um mánuði hefpr einnig orðið vart hér á landi — einkum meðal laxveiðimanna — mikils áhuga á stangaveiðum í sjó. Munu ýmsir nú búa sig undir að geta stundað þær veiðar. Reynt fyrir norðan Á föstudaginn fóru tveir fé- lagar í hinu nýstofnaða sjó- stangaveiðifélagi norður til Ak- ureyrar til hámeraveiða. Há- mera hefur orðið vart í Eyjafirði að undanförnu og m. a. lent í netum báta, sem lagt hafa úti af Hjalteyri. Menn þessir, Jón Sveinsson og Valdimar Valdi- marsson, fóru á sjó í fyrrakvöld, en höfðu þá ekki heppnina með sér. Þeir reru aftur í gærmorg- un, en ekki hafði frézt um árang- ur þeirrar ferðar, síðast þegar blaðið hafði samband norður í gærkvöldi. Lokafyrirlestur Valdimars Björns- sonar í dag í DAG kl. 3 e.h. heldur Valdimar Björnsson síðasta fyrirlestur sinn í Reykjavík að þessu sinni. Verð ur hann haldinn í Sjálfstæðishús- inu á vegum Stúdentafélags Reykj avíkur og nefnist „Með lög. um skal land byggja". Mun ræðu maður tala um stjórnarfarslega þróun á íslandi og í Bandaríkj. unum, fjárhags- og skattamál. Að fyrirlestrinum loknum mun Valdi mar svara fyrirspurnum. öllum er heimill aðgangur að fyrirlestr. inum gegn 10 kr. gjaldi, ef menn hafa ekki stúdentaskírteini. Tvær nýjar kennslubækur IÐUNNARXJTGAfAN hefur gef- ið út tvær kennslubækur, Staf- setningarreglur eftir Halldór Halldórsson, 2. útgáfa og náms- bók handa skólum og almenningi um íslenzka þjóðfélagið eftir Pál Sigþór Pálsson. í formála þeirrar bókar segir, m. a., að þetta sé þriðja prentun hennar og sé hún lítt breytt frá síðustu gerð nema að þvi, er leiðir af nýsamþykktri breytingu á stjórnarskránni og útfærslu fiskveiðilandhelginnar. Bókin er 93 blaðsíður að stærð, en stafsetningarreglur Halldórs Halldórssonar eru 117 bls. Brynjólfi Jóhannessyni veittur Silturlampinn ÁKVEÐIÐ hefur verið að veita Brynjólfi Jóhannessyni Silfur- lampann fyrir hlutverk hans sem Joe Keller í leikritinu „Allir syn- ir mínir“, eftir Arthur Miller. Brynjólfur hefur undanfarið dval izt í Danmörku, en kom hingað heim í gær með flugvél Flugfé- lags íslands. Leikarar Leikfélags Reykjavík- ur fjölmenntu út á flugvöllinn til að taka á móti Brynjólfi og færðu honum blóm í tilefni verð- launana. Brynjólfur er annar leikarinn hjá Leikfélagi Reykjavíkur, sem hlýtur þessi verðlaun. Áður hafði Þorsteinn Ö. Stephensen hlotið þau. Hafa þá alls þrír leikarar Leikfélags Reykjavíkur hlotið verðlaun fyrir leiklistarafrek, en Helga Valtýsdóttir hlaut Skál- holtssveininn á síðastliðnu ári. Útsvör og skattar í Reykjavík lægri í ór en í fyrra Falsanir Tímans hraktar UNDANFARNA tvo daga hef- ur Tíminn gert útsvör og skatta hér í Reykjavík að sér- stöku umræðuefni. Hefur blaðið komizt að þeirri niður- stöðu, að útsvör og skattar séu til muna hærri í ár en í fyrra, eða sem nemi 30 milljónum. Máli sínu til stuðnings birtir Tíminn eftirfarandi saman- burð: „Árið 1958 nam tekjuskatt- ur lagður á einstaklinga í s s s s s s ) s s s s s Reykjavík 65.3 millj. kr. Árið | 1959 nemur sama upphæð 79,4 ^ millj. kr. Hækkun 14 millj. kr. s Árið 1958 námu útsvör lögð s á einstaklinga í Reykjavík ^ 171,9 millj. kr. Árið 1959 nem- s ur sama upphæð 188,3 millj. > kr. Hækkun 16,4 millj. kr.“ r Það skiptir ekki meginmáli s í þessum útreikningum, að út- i svarsupphæðin, sem lögð er á ■ einstaklinga í Reykjavík í ár, s er 182,3 millj. kr., en ekki S • 188,3 millj. kr. eins og Tíminn • ;segir. Hitt er aðalatriðið, að s S þær tölur sem teknar eru til S Hlustar ö róg Þórarins Þessi mynd af Sigtryggi og miðstjórnarmanni Fram- Klemenssyni, ráðuneytisstjóra sóknar, þar sem hann situr 4 kosningafundi flokks síns sl. miðvikudag, er tekin úr Tím- anum l.'okt. Aðalræðuna á þeim fundi hélt Þórarinn Þórarinsson og ítrekaði róg sinn um að niður- jöfnunarnefnd hafi ívilnað forystumönnum Sjálfstæðis- flokksins í útsvarsgreiðslum. Samkvæmt skattskrá hefur Sigtryggur Klemensson tekju- skatt 50429,00 kr. en í útsvar 32700,00 kr. Eftir útreikningum Tímans um aðra, ætti Sigtryggi að hafa verið „ívilnað" um nær 20,000,00 kr. Auðvitað hefur niðurjöfn- unarnefnd lagt á Sigtrygg „eftir efnum og ástæðum* eins og aðrá. En róggirni Framsóknar er svo mikil, að þess er , ekki gætt, að fyrir eru hittir þeir, sem helzt prýða hennar eigin kosninga- fundi. FuUtrúar neytenda al- farnir úr sexmanna- nefndinni Mbl. barzt í gær svohljóðandi bréf, er fulltrúár neytenda í sexmannanefndinni hafa sent landbúnaðarráðuneytinu: „Reykjavík, 2. okt. 1959. í framhaldi af bréfi voru til ráðuneytisins, dags. 17. sept. sl., þar sem ráðuneytinu var tilkynnt að vér hefðum lagt fyrir fulltrúja vora í verðlagsnefnd landbúnað- arafurða að taka ekki frekari þátt í störfum nefndarinnar að svo stöddu, þar er vér töldum að með dómi uppkveðnum í Bæjarþingi Reykjavíkur 18. ág. sl., ef stað- festur yrði af Hæstarétti, væri grundvelli þeim, sem þátttaka fulltrúa neytenda í verðlágs- nefnd landbúnaðarafurða hefur byggzt á, gjörsamlega burtu svipt og því iókleyft fyrir full- trúa neytenda að taka þátt í störf um nefndarinnar. Svo sem ráðu neytinu er kunnugt hefur Hæsti- réttur nú staðfest undirréttar- dóminn. Stjórnir samtaka vorra hafa því í dag ákveðið að eiga ekki frekari aðild að verðlags- nefnd landbúnaðarafurða og til- kynnt fulltrúum sínum í nefnd- inni að umboð þeirra sé niðurfall- ið, og að vér munum ekki til- nefna aðra menn í nefndina. Þar sem Hæstiréttur hefur með dómi fengið Framleiðsluráði ein- hliða vald til verðlagningar land búnaðarafurða teljum vér að nauðsynlegt sé að lögin frá 1947 um verðlagningu landbúnaðaraf- urða, verði endurskoðuð og eru samtök vor reiðubúin tii að eiga aðild að slíkri endurskoðun. Virðingarfyllst, F.h. Alþýöusamb. fslands Óskar Hallgrímsson (sign). F.h. Sjómannafél. Rvíkur Sigfús Bjarnason (sign). F.h. Landssamb. iðnaöarm. Bragi Hannesson (sign). •samanburðar gefa alranga • ; hugmynd af því sem um er ( Sað ræða. S Sannleikurinn er sá, að £ bæði útsvör og skaítar hér \ í Reykjavík eru lægri hlut- S fallslega í ár en var í fyrra. ,• Útsvarsstiginn var lækk- ( aður um 10% frá fyrra ári S og skattstiginn hefur einn- • ig lækkað. ( Hækkun sú, sem orðið hef- S S ur á heildarupphæð skatta og • J útsvara hér í Reykjavík og s s sem er mun minni en Tíminn s S segir, stafar hins vegar af • • tvennu: Gjaldendur í Reykja- s S vík eru u. þ. b. 1000 fleiri hér s S nú en í fyrra og tekjur manna i • voru allmiklu hærri árið 1957, s S en árið 1958. S Hafnar- fjörður Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins er í Sjálfstæðishúsinu og er opin kl. 10—22 dag hvern. Símí 50228. — Stuðningsfólk D,- listans er beðið að hafa samband við skrifstofuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.