Morgunblaðið - 23.11.1973, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.11.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1973 7 LISTIR&LEIKHÚSSPJALL Ar"r““ Að sigla keikur 1 gegnum vandamálin Merkileg málverka- og fornminjasgning í Kjarvalsstöðum boði í London, en það sýnir skip á siglingu undan Eyjum, málað SÉRSTÆÐ sýning stendur nú yfir f Kjarvalsstöðum, en þar sýnir Byggðarsafn Vestmanna- eyja um þessar mundir nokkra af merkustu munum sínum auk fjölmargra merkilegra mynda og þá má sérstaklega geta 34 málverka og teikninga eftir meistara Kjarval, en þetta safn var áður í eigu Sigfúsar M. Johnsen fyrrverandi bæjar- fógeta í Vestmannaeyjum og konu hans Jarþrúðar heitinnar Pétursdóttur Johnsen. Afhenti Sigfús Vestmannaeyjum þetta merka safn sitt. Meðal verka Kjarvals á sýn- ingunni eru myndir frá fyrstu árum Kjarvals sem málara og m.a. er þar abstraktmynd, sem er frumlegri en margar slíkar, sem gerðar eru í dag. Rík ástæða er til að hvetja fólk til að sjá þessa merku sýningu, þvf þar kennir ýmissa grasa. Þá eru fjölmargar myndir á sýningunni eftir Engilbert Gíslason listmálara í Vest- mannaeyjum. Engilbert var samtiða Ásgrími Jónssyni við nám í Kaupmannahöfn um aldamótin, en Engilbert er látinn fyrir nokkrum árum. Engilbert fór aldrei um, þar sem fjölmenni var, en hann vann stöðugt i list Kjarval sinni og þótt hann hafi farið varhluta af allri frægðog kynn- ingu út á við í lífi sínu, þá verður ekki gengið fram hjá þeirri staðreynd, að hann er í hópi beztu málara, sem íslenzka þjóðin hefur átt. Þeir sem skoða verk hans á sýningu Byggðarsafns Vestmannaeyja í Kjarvalsstöðum geta gengið úr skugga um það. Engilbert málaði feikn mikið af myndum í Eyjum, en á hverju héimili, þar sem myndir hans eru, teljast þær til dýrgripa. Þá eru m.a. á sýningunni lfkön af bátum, mannverkjum og fleiru, og eru mörg þessara lfkana hreinustu listaverk. M.a. er þarna líkan af Skansinum, sem nú er að nokkru farinn undir hraun. Þar sjást dönsku verzlunarhúsin og vindmyllan, sem brauðgerðarmaður staðar- ins notaði á einokunartíma- bilinu. Meðal húsa á þessu lfkani er Kornloftið, næstelzta hús f Eyjum, sem fór undir hraun í eldgosinu þar. Korn- loftið varbyggt árið 1830. Elzta málverkið á sýningunni er frá 1791, en alls eru yfir 100 málverk sýnd auk 100 ljós- mynda. Þetta málverk frá 1791 var keypt fyrir skömmu á upp- Þorsteinn Þ. Vfglundsson af enskum málara. Þá er sýnd á þessari sýningu Tyrkjabyssan fræga, sem fannst i Vestmannaeyjahöfn, en byssan er frá því Tyrkir rændu og drápu í Vestmanna- eyjum 1627. Bátalíkön er m.a. af bátum með Vestmannaeyjalagi, Land- eyjalagi og færeysku lagi. Þá eru líkön af rétt, sem stóð i Eyjum allt frá landnámsöld og til sfðustu aldamóta og einnig er merkilegt lfkan af fiskigörð- um. Sýnir það, að fyrrum eins og nú hefur mikil rækt verið lögð við fiskvinnslu íEyjum. Maðurinn á bak við þessa sýningu er Þorsteinn Þ. Vfg- lundsson sparisjóðsstjóri í Vest- mannaeyjum, forstöðumaður Byggðarsafnsins i sjálfboða- vinnu og fyrrverandi skóla- stjóri Gagnfræðaskóla Vest- mannaeyja f 36 ár. Þorsteinn er hafsjór af fróðleik og ham- hleypa til allra verka, sem hann tekur sér fyrir hendur, svo með ólíkindum er. Framtakssamari manni kynnist maður vart og hann heldur sínu striki, þótt móti blási. Þorsteinn hefur unnið feikilegt starf í þágu Vestmannaeyja, og m.a. má þar nefna hin yfirgripsmiklu ársrit hans um mann- og athafnalíf í Vestmannaeyjum fyrr og síðar. Blik heitir rit Þorsteins og fyllti það 30. árganginn fyrir skömmu. Markmið Þorsteins með þessari sýningu f Kjarvalsstöð- um er að gefa meginlandsbúum tækifæri til að sjá nokkra merkustu gripi Byggðarsafns Vestmannaeyja áður en þeir verða aftur fluttir til Vest- mannaeyja, en nokkrir grip- anna teljast til merkustu forn- minja á íslandi og Þorsteinn hefur ekki sagt út í bláinn: „Líf mitt eru fjármál," því önnur ástæðan er sú, að hann hyggst afla Byggðarsafni Vestmanna- eyja fjár til þess að gera við allt, sem skemmdist í nauðar- flutningunum á fyrstu dögum eldgossins í Heimaey. Fyrir gos var langt komið byggingu glæsilegs safnahúss í Vestmannaeyjum undir Byggðarsafnið, Listasafn og bökasafn, og fyrir liggur að ljúka þeitri byggingu. „Við eig- um nóg af peningum til að ljúka við bygginguna", sagði Þorsteinn, „og það er ekki gjafafé, en auðvitað verður að ljúka við að gera allan bæinn íbúðarhæfan, áður en við höld- um vefkinu áfram. En það verður ekkert gefið eftir,“ sagði þessi galvaski athafna- maður sem siglir keikur í gegn um vandamálin. Teiknimynd af Skansinum eftir Engilbert Gíslason um aldamótin sfðustu. Stóra verzlunarhúsið, Austurbúðin, á myndinni var byggt 1880, en fór sfðan undir hraun f vetur. Skansinnerlengst tilvinstri. Skansinn f Vestmannaeyjum árið 1884. Næst á myndinni til vinstri er verzlunarhúsið (byggt) 1786). Sunnan við það stendur vörugeymsluhúsið. A milli húsanna liggur vegurinn austur eftir virkinu. Vestan við virkið, t. h. á myndanni, er Kornloftið, sem var byggt 1830, en fór undir hraun í eldgosinu f vetur. Hægra megin við Kornloftið er vindmyllan, sem um getur í greininni. TILSOLU Mustang '71 með V—8 vél 302 cc, dökkgrænn, sjálfskiptur með powerstýri og bremsum. Upplýsingar í síma 37203. NEI SKO Haukar í Hveragerði, laugardag, 24 nóv. Sætaferðir frá B.S.Í. kl 9 og 9.30. ÍBÚÐ ÓSKAST Einhleyp stúlka óskar eftir góðri íbúð til leigu, má vera í Kópavogi eða Hafnarfirði. Vinsamlega hringið í síma 85835. YTRI-NJARÐVÍK til sölu vel með farin 3ja herb. íbúð, ásamt bílskúr Hagstæðir greiðsluskilmálar Fasteignasalan, Hafnargötu 27. Keflavík, sími 1 420. GÓÐ FJÁRFESTING Glæsilegt endaraðhús til sölu um 142 fm, ásamt bílskúr, á góðum stað í Garðahr. (Flatir). Verð 3,5 millj. Sími 229 1 1 BÍLAVIÐGERÐIR Bílaverkstæðið Bjarg Bjargi við Dundlaugaveg, sími 38060. Tökum að okkur allar almennar bílaviðgerðir. Bílaverkst. Bjarg Bjargi, s 38060. TILSÖLU Sanyo plötuspilari. Upplýsingar I sima 22603. SNÍÐ KJÓLA Þræði saman og máta Viðtalstimi virka daga frá kl. 4—6 Sigrún Á Sigurðardóttir, sniðkennari, Drápuhlíð 48, 2. hæð, stmi 19178 RANGE ROVER TILSÖLU árg. '72, vel með farinn. Uppl. í síma 5261 1 milli kl. 2 — 6. HAFNARFJARÐARAPÓTEK Opið öll kvöld til kl 7, nema laugard. til kl. 2 Helgidaga frá kl 2—4. STÚLKUR — KONUR óskast i borðsal og eldhús Hrafnistu. Hálfan eða allan dag- inn. Upplýsingar hjá bryta, simi 35133. fBÚÐ TIL LEIGU 2ja herb ibúð i kjallara. Tilboð sendist Mbl. merkt: „K 11 — 1442". 3JA HERB. RISÍBÚÐ i Hliðunum til leigu frá 1. desem- ber. Fyrirframgreiðsla. Fjölskyldu- stærð. Tilboð sendist Mbl. fyrir 29. nóvember merkt: „805". TOYOTA CROWN 1972 4 CYL. Glæsilegur einkabíll til sölu i dag, er með power bremsum og svenst o.fl. Samkomul með greiðslur Skuldabréf kemur til greina einnig á ódýrari bil Simi 16289 ÚRVALS SÚRMATUR Súrsaðir lundabaggar, hrútspung- ar, sviðasulta, svínasulta Úrvals- hákarl, síld og reyktur rauðmagi. Harðfiskur, bringukollar. Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2, sími 35020 Terylene-fylling. Falla ekki saman. Hindra ekki útgufun. Þola vélaþvott. Taka ekki raka. Margir litir og mynstur Dðnsku draumasamgurnar Sængur verð kr. 2875 — 4500 — 5800 — 6000. Koddar verð kr. 1570. Ungbarnasængur kr. 1850. Ungbarnakoddar kr. 610. SÆNGURVERAEFNI í FJÖLBREYTTU ÚRVALI: Opid til kl. 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.