Morgunblaðið - 31.03.1983, Blaðsíða 14
94
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
Gleðilega
páska!
OPIÐ
VERÐUR
LAUGARDAG
FRÁ KL. 7—12
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.s. 86511
=1
★ Falleg eyja - veðursæld og hagstætt verðlag
★ Skemmtileg blanda af enskum
og frönskum hefðum
★ Staður þar sem allir njóta sín
Brottför 21. maí -14. dagar. Verð frá kr. 23.990.-
Sérstök 2 vikna ferð eldri borgara
4. júní með viðkomu í London
Umferðin
um páskana
Um páskahelgina eru margir á
ferð og flugi um allt land. Allra
veðra er von, svo mikilvægt er að
klæðast hlýjum fatnaði og góð-
um skóbúnaði, hvernig sem ferð-
ast er. Þeir sem fara á eigin bíl-
um þurfa að hafa meðferðis
skóflu og keðjur, auk nauðsyn-
legra varahluta, ásamt skjól-
fatnaði og teppi.
Mikilvægt er að afla áreiðan-
legra upplýsinga um veður og
færð, ekki síst á fjallvegum.
Enginn ætti að leggja út í tví-
sýnu, því ekki er víst að aftur
verði snúið, ef menn sitja fastir
á heiðum uppi. Sérstaklega má
benda þeim, sem á einhvern hátt
hafa skerta likamsorku, á þetta
atriði.
Ekki er ólíklegt að nú séu mal-
arvegir á landinu einhvers stað-
ar auðir og einmitt nú fá margir
að endurnýja kynni sín af þeim.
Þegar ekið er á malarvegum er
mikilvægt að hafa hættuna af
grjótkasti í huga. Hún er mun
meiri nú en að sumarlagi, því
flestir eru með snjóhjólbarða
undir bílum sínum. Það er því
brýnt að draga vel úr ferð við
mætingar. Notkun ökuljósa er
einnig afar mikilvæg og ættu
ökumenn ekki að spara þau.
Stöðuljós má aldrei nota í akstri.
Þeir sem hyggja á langferðir
ættu að reyna að aka á jöfnum,
hæfilegum hraða miðað við að-
stæður. Slíkur akstursmáti spar-
ar eldsneyti og eykur öryggi, því
framúrakstri fylgir ætíð áhætta.
Víða má búast við mikilli um-
ferð í nágrenni skíðasvæða. Þar
er sérstök ástæða til að halda
hæfilegu bili á milli bíla.
Tryggja þarf, að bílar sem lagt
er meðan menn bregða sér á
skíði, valdi ekki hættu fyrir aðra
vegfarendur. Gagnkvæm tillits-
semi er allt sem þarf. Vegfar-
endur verða að virða þarfir og
takmarkanir hvers annars til
þess að umferðin gangi eðlilega
og allir séu ánægðir á ferð.
Hestamenn ættu t.d. að ríða
utan vega alls staðar þar sem
kostur er, eða velja fáfarna vegi.
ökumenn ættu að muna, að
hesturinn er lifandi vera, en ekki
dauð vél.
Sama tillitssemi á og að ríkja
á milli göngu- og skíðamanna og
þeirra sem aka um á vélknúnum
farartækjum. Þetta á ekki síst
við um þá sem þeysa um á vél-
sleðum.
Um leið og Umferðarráð óskar
fólki góðrar ferðar, hvort sem
það fer í langar ferðir eða stutt-
ar, minnir það góðfúslega á, að
með því að virða f hvívetna regl-
ur um hámarkshraða eykst að
mun eigið öryggi og annarra f
umferðinni. Ef fólk hefur í huga
það sem hér hefur verið bent á,
einsetur sér að vera í góðu skapi
og nota bílbeltin f páskaferða-
laginu, ættu allir að geta sam-
glaðst í helgarlok yfir velheppn-
aðri ferð.
Höfum boðskap norræns um-
ferðaröryggisárs í huga f páska-
umferðinni. „Við eigum samleið.
Tillitssemi — allra hagur“. Um-
ferðarráð óskar landsmönnum
öllum gleðilegrar og slysalausr-
ar páskahátíðar.
(Frá Umferðarráði.)
Kirkjuiist á Kjarvalsstöðum:
Gengið um sýninguna með ungum gestum
Kirkjulistarsýningin á Kjar-
valsstöðum verður opin aila páska-
dagana, en senn fer nú sýningum
að fækka. Til sýnis eru sem kunn-
ugt er, um 200 gripir, nýir og gaml-
ir, þar á meðal nokkrir tugir mál-
verka eftir íslenska myndlistar-
menn, sem sérstaklega voru gerð
fyrir þessa sýningu.
Nú um páskana mun Oddur
Andrésson, nemandi í Skál-
holtsskóla, verða á Kjarvalsstöð-
um og sýna þar bðrnum og ungl-
ingum það markverðasta á sýn-
ingunni, hvort heldur börnin
koma ein eða í fylgd foreldra.
Hann mun segja frá einstökum
gripum, ræða um páskahátfðina
og eitthvað verður gert til
skemmtunar f anddyri sýningar-
salanna.
Oddur Andrésson sýnir ungum gestum á kirkjulistarsýningunni á Kjarvalsstöðum
postulamyndir, sem Sveinn ólafsson myndskeri hefur nýlega gert fyrir Þingeyr-
arkirkju í Húnaþingi, eftir fornum myndum sem þar voru, en eni nú á Þjóðminja-
safni.
Alsjálfvirk-einföld- ódýr:
/( jDAK
Ljósmyndun verður leikur
einn,fyrir hvem sem er.með I
Hún hugsar fyrir öllu, þú
smellir bara af.
Vel á minnst, heíur þú
hugsað fyrir íermingar-
gjöfinni?
Kodak Diskur 4000 1.300 kr
Kodak Diskur 6000 1.900 kr.
Kodak Diskur 8000 . 2.900 kr
fl
HflNS PETERSEN HF
BANKÁSTRÆT1 GLÆSIBÆ AUSTURVERI UMBOÐSMENN UM LAND ALLT