Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987 43 Dexter Gordon í hlutverki Dale Turner í myndinni Um miðnætti. Bíóhúsið: Sýnir myndina Um miðnætti BÍÓHÚSIÐ hefur hafið sýningar á myndinni Um miðnætti sem til- einkuð er Bud Powell og Lester Young. Með aðalhlutverkið fer Dexter Gordon en hann fékk Óskarsútnefningu fyrir leik sinn í myndinni. Leikstjóri er Bertr- and Tavemier. Óll tónlist í myndinni er valin og útsett af Herbie Hancock. í frétt frá kvikmyndahúsinu seg- ir m.a. að myndin fjalli um Dale Tumer (Dexter Gordon) sem er vel þekktur saxófónleikari vestan hafs. Tumer unir sér ekki vel í Banda- ríkjunum svo hann leggur leið sína til Parísar þar sem honum vegnar vel nema að einu leyti. Hann hefur ekki stjórn á áfengislöngun sinni og hverfur hvað eftir annað fyrir- varalaust. Þótt hann lofi bót og betmn þegar hann kemur aftur í leitimar er iðrunin fljót að hverfa °g gleymast og allt fer {sama farið. Með aðstoð vina sinna fæst hann til að fara aftur til Bandaríkjanna en þá er hann illa farin andlega og líkamlega. Sýning Lars Emils Árnasonar LARS Emil Árnason sýnir mál- verk í Gallerí Hallgerði (Lang- brók) að Bókhlöðustíg 2. Þetta er fjórða einkasýning hans hér á landi. Á sýningunni eru 20 olíumál- verk auk teikninga og högg- mynda. Lars Emil er 25 ára Reyk- víkingur. Hann stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík, Myndlista- og Handíðaskóla ís- lands, auk þriggja ára framhalds- náms í Hollandi. Sýningin er opin kl. 16-20 virka daga, og kl. 14-20 um helgar. Henni lýkur 23. ágúst. Öll verkin á sýningunni em til sölu. Eitt verkanna á sýningunni. Lauk meistaraprófi í stj órnmálafræði Á Þjóðhátíðardag íslendinga, 17. júní sl., lauk Jónas Egilsson M.A. prófi í alþjóðastjómmálafræði (International Relations) frá Uni- versity of San Diego í Kaliforníu. I lokaritgerð sinni, sem bar hei- tið „The Delimitation Process of the Continental Shelf and the Exlusive Economic Zone“, fjallaði hann um reglur og hefðir, sem skapast hafa við skiptingu efnahagslögsögu og landgmnns milli ríkja. Meðal annars tók hann sérstak- lega fyrir deilur íslendinga og Norðmanna um efnahagslögu við Jan Mayen, deilu Ástralíu og Papúa* Nýju-Guinea um Torres-sundið, deilu Bandaríkjamanna og Kanada- manna um Georgsbanka og deilu Argentínumanna og Chilebúa um yfirráð á Beagle-sundi. Jónas varð stúdent frá Mennta- skólanum við Sund 1980 og lauk B.A.-prófi í stjórnmálafræði við San Jose State University í Kalifomíu vorið 1985. Hann er 29 ára gam- all, fæddur 12. febrúar 1958, og sonur Egils Stardal, kennara, og Emu Ingólfsdóttur, sjúkraliða. „Eg legg áherslu á takt og stemmningu í myndunum“ Sænsk myndlistarkona, Ulva Lars son, sýnir á Laugarvatni Selfossi. SÆNSK myndlistarkona, Ulva Larsson frá Stokkhólmi, heldur um þessar mundir sýningu á vatnslitamyndum í sölum Hótels Eddu í Húsmæðraskólanum á Laugarvatni. Sýningin er opin til 21. ágúst. Ulva Larsson er félagi í samtök- um listakvenna í Svíþjóð, „Svenska konstnarinnor". Hún hefúr haldið tvær einkasýningar (1983 og 1987) og auk þess tekið þátt í fjórum samsýningum. Ulva er hér á landi með manni sínum, Jan Olaf Lars- son, sem flytur fyrirlestur á námskeiði Umferðarráðs á Laugar- vatni. Á sýningu Ulvu á Laugarvatni eru þær myndir hennar sem hún sagði auðvelt að flytja milli landa. Þetta eru 27 vatnslitamyndir af nokkrum stærðum og teikningar. Auk þess að mála með vatnslitum vinnur hún myndir með olíulitum og einnig ofin myndverk. Ulva segist Ieggja áherslu á að finna hrynjandi í myndum sínum og að ná fram stemmningu. Fyrir- myndimar sækir hún til náttúrunn- ar og eru ráðandi myndir á sýningunni af jurtum ogtijám. Hún færir fyrirmyndimar í_ stflinn og einfaldar myndefnið. „Ég vil sýna í myndunum hvemig ég upplifí fyr- irmyndina sjálf og reyni að tjá mig í myndunum." Hún kvaðst ætla að nota tímann á meðan hún er á ís- Morgunblaðið/Sigurrtur Jónsson Ulva Larsson ásamt einu verka sinna. landi til að safna efni í myndir héðan, með því að gera skissur og taka ljósmyndir. Hún kvaðst hafa heillast af náttúm landsins og at- vinnulífinu sem tengist. henni. Ulva sagði að myndimar á sýningunni á Laugarvatni sýndu gjörólíkt mynd- efni en það sem sækja mæt.ti til íslenskrar náttúm. Sýning Ulvu er sölusýning og öllum aðgengileg í húsnæði Hótels Eddu í Húsmæðraskólanum. — Sig. Jóns. radauglýsingar raðauglýsingar raðauglýsingar Skrifstofuhúsnæði Höfum verið beðnir að útvega lítið verslunar- og skrifstofuhúsnæði fyrir einn af viðskipta- vinum okkar. Má vera á 2. hæð, 50-80 fm, helst miðsvæðis í borginni. Bókhaldsstofan, Skipholti 5, sími 622212. 100-200 fm atvinnuhúsnæði Bráðvantar 100-200 fm atvinnuhúsnæði, helst sem næst gamla miðbænum. Þarf ekki að vera í góðu ástandi en þó þarf að vera Ijós og hiti. Upplýsingar í síma 623246 á daginn og 685569 eftir kl. 20.00. @/&M> Heilsugæslustöð í Þorlákshöfn Tilboð óskast í að reisa og gera fokhelda heilsugæslustöð í Þorlákshöfn. Verkinu skal vera lokið 1. júlí 1988. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Reykjavík gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 1. sept. 1987 kl. 11.00 fh. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS B'v'FUjAi'.lUNI 7 i ;•■•.! v».rí44 Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir júlímánuð er 15. ágúst. Ber þá að skila skattinum til inn- heimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskatts- skýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. plurgiwxMalítííi I MetsöluHaó á hverjum degi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.