Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.08.1988, Qupperneq 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1988 Víkur hannsér í Viðejrjarklaustur GÖMUL SAGA RAKIN Reykjavík hélt upp á tvö hundruð ára afmæli sitt fyrir tveimur árum. Góð veisla var haldin. Af mælisbarninu var árnað heilla og þar að auki voru því gefnar nokkar gjafir. Að öðrum gjöfum ólöstuðum er óhætt að segja að gjöf íslenska ríkisins hafi verið sú veglegasta og dýrmætasta. Þáverandi menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, afhenti eignarhluta ríkisins í Viðey og Viðeyjarstofu, Reylgavíkurborg til eignar og ráðstöfunar. Borginni var einnig afhent Viðeyjarkirkja til varðveislu. I dag er ætlunin að gera lesendum Morgunblaðsins nokkra grein fyrir afmælisgjöfinni góðu og því hvernig þiggjendur, þ.e. Reykvíkingar, hafa tekið gjöfinni. Hvað er Viðey? Hvað hefur gerst í Viðey? Hvað á að gera í Viðey? Landsnytjar Flestir sem leiða augum til Við- eyjar, fínnst eyjan vera búsældar- leg og landkostir góðir. Þess má líka geta að búmark eyjarinnar er 132 ærgildi en sá böggull fylg- ir skammrifi að fullvirðisrétturinn er enginn; þannig að ólíklegt er að Reykvíkingar he§i þama bú- skap alveg á næstunni. Það er næsta líklegt að byggð hafí fljótlega hafíst í eynni eftir að landnám hófst. Viðeyjar er ekki getið í Landnámabók en elsta heimild sem er til um byggð í Við- ey er bréf í fyrsta bindi af ís- lensku fombréfasafni og er það þar talið vera frá því um 1230. Bréf þetta ijallar um tolla og ítök Gufunesinga í Viðey. í bréfí þessu láta Gufunesingar af hendi ítök sem þeir höfðu haft í Viðey til kiaustursins. Má af bréfí þessu ráða að búendur í Viðey og Ás- geir prestur Guðmundsson í Gufu- nesi hafí fyrr samið um að Gufu- nesingar létu æðafugl frá Viðey í friði gegn því að þeir hlytu endur- gjaldslaust útigöngu fyrir hross á vetrum og útræði til hafs á sum- mm. í fombréfasafninu er talið rústum Viðeyjarklausturs. Framferði siðaskiptamanna var ekki alltaf til fyrirmyndar. Teikning- in er eftir Halldór Pétursson. undan jafnskjótt. En er öminn fló enn of dag í eyna, næri nóni dags, þá fór Bjami prestur, búandi, til kirkju og hét á hinn sæla Þorlák biskup til fulltingis að af mætti ráðast þetta vandræði. En verk- menn vom að amingu og vissu ekki til, að hann hefði heitið, prest- inn. En er öminn kom í eyna, þá settist hann skammt frá þeim. Þá hljóp einn verkmaður til og vil elta á braut öminn, en hann beið hans í sama stað, og laust hann örninn með verkfærinu, er hann hafði í hendi. Drifu þeir þá til, fleiri verk- menn, og gátu hlaðið eminum. En síðan safnaðist fugl í eyna og varð eggver bæði gott og mikið og lofuðu allir guð og hinn sæla Þorlák biskup." Klaustur Þýðing Viðeyjar jókst til mikilla muna með stofnun Viðeyjarklaust- urs 1225 eða 1226. Þorvaldur Gissurarson höfðingi Haukdæla og faðir Gissurar jarls var þreyttur orðinn á öllu veraldarvafstri og hallaðist að því ráði að ganga undir reglu. Svo ólánlega hagaði til í Sunnlendingafjórðungi að þar var ekkert klaustur. í Sturlungu segir um áriðll24: Fomleifafræðingar hafa leitað að að Ásgeir prestur hafi verið uppi um og eftir miðja 12. öldina. Það má leiða að því líkur að kirkja hafí verið í Viðey og kom hafí þar verið ræktað í biskupstíð Þorláks biskups helga, 1178-1193. Því í sögu guðsmannsins stend- ur:„Á bæ þeim er Viðey heitir, spilltu mýs komum og ökmm, svo að varia mátti við búa. 0g er Þor- lákur biskup gisti þar, báðu menn hann þar sem annars staðar, full- tingis í slíkum vandræðum. Hann vígði þá vatn og stökkti yfír eyna. — Utan um eitt nes. Það fyrirbauð hann að eija. Varð og eigi að músunum mein ei eyjunni meðan því var haldið. Löngum tíma síðar örðu menn hlut af nesinu. Hlupu þar þá mýs um alla eyna. Var þar víða jörð hol og full af músum." Þorlákur helgi hefur sennilega ekki átt önnur erindi brýnni í eyna heldur en að líta til með kirkju sem þar væri, eins og skyldan bauð honum. í kirkjuskrá Páls biskups Jónssonar frá því um 1200 er Við- eyjar líka getið sem kirkjustaðar. En það hafa einnig verið aðrar landnytnar í eyjunni. Það er til önnur saga af Þorláki biskup: „Sá atburður varð í Viðeyju, að öm iagðist í eyna... “ „ ... í það mund, er von var, að eggver væri sem mest, ef ekki bæri annað til. En öminn gerði svo mikið búrán og íjárskaða að fuglinn varp næri engi. En sá es varp, þá bar öminn „Þetta vor hið sama for Snorri Sturluson suður um heiði og fund- ust þeir Þorvaldur Gissurarson og töluðu margt. Litlu áður hafði andast Kol- skeggur hinn auðgi er enn var auðgastur maður á íslandi. En eftir hann tók fé allt Haliveig Ormsdóttir. (Tengdadóttir Þor- valds, ekkja Bjöms Þorvaldssonar á Breiðabólstað.) Þorvaldur kærði það fyrir Snorra að hann vildi setja klaustur nokkuð, sagði að Kolskeggur hefði heitið að leggja þar fé til. Bað hann Snorra til að eiga hlut að með þeim. Er hér skjótast af að segja að þeir Snorri og Þorvaldur bundu, vináttu sína með því móti að Gissur son Þorvalds skyldi fá Ingibjargar dóttur Snorra en Þor- valdur skyldi eiga hlut að við Hallveigu Ormsdóttur að hún gerði félag við Snorra og fara til bús með honum. En brúðlaup skyldi vera í Reykjaholti um haustið, þeirra Gissurar og Ingibjargar. Eftir þetta kaupir Þorvaldur Viðey og var þar efnað til klaust- urs en það var sett vetri síðar. Var Þorvaldur þá vígður til kan- oka.“ í ísiensku fornbréfasafni er talið að klaustrið hafi að fullu verið sett árið 1226 og máldagi þess gerður það ár. Þar er þess getið að kirkjan sé helguð guði, Mariu,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.