Morgunblaðið - 21.09.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.09.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 215. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovétríkin: Herinn grípur til aðgerða í Armeníu og Azerbajdzhan FJOLDI Armena efiidi í gær til mótmæla í Jerevan, höfuðborg Arm- eníu, eftir að komið hafði til átaka milli Armena og Azerbajdzhana í héraðinu Nagorno-Karabakh í Azerbajdzhan, þar sem Armeni iést af skotsárum og 24 særðust. Fréttastofan TASS greindi firá þvi i gærkvöldi að her og lögregla hefðu gripið tii aðgerða til að binda enda á þjóðaólguna í Armeníu og Azerbajdzhan. Jerevanbúi sagði í samtali við fréttaritara Reuters að nokkrum fyrirtækjum hefði verið lokað og strætisvagna- og sporvagnasam- göngur hefðu legið að miklu leyti niðri í borginni í gær. Gripið hefði um sig almenn reiði meðal borg- arbúa vegna átakanna í Khadz- halíj, bæ skammt frá Stepanakert, höfuðborg Nagomo-Karabakhs, á sunnudag. „Þúsundir manna söfn- uðust saman við höfuðstöðvar Allsheijarþing SÞ: Caputo Igör- inn forseti kommúnistaflokksins og Æðsta- ráðs Armeníu," sagði Jerevanbúinn. „Helsta krafa þeirra var að Az- erbajdzhanar hætti að flýja frá Armeníu til Nagorno-Karabakhs. “ Fréttastofan TASS skýrði frá því að öryggissveitir hefðu gripið til aðgerða til að koma á lögum og reglu í Azerbajdzhan og Armeníu, án þess að lýsa þeim nánar. Að sögn fréttastofunnar hafði almenn- ingur hvatt stjómvöld til þess að grípa í taumana til að tryggja ör- yggi íbúanna. Ekkert símasamband hefur verið milli Moskvu og Stepanakerts síðan á mánudagskvöld. / J / / J M j* * Afram Island Ijetur Sigurðsson A myndinni hvetur hópur Islendinga íslenska landsliðið í handknattleik til dáða, en það sigraði Bandaríkjamenn 22-15 á Ólympíuleikunum í Seoul I gærmorgun. Sjá Olympíufréttir á bls. B1-B8 og 50-51. Ekkert lát á átökunum í Búrma: Sameinuðu þjóðunum. Reuter. DANTE Caputo, utanríkisráð- herra Argentínu, var kjörinn for- seti Allsheijarþings Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi. Caputo fékk 91 atkvæði og Dame Nita Barrow frá Barbados 66 í leyuilegri atkvæðagreiðslu. Forset- inn er ólaunaður, en embættið er þó talið það eftirsóknarverðasta innan Sameinuðu þjóðanna fyrir utan embætti aðalritara Sameinuðu þjóðanna. í ár kom það í hlut Suð- ur-Ameríkumanna og þjóðanna við Karíbahaf, en þeim kom ekki saman um hver ætti að gegna því. Hátt í 500 manns hafa fall- ið að sögn stjóraarerindreka Rnntrlrnlr Ronter Bangkok. Reuter. BÚRMÍSKIR herforingjar, sem tóku öll völd í sínar hendur á sunnudag, tUkynntu i gær að mynduð hefði verið ný stjórn i landinu. Vestrænir stjórnarer- Reuter Beðið fyrir Japanskeisara Japanskar konur biðja fyrir Hirohito Japanskeisara fyrir utan keisarahöllina í Tókýó í gær. Keisarinn, sem er 87 ára gamall, hafði fengið tvær blóðgjafir á einum degi eftir að hafá kastað upp blóði. Hópur Japana safhaðist saman við keisarahöllina tU að biðja fyrir keisaranum, sem var dýrkaður sem guð þar til heimsstyijöldinni síðari lauk. indrekar, sem segja að hátt í 500 manns hafi fallið í átökum her- manna og mótmælenda undan- farna daga, telja að stjórnin hafi verið mynduð til að styrkja völd hersins í landinu. Búddamunkar og námsmenn héldu áfiram að beijast með frumstæðum vopn- um við hermenn sem reyndu að bæla niður mótmæli í borgunum Rangoon og Mandalay. Átta af níu ráðherrum stjórnar- innar eru herforingjar úr nefnd þeirri sem sett var á fót á sunnu- dag til að koma á lögum og reglu í landinu. Saw Maung hershöfðingi verður áfram vamarmálaráðherra auk þess sem hann fer með utanrík- ismál. Forsætisráðherra hefur ekki verið útnefndur. Útvarpið í Rangoon skýrði frá því að 67 manns hefðu fallið í átök- um á mánudag og í gær í borgunum Rangoon, Mandalay og Tanggyi. Samkvæmt opinbemm tölum hefur 121 fallið í átökunum síðan herinn tók völdin. Meðal þeirra sem féllu í gær voru ijórir mótmælendur sem höfðu skotið beittum teinum úr reið- hjólagjörðum á hermenn með teygjubyssum, að sögn útvarpsins. Búrmamenn og vestrænir stjóm- arerindrekar segja að námsmenn og munkar hafi ráðist inn í nokkrar lögreglustöðvar til að ná byssum. Útvarpið í Rangoon staðfesti að ráðist hefði verið inn í fjórar stöðv- ar og sjö lögreglumenn og fimm mótmælendur hefðu fallið í átökum þar. Vestrænn sendiherra sagði að hermenn hefðu hafið skothríð á hóp 13 til 14 ára skólastúlkna og nokkr- ar þeirra hefðu látist. Búrmískur fjármálamaður sagðist hafa orðið vitni að bardaga milli námsmanna og hermanna við aðalsímstöð höfuð- borgarinnar á mánudagskvöld. Námsmennimir hefðu beitt heima- tilbúnum bensínsprengjum gegn hermönnunum. Talsmaður Tins OO, leiðtoga stjómarandstæðinga, sagði að hann og bandamenn hans, Aung San Suu Kyi og Aung Gyi, hefðu óskað eftir viðræðum við Saw Maung hers- höfðingja. Leiðtogi samtaka náms- manna í Búrma, sem hefur hingað til beitt sér gegn ofbeldi, sagði hins végar að tími friðsamlegra mót- mæla væri liðinn. Noregur: Hótun um að myrða Sonju krónprinsessu Ósló. Frá Helge Serensen, fróttaritara Morgunblaðsins. NORSKA lögreglan var með mikinn viðbúnað á mánudag eftir að henni hafði borist bréf, ritað á sænsku, þar sem hótað var að Soqja krónprinsessa yrði myrt meðan á heimsókn hennar í Andenes á Vesturálseyjum stóð. Með bréfinu fylgdi skot úr sjálf- hlaðandi byssu. Lögreglunni í Andenes barst bréfið á mánudagsmorgun, skömmu áður en prinsessan kom þangað með flugvél. Starfsmönn- um pósthússins á staðnum hafði þótt bréfíð grunsamlegt og hafði samband við lögregluna. Hún leit- aði þegar í stað aðstoðar öryggis- lögreglunnar í Ósló. Eftir að bréfíð barst var örygg- isgæslan í grennd við prinsessuna efld ' mjög. Hópur einkennis- klæddra lögreglumanna fylgdi henni hvert sem hún fór og vopn- aðir lífverðir voru við öllu búnir skammt frá drottningunni. Lögregluyfírvöld hafa ekki vilj- að opinbera innihald bréfsins vegna rannsóknar málsins. Þau hafa aðeins sagt að hótað hafí verið að myrða krónprinsessuna og því hafi fylgt byssuskot. Prinsessan sneri til Óslóar nokkrum klukkustundum síðar eins og áætlað var eftir veislu á eyjunum. Lögreglan leitar nú þeirra sem sendu bréfið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.