Morgunblaðið - 17.06.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.06.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1989 Lánasjóður íslenskra námsmanna; Ekki tryggt að námslán- in hækki um 6% í janúar Samstarfsnefiid námsmanna- hreyfinga hefiir sent bréf til Svavars Gestssonar, mennta- málaráðherra, þar sem spurt er, hvort ekki verði staðið við fyrir- heit um 6% hækkun námslána í janúar næstkomandi. Ekki er gert ráð fyrir þessari hækkun í drögum að Qárhagsáætlun, sem kynnt hefiir verið í stjórn Lána- sjóðs ísjenskra námsmanna. Guðrún Ágústsdóttir, aðstoðar- maður menntamálaráðherra, segir að afstaða ráðherra til hækkunarinnar sé óbreytt, en ekki verði endanlega tryggt að af henni verði fyrr en fjárlög hafi verið samþykkt á næsta þingi. Menntamálaráðherra skipaði í vetur vinnuhóp til að fjalla um breytingar á námslánunum og voru niðurstöður hans á þá leið, að námslán skyldu hækka í þremur áföngum; um 7,5% í mars, 5% í september og um 6% í janúar á næsta ári. Jafnframt ætti að breyta reglum um frádrátt frá hámarks- láni, þannig að draga skyldi 50% tekna umfram framfærslu í sumar- leyfi frá lánsupphæð í stað 35% áður. Menntamálaráðherra lýsti yfir ánægju sinni með þessar tillög- ur og hækkuðu námslánin um 7,5% í mars. Samhliða því var tekjutillit- ið aukið í 50%. Nú hafa drög að fjárhagsáætlun Lánasjóðsins verið lögð fram og er þar ekki gert ráð fyrir janúar- hækkuninni. Hefur samstarfsnefnd þeirra námsmannahreyfinga, sem eiga fulltrúa í stjórn sjóðsins, sent ráðherra bréf, þar sem hann er spurður hvort ekki eigi að standa við fyrirheit um hækkunina. Þessar námsmannahreyfingar eru Stúd- entaráð Háskóla íslands, Samband íslenskra námsmanna erlendis, Bandalag íslenskra sérskólanema og Iðnnemasamband íslands. Viktor B. Kjartansson, lána- sjóðsfulltrúi Stúdentaráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið, að þar sem menntamálaráðherra hefði gefið vilyrði fyrir janúarhækkun- inni vildu námsmannahreyfingam- ar fá skýringu á því, hvers vegna ekki væri gert ráð fyrir henni í fjár- hagsáætluninni. Tekjutillitið hefði verið aukið í byrjun mars og ef lánin hækkuðu ekki í janúar myndi það leiða til þess, að námsmenn, sem hefðu 300.000 kr. eða meira í árstekjur, töpuðu á þeim breyting- um, sem ráðherra hefði komið til leiðar. Svavar Gestsson, menntamála- ráðherra, er erlendis um þessar mundir, en að sögn aðstoðarmanns hans, Guðrúnar Ágústsdóttur, hef- ur bréfi námsmannahreyfinganna nú verið svarað. Guðrún segir, að afstaða menntamálaráðherra til janúarhækkunarinnar sé óbreytt; hann muni gera allt sem í hans valdi stendur til að af henni verði. Hins vegar sé það ekki endanlega tryggt fyrr en Alþingi hafi sam- þykkt aukið framlag til Lánasjóðs- ins á fjárlögum fyrir árið 1990. Opinber heim- sókn Spán- arkonungs JUAN Carlos I, Spánarkonungur og Sofía drottning Spánar koma í opinbera heimsókn hingað til lands í sumar. Konungshjónin hafa þegið boð forseta íslands um að koma hingað í opinbera heimsókn dagana 5.-7. júlí. Orkustofiiun boraði Qórar holur í Leirdal til að kanna grunn- vatnsstreymi í dalnum. Morgunblaðið/Þorkell Vatnsból Garðbæ- inga ekki í hættu - segir Freysteinn Signrðssonjarðfheðingiir FREYSTEINN Sigurðsson, jarðfiræðingur hjá Orkustofiiun, telur ekkert benda til að vatnsból Garðbæinga gæti mengast ef til þess kæmi að sorp yrði urðað í Leirdal í Kópavogi. Fjórar holur hafa verið boraðar undanfama tvo daga en önnur dýpri hola var fyrir. „Þessar boranir og mælingar á þeim renna miklum stoðum undir þá skoðun sem við höfðum í upp- hafi, að ekki væru verulegar líkur á að vatn rynni frá Leirdal í átt að vatnsbóli Garðabæjar," sagði Freysteinn. Ein af holunum var boruð í gær og var það gert til að kanna hvert vatnið rynni ann- að. Freysteinn sagðist vonast til að ekki þyrfti að bora meira í dalnum en ef til þess kæmi að sorp yrði urðað þar yrði sennilega ekki hjá því komist að bora víðari holur til þess að fylgjast með hugsanlegri mengun. Annað væri ekki veijandi. Myndu þiggja frest „Miðað við þessar aðstæður er ósk heilbrigðisráðherra afskap- lega eðlileg og mér þykir vænt um að hann tekur þetta mál alvar- lega og að hann skuli leggjast á sveif með okkur,“ segir Heimir Pálsson, forseti bæjarstjómar Kópavogs, um ósk Guðmundar Bjamasonar heilbrigðisráðherra til borgarstjórnar Reylqavíkur um að Kópavogsbæ verði veittur frek- ari frestur fram yfir 1. júlí til að urða sorp í Gufunesi. Heimir sagði að aldrei hefði hvarflað að bæjaryfirvöldum í Kópavogi annað en að tryggt yrði að vera að ekki yrði mengun af völdum fyrirhugaðrar urðunar sorps í Leirdal. Hann sagði aðspurður að ef borgaryfirvöld í Reykjavík veittu Kópavogsbæ frekari frest til urð- unar sorps í Gufunesi vegna óskar heilbrigðisráðherra þá yrði hann tvímælalaust þeginn. Bæjarstjórn Garðabæjar hefur ítarlega fjallað um fyrirhuguð áform Kópavogsbæjar um að urða sorp í Leirdal. Ingimundur Sigurpálsson bæj- arstjóri segir að bæjarstjómin telji það fráleitt að heimila losun sorps í nágrenni vatnsbóla ef nokkur minnsta hætta er á mengun af völdum þess. Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráðherra: Ferðakostnaður heima- sendiherra 5 millj. í fyrra Harpa Rut Sonjudóttir Lést í um- ferðarslysi STÚLKAN, sem Iést í um- ferðarslysi á mótum Lauga- vegar og Vitastígs að morgni sl. fimmtudags, hét Harpa Rut Soiyudóttir. Hún var 19 ára gömul, fædd 29. janúar 1970, og bjó á Unn- arbraut 9 á Seltjamarnesi. 16 ára stúlka, sem slasaðist alvarlega, liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Borgarspítal- ans. Benedikt Gröndal íhugar tillögu um annað starf í utanríkisþjónustu „ÁKVÖRÐUN Benedikts stendur óhögguð. Hins vegar hefiir hann til umhugsunar tillögur sem ég lagði fram um önnur störf innan utanríkisþjónustunnar,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis- ráðherra, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að afloknum lið- lega 2 'k tíma fundi hans með Benedikt Gröndal. ar mér barst uppsagnarbréf hans Jón Baldvin sagði að í aprílmán- uði síðastliðnum hefðu verið lagðar fram róttækar tillögur um skipu- lagsbreytingar á starfsháttum í utanríkisþjónustunni er lengi hefðu verið í smíðum. „Þessar tillögur er nú verið að framkvæma, þær fela í sér tilfærslur starfsmanna, auknar áherslur á forgangsmál sem og að seglin era dregin saman á hefðbundnum sviðum,“ sagði ráðherra. Jón Baldvin sagði, að það hefði verið Ijóst þegar tillögumar vora lagðar fram, að þær fælu í sér veralegar tilfærslur í störfum. „Það hafði verið í mínum huga um nokkurt skeið að ræða þær við Benedikt. Þess vegna var það þeg- Benedikt Gröndal sendiherra: Ekkert gerst sem breytir minni ákvörðun „ÞETTA var langur fiindur, stóð í liðlega 2 14 tíma, enda ekki við öðru að búast þar sem við höfiim ekki talað saman síðan ráðherra kom í ráðuneytið," sagði Benedikt Gröndal sendiherra eftir fimd þann sem hann átti með utanríkisráðherra í gærkvöldi. Benedikt sagði að margt hefði skýrst á fundinum og hann hefði fengið svör við ýmsum af sínum spumingum en við það hefðu engar breytingar orðið á ákvörðun hans um að biðjast lausnar frá embætti sendiherra. Hann sagði að ráðherra hefði tíundað í samtölum við sig allar þær skipulagsbreytingar sem hann hygðist hrinda í framkvæmd í ráðuneytinu en það hefði jafnframt kómið glöggt fram að ráðherra héldi fast við þann ásetning sinn að leggja niður embætti heima- sendiherra. „Niðurstaðan af þessum fundi er engin í sjálfu sér. Hvort hún er endanleg eða ekki veit ég ekki. Ég veit ekki hvort ráðherra á eftir að leika einhveijum nýjum leik. Ég veit því ekki hvað verður, því eftir þennan fund hefur engin grundvall- arbreyting orðið þótt við höfum hreinsað andrúmsloftið og ræðst hreinskilnislega við,“ sagði Bene- dikt Gröndal að lokum. inn á fund í Noregi, að ég óskaði sérstaklega eftir því, að hann léti málið liggja í þagnargildi þar til við gætum rætt saman og birti það ekki fjölmiðlum. Tilgangur fundar okkar var náttúrlega sá, að fá fyrri ákvörðun hans breytt,“ sagði Jón Baldvin. „í sambandi við þetta mál vil ég taka fram eftirfarandi," sagði ráðherra: „Það er ákvörðun Al- þingis í sambandi við afgreiðslu ijárlaga hvernig fjárveitingu til utanríkisþjónustu sem og annarra er hagað. Sjálfir lögðum við fram á síðastliðnu hausti veigamiklar sparnaðartillögur. Þar á meðal að stöðva ferðalög heimasendiherra til Asíuríkja. Jafnframt settum við af stað athugun um sameiningu lögreglustjóraembættis Keflavíkur og Keflavíkurflugvallar. Niður- stöður þeirra athugana liggja fyrir núna, þar er gert ráð fyrir vera- legri fækkun starfsmanna og um- talsverðum spamaði. í þriðja lagi var gerð tillaga um að draga úr launaútgjöldum um 4%. Það fól í sér að draga mjög úr yfirvinnu- greiðslum. Þetta hefur verið fram- kvæmt hér í ráðuneytinu, þannig að yfirmenn á hveiju sviði era gerðir ábyrgir fyrir því að ráðu- neytið fari ekki fram úr ákveðnum kvóta vegna yfirvinnugreiðslna.“ Jón Baldvin sagði þetta ekki hafa verið vinsælar ráðstafanir í sínu ráðuneyti, enda gætu þær þýtt veralega kjaraskerðingu fyrir starfsmenn og gætu jafngilt kaup- lækkun upp á tugi þúsunda hjá þeim sem mesta yfirvinnu hefðu haft. „Það er ráðherrans að móta stefnu varðandi starfshætti og skipulag ráðuneytisins, það er hinn pólitíski ráðherra sem ber ábyrgð á því að framkvæma fyrirmæli fjárlaga, ef einstakir starfsmenn era óánægðir með það þá er það auðvitað þeirra mál, “ sagði ut- anríkisráðherra. Ráðherra benti á að aðhald, aðgerðir og sparnaður í fyrirtækjum úti í þjóðfélaginu væra í dag síður en svo nýjar af nálinni. Hið opinbera ætti að gera eins og ganga á undan með góðu fordæmi einkum í þeirri stöðu sem nú ríkti í ríkisijármálum. Utanríkisráðherra sagði, að á fundinum með Benedikt hefði kom- ið á daginn, að enginn ágreiningur væri með þeim tveimur um að æskilegt væri að stofna viðskipta- sendiráð í Japan sem nú væri okk- ar fimmta stærsta viðskiptaland. „En það verður ekki gert af skynd- ingu,“ sagði ráðherra og bætti við, „að undirbúningur að slíku hefði staðið frá síðastliðnu hausti." Að- spurður um gagnrýni þá sem kem- ur fram í bréfi Benedikts Gröndals um utanríkisráðherra sagði Jón Baldvin: „Það er mín ákvörðun og ég ber ábyrgð á því að hafa lagt til niðurskurð ferðalaga sem á síðastliðnu ári námu 5 milljónum króna." Aðspurður hvort sendiherra hefði með því að birta lausnar- beiðnibréf sitt opinberlega fyrir- gert frekari rétti sínum sem starfs- maður utanríkisþjónstunnar sagði ráðherra: „Ég hef boðað breyting- ar. Það er ekki hlutverk embættis- manna að gagnrýna þær, hins veg- ar er hveijum manni frjálst að hafna þeim og þá að segja af sér, ef þeir telja að þeir geti ekki við þær búið. Það vora mér viss von- brigði, að Benedikt skyldi birta þetta bréf áður en ég fékk tæki- færi að ræða við hann.“ Ráðherra sagðist á fundinum með Benedikt í gær hafa lagt fram tillögu um annað starf handa Bene- dikt innan utanríkisþjónustunnar sem hann hefði nú til skoðunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.