Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Kjarvalsstaðir •• Ondunarpunktar hylja fleygboga RÁÐHILDUR Ingadóttir lýkur verki sínu í miðrými Kjarvalsstaða í dag, fimmtudag, kl. 18 og við veggn- um tekur Gunnar Örn. Ráðhildur hefur unnið að verki sínu sl. þrjár vikur en hún er fjórða í röð sex listamanna sem taka þátt í sýningarverkefninu Veg(g)ir. Framkvæmd verkefnisins byggist á tveimur meginþáttum; annars vegar að veita listafólki tækifæri til að vinna úr hugmyndum sínum á eða út frá stórum fleti, og hins vegar að leyfa gestum safnsins að fylgjast með þróun hvers listaverks frá upp- hafí til enda. Framkvæmdin vísar með sterkum hætti til hverfulleika lífs og listar. Að loknu sérhverju sýningartímabili verður framlag hvers listamanns fjarlægt eða hulið bak við nýtt lag af málningu sem um leið verður undirlag þess sem næst kemur á vegginn. Ráðhildur skipti veggnum í tvennt með fleygboga, fleygboga flöturinn er blár en hinn hlutinn gi-ænbrúnn. Á bláa flötinn skráði Ráðhildur dagdrauma í formi teikninga, græn- brúni flöturinn var notaður fyrir hugmyndir sem komu upp á tímabil- inu. Ráðhildur fékk til liðs við sig tón- listarmannin Biogen. Hann samdi tónlist á tölvuna meðan hún vann og saman sköpuðu þau óendanlegt rými. Á „lokuninni“ mun Ráðhildur Ingadóttir kynna verk sitt og hug- leiðingar um það. Við sama tækifæri mun Gunnar Örn kynna hugmyndir sínar og áætlanir. I yfirlýsingu listamannsins segir: „Ég hef þá trú að það sem skiptir okkur mannfólkið hvað mestu máli kosti ekki peninga. Og hvað eignast maður í raun og veru í þessu lífi ann- að en ef vera kynni andlegan þroska, ef maður er heppinn. Fyrir rúmum fjórum árum fór ég að iðka jóga og þá opnaðist mér nýr og áður óþekktur heimur - heimur án nokkurra takmarkana. í jóga- fræðunum er m.a. notuð einbeiting- aræfmg, sem byggist á öndunar- punkti, sem er nærri 1 em í ummál. Þessi litli punktur er lymskulega lít- ill miðað við þau afgerandi áhrif sem hann getur haft á líf þess sem kýs að nota hann. Með því að stunda að horfa daglega á þennan litla punkt - í um 4 mínútur - getur maður aukið einbeitingu sína, róað hugann og skynjað nærveru annarra vídda. Kostar jú ekki nema smá fyrirhöfn. Ástæða þess að ég tíunda þetta hér er að þegar mér bauðst að taka þátt í verkefninu Veg(g)ir kom ekk- ert annað upp í hugann en að útfæra hugmynd sem væri tengd þessum undrapunkti. Hugmyndin er að raða litaflötum þvert á vegginn, með einn öndunar- punkt í hverjum fleti. Síðan fæ ég til liðs við mig hóp nemenda úr nálæg- um skóla, um tuttugu talsins, mæli hæð hvers nemanda fyrir sig, og bý til öndunarpunkta miðað við hvern og einn (en punkturinn stillist í augnhæð miðað við hvem einstak- ling). Síðan er ætlunin að fá þau til að stilla sér upp við vegginn og taka öndunaræfingu í hinni formlegu „lokun“ verksins. Ég neita því ekki að undir niðri óska ég þess að einhver af þessu unga fólki fái, nú eða síðar á ævinni, löngun til að skyggnast inn í innri heima þar sem ríkir kyrrð og sam- hljómur." Morgunblaðið/Sig Sigmunds Karlakór Hreppamanna ásamt stjórnandanum Edit Molnár. Afmælistónleikar Karlakórs Hreppamanna Hrunamannahreppur. Morgunblaðið. TROÐFULLT hús áheyrenda var í Félagsheimili Hrunamanna þeg- ar Karlakér Hreppamanna hélt sína afmælistónleika 1. apríl, en þann dag voru liðin þrjú ár frá stofnun kórsins. Á fjölbreyttri söngskrá voru m.a. íslensk ætt- jarðarlög og amerísk lagasyrpa sem einn kórfélaga, Hreinn Þor- kelsson, hefur gert texta við. Barítonsöngvarinn Loftur Er- lingsson frá Sandlæk og kona hans Helga Kolbeinsdóttir sópr- ansöngkona sungu einsöng og tvísöng með kórnum. Auk þess fluttu þau sína eigin dagskrá sem á voru íslensk og norræn lög og lög úr söngleikjum. Stjórnandi kórsins er Edit Molnár, undirleik- ari er eiginmaður hennar, Miklós Dalmay. Kynnar kórsins, þeir Hreinn Þorkelsson og Sigmundur Jóhannesson, fóru með vísur um og eftir Húnvetninga á milli þess sem kynnt voru lögin. Þess má geta að báðir eru ættaðir úr Húnaþingi. Tilefnið er að karla- kórinn fer í söngferðalag til Blönduóss 15. apríl. Þar mun kór- inn syngja á sönghátíð ásamt Karkalór Bólstaðahlíðarhrepps, samkórnum Björk og Karlakór Dalvíkur. Formaður Karlakórs Hreppa- manna er Gunnlaugur Magnússon Miðfelli. Kórfélagar eru 38-40. Morgunblaðið/Sigurgeir Frá Degi tónlistarfólks í Vestmannaeyjum. 21 verk á Degi tónlistarfólks Vestmannaeyjar. Morgunblaðið. Listir norðanfólksins Leitum að ungri stúlku á fjalirnar á ný SÝNINGAR hefjast á ný á leikrit- inu Leitum að ungri stúlku í Há- degisleikhúsi Iðnó en leikritið var frumsýnt fyrir rúmu ári. Fyrsta sýningin verður sunnudaginn 8. apríl og hefst kl. 12 eins og allar sýningar í Hádegisleikhúsinu. Leitum að ungri stúlku er eftir Kristján Þórð Hrafnsson og hlaut fyrstu verðlaun í leikritasam- keppni sem efnt var til þegar Iðnó var opnað á ný árið 1988. Leikstjóri er Magnús Geir Þórð- arson, en leikarar eru Linda Ás- geirsdóttir og Gunnar Hansson. ------------------------ Nýjar bækur •SÖNGFUGL aðsmnan, eru ljóðaþýðingar eft- ir Þorstein Gylfa- son, heimspeki- prófessor og þýðanda. í þeim er að finna margar Ijóðaperlur eftir höfuðskáld eins og Shakespeare, Goethe og Púshkín, en einnig eftir minna þekkt góðskáld eins og Piet Hein og Tove Ditlevsen. Þá eru í bókinni þýddar allmargar spænskar þjóðvísur. Allur síðari hluti bókar- innar er helgaður þýska skáldinu Bertholt Brecht. I öllum tilvikum eru Ijóðin birt á frummálinu við hlið þýðinganna. í bókarlok gerir Þorsteinn grein fyrir skáldunum, tildrögum hvers Ijóðs og þýðinganna. Útgefandi er Mál og menning. Söngfugl að sunnan er319 bls., prentuð í Svíþjóð. Kápuna gerði Jón Reykdal. Verð: 3.280 kr. DAGUR tónlistarfólks var haldinn hátíðlegur í Vestmannaeyjum sl. laugardag í Safnaðarheimili Landakirkju. Fjölmargir heima- menn létu þessa tónlistarveislu ekki fram hjá sér fara. Þeir sem fram komu voru Brass Quintet Vest- mannaeyja, Samkór Vestmanna- eyja undir stjórn Báru Grímsdótt- ur, Tónsmíðafélag Vestmannaeyja, sem skipað er ellefu flyljendum, Harmonikkufélag Vestmannaeyja, sem í eru átta félagar, Kór Landa- kirkju, undir stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar. Með kórnum söng einsöng Halla Dröfn Jónsdóttir Þorsteinssonar. Lúðrasveit Vest- mannaeyja, undir stjórn Stefáns Siguijónssonar. Alls var 21 verk flutt á tónleikun- um. Kynnir á tónleikunum var Ólaf- ur H. Siguijónsson. MYNDLIST M « kka LÁRUSLIST MÁLVERK Sýningunni lýkur 8. aprfl. LÁRUS List hefur haldið nokkrar myndlistarsýningar undanfarin ár, bæði á Akureyri og í Reykjavík, og hafa málverk hans stundum vakið nokkra athygli, ekki síst fyrir það að hann hefur notað í þau blóð sem hann hefur dregið úr sjálfum sér. Á sýn- ingunni á Mokka fer þó minna fyrir slíku heldur hefur Lárus hér búið sér til þema sem hann vinnur eftir ein- faldai' og draumkenndar myndir. Hann beitir hvítum lit á ógrunnaðan striga og þemað er tilvísun í líf og hefðir Inúíta, en Lárus segist vera að kanna með þessum myndum tengsl okkar við þessa nágrannaþjóð hér nyrst í hinum byggilega heimi. Verk- in eru fyrst og fremst byggð á af- strakt formum en í þeim má þó greina svipi og sýnir sem hafa greini- lega tilvísun í heim Inúítanna. Á bak við hvítan litinn má greina brúnan strigann, einkum í köntum mynd- anna, en það gerir myndirnar grófai'i og óheflaðari en ella. Úrvinnsla þessara mynda er ekki eins góð og hún þyrfti að vera til að þær gangi íyllilega upp, einkum hvað varðar byggingu og tengingu við þemað sem þó er greinilega fyrst og fremst unnin eftir tilfinningu eins og í fyrri verkum Lárusar. Það er því líkast sem meiri yfirlegu hefði þurft við gerð myndanna og lengri aðdrag- anda til að vinna úr hugmyndunum. En líkt og áður hafa þessar nýju myndir Lárusar nokkuð aðdráttarafl fyrir þá óheftu sköpunarþörf sem þau vitna um. Hér er á ferðinni mál- ari sem málar ekki af því honum hafi verið kennt það eða hann hafi kosið sér málaralistina úr mörgum mögu- legum kostum; Lárus virðist fremur mála af því hann getur ekki annað, af einhverri ómótstæðilegri þörf. Það að finna þessa þörf er auðvitað fyrsta forsenda listarinnar og fyrir henni má ávallt finna í myndum Lárusar. Jón Proppé Macchado og Browne hljóta IBBY-verðlaunin H.C. ANDERSEN-verðlaun IBBY samtakanna féllu að þessu sinni í skaut rithöfundarins Ana Maria Machado frá Brasilíu og enska mynd- listarmannsins Anthony Brown, og var það til- kynnt á nýafstaðinni barnabókamessu í Bologna á Italíu. Verðlaunin verða afhent við athöfn á al- þjóðaþingi IBBY-samtakanna í Cartagena de Indias í Kólumbíu 21. september næstkomandi. Ana Maria Machado hefur skrifað 105 bækur fyrir börn og fullorðna. Með bókum sínum, fyrir- lestrum og margvíslegu starfi í þágu bókmennta hefur hún átt ríkan þátt í að byggja upp vitund um mikilvægi barnabókmennta í Brasilíu, segir í fréttatilkynningu. Anthony Browne þykir óvenjulega hæfileika- ríkur listamaður, tækni þans er sérstök og ímyndunaraflið einstætt. Árið 1994 kom út hjá forlaginu Himbrima bók hans Górillan í íslenskri þýðingu Dóru Hvanndal. Einnig myndskreytti hann Ævintýri Lísu í Undralandi sem Mál og menning gaf út í þýðingu Þórarins Eldjárns árið 1996. Alls voru 27 listamenn úr hvorum flokki til- nefndir frá ýmsum löndum. Böm og bækur - Is- landsdeild IBBY tilnefndi rithöfundinn Magneu frá Kleifum og Áslaugu Jónsdóttur myndlistar- mann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.