Dagblaðið - 24.06.1981, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 24.06.1981, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ1981. 16 Menning Menning Menning Menning I - ' Mikill er blessaður gróandinn Sýning á leirlist, gleri, textfl, silfri og gulli að Kjarvaisstöðum Það er best að segja það strax i upphafi: Sýning sú á verkum íslensks listiðnaðarfólks sem sjá má að Kjar- valsstöðum um þessar mundir er ein sú ásjálegasta sinnar tegundar sem hér hefur verið sett upp. Þar vegur að sjálfsögðu þungt hið örugga listræna handbragð á öllum þeim munum sem til sýnis eru, en lóð Stefáns Snæbjörnssonar innanhúss- arkitekts hefur þó e.t.v. vegið þyngst hvað allt útlit sýningarinnar snertir. Loftið ljóta hefur hann lækkað og gert óvirkt með hvítum taurenning- um sem hanga neðan i þvi, svo lágt að viðráðanlegt rými myndast og smáir listmunir týnast ekki í viðátt- unni. Síðan er gólfrými i vestursal Kjar- valsstaða skipt þannig niður með flekum og básum að hver lista- maður fær að vera út af fyrir sig en er þó i nánum tengslum við afganginn af sýningunni og vel loftar um mun- ina. Frœgðarför í Svfarfki Sýningin, sem hér nefnist Leirlist - Gler - Textíll - Silfur - Gull, varð þannig til að forstöðumaður Hássel- by hallar i Stokkhólmi, Birger Ols- son, valdi 12 hinna 13 þátttakenda Nokkrir þátttakendur i sýningunni: f.v. Stefán Snæbjörnsson, Leifur Breiðfjörð, Sigrún Ólöf Einarsdóttir, Guðrún Auðuns- dóttir, Ásdis Thoroddsen, Hulda Jósefsdóttir, Ragna Róbertsdóttir, Jónina Guðnadóttir, Elisabet Haraldsdóttir og Sigriður Jóhannsdóttir. Fyrir framan þau eru leirmunir Hauks Dór. (DB-mynd Einar Ól.) og sjálfvakin. Verk Elísabetar Har- aldsdóttur eru að sínu leyti mitt á milli þessara tveggja póla, formföst en formin eru í ætt við skúlptúr, rúin beinu notagildi en sindrandi af hugarflugi og undirfurðulegri kimni. Jónlna Guðnadóttir gerir hins vegar nytjahluti i leir en kompónerar sam- tímis með form og skreytingar svo úr verða sérstaklega vel samræmdir hlutir. Textillinn fær e.t.v. ekki það rúm sem hann verðskuldar á sýningunni en þó bregður hann upp marktækum svipmyndum af fjölbreytninni á því sviði. Þau hjónin Sigríður Jóhanns- dóttir og Leifur Breiðfjörð eru full- trúar púra vefnaðar og þeim eykst sífellt ásmegin í því sem þau taka sér fyrir hendur. Hvort sem þau vinna stranglega lárétt og lóðrétt eða frjálslegar tekst þeim að búa til sterkar heildir. Listiðn til útflutnings Á hinum kantinum er svo Ragna Róbertsdóttir sem hefur snúið sér al- farið að gerð myndraða sem eiga ýmislegt skylt við smágervan skúlptúr og hanga saman á hugmynda- tengslum og þokka. Ekki fer mikið fyrir tauþrykki Guðrúnar Auðuns- Gler eftir Sigrúnu Ólöfu Einarsdóttur. hér á sérstaka sýningu á íslenskum listiðnaði þar í landi. Eins og skýrt var frá hér í DB (24. mars sl.) vakti þessi sýning talsverða athygli og kalla Svíar þó ekki allt ömmu sína hvað listiðnað snertir. Einn helsti mynd- listargagnrýnandi Svia, Ulf Hárd af Segerstad, lýsti yfir ánægju sinni með það hve ferskir og alþjóðlegir Isiend- ingar væru i listiðn sinni. Þeim Hásselbyförum var sfðan boðið að sýna að Kjarvalsstöðum i sumar og þá bættist Sigrún Ólöf Einarsdóttir, okkar eini glerhönnuð- m > Hulda Jósefsdóttir — Óda, ullarpeysa. (DB-myndir Gunnar Örn) ur, í hópinn. Að hluta til eru verkin á sýningunni þau sömu og i Hásselby, en flestir sýnenda hafa þó bætt við nýjum munum. V Huldumaður eftir Sigríði Jóhanns- dóttur og Leif Breiðfjörö. Mikil breidd Hér hefur áður verið skrifað um þá miklu grósku sem nú gætir í isíenskum listiðnaði. Á sýningunni að Kjarvalsstöðum má að visu finna rjómann af því sem er að gerast í sumum greinum listiðnar, en svo mikill er gróandinn og fjölbreytnin í öllum greinum hennar hér á landi að auðveldlega mætti setja saman aðra sýningu 13 atvinnumanna í listiðnaði. Yrði sú trúiega engu síðri ef vel væri á spilum haldið. Er auðséð að útung- unarstöð íslensks listiðnaðarfólks, Myndlista- og handiðaskólinn, hefur staðið vel í stykkinu undanfarna tvo áratugi en auk þess hafa listnemar fylgt ævafornri hefð og leitað sér framhaldsmenntunar erlendis. Gull- og silfursmiðir sýningarinnar eruy^rlega vel valdir til að sýna þá breidd sem ríkir innan þeirrar, til- tölulega fámennu greinar á landinu. Ásdis Thoroddsen er listamaður í ýmis efni og teflir þeim saman af miklu hugviti og öryggi, Jens Guð- jónsson er svo hinn expressjóniski myndsmiður ( silfri og gulli og Guð- brandur J. Jezorsky fyllir upp í myndina með sinum fáguðu fúnkís- munum. Opin form og lokuð Svipaða breidd er að flnna í kera- mikinni. Haukur Dór er verðugur fulltrúi þeirra sem móta sterkbyggð, formföst ilát en Steinunn Marteins- dóttir er á hinum vængnum og gerir opin, lifræn stykki sem virðast eins dóttur sem er eiginlega nær því að skapa einstök myndverk með þessari tækni en að nota sér fjölföldunar- möguleika hennar. Svo er ekki að spyrja að prjóna- skap Huldu Jósefsdóttur sem Út- flutningsmiðstöð iðnaðarins ætti að taka upp á arma sér og kynna, þvi þar er íslenska ullin notuð í flíkur af meiri hugkvæmni en hér hefur áður sést. Gler Sigrúnar Ólafar sést nú hér í fyrsta sinn opinberlega, og sjá, hér er mikil hæfileikamanneskja á ferí- inni. Glermunir hennar eru unnir af stakri smekkvísi og natni. Vonandi tekst henni að koma sér upp þeirri aðstöðu sem hún þarf til áframhald- andi vinnu í grein sinni hér á landi. Sýning listiðnaðarfólks, Leirlist - Gler - Textíll — SUfur - Gull, verður opin til 23. ágúst. - AI Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON Taflborö eftir Elísabetu Haraldsdóttur. v

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.