Morgunblaðið - 13.04.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.04.2002, Blaðsíða 24
ERLENT 24 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ HÁLFU ári eftir kosningarnar, sem komu dönsku hægriflokk- unum til valda, virðist sem mörgum kjósandanum hafi snú- ist hugur. Ef kosið væri í Danmörku nú myndi núverandi samsteypu- stjórn Hægriflokksins og Venstre með stuðningi Danska þjóðarflokksins aðeins fá einn þingmann umfram stjórnarand- stöðuna. Kemur þetta fram í Berlingske Tidende. Meginástæðan er aukinn stuðningur við jafnaðarmenn að því er fram kemur í skoðana- könnunum. Þeir fengju nú 31,7% atkvæða, 2,6 prósentustigum meira en í kosningunum og bættu við sig fjórum þingsætum. Venstre hefur hins vegar tapað fylgi, 3,2 prósentustigum, og er nú bara annar stærsti flokkur- inn í landinu. Mælist hann nú með 28,1% en það svarar til, að hann missti sex þingsæti. Jafnaðarmenn í sókn í Danmörku HUGO Chavez, forsetiVenesúela, var handtek-inn í gær eftir að hannsagði af sér embætti vegna þrýstings frá hernum, sem kenndi honum um götuóeirðir sem kostuðu ellefu manns lífið. Fór her- inn þess á leit við kaupsýslumanninn Pedro Carmona að hann tæki að sér forsæti í bráðabirgðastjórn, og var þar með bundinn endi á þriggja ára valdatíð Chavez, sem hafði tekið af- stöðu gegn ráðandi öflum í samfélag- inu. Chavez sagði af sér eftir að þriggja daga allsherjarverkfall í landinu náði hámarki í götuóeirðum er brutust út í fyrradag. Auk þeirra 11 sem féllu í óeirðunum slösuðust um hundrað manns. Óeirð- irnar leiddu til uppreisn- ar æðstu manna hersins og ríkisstjórnarinnar. Lucas Rincon yfirhers- höfðingi tilkynnti um af- sögn Chavez skömmu eftir þrjú í fyrrinótt að staðartíma (uppúr klukk- an sjö í gærmorgun að ís- lenskum tíma), og batt þar enda á margra klukkustunda óvissu um afdrif forsetans. „Leiðtogar hersins eru miður sín vegna þeirra atburða sem áttu sér stað í höfuðborginni í gær ... og kröfðust þess að forseti lýðveld- isins segði af sér embætti, og varð hann við því,“ sagði Rincon við frétta- menn eftir að hafa tilkynnt afsögn forsetans. Skömmu síðar tilkynnti Carmona að „ráðandi öfl meðal al- mennra borgara og í her Venesúela“ hefðu beðið hann að fara fyrir bráða- birgðastjórn. Carmona er forseti samtaka kaup- sýsluforkólfa, Fedecameras, en þau samtök höfðu tekið þátt í að skipu- leggja allsherjarverkfallið, sem beindist gegn stefnu Chavez í at- vinnumálum. Chavez tók fyrst við forsetaembættinu 1998, og var end- urkjörinn 2000. Áður en Chavez sagði af sér höfðu fjármálaráðherrann, Francisco Uson, sem er foringi í hernum, og að- stoðaröryggismálaráðherrann, Luis Camacho Kairuz, sem er yfirmaður þjóðvarðliðsins, sagt af sér. Tíu aðrir háttsettir menn í hernum gengu í lið með þeim og gerðu uppreisn gegn Chavez. Eiginkona forsetans, Mar- isabel, fékk að fara úr landi „af mannúðarástæðum“, að því er foringi í hernum greindi frá. Mannfallið í óeirðunum í fyrradag varð þegar stuðningsmönnum Chav- ez og andstæðingum hans laust sam- an og þjóðvarðliðar skiptust á skot- um við lögreglumenn. Vasquez segir að þá hafi hann ákveðið að ganga í lið með þeim er kröfðust afsagnar for- setans. „Ég var þér trúr uns yfir lauk, ég var þjónn þinn þar til nú síð- degis, en manndrápin í dag get ég ekki látið óátalin. Í dag hafa öll mannréttindi verið brotin,“ sagði Vasquez. Í átökunum beittu þjóðvarðliðar táragasi gegn múgn- um og skyttur uppi á þökum og stuðnings- menn Chavez skutu hvað eftir annað á fólkið, er krafðist af- sagnar forsetans, og jafnvel líka á öku- menn sjúkrabíla er reyndu að koma særðum til hjálpar. Chavez fór fram á það, eftir afsögn sína, að fá að fara í útlegð til Kúbu, en herinn hafnaði þeirri beiðni, sagði hershöfðinginn Roman Fuemayor. „Hann verður að svara til saka hér í landi.“ Chavez var í gær í haldi í Fort Tiuna-herstöðinni í Caracas, og sagði Vasquez að hann yrði þar uns rannsókn leiddi í ljós fyrir hvað hann yrði ákærður vegna óeirðanna á fimmtudaginn. Auk Fedecameras stóðu Laun- þegasamtök Venesúela, sem í eru um ein milljón manna, að allsherjarverk- fallinu, sem var boðað til að styðja framkvæmdastjóra í ríkisolíufyr- irtækinu, Petroleos de Venezuela, sem voru óánægðir með þá menn sem Chavez hafði skipað í stjórn fyr- irtækisins. Venesúela er fjórða mesta olíu- framleiðsluríki heims, og 80% af út- flutningstekjum ríkissjóðs eru af ol- íusölu. Framkvæmdastjórar fyrirtæksins sögðu að stjórnarmenn- irnir sem Chavez skipaði hafi ekki verið starfinu vaxnir, og hafi einungis verið skipaðir til að styrkja tök for- setans á fyrirtækinu. Á þeim þrem árum sem Chavez hafði setið á forsetastóli hafði honum tekist, með óbilgjörnum yfirlýsingum sínum, að ávinna sér óvild fólks á svo að segja öllum sviðum samfélagsins. Hann atyrti fjölmiðla, leiðtoga róm- versk-kaþólsku kirkjunnar, neitaði að ráðgast við frammámenn í við- skiptalífinu og mistókst að ná völdum í launþegasamtökum. Þegar hann tók við völdum tók hann einnig við opinberum skuldum að jafnvirði 2.100 milljarða króna vegna ógreiddra launa. Þá skuld gat hann aldrei borgað. Meint tengsl hans við vinstrisinnaða skæruliða í Kólumbíu vöktu reiði margra í hernum og er- lendis. Framkvæmdastjórar olíufélagsins fóru í síðustu viku að hægja á fram- leiðslunni og dró þá úr afköstum Paraguana-olíuhreinsistöðvarinnar, sem er ein sú stærsta í heimi, um 50%. Annarri hreinsistöð var lokað, tafir urðu á afgreiðslu gasolíu og hleðslu olíuskipa var svo að segja hætt. Regulo Anselmi, yfirmaður flughersins, sagði að herinn hefði á miðvikudaginn hvatt Chavez til að semja við framkvæmdastjórana, en þeir hefðu þá ekki haft áhuga á slíku. Eftir óeirðirnar á fimmtudaginn ákvað yfirstjórn hersins að Chavez yrði að víkja, og fóru yfirmenn hers- ins allir saman á fund forsetans á skrifstofum hans, sagði Anselmi. Þjóðvarðliðar tóku á sitt vald rík- issjónvarpið og skriðdrekum var ekið um götur. Svo fór, að Chavez, um- kringdur ráðherrum sínum, afhenti Anselmi og tveim öðrum foringjum í hernum afsögn sína. „Sem vinur hans til margra ára ráðlagði ég honum að segja af sér og afstýra því, að íbúar Venesúela yrðu að þola meira blóðbað,“ sagð Uson. Vasques hershöfðingi sagði að 95% heraflans væri undir sinni stjórn, sem og allir flugvellir og stærstu her- stöðvar. Öllu flugi erlendis frá var af- lýst um óákveðinn tíma. Carmona, hinn nýi bráðabirgða- forseti landsins, mun væntanlega sitja þar til kosningar verða haldnar. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í mótmælunum gegn forsetanum und- anfarið. „Það eina sem ég hef verið að hugsa um undanfarna daga er baráttan gegn stjórn Hugo Chavez. En ég barðist ekki fyrir þessu, held- ur aðeins af brýnni nauðsyn,“ sagði Carmona við fréttamenn í gærmorg- un. Carmona er hagfræðingur, lærði í Venesúela og Belgíu. Frá því hann var kosinn forseti Fedecameras í júní í fyrra hefur hann leitt uppreisn í við- skiptageiranum gegn Chavez, vegna efnahagsstefnu forsetans. AP Hershöfðingjarnir Lucas Rincon, fyrir miðju, Regulo Anselmi, yfirmaður flughersins, og Jorge Tierralta, yf- irmaður flotans, á fréttamannafundi í Caracas þar sem þeir greindu frá því að Chavez hefði látið af völdum. Hugo Chaves, forseti Venesúela, er sagður hafa með óbilgirni áunnið sér óvild fjölda landa sinna, og svo fór, að eftir verkföll og blóðugar götuóeirðir neyddi herinn forsetann til afsagnar. Hugo Chavez Caracas. AFP, AP. Chavez segir af sér að kröfu hersins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.