Morgunblaðið - 21.07.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.07.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 21. JÚLÍ 2002 169. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Morgunblaðið/RA Í eigin heimi ofan sudda og myrkurs Arngrímur Jóhannsson, forstjóri flugfélagsins Atlanta, ólst upp á Eyrinni á Akureyri. Er því Eyrarpúk samkvæmt skilgreiningu innfæddra Annar slíkur „púki“, Skapti Hallgrímsson, hitti Arngrím að mál í félagi við Ragnar Axelsson ljós- myndara og komst m.a. að því að Arngrímur smitaðist af flugbakt- eríunni 10 ára, segist „fagidjót“ og e heillaður af listflugi. Og því að fyr- irtæki þeirra hjóna, hans og Þóru Guðmundsdóttur, er nefnt eftir belgísku hóteli! /B8 ferðalögVínviðurinn vex í WürzburgbílarSkoda Octavia RSbörnwww.barn.isbíóK 19 Sælkerar á sunnudegi Sítrónur og sól Sítrónan hefu löngum gegnt mikilvægu hlutverki í matargerð. Prentsmiðja Morgunblaðsins Sunnudagur 21. júlí 2002 B Fangbrögð við óeirðaflakkara 10 14 Jarðböð hluti af mý- vetnskri menningu 18 Rakarinn minn sagði mér... LOFTBELGIR svífa yfir turni rússnesku rétttrún- aðarkirkjunnar í hinum forna rússneska bæ Serg- iev Posad. Í bænum stend- ur nú yfir loftbelgjahátíð. Reuters Loftbelgjahátíð SPÆNSKIR embættismenn reyndu í gær að koma endanlegri mynd á sáttmála sem binda á enda á heift- arlega deilu Spánverja við Marokkó um Perejil-eyju. Colin Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, hafði milligöngu um drög að sáttmálanum á föstudaginn, og ræddi þá við Mo- hammad VI Marokkókonung og Mohamed Benaissa, utanríkisráð- herra landsins, auk þess sem hann talaði við Ana Palacio, utanríkisráð- herra Spánar. Spánverjar og Marokkómenn hafa deilt um yfirráð á eyjunni, sem er óbyggð og liggur um 200 metra und- an strönd Marokkó, eftir að marokk- ósk stjórnvöld sendu þangað her- menn 11. júlí sem settu þar upp marokkóska fánann og reistu tjald. Spánverjar fluttu þá á brott frá eynni sex dögum síðar. Benaissa hét því á föstudaginn að ekki yrðu sendir fleiri marokkóskir hermenn út í eyjuna, ef Spánverjar yrðu á brott með menn sína þaðan. En innanríkisráðherra Spánar sagði að þarlend stjórnvöld vildu fá opin- bera yfirlýsingu um tilboð Marokkó- manna, og varð það til þess að Bandaríkjamenn skárust í leikinn. Bæði Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið höfðu lýst stuðn- ingi við Spánverja í deilunni og Arababandalagið og Persaflóasam- starfsráðið, sem í eru sex ríki, höfðu lýst stuðningi við Marokkómenn. Samkvæmt samningnum sem Bandaríkjamenn höfðu milligöngu um heita báðir deiluaðilar að fjar- lægja af eynni allar „útstöðvar, fána og tákn um yfirráð“ og þýðir sam- komulagið í raun að aftur verður horfið til þeirrar stöðu mála sem var áður en deilan hófst. Síðar munu ráð- herrar ríkjanna halda fundi til þess að komast að langtímasamkomulagi um eyjuna. Colin Powell ræðir við Spánverja og Marokkómenn Samkomulag um Perejil- eyju sagt innan seilingar Madríd. AFP. NIÐURSTÖÐUR DNA-prófs hafa staðfest að lík sem fannst í grunnri gröf í Pakistan hafi verið af banda- ríska blaðamanninum Daniel Pearl, að því er bandarískir embættismenn greindu frá í gær. Pakistanska lög- reglan hefur verið látin vita, að sögn bandarísks embættismanns sem ekki vildi láta nafns síns getið. Hann sagði að nokkur tími væri liðinn frá því að niðurstöður prófsins lágu fyrir. Síðast spurðist til ferða Pearl 23. janúar í Karachi í Pakistan þar sem hann var að vinna að frétt um tengsl milli íslamskra öfgahópa og svo- nefnds skósprengjuliða, Richard C. Reid. Um miðjan maí var grafið upp lík í Karachi og talið var að það væri af Pearl. Að sögn bandaríska embætt- ismannsins fékk eiginkona Pearl viku síðar að vita að staðfest væri að líkið væri af Pearl. Höfuðlaust lík blaðamannsins var grafið upp skammt frá leirkofa eftir ábendingu. Inni í kofanum fundu lög- reglumenn bílsæti sem Pearl sat á þegar teknar voru af honum myndir sem sendar voru í tölvupósti til vest- rænna fjölmiðla. Þar fundust einnig flíkur sem líktust þeim sem Pearl var klæddur á myndunum. Staðfest að líkið var af Pearl Islamabad. AFP. ♦ ♦ ♦ OPNUÐ var í gær flugleið á milli Norður- og Suður-Kóreu, þrátt fyrir að aðeins um mánuður sé síðan til sjóorrustu kom milli ríkjanna á Gulahafi, að því er embættismenn greindu frá. Flugleiðin er á milli Sondok-flugvallar í N-Kóreu og Yangyang-vallar í Suður-Kóreu en báðir vellirnir eru á austurströnd Kóreuskagans. Er þetta fyrsta beina flugleiðin milli ríkjanna sem bæði viðurkenna opinberlega. „Þetta er sáttarhönd sem norðan- menn rétta fram í kjölfar sjóorrust- unnar,“ sagði Suh Joo-Seok, greinir hjá Rannsóknarstofnun Kóreu í varnarmálum í Seoul. Fyrsta flugið var farið með farþegaflugvél á veg- um norðurkóreska flugfélagsins Koryo og lenti hún á Yangyang-velli í gærmorgun. Um borð var 14 manna áhöfn, engir farþegar, en átta manns bættust í hópinn þegar aftur var haldið norður, þ. á m. embættis- og verkamenn á vegum Orkuþróunarfélags Kóreuskaga. Fimm suðurkóreskir hermenn og óþekktur fjöldi norðurkóreskra féllu þegar herskip ríkjanna skiptust á skotum á mikilvægum fiskimiðum, sem bæði ríkin gera tilkall til, úti fyr- ir vesturströnd Kóreuskagans í síð- astliðnum mánuði. Flugleið milli Kór- euríkjanna opnuð Seoul. AFP. WALT Disney-fyrirtækið bandaríska á nú í viðræðum við ráðamenn í kínversku borginni Shanghai um byggingu fyrsta Disney-skemmtigarðsins á meginlandi Kína, að því er emb- ættismenn borgarinnar hafa tjáð AFP. En þróunar- og áætl- unarfulltrúi borgarinnar neit- aði því að þegar væri búið að ganga frá samkomulagi, eins og komið hafði fram í fréttum. Ef af verður mun garðurinn rísa í fjármálahverfi Shanghai, Pudong. „Stjórnendur Pudong hafa flogið nokkrum sinnum til Bandaríkjanna undanfarið hálft ár. Þeir eiga bara í viðræð- um við Disney en hafa ekki gert neinn formlegan samning,“ sagði fulltrúinn. Skemmtigarð- ur í Shanghai yrði þriðji Disn- ey-garðurinn í Asíu en þegar er einn í Tókýó og annar verður opnaður í Hong Kong árið 2005. Disney í Kína? Peking. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.