Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 70
1. september 2006 FÖSTUDAGUR38
Sýningarstjórarnir og
myndlistarmennirnir
Daníel Karl Björnsson og
Huginn Þór Arason brúa
bilið milli ungæðislegra
listamanna og virðulegrar
stofnunar niðri í Tryggva-
götu. Í dag verður sýningin
Pakkhús postulanna opnuð í
Hafnarhúsinu en kunnugir
segjast vart þekkja sig inni
í byggingunni.
Þetta er tímamótasýning í sögu
Listasafns Reykjavíkur en for-
stöðumaður þess, Hafþór Yngva-
son, markar með henni nýja sýn-
ingarstefnu fyrir Hafnarhúsið,
sem á næstunni verður vettvangur
fyrir nýsköpun og kraft ungra
listamanna og markvissari heima-
völlur fyrir nýjustu strauma og
stefnur myndlistarinnar í stærra
samhengi.
Daníel Karl útskýrir að sýn-
ingin hafi átt sér töluverðan
aðdraganda og líkir ferlinu raunar
við meðgöngu. „Hafþór hafði sam-
band við okkur félagana yfir ára-
mót og hafði í huga að gera breyt-
ingar á safnastarfi Listasafns
Reykjavíkur og við ákváðum að
slá til. Við lögðum fram þá tillögu
að þessir ungu listamenn myndu
vinna sýningu beint inn í safnið
með Hafnarhúsið í huga. Síðar
báðum við um hugmyndir eða
tillögur frá tuttugu ungum lista-
mönnum um hvernig þeir sæju sig
eða verk sín í samhengi við safnið
og völdum ellefu listamenn úr
hópnum sem sýna hér í dag.“
Meðal listamannanna sem hafa
nú tekið yfir Hafnarhúsið eru
Davíð Örn Halldórsson, Ásdís Sif
Gunnarsdóttir, Ragnar Kjartans-
son og stöllurnar Ingibjörg Magna-
dóttir og Kristín Eiríksdóttir sem
ríða á vaðið á opnuninni og standa
fyrir gjörningi sem kenndur er við
Lekandi leikhús, en meðal þátttak-
enda þar verða rithöfundarnir
Kristín Ómarsdóttir og Guðrún
Eva Mínervudóttir, G. Pétur
Matthíasson fréttamaður og Hall-
dór Ásgeirsson myndlistarmaður
sem mun að öllum líkindum leika
Freud.
Daníel útskýrir að erfitt sé að
demba svo ólíku listafólki undir
einn hatt en þau eigi það þó sam-
eiginlegt að vera á svipuðu reiki
og því sé einhvers konar tíðar-
andi eða bragur yfir sýningunni.
„Að munstra þessa sýningu fólst
meðal annars í því að vefa saman
það sem þessir ellefu listamenn
eru að sýna,“ segir hann. Húsið
mótar líka verkin að vissu marki.
„Við fengum hönnunarhópinn
„Borðið“ til að hanna nýtt aðgengi
inn í safnið, eins konar fordyri sem
hefur töluvert að segja. Þetta er
eins og samlífi - dans milli safns-
ins og sýnenda, þar sem hallar á
hvorugan.“
Yfirskrift sýningarinnar er sótt
í sameiginlega fortíð listafólksins.
„Annars vegar vísar þetta til
ákveðinna uppvaxtarskilyrða lista-
mannanna, þessa vaxtarbrodds
sem var á seinni hluta níunda ára-
tugarins og í byrjun þess tíunda,“
útskýrir Daníel og segir að flestir
listamannanna hafi þá verið tán-
ingar sem langaði að taka þátt og
smygluðu sér með „eldri krökkun-
um“. „Hins vegar er Hafnarhúsið
gamalt pakkhús og á vissan hátt
mætti líta á listamanninn sem
postula,“ segir Daníel.
Í tilefni af sýningunni kemur
einnig út vegleg sýningarskrá með
óvenjulegu sniði en ritstjórar
hennar eru Oddný Eir Ævarsdóttir
og Unnar Örn J. Auðarson. „Þetta
er samtalsbók sem skrásetur ferlið
að baki sýningunni, allan vand-
ræðaganginn við að koma svona
sýningu á koppinn en bókin geymir
viðtöl við listamenn, starfsmenn
safnsins og aðra aðstandendur.“
Daníel Karl segist taka ofan
fyrir framtaki Listasafns Reykja-
víkur og er bjartsýnn á framhaldið.
„Þetta er frábært tækifæri og
maður getur ekki annað en dáðst
að kjarkinum í Hafþóri en það er
virðingarvert að hann setji traust
sitt á þetta unga listafólk. Þetta
framtak er vísir að því sem er að
gerast í íslensku myndlistarlífi en
því er nú gert hærra undir höfði og
hvatt til jákvæðari samræðu um
þetta fyrirbæri.“
Sýningin verður opnuð kl. 20 í
kvöld en hún stendur til 22. október.
Fjölmargir viðburðir eru skipu-
lagðir í tengslum við sýninguna en
nánari upplýsingar um dagskrána
má finna á heimasíðunni www.
listasafnreykjavikur.is.
kristrun@frettabladid.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
6
5
7
KANARÍEYJAR
EÐA
LÍKHÚSIÐ?
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������� �� �������������������� �� �� �����
�������������������������������
�������������� �� ���������������������������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
��������������������������������������������������������������������
������������ ����������������������������������������
����������������������������������� �������������������������������
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
6
5
7
UNDRABÖRN
ERU
ANDSTYGGILEG.
Valinn maður í hverju rými
DANÍEL KARL BJÖRNSSON OG HUGINN ÞÓR ARASON Opna Pakkhús postulanna í Hafnarhúsinu í kvöld. FRRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
POSTULARNIR ELLEFU
Ásdís Sif Gunnarsdóttir
Björk Guðnadóttir
Davíð Örn Halldórsson
Helgi Þórsson
Hrafnhildur Arnardóttir
Ingibjörg Magnadóttir
Kristín Eiríksdóttir
Magnús Árnason
Ragnar Kjartansson
Sigga Björg Sigurðardóttir
Sirra Sigrún Sigurðardóttir