Fréttablaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 42
 Eins og venja er orðin frá fyrri Íslandsmótum mun Frétta- blaðið standa fyrir vali á liði og leikmanni hverrar umferðar að henni lokinni. Í þetta sinn varð Matthías Guðmundsson, sókn- armaður FH, fyrir valinu. Hann skoraði eitt marka FH í 3-2 sigri liðsins á ÍA á útivelli í opnunar- leik mótsins. „Þetta var mjög góður sigur og erum við í skýjunum með þetta enda ekki hvaða lið sem er sem sækir sigur á Skagann,“ sagði Matthías. Leikurinn fór fram í miklu roki en það virtist ekki koma niður á leiknum þar sem fimm mörk litu dagsins ljós. „Aðstæður voru erf- iðar en ætli við séum ekki orðnir vanir þessu. Þetta var fimmti leik- urinn í röð sem við spilum í miklu roki eftir vorleikina,“ sagði hann. Hann segir það hafa verið gott fyrir sjálfstraustið að skora í sínum fyrsta deildarleik með nýju félagi. „Annars hefur mér verið afar vel tekið í FH og mér líður mjög vel þar. Þetta er flott- ur klúbbur með góðum leikmönn- um. Boltinn sem liðið spilar hent- ar mér mjög vel. Mér hefur þó gengið upp og ofan á undirbún- ingstímabilinu og átt dapra leiki og góða. Það er ekki síst þess vegna sem ég er ánægður með að það gekk vel í fyrsta leik.“ FH var spáð titlinum í öllum spám sem birtust fyrir mótið. Matthías segist þó ekki finna fyrir neinum sérstökum þrýst- ingi. „Allir búast við því að við séum mjög sterkir og eigum að vinna alla leiki. Ég velti þessu ekki mikið fyrir mér og reyni frekar að gera allt sem í mínu valdi stendur til að vinna leik- inn.“ FH fer til Keflavíkur á sunnu- dagskvöldið og er um toppslag að ræða því bæði liðin, ásamt Fylki, unnu sína leik í fyrstu umferð- inni. Það er einnig hætt við því að leikið verður í roki, rétt eins og uppi á Skaga. Slíkt er algengt í Keflavík. „Þetta verður hörkuleikur og Keflvíkingar sýndu að þeir eru með sterkt lið með því að vinna KR á útivelli. Eftir að hafa litið á leikina í fyrstu umferðinni sýn- ist mér að öll lið líti mjög vel út og séu öll betri en þau voru í fyrra. Það er ljóst að hver einasti leik- ur verður erfiður. Það er klisja að segja það en engu að síður satt.“ FH-ingurinn Matthías Guðmundsson er leikmaður 1. umferðar Íslandsmótsins í knattspyrnu að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði eitt mark í 3-2 sigri FH á ÍA. Dimitar Karadzovski hefur skrifað undir tveggja ára samning við nýliða Stjörnunnar í úrvalsdeild karla í körfubolta. Hann kemur úr röðum Skalla- gríms. „Þetta er mikill styrkur fyrir okkur. Þetta er alvöru skotbak- vörður sem er búinn að sanna sig í deildinni hér heima í tvö ár. Við ætlum okkur í úrslitakeppnina og ekkert annað,“ sagði Bragi Magn- ússon, þjálfari Stjörnunnar, við Fréttablaðið í gær. „Við ætlum okkur í úrslita- keppnina og ekkert annað. Það er yfirlýst markmið hjá okkur. Við ætlum að taka þetta af fullri al- vöru, bæta við okkur fleiri mönn- um og leggja allt kapp á að gera gott mót,“ sagði Bragi. Kominn í Stjörnuna Miðherjinn Egill Jón- asson gæti verið á förum frá Njarðvík. Egill sagði við Frétta- blaðið í gær að hann væri í við- ræðum við þrjú til fjögur önnur lið á Íslandi en hann sé einnig að skoða möguleika á því að spila í Evrópu á næsta tímabili. Á förum frá Njarðvík? Björgólfur bjargaði toppsætinu Valur Ingimundarson hefur ákveðið að taka sér frí frá þjálfun. Fríið er langþráð hjá Vali sem hefur verið viðriðinn körfu- boltann lengi en nú síðast þjálfaði hann lið Skallagríms sem leitar nú að nýjum þjálfara. „Ég byrjaði að þjálfa fyrir 21 ári og er búinn að vera í meistara- flokki í 28 ár í röð. Það er því kom- inn tími á smá frí,“ sagði Valur við Fréttablaðið í gær. „Ég spái bara í því hvað ég geri í haust þegar að því kemur. Eina hlutverkið mitt í körfunni næsta vetur verður bara að sitja á bekkj- unum og horfa á. Það er ekkert sem kallar á mig að halda áfram eins og staðan er núna,“ sagði Valur jafnframt. Þó er ekki öll nótt úti enn að hann snúi til baka eftir fríið. „Ég er ekki alfarið hættur. Ég ætla allavega að taka mér árs- frí og sjá svo til hvort mig langi aftur í þetta, það kemur alveg til greina,“ sagði Valur Ingimundar- son. Komið gott í bili eftir 28 ár í úrvalsdeildinni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.