Réttur - 01.04.1983, Blaðsíða 49
Matthías Jochumsson 1872.
„Ógnin66
aðvörun þjóðskáldsins
Þegar séra Matthías Jochumsson 1893 fór vestur til Bandaríkjanna, til þess að
vera viðstaddur 400 ára afmæli fundar Ameríku, þess sem kenndur er við
Kristofer Kolumbus, brá honum í brún. Bandaríkin voru ekki lengur sú „frelsisins
fimbulstorð“, sem tók með opnum örmum móti flóttamönnum þeim, er flúðu
kúgun evrópska auðvaldsins, og gaf þeim ókeypis jörð að yrkja. Nú voru þau í
augum hans orðin „Mammonsríki“ Ameríku. Og hann tekur undir fordæmingu
W. Stead „hversu sérplægnin og auðvaldið haldi þar öllu í helgreipum...“ „Rétt
er þar allsengan að fá, allt er háð auðmönnunum; dagblöðin, atkvæðin,
dómstólarnir, borgarráðið og hávaðinn af kirkjunum Iíka.“'
Þjóðskáldið, hinn mikli sjáandi, aðvarar í greinunum í „Stefni“, er heim
kemur, hvernig komið sé og í kvæðinu mikla og góða „Til Yestur-íslendinga“
birtist öll hans spádómsorka í þeirri alvöruþrungnu vísu, er svo hljóðar:
113