Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1974, Blaðsíða 22

Æskan - 01.10.1974, Blaðsíða 22
HELGl SÆMUNDSSON: jr Ogleymanlegur maður Skáld barnanna g sá hann stundum tilsýndar tvö fyrstu árin mín í Vestmannaeyjum, en leiðir okkar lágu ekki saman fyrr en haustið 1937. Þá var- ég í öðrum bekk gagnfræðaskólans og byrjaður að láta í Ijós umdeildar skoðanir á málfundum. Höfðu bæjarbúar einhverjar fréttir af því athæfi, og voru uppi fleiri en ein spá um framtíð mína eftir að stofnað hafði verið til kappræðu um borgarastyrjöldina á Spáni. Og daginn, þegar ég hafði tal áf Sigurbirni fyrsta sinni, man ég eins og þetta hefði verið í gær. Hann var í miðjum barnahópi úti á götu, en gekk til mín, þegar mig bar að, hneigði sig, tók í hönd mína og kynnti sig þessum orðum: Ég er Sigurbjörn Sveinsson, þú ert Helgi Sæ- mundsson, komdu blessaður og sæll. Fyrr en varði urðum við góðir vinir. Hann sótti mig stundum á kvöldin þennan vetur, og við sátum heima hjá honum fram á nótt. Þeim stundum gleymi ég aldrei. Sigurbjörn var ekki mikill fyrir mann að sjá þangað til töfrar persónuleikans komu til sögunnar. Þá var hann á svipstundu skáld og ævintýramaður. Frásögn harts var unaðsleg, þegar hann gaf sér laus- an tauminn. Hún var hrein og tær eins og fjallalækur, orðin stigu dans hugkvæmni og andríkis, þegar hon- um tókst upp, og þá gleymdi maður stað og stund eins og þjóðsagan um klæðið fljúgandi hefði allt í einu breyst i veruleika. Vestmannaeyingar voru sýnu meira fyrir bjarg- tekju og fiskifang en skáldskap á unglingsárum mín- um, en þó hafði Sigurbirni tekist að sigra þá með orðsnilld sinni. Barnaskólinn þar var alræmdur fyrir óþekkt, enda piltarnir heilsugóðir og telpurnar óstýri- látar. Sigurbjörn kenndi við barnaskólann fyrir mína tið þar á staðnum, en þótti ekki strangur lærimeistari, lá iðulega í sólbaði úti í glugga, og kennslustundin leið í gáska og ólátum. Allt í einu hóf kennarinn vísi- fingur á loft og tilkynnti, að nú segði hann sögu. Þá datt allt í dúnalogn eins og fullorðið fólk væri þarna við jarðarför, og þögnin ríkti, meðan Sigurbjörn flutti mál sitt, opnaði börnunum undraheim frásagnarinnar og gerði þau að þátttakendum í skemmtilegum við- burðum, sem voru endurminningar eða skáldskapur. Svo glumdi skólabjallan í sögulok, og um leið varð bekkurinn hávær iðaridi kös tiltektarsamra krakka, en Sigurbjörn lagðist aftur út í gluggann til að njóta veðurblíðunnar á björtum og fögrum vordegi. II Og gaman var að heimsækja hann á vorin. Þá leiddi Sigurbjöfn gestinn í stofu, valdi honum besta sætið og virðulegasta, tók gítarinn ofan af hillu og lék og söng Ó, blessuð vertu, sumarsól — alltaf sama lagið- Svo opnaði hann hlerann á þilinu milli stofunnar og eldhússins, brá sér fram eins og kólfi væri skotið til að hita kaffi og ,finna með því‘, en hélt samræðun- um áfram gegnum opínn hlerann og kom öðru hvoru til að þrífa gitarinn á ný og halda söngnum og tón- leikunum áfram. Eða virðuleiki hans og innlifun, þegar hann kenndi ensku. Fyrir kom, að ég væri viðstaddur, þegar hann sagði ríkra manna bömum til í þe>rrl ágætu námsgrein, og þá var engu líkara en Sigurbjörn Sveinsson væri orðinn breskur broddborgari í ein- hverri skáldsögu Dickens. Hann dáði og vegsamaði þetta tungumál og var stoltur af því eins og stórsign- að Watson Kirkconnell hafði þýtt smákvæði eftir hann á ensku. Sennilega hefur Sigurbjörn lesið mér frum- textann og þýðinguna hundrað sinnum árin, sem við vorum samvistum, og alltaf jafn barnslega hrifinn rétt eins og hann væri að taka á móti nóbelsverð- laununum. III Sigurbjörn Sveinsson fékkst ekkert við skáldskap eftir að ég kynntist honum, en hann mælti oft af munni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.