Ægir - 01.05.1953, Blaðsíða 28
138
Æ G I R
Blákarpi.
(Polyprion americanum (americanus) Bloch.)
MMtMMMMMMMMHMMHUHMU MMMMMW
Ný fisktegund við ÍSLAND
>MMMMMMMMMMMMMMM%MMM%HMMMMM<
Að kvöldi þess 24. marz síðastl. talaði
Eirikur Jónsson, Vestmannaeyjum, við mig
í síma og tjáði mér, að þá um daginn hefði
borizt á land ókennileguí fiskur. Lýsti hann
fiskinum lauslega og varð ég litlu nær. Þor-
steinn Jónsson útvegsbóndi (Laufási), sem
er manna gleggstur á sjaldgæfa fiska, hafði
einnig athugað „dráttinn“ og komizt að
þeirri niðurstöðu, að hann væri ekki talinn
í fiskabók Bjarna Sæmundssonar.1)
Fiskurinn var sendur hingað með næstu
flugvél, hann hafði verið frystur, var prýði-
lega vel hirtur og alveg óskaddaður. Þetta
reyndist vera Blákarpi (Polyprion ameri-
um eða yfir 550 tegundum, er flokkast í
fjölmargar ættkvíslir. Ættin má heita út-
breidd um öll höf, einkum á grunnsævi.
Fáeinar tegundanna lifa í djúpu vatni, en
nokkrar við yfirborð úthafanna. Nokkrar
eru í fersku vatni og fáeinar eru tvíkynja.1)
Hér er um að ræða beinfiska (Teleostei)
og telst ættin til þess undir-ættbálks bein-
fiskanna, sem nefnist broddgeislungar
(Acanthopterygii), en skyldastir fiskar hér
eru karfi, marhnútur, hornsíli o. fl.
Lýsing. Blákarpinn er frekar langvaxinn,
ekki ósvipað og karfi, ávalur um bolinn og
nokkuð hliðflatur, allur þakinn nokkuð
canus).2) Hann hafði veiðzt í þorskanet þá
um daginn (24. marz) á m/s „Reynir“,
Vestmannaeyjum, á 20 faðma dýpi út af
Hólsá í Þykkvabæ. Skipstjóri á „Reyni“ er
Páll Sigurbergsson. Fiskurinn mældist 66
cm Iangur og var hrygna.
Blákarpinn telst til sækarpa-ættarinnar
(Serranidae), en hún hefur engan fulltrúa
átt áður í fiskaheimi íslands. Það er ein
fjölskrúðugasta fiskaætt, sem til er, nreð
1) Bjarni Sæmundsson, íslenzk dýr I. Fiskarnir.
Reykjavik 192G.
2) íslenzku lieitin lief ég gert. Á. F.
grófgerðu hreistri, einnig á höfði. Nær
lireistursþekjan út á uggaræturnar. Hann
getur orðið allt að 2 m langur og gengur
hæð holsins um það bil þrisvar sinnum upp
í heildarlengdinni. Liturinn er venjulega
dökkbrúnn eða gráblár á baki (blágrár á
þeim, sem hér fannst), dökkgrár eða dökk-
gulur á hliðum með Ijósari skjöldum og
hvítleitur á kviðinn. Höfuðið er stórt, og
þvermál augans gengur 5—6 sinnum upp í
lengd höfuðsins og bilið á milli augnanna
1) T. W. Bridge and G. A. Boulenger: Fishes.
The Cambridge Natural History. London 1904.