Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 40

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 40
Ávíð 0« dreif Með þessu hefti lýkur 23. árgangi Tímarits lögfræðinga. Reynt hefur verið að koma nokkru nýju sniði á útgáfuna. Sjálfsagt sýnist sitt hverjum um ár- angurinn, en hér er ástæða til að beiðast velvirðingar á töfum á útkomu þessa heftis, sem ekki mun verða í höndum lesenda fyrr en á árinu 1974. — i heft- inu birtast ýrnsir fréttaþættir, sem safnað hefur verið frá því á s.l. hausti. Áttu nokkrir þeirra að birtast í 3. hefti og voru samdir löngu áður en það kom út. Varð þó að ráði að fresta birtingu þeirra vegna eindreginna tilmæla framkvæmdastjóra tímaritsins um að hafa blaðsíðufjölda hvers heftis af kostnaðarástæðum þann, sem í upphafi árs var áætlað. Eru höfundar beðnir velvirðingar á því, að birting hefur dregist. Öllum þeim, sem lagt hafa til fréttaefni cg annað efni í tímaritið, skal þakkað fyrir vinsemd og greiðvikni. BÆJARFÓGETAEMBÆTTIÐ í VESTMANNAEYJUM Eldgosið í Vestmannaeyjum hófst aðfaranótt þriðjudagsins 23. janúar 1973. Sama dag og næstu daga voru bæjarbúar fluttir burtu að fyrirlagi yfirmanna almannavarna og öllum bannað að koma þangað, nema fengið væri sérstakt leyfi. Er svo var komið, var Ijóst, að bæjarfógetaembættið gat ekki rækt það hlutverk, sem því var ætlað, ef aðsetur þess væri áfram í Vestmannaeyjum. Var því gengið frá lögum, sem heimiluðu flutning embættisins til Reykjai- víkur. Lögin voru útgefin 31. janúar 1973 (nr. 3/1973). Um sama leyti var haf- inn undirbúningur að flutningi embættisins. Að tilhlutan dómsmálaráðuneytis- ins fékk embættið til afnota húsnæði í Hafnarbúðum. Húsnæðið var þröngt og að mörgu leyti óhentugt, enda aðeins ætlað til bráðabirgða. Stór salur niðri í húsinu var hólfaður í þrennt, og fékk bæjarfógetaembættið einn hlut- ann sem afgreiðslusal. Annan hlutann fékk bæjarsjóður Vestmannaeyja og þann þriðja fékk Sjúkrasamlag Vestmannaeyja og umboð almannatrygginga. Auk þess fékk bæjarfógetaembættið til afnota þrjú lítil herbergi á efstu hæð. Aðeins litlum hluta af nauðsynlegum skjölum og embættisbókum varð komið fyrir í húsnæðinu, en hinu var komið í geymslu. Varð þetta oft til baga við afgreiðslu á ýmsum málum, er til féllu, eða er svara þurfti fyrirspurnum, er embættinu bárust. Mikill munur er á þessu húsnæði og skrifstofuhúsnæðinu í Vestmannaeyjum, sem fyrir margra hluta sakir verður að te'jast mjög gott. Embættinu voru einnig leyfð afnot af bæjarþingstofunni við Skólavörðustíg til 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.