Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 48
14. maí 2012 MÁNUDAGUR24 sport@frettabladid.is PEPSI-DEILD KARLA fer aftur í gang í kvöld en þá verða spilaðir þrír leikir. Selfoss tekur á móti FH, Blikar fá Val í heimsókn og Keflavík spilar á heimavelli gegn Stjörnunni. Leikirnir hefjast allir klukkan 19.15 og verður lýst beint á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. D Y N A M O R E Y K JA V ÍK – einfalt og ódýrt 50% AFSLÁTTUR AF NICOTINELL TROPICAL FRUIT 204 STK. 2MG OG 4MG - TILBOÐIÐ GILDIR ÚT MAÍ Spöngin 577 3500 • Hólagarður 577 2600 • Skeifan 517 0417 • Garðatorg 565 1321 • Setberg 555 2306 • Akureyri 461 3920 50% AFSLÁT TUR Lokahóf KKÍ Iceland Express-deild karla: Bestur: Justin Shouse, Stjarnan Besti útlendingur: J‘Nathan Bullock, Grind. Besti þjálfari: Helgi J. Guðfinnsson, Grind. Efnilegastur: Elvar Már Friðriksson, Njarð. Besti varnarmaður: Guðmundur Jóns., Þór Prúðastur: Darri Hilmarsson, Þór Iceland Express-deild kvenna: Best: Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík Besti útlendingur: Lele Hardy, Njarðvík Besti þjálfari: Sverrir Þór Sverrisson, Njarð. Efnilegust: Margrét Hálfdánard., Haukar Besti varnarmaður: Pálína Gunnlaugs., Kef Prúðust: Hildur Kjartansdóttir, Snæfell Besti dómarinn: Jón Guðmundsson Lokahóf HSÍ N1-deild karla: Bestur: Ólafur B. Ragnarsson, HK Efnilegastur: Böðvar P. Ásgeirsson, Afture. Besti þjálfari: Aron Kristjánsson, Haukar Valdimarsbikarinn: Ólafur B. Ragnars., HK Besti markv.: Aron R. Eðvarðs., Haukar Besti sóknarm.: Ólafur B. Ragnarsson, HK Besti varnarm. Matthías Ingimars, Hauk. N1-deild kvenna: Best: Stella Sigurðardóttir, Fram Efnilegust: Heiðrún Helgadóttir, HK Besti þjálfari: Stefán Arnarson, Valur Sigríðarbikarinn: Stella Sigurðardóttir, Fram Besti markv.: Florentina Stanciu, ÍBV Besti sóknarm: Stella Sigurðardóttir, Fram Besti varnarm: Anna Guðmundsd., Valur ÍÞRÓTTIR Lokahóf HSÍ og KKÍ fóru fram um helgina. Ólafur Bjarki Ragnarsson úr HK og Framstúlkan Stella Sigurðar- dóttir sópuðu að sér verðlaunum á lokahófi HSÍ. Þau voru bæði valin best og fengu einnig hina eftirsóttu Valdimars- og Sigríðarbikara sem veittir eru mikilvægustu leikmönnum deildarinnar. Pálína Gunnlaugsdóttir úr Keflavík og Stjörnu maðurinn Justin Shouse voru valin bestu íslensku leikmenn Iceland Express-deildanna. J‘Nathan Bullock úr Grindavík og Njarðvíkurstúlkan Lele Hardy voru valin bestu útlendingarnir. - hbg Lokahóf HSÍ og KKÍ: Þau bestu verðlaunuð ÓLAFUR BJARKI Var frábær í vetur er HK vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Enska úrvalsdeildin: CHELSEA - BLACKBURN ROVERS 2-1 1-0 John Terry (30.), 2-0 Raul Meireles (33.), 2-1 Yakubu Aiyegbeni (59.). EVERTON - NEWCASTLE UNITED 3-1 1-0 Steven Pienaar (15.), 2-0 Nikica Jelavic (26.), 3-0 Johnny Heitinga (65.), 3-1 Tony Hibberty, sjm (73.) MAN. CITY - QUEENS PARK RANGERS 3-2 1-0 Pablo Zabaleta (38.), 1-1 Djibril Cissé (47.), 1-2 Jamie Mackie (65.), 2-2 Edin Dzeko (91.), 3-2 Sergio Aguero (93.). NORWICH CITY - ASTON VILLA 2-0 1-0 Grant Holt (10.), 2-0 Simeon Jackson (22.). STOKE CITY - BOLTON WANDERERS 2-2 1-0 Jonathan Walters (12.), 1-1 Mark Davies (38.), 1-2 Kevin Davies (44.), 2-2 Jonathan Walters, víti (76.). SUNDERLAND - MAN. UNITED 0-1 0-1 Wayne Rooney (19.). SWANSEA CITY - LIVERPOOL 1-0 1-0 Danny Graham (86.). TOTTENHAM HOTSPUR - FULHAM 2-0 1-0 Emmanuel Adebayor (1.), 2-0 Jermain Defoe (62.). WEST BROMWICH ALBION - ARSENAL 2-3 0-1 Yossi Benayoun (3.), 1-1 Shane Long (11.), 2-1 Graham Dorrans (14.), 2-2 Andre Santos (29.), 2-3 Laurent Koscielny (54.). WIGAN ATHLETIC - WOLVES 3-2 0-1 Matt Jarvis (8.), 1-1 Franco Di Santo (11.), 2-1 Emmerson Boyce (13.), 3-1 Emmerson Boyce (78.), 3-2 Steven Fletcher (85.) LOKASTAÐAN: Man. City 38 28 5 5 93-29 89 Man. United 38 28 5 5 89-33 89 Arsenal 38 21 7 10 74-49 70 Tottenham 38 20 9 9 66-41 69 Newcastle 38 19 8 11 56-51 65 Chelsea 38 18 10 10 65-46 64 Everton 38 15 11 12 50-40 56 Liverpool 37 14 10 13 47-39 52 Fulham 38 14 10 14 48-51 52 WBA 38 13 8 17 45-52 47 Norwich City 38 12 11 15 52-66 47 Sunderland 38 11 12 15 45-46 45 Stoke City 38 11 12 15 36-53 45 Swansea City 37 11 11 15 43-51 44 Wigan 38 11 10 17 42-62 43 Aston Villa 38 7 17 14 37-53 38 QPR 38 10 7 21 43-66 37 Bolton 38 10 6 22 46-77 36 Blackburn 38 8 7 23 48-78 31 Wolves 38 5 10 23 40-82 25 ÚRSLIT Pepsi-deild kvenna: ÍBV-Valur 4-2 Vesna Smiljkovic, Danka Podovac, Shaneka Gordon, Kristín Erna Sigurlásdóttir - Dóra María Lárusdóttir, Dagný Brynjarsdóttir. Þór/KA-Stjarnan 3-1 Katrín Ásbjörnsdóttir 2, Sandra María Jessen - Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (víti). Afturelding-FH 1-1 Kristín Tryggvadóttir - Guðrún Frímannsd., (víti), Breiðablik-Fylkir 1-1 Rakel Hönnudóttir - Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir. Selfoss-KR 3-3 Valorie O’Brien 2, Eva Lind Elíasdóttir - Ólöf Ísberg, Freyja Viðarsdóttir, Anna Garðarsdóttir. ÚRSLIT FÓTBOLTI Lokadagur ensku úrvals- deildarinnar í gær verður lengi í minnum hafður. Spennan og dramatíkin sem varði allt til enda var engu lík og í raun eins og í lygasögu. Að lokum var það bláa liðið í Manchester sem stóð uppi sem sigurvegari á markatölu. Man. City stóð betur að vígi fyrir leiki gærdagsins. Sigur gegn QPR tryggði þeim meistara- titilinn. Man. Utd varð aftur á móti að leggja Sunderland og vona það besta. United kláraði sitt verkefni með marki frá Wayne Rooney. Leik- menn United urðu að bíða eftir tölum frá Etihad-vellinum þar sem fleiri mínútum var bætt við þar. Er venjulegum leiktíma var lokið var Man. Utd meistari og City þurfti þess utan að skora tvö mörk gegn tíu leikmönnum QPR. Óvinnandi vegur sögðu flestir en ekki leikmenn Man. City. Dzeko og Aguero fram kölluðu kraftaverkið sem þurfti í uppbótar- tíma og tryggðu City einhvern ótrúlegasta sigur allra tíma. „Þetta var algjörlega ótrúlegt en við eigum þetta skilið. Ég hef samt aldrei nokkurn tíma séð aðrar eins lokamínútur í leik,“ sagði Roberto Mancini, stjóri Man. City, en City var að vinna sinn fyrsta meistara- titil í 44 ár. „Þetta er frábært fyrir félagið og ég tileinka stuðnings mönnunum sigurinn. Þeir eru búnir að bíða lengi eftir þessu. Ég get samt viður kennt að ég hélt að þetta væri búið þegar fimm mínútur voru eftir. Þetta hafðist og ég sé fyrir mér að það séu bjartir tímar fram undan hjá Man. City.“ Þessar lokamínútur voru erfiðar fyrir leikmenn Man. Utd. Þeir voru nánast fullvissir um að vera orðnir meistarar en svo fengu þeir tíðindin af kraftaverkinu á Etihad- vellinum. „Við óskum Man. City til ham- ingju. Það lið sem vinnur deildina á það alltaf skilið því það er gríðar lega erfitt að vinna þessa deild,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, eftir leikinn. „Þeir geta fagnað eins og þeir vilja en saga félaganna er okkur í hag. Það á ekkert félag álíka sögu og Man. Utd. Það mun taka þá heila öld að jafna það sem okkar félag hefur gert. Þessi innkoma þeirra er samt áskorun fyrir okkur og við erum góðir þar. Við munum bíta frá okkur á nýjan leik.“ Það voru síðan Grétar Rafn Steinsson og félagar í Bolton sem urðu að bíta í það súra epli að falla úr úrvalsdeildinni en QPR slapp þökk sé Stoke. Arsenal nældi í þriðja sætið og er öruggt með sæti í Meistara- deild á næsta tímabili. Tottenham fer aftur á móti ekki í Meistara- deildina nema Bayern vinni úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Chelsea. henry@frettabladid.is KRAFTAVERKIÐ Á ETIHAD Man. Utd var aðeins einni mínútu frá því að verja meistaratitil sinn á Englandi. Sumir stuðningsmanna þeirra voru byrjaðir að fagna er Man. City átti ein- hverja ótrúlegustu endurkomu sögunnar. City skoraði tvö mörk í uppbótartíma. HVAÐ GERÐIST? Ryan Giggs og félagar í Man. Utd trúðu vart sínum eigin eyrum er þeir heyrðu af endurkomu City. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES VINIR Á NÝ Endurkoma Carlosar Tevez í lið Man. City hafði mikið að segja. Sumir segja að City hefði aldrei orðið meistari án hans. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Pepsi-deild kvenna hófst í gær og voru úrslit fyrstu umferðar heldur betur óvænt. Íslandsmeistarar Stjörnunn- ar töpuðu á Akureyri en bikar- meistarar Vals töpuðu í Vest- mannaeyjum eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir. Það er því von til þess að mótið verði opnara og meira spennandi en oft áður. - hbg Pepsi-deild kvenna: Meistaraliðin byrja illa FANNDÍS FRIÐRIKSDÓTTIR Átti ágætan leik í liði Blika í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.