Milli mála - 01.01.2010, Blaðsíða 179
BIrna arnBJörnSDÓTTIr Og HaFDÍS IngVarSDÓTTIr
HÁSKÓLa ÍSLanDS
Enskan og fræðaskrifin
1. Inngangur
notkun ensku í hinum akademíska heimi hefur aukist meðmiklum hraða undanfarna áratugi. Coleman1 heldur því fram
að í fyrsta skipti í skráðri sögu eigi fræðaheimurinn sameiginlegt
tungumál. Fræðimenn hafa glímt við að skilgreina muninn á ensku
sem er notuð af innfæddum og ensku sem notuð er á svæðum þar
sem ensk tunga hefur enga opinbera stöðu en er engu að síður
notuð víða t.d. í heimi vísinda og viðskipta. Kachru2 hefur skil-
greint notkun enskunnar við þessar aðstæður sem hinn „víkkandi
hring“ (e. Expanding Circle) en í „innsta hring“ (e. Inner Circle)
eru þau svæði þar sem enska er móðurmál. Segja má að ensku -
notkun á Íslandi teljist til hins víkkandi hrings. Eitt tákn þess að Ís -
land sé innan þessa hrings er krafa um enskunotkun í kennslu og
fræðaskrifum við Háskóla Íslands en höfundar hafa fjallað um
aukna notkun ensku í kennslu á háskólastigi á Íslandi í fyrri skrif-
um.3 Hér verður sjónum beint að fræðaskrifum en þrýstingur eykst
179
1 John a. Coleman, ,,English-medium teaching in European higher education“, Language
Teaching, Cambridge: Cambridge university Press, 2006, bls. 1–14, hér bls. 6.
2 Braj B. Kachru, ,,Standards, codification and sociolinguistic realism: The English language
in the outer circle“, English in the world. Teaching and learning the language and litera-
tures, ritstj. randolph Quirk og Henry Widdowson, Cambridge: Cambridge university
Press, 1985, bls. 11–30.
3 Birna arnbjörnsdóttir, ,,English in Iceland: Second Language, Foreign Language, or
neither?“, Teaching and Learning English in Iceland, ritstj. Birna arnbjörnsdóttir og Hafdís
Ingvarsdóttir, reykjavík: Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur/Háskólaútgáfan, 2007, bls.
51–78; Birna arnbjörnsdóttir, ,,Enska í háskólanámi“, Milli mála. Ársrit Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur, reykjavík: Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur/Háskólaútgáfan, 2009 bls.
77–94; Birna arnbjörnsdóttir og Hafdís Ingvarsdóttir, „Coping with English at university:
Students’ Beliefs“, Menntakvika 2010, ráðstefnurit gefið út á vegum Netlu – Veftímarits um
uppeldi og menntun og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, http://netla.khi.is/mennta -
kvika2010/008.pdf.
Milli mála 2011_Milli mála 1-218 6/28/11 1:39 PM Page 179