Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 51

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 51
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 Herdís Sveinsdóttir, dósent, formaður stjórnar námsbrautar í hjúkrunarfræði, HÍ Fréttir frá Háskóla íslands, námsbraut í hjúkrunarfræöi / námsbraut í hjúkrunarfrœöi við Háskóla íslands hafa átt sér stað margháttaðar breytingar á undanförnum árum. Ég veit að hjúkrunarfrceðingar hafa mikinn áhuga á mennt- unarmálum sínum og mun ég hér í stuttu máli gera grein fyrir því sem er á döfinni hjá námsbrautinni. Breytingar á námsskrá Nemendur, sem brautskrást frá hjúkrunarnáms- brautinni vorið 1994, verða síðasti hópurinn sem hlýtur sína grunnmenntun í hjúkrunar- fræði samkvæmt þeirri námsskrá sem að megin- stofni hefur verið fylgt frá því fyrsti hópur hjúkrunarnema hóf nám haustið 1973- Rúmlega 700 hjúkrunarfræðingar hafa þá lokið Baccalaureorum Scientiarum prófí í hjúkrunar- fræði samkvæmt þeirri námsskrá. Ný námsskrá var tekin í notkun við náms- braut í hjúkrunarfræði haustið 1991. Undirbún- ingur þeirra breytinga hafði staðið yfir um nokkurra ára skeið og er það von kennara í hjúkrunarfræði að þær breytingar, sem gerðar hafa verið á námi hjúkrunarnema, verði farsælar. Vlöbótar- og endurmenntun 31. desember 1989 var Nýi hjúkrunarskólinn (NHS) lagður niður en þar hafði um 18 ára skeið verið boðið upp á framhaldsnám fyrir hjúkr- unarfræðinga. Námsbraut í hjúkrunarfræði hafði áður verið falið að taka við verkefnum skólans. Fyrsta verkefni námsbrautarinnar tengt viðbótar- og endurmenntun var að ljúka námi í svæfingahjúkrun og skurðhjúkrun sem hófst í NHS. Nemendur útskrifuðust úr því námi í nóvember 1990. Haustið 1991 hófst fyrsta viðbótarnámið sem skipulagt var af námsbraut í hjúkrunarfræði. Var það nám í bráðahjúkrun og luku 14 hjúkrunarfræðingar því námi. í janúar s.l. hófst svo viðbótarnám ígeðhjúkrun og eru 11 hjúkrunarfræðingar í fullu námi. Að auki sitja nokkrir hjúkrunarfræðingar einstök námskeið. Áætlað er að viðbótarnám í barna- og unglingahjúkrun hefjist í janúar 1994 og verður það auglýst á haustmisseri. Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um frekara viðbótarnám, en félög skurð- og svæfingar- hjúkrunarfræðinga hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að viðbótarnám í þeirra sérgreinum hefjist innan tíðar. Boðið hefur verið upp á sérskipulagt B.S. nám fyrir hjúkrunarfræðinga sem ekki hafa háskólapróf í hjúkrunarfræði en æskja þess. Nokkur aðsókn hefur verið í þetta nám og hafa 14 hjúkrunarfræðingar þegar lokið því. Fjöldatakmarkanir I námsbraut í hjúkrunarfræöl í desember 1992 var námsbraut í hjúkrunar- fræði veitt heimild í reglugerð til að takmarka fjölda þeirra stúdenta sem halda áfram námi að loknum prófum haustmisseris 1. námsárs. Stjórn námsbrautar í hjúkrunarfræði fór fram á þessa heimild í ljósi reynslu s.l. vetrar þegar 90 nemendur voru skráðir á 3. námsári. Til að allur þessi fjöldi nemenda gæti lokið klínísku námi varð námið að hefjast mjög snemma s.l. haust. Það reyndist afar illa því nemendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.