Höndin - 01.04.1976, Blaðsíða 1
2. tbl.
Reykjavik 1976
Eff0tai
Isyk^a'
t
1. árg.
GUÐ ÞARFNAST
ÞINNA HANDA
Víðtæk kynningarherferð um stöðu þroskaheftra barna ásamt
landssöfnun i æskulýðs- og fórnarviku kirkjunnar
Staðreyndir um
tryggingamál
þroskahefti^a
— Sjá bls. 2
Eg vil ekki
aðeins læra,
ég krefst þess
lika að fá að lifa
— Sjá bls. 3
Opið auga —
hönd til hjálpar
— leiðari biskups
bls. 2
Söfnun
styrktarmanna
Eins og kunnugt er hefur það verið föst hefð i starfi Hjálparstofnun
kirkjunnar að efna til fórnarviku i upphafi föstu. Sömuleiðis hefur
Æskulýðsstarf Þjóðkirkjunnar gengist fyrir sérstökum æskulýðsdegi
árlega um svipað leyti. I ár er áformað að þessar stofnanir taki hönd-
um saman I sameiginlegri æskulýðs- og fórnarviku, undir yfirskrift-
inni: Guð þarfnast þinna handa. Allt frá áramótum hefur farið fram
vfðtækur undirbúningur að framkvæmd verkefnis vikunnar en stefnt er
að þvi að kynna fyrir landsmönnum málefni þroskaheftra barna á
landinu. Viðtækt samstarf er með stofnuninni og flestum ef ekki öllum
þeim félögum stofnunum, sérkennurum og foreldrafélögum, sem
starfa á einn eða annan hátt fyrir þroskaheft börn hér á landi. Á sam
eiginlegum fundi þessara aðila var kosin 5 manna undirbúningsnefnd
til samstarfs við Hjálparstofnun og Æskulýðsstarf þjóðkirkjunnar. Er
það von allra þeirra sem að framkvæmd þessari standa, að ná megi ai-
mennri samstöðu i landinu til hjálpar þroskaheftum börnum. Reynt
verður að kynna málefni þeirra i fjölmiðlum á breiðum grundvelli og
landsmenn hvattir til þess að láta hug sinn til þessara barna i ljós með
framlögum i landssöfnun, en i þvi skyni minnir Hjálparstofnunin á
giróreikning, nr. 20.000.
Þeir sem unnið hafa að þessu þarfa málefni hafa hvarvetna notið
skilnings og fyrirgreiðslu og fyrir það skal þakkað. Hjálparstofnun
kirkjunnar hefur i mörg ár beðið um liðsinni landsmanna til hvers kyns
neyðarverkefna. Hér er á ferðinni málefni sem ætti að standa öllum
hugsandi Islendingum nær hjarta en mörg önnur. Sameinumst þvi i að
gera myndarlegt átak fyrir þroskaheft börn okkar lands, og hvetjum
hvert annað til dáða, minnug þess að þarna þarfnast Guð handa okkar.
fyrir Hjálpar-
stofnun
kirkjunnar
— Sjá bis. 2
Fastir styrktarmenn
Hjálparstofnun kirkjunnar kallar
landsmenn til framtíðarsamstarfs
Hjálparstofnun kirkjunnar hér
á landi hefur frá upphafi orðið að
leita til almennings i formi lands-
safnanna I hvert sinn sem óskað
hefur verið eftir aðstoð nennar i
neyðarverkefnum. Eins og ljóst
má vera fylgir slikum söfnunum
mikið óhagræði og erfitt hlýtur að
vera að höfða þannig oft til
almeúnings um aðstoð. A Norður-
löndum hafa systurstofnanir
hennar haft þann hátt á um nokk-
urra ára skeið, að efla neyðarsjóð
sinn með öflugu styrktarmanna-
kerfi. Vist er um það að þeir
munu vera margir sem áhuga
hafa á þvi að láta eitthvert brot
tekna sinna renna til neyðar- og
liknarmála. Hafa þvi margir
óskað eftir bvi að fá að leggja
reglubundið fé til stofnunarinnar.
Hefur nú verið ákveðið að koma á
fót svipuðu fyrirkomulagi hjá
Hjálparstofnun kirkjunnar hér á
landi og tiðkast jinnars staðar,
með þvi að óska eftir föstum gef-
endum til neyðarsjóðs stofnunar-
innar. Er að þvi stefnt að fá sem
flesta landsmenn til þess að
gerast styrktarmenn með t.d.
ársfjórðungslegu framlagi. Slikt
framlag þyrfti ekki að vera hátt
að krónutölu t.d. 500,- — 1.000,-
kr., i hvert sinn. Hjálparstofnun
kirkjunnar vili þvi i æskulýðs- og
fórnarviku hvetja alla til þátttöku
i þessu mikilvæga verkefni og
skal vakin athygli á að eyðublaði
hér i blaðinu sem klippa má út og
senda Hjálparstofnun kirkjunnar,
þar sem menn óska eftir að
gerast slikir styrktarmenn.
Áformað er að þeir, sem gerast
slikir styrkararmenn fái árs-
fjórðungslega Fréttabréf stofn-
unnarinnar, þar sem greint
verður frá þeim verkefnum sem
unnið er að hverju sinni.
Hver er stefna
flokkanna í
málefnum
þroskaheftra
barna ?
Stjórnmálamenn
svara,-
— Sjá bls. 5