Tíminn - 01.12.1944, Qupperneq 1

Tíminn - 01.12.1944, Qupperneq 1
j RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. ÚTGEPFANDI: FR AMSÓKN ARFLOKKURINN. PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. Símar 3948 og 3720. 28. árg. Reykjavík, föstudagiim 1. des. 1944 RITST JÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A. Símar 2353 oe 4373. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A. Simi 2323. 101. blatl Stjórnarilokkarair haia nú iastráðið að stððva áburðarverksmiðjumálíð STETTINIUS Hinn nýji utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, .Edvard .R. .Stettiníus, .er fœddur 22. okt. 1900. Að loknu há- skólanámi gerðist hann forstióri ýmsra fyfirtœkja og fór vegur hans alltaf vaxandi. Hefir hann verið forstjóri víð .nokkur .þekktustu .stórfyrirtœki Bandaríkjanna. Árið 1911 varð hann framkvœmdast*óri láns- og leigulag- anna, oa gengdl því starfi, unz hann varð aðstoðarutanríklsráðherra 1943. Stettiníus er sagður frjálslyndur mað- ur og óháður Bandarílcjaauðvaldinu, líkt og t. d. Wilkie var, en hefur starfað um skeið við stórfyrirtceki þess. Stjórnin hækkar fargjöld Póst- og símamálastjórn hefir tilkynnt hækkun á far- gjöldum hjá sérleyfishöfum, sem nemur 11% á hveít sæti. Er hæjtkun þessi gerð sam- kvæmt bréfi frá sérleyfishöfum til póst- og símamálastjórnar á síðastliðnu vori. Fyrrv. stjórn vildi ekki á þessa hækkun fall- ast, en núv. stjórn hefir fallizt á hana, eins og aðrar hækkanir. Undanteknir þessari hækkun eru þó Strætisvagnar Reykja- víkur og munu fargjöld með þeim ekki hækka. Góð skemmfun Framsóknarfélögin í Reykja- vík efndu til skemmtisamkomu s.l. föstudagskvöld í Listsýninga- skálanum. Húsfyllir var og urðu margir frá að hverfa. Sam- koman hófst með Framsóknar- vist, • sem spiluð var af miklu fjöri. Síðan söng Guðm. Jóns- son, hinn einkar efnilegi og vin- sæli söngmaður, nokkur lög, nieð undirleik Fr. Weisshkppel. Var hann margkallaður fram og fagnað og þakkað innilega. Þá flutti Hermann Jónasson snjalla ræðu, en því næst var verð- launum úthlutað til sigurvegar- anna í spilunum. Loks var sung- ið og dansað til skiptis, af sam- komugestum almennt, langt fram eftir nóttu. Samkomunni stjórnaði Vigfús Guðmundsson. — Mun það álit samkomugesta, að þótt skemmtanir Framsókn- armanna í Reykjavík séu róm- aðar fyrir þann menningarblæ, fjör og félagsanda, er þar ríkir, þá hafi þó þessi skemmtun bor- ið af í þeim efnum. Næsta samkoma Framsóknar- manna verður í Listsýninga- skálanum £. þ. m. Rannsóknir haSa þó leiil í Sjós, að innlend áburð- arverksmiðja gæti lækkað áburðarverðið um þriðjung Það er nú fullkomlega komið á daginn, að stjórnarflokk- arnir ætla að stöðva áburðarverksmiðjumálið. Við aðra umræðu um áburðarverksmiðjufrv.,. er fram fór í neðri deild síðastl. þriðjudag og miðvikudag, samþykktu stjórn- arflokkarnir þá tillögu meirahluta landbúnaðarnefndar, að i kosningu áburðarverksmiSjuStjórnar %og I Sígrún Bíöndal öðrum fram- kvæmdum málsins skyldi frestað, unz ríkisstjórnin væri búin að gera á því nýja athugun, hvort fyrirtækið gæti borið sig. Með þessu er vitanlega ekki verið að gera annað en að svæfa málið, enda bentu ummæli framsögumanns stjórnarflokkanna eindregið í þá átt. Jón Pálmason var framsögu- maður meirahluta landbúnaðar- nefndar. Hann sagði, að sam- kvæmt áætlunum hins ameríska sérfræðings, sem fjallað hefði um málið, væri stofnkostnaður verksmiðjunnar áætlaður 7 miljónir króna, en mundi senni- lega reynast 10 miljónir og væri miðað við það í frumvarpinu, að stofnkostnaðurinn yrði lagð- ur fram án þess að fyrirtækið greiddi af honum vexti og af- borganir. Auk þess mundi þurfa sérstaka virkjun vegna verk- smiðjunnar. Af þessu leiddi, að meirihluti landbúnaðarnefndar flytti breytingartillögu um'það, að ríkisstjórnin skuli að nýju láta gera nákvæmar áætlanir uiú stofn- og reksturskostnað verksmiðjunnar áður en fram- kvæmdir væru hafnar. Kvað hann þörf nýrrar rannsóknar til öryggis um, að reksturinn bæri sig og taldi ekki glæsilega byrj- un, ef ríkið ætti að gefa stofn- kostnaðinn til þess að rekstur- inn gæti borið sig. Sagðist Jón heldur Vilja leggja 10 milj. til þess að koma raforku í sveitirn- ar, áður en lagt væri í áburðar- verksmiðju! Bjarni Ásgvirsson tók næstur til máls, en hann óg Jón Sig- urðsson á Reynistað skipuðu minnihluta landbúnaðarnefnd- ar. Benti hann á, að meirihluti landbúnaðarnefndar teldi sig samþykkan málinu að formi til, en tæki aftur með breytingartil- lögum sínum það, sem sagt væri í nefndarálitinu. Ef þær breyt- ingartillögur yrðu samþykktar, væri það sama og að vísajnálinu frá. Síðan skýrði hann‘hversu þýðingarmikið og aðkallándi þetta mál væri. Þær athuganir, sem gerðar hefðu verið um stofnun áburðarverksmiðju, bentu til þess, að hér væri hægt að framleiða a. m. k. sumar teg- undir áburðar í samkeppni við aðrar þjóðir og lækka verð á- burðarins innanlands til muna frá því, sem nú er. Að undan- förnu hefði kg. af köfnunarefn- isáburði kostað 3 kr., og væri þó farmgjöld af áburði tiltölulega lág, en samkvæmt áætlunum hins ameríska sérfræðings væri hægt að framleiða hér sams konar áburð fyrir 2 kr. kg. Auk þess væri hægt að fá ódýrari raforku en gert væri ráð fyrir í áætlununum. Mundi það geta lækkað verð áburðarins um allt -að 10% frá því, sem áætlanirnar sýndu. Sú. framleiðsla áburðar, sem nú'væri fyrirhuguð, byggð- ist eingöngu á því, að fyrir hendi væri nóg raforka og nóg vatn. Kvaðst Bjarni ekki sjá á hvaða sviði við gætum orðið samkeppnisfærir, ef við yrðum það ekki við framleiðslu, sem þyrfti ekki önnur hráefni. Bjarni sýndi ennfremur fram á, að stofnun áburðarverksmiðju þyrfti ekki að rekast á fram- kvæmdir í rafmagnsmálum. Þvert á móti gæti áburðarverk- smiðja, sem keypti mdkla orku, orðið til þess að styrkja stórar raforkustöðvar. Bjarni sagðist að lokum ^era enn á sama máli og Jón Pálmason hefði verið ár- ið 1942, þvi að þá hefði hann flutt tillögu um að hraða bygg- ingu áburðarverksmiðju, en nú væri honum snúinn hugur síðan „nýsköpunin“ kom til sögunnar! Sveinbjörn Högnason benti á, að þetta mál væri bezt undir- búið af öllum „nýsköpunar“- málum ríkisstjórnarinnar og (Framhald á 8. síðu) Í DAG birtist á 3. síðu yfirlits- grein eftir Hermann Jón- asson, formann Framsókn- arflokksins, um stjórn- málaástandið í landinu. — Neðanmáls er grein eftir Vestur-íslendinginn Valdi- mar Björnsson um nokkra Breiðfirðinga vestan hafs, þar á meðal læknmn víð- kunna, dr. Brand J. Brands son, er lézt í Winnipeg á síðastliðnu sumri. Frú Sigrún P. Blöndal, for- stöðukona Húsmæðraskólans að Hallormsstað, andaðist síðastl. þriðjudagsnótt eftir skamma legu. Sigrún Blöndal var fædd 4. apríl 1883 á Hallormsstað. — Stundaði Sigrún nám í kvenna- skóla bæði hér og í Danmörku. Hún var kennari við héraðsskól- ann að Eiðum 1919—1924. Árið 1918 giftist hún Benedikt Blön- dal og ráku þau skóla að Mjóa- nesi 1924 til 1930, en það ár gerðist Sigrún forstöðukona Húsmæðraskólans á Hallorms- stað og var það síðan. Var skóla- stjórn hennar mjög rómuð og mun sæti það vandfyllt, sem hún skipaði. Mann sinn missti Sigrún árið 1939. Þessarar merku konu verður nánar getið hér í blaðinu síðar. RtSTm AACHEN-BORGAR ~ • '"-V:"/,.-....................................................... Mynd þessi sýnir rústir Aachenborgar éftir orustur Bandamanna og Þjóð- verja um borgina. Bandamenn tóku Aachen 21. okt. síðastl. og var hún fyrsta þýzka borgin, er þeir náðu á vald sitt. »Bændavinátta« kommúnista aíhjúpuð á Alþ.samb.þinginu Á Alþýðusambandsþinginu, sem nýlega er lokið, sýndu kom- múnistar q^stöðu sína til ^framfaramála landbúnaðarins á mjög eftirtektarverðan hátt. Kom þar næsta Ijóst fram, að áhugi sá, sem þeir þykjast hafa fyrir ýmsum umbótamálum landbúnað- arins, er fals eitt og að þeir bregðast jafnan illa við, þegar á það reynir að veita þessum málum jákvæðan stuðning. Eins og kunnugt er af út- varpsfréttum, hafa kommúnist- ar reynt að efna til klofriings innan búnaðarsamtakanna með því að halda svokallaða bænda- ráðstefnu undir verndarhendi Alþýðusambandsins. Buðu þeir búnaðarfélögunum að senda þangað fulltrúa, auk þess, sem bændum væri frjálst að mæta þar, án tilnefningar nokkurs fé- lagsskapar. Búnað&rfélögin sýndu yfirleitt þann þroska að anza þessari klofningstilraun engu. Ráðstefnu þessa sóttu ekki heldur nema örfáir kom- múnistaáhangendur (milli 30— 40, segir Þjóðviljinn), er fæstir höfðu nokkra tilnefílingu. Á ráð- stefnu þessari voru gerðar ýms- ar ályktanir samkvæmt „kokka- bókum“ kommúnista, er eiga að (Framhald á 8. síðu) Ætlar ríkisstjórnin að taka stórfellt eyðslu- lán til að mæta tekjuhalla fjárlaganna? Þrátt fyrir óvarlegnstn tckjiiáætlun, þarf eim að afla ríkissjóðf a. m. k. 30 milj. kr. nýrra tekna, eigi fjárlögin að verða tekjuliallalaus. Áliti fjárveitinganefndar um fjárlagafrv. 1945, ásamt breyt- ingatillögum hennar við það, var lagt fram á Alþingi í gær. Önnur umr. fjárlaganna mun hefjast eftir helgina og mun nokkrum hluta hennar (eldhús- umræðunum) útvarpað. Samkvæmt tillögum nefndar- innar hækkar tekjubálkur fjár- laganna um 12.4 millj. kr., en gjaldabálkurinn um 15 milj. kr. Samkvæmt því verða útgjöldin á rekstrarreikningi áætluð 96.9 milj. kr., en tekjurnar 99.2 milj. Þess ber að gæta, að ekki er ætlast til að bæta á fjárlögin fyrr en við 3 umræðu útgjöld- um vegna dýrtíðarráðstafana (þ. e. niðurgreiðslum á verðlagi innanlands og útflutningsupp- bótum), sem eru áætluð 25—30 milj., kr., né útgjöldum vegna hinna fyrirhuguðu launalaga, sem eru áætluð 6—7 milj. kr. Enn er því eftir að hækka út- gjaldabálk fjárlaganna um 31— 37 milj. kr., og verður þó tekju- hallinn á rekstarreikningi alltaf orðinn 30 milj. kr. Þess ber ennfremur að gæta, að hækkanir þær, sem nefndin leggur til að gerðar verði á tekjubálkinum, eru mjög ógæti- legar. Auk Framsóknarmanna í nefndinni, taka þeir Pétur Otte- sen og Þorsteinn Þorsteinsson það fram í nefndarálitinu, að þeir telji þessar hækkanir „tefla fjárhag ríkissjóðs í tvísýnu". Hækkanir þær á útgjaldalið- um, sem nefndin gerir, eru ekki nema að takmörkuðu leyti til verklegra framkvæmda. Stærsta hækkunartillagan, sem hljóðar upp á 4 milj. kr., er um dýrtíð- aruppbætur á laun. \ Eins og sést á framansögðu, þarf að afla a. m. k. 30 milj. kr. nýrra tekna, ef fjár^lögin eiga að afgreiðjist tekjuhallalaus. Hefir stjórnin haft þetta mál til athugunar og herma seinustu fréttir úr stjórnarherbúðunum, að hún hafi nú gefist upp við að afla þeirra, nema þá að tak- mörkuðu leyti, en í þess stað ætli hún að taka stórt ríkislán til að mæta útgjöldunum. Að óreyndu verður þessari fregn ekki trúað. Það væri ó- verjandi glapræði, ef nú á mesta veltutímanum, færi ríkið að taka hreint eyðslulán, sem það yrði síðar að sligast undir, þeg- ar tekjur manna rýrnuðu og at- vinnuvegirnir þyrftu aukna hjálp þess. Nýja ríkisstjórnin hefir stund- um sagt, að hún ætli sér að end- urreisa virðingu Alþingis. Vissu- lega væri ekki hægt að leiða Alþingi í meiri niðurlægingu en' að láta það afgreiða á þessum veltitíma stórkostleg tekjuhalla- fjárlög og taka stórt eyðslulán, sem þjóðin yrði að strita undir, þegar harnaði I ári. Fulltrúar Framsóknarflokks- ins í fjárveitinganefnd taka það fram í nefndarálitinu, að þeir hafi fyrirvara og óbundnar hendur um endanlega afstöðu til fjárlagafrumvarpsins, eftir því meðal annars, hvernig ræðst um tekjuöflun og meðferð frum- varpsins á Alþingi. Verðlaunauppdrætt- ir af sveitabæjum Að tilhlutun Teiknistofu landbúnaðarins var á síðastl. vori efnt til samkeppni um uppdrætti að íbúðarhúsum í sveitum. Fresturinn var út- runninn 30. sept. síðastliðinn. Alls bárust 18 teikningar. Dómnefndina skipuðu: For- stöðumaður teiknistofu land- búnaðarins, bankastjóri Búnað- arbankans, einn maður útnefnd- ur af Húsameistarafélagi ís- lands, einn maður útnefndur af Búnaðarfélagi íslands og for- stöðukona Húsmæðraskóla Reykjavíkur. — Þrenn verðlaun voru veitt. 1. verðlan voru 3000 kr„ 2. vellglaun 2000 kr„ 3. verðl. 1000 kr. Þeir, sem hlutu verðlaunin, voru þessir: Ágúst Steingríms- son, byggingarfræðingur, Hafn- arfirði, hlaut 1. verðlaun, Ingvi Gestsson, húsasmiður, Flatey á Breiðafirði, 2. verðlaun,v Ágúst Pálsson, húsameistari, Reykja- vík, 3. verðlaun. Fyrsta verðlaunahúsið er byggt úr steinsteypu, og er gert ráð fyrir upphitun frá eldavél eða katli í kjallara. Húsið er ein hæð og kjallari. Á hæðinni er: stofa og þrjú svefnherbergi, eld- hús með máltíðaskoti, snyrtiher- bergi og yfirhafnageymsla. í kjallara er þvottáhús og geymsl- ur. Tvennar dyr eru á húsinu, að- aldyr og bakdyr. Er áhersla lögð á hagkvæmt samband milli geymslu í kjallara, bakdyra og eldhúss. Á teikningu þeirri, sem fékk 2. verðlaun, er allt á einni hæð, stofa, 3 svefnherbergi, eldhús og snyrtiherbergi. Á teikningu þeirri, er hlaut 3. verðlaun, er gert ráð fyrir einni hæð og kjallara. Á hæðinni er stofa, 3 svefnherbergi og lítið snyrtiherbergi. í kjallara er eld- hús með borðstofu, þvottahús og geymsla. Auk þeirra teikninga, sem verðlaun voru veitt, hefir teikni- stofan ákveðið að semja við höf- unda tveggja annara teikninga um kaup á teikningum þeirra. Tíminn mun síðar birta mynd- ir af uppdráttum þeim, er verð- laun hlutu. %

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.