Tíminn - 05.12.1944, Qupperneq 2

Tíminn - 05.12.1944, Qupperneq 2
434 TÍMEVrc, |iriðjwdagiim 5. dcs. 1944 102. lilað Þriðjjudagur 5. des. Fjölskylduílokkur Það myndi áreiðanlega hafa þótt ótrúleg spásögn á þeim tíma, er Jón Þorláksson var for- maður Sjálfstæðisflokksins, að Sjálfstæðisflokkurinn ætti eftir aðjmynda stjórn með kommún- istum og grundvallaratriði þess stjórnarsamstarfs væri að eyði- leggja framleiðsluna í landinu með aukinni og vaxandi dýrtíð og láta ríkissjóð safna eyðslu- skuldum á mestu veltuárunum í sögu þjóðarinnar. Þetta hefði þótt ótrúlegt vegna þess, að hvað, sem gnnars mátti um stefnu Jóns segja, og færa henni réttilega til foráttu, þá vildi hann og Sjálfstæðisflokkurinn á þeim .tíma, að framleiðslunni væri gert kleift að bera sig og að fjárhagur ríkisins væri í viðun- anlegu lagi. Það má líka telj a víst, að hefði Jón# Þorláksson eða hans líkar haft forustu í Sjálfstæðisflokkn- um nú og á undanförnum ár- um, hefði aldrei skapazt sú kyn- lega stjórnarsamsteypa, er fer með völd í landinu um þessar mundir. Þessi stjórnarsamvinna hefir tekizt vegna þess, að slík- um mönnum hefir verið þokað til hliðar í forustusveit Sjálf- stæðisflokksins, en í þess stað hefir hafizt þar til valda fjöl- skylduklíka, sem einskis metur hag framleiðslunnar eða framtíð einstaklingsframtaksins í land- inu, heldur lætur stjórnast ein- hliða af þrengstu sérhagsmun- um á hverjum tíma. í allri sögu landsins mun þess ekkert dæmi, að einstök fjöl- slíylda hafi náð hér jafnmiklum ítökum og. völdum og Thors- fjölskyldan. Þessari hálfút- lendu fjölskyldu hefir með gyð- inglegri atorku tekizt að hreiðra, um sig í mörgum helztu áhrifa- stofnunum þjóðfélagsins. Ef leita ætti uppi hliðstæð dæmi, væri helzt að fara til Ameríku. þar sem klíkum ævintýramanna hefir með óvandg'ðasta stjórn- málabralli og fjárbraski -tekizt um skemmri eða lengri tíma að fara með stjórn miljónaborga eða sambandsríkja og það hefir kostað umbótamenn erfiða og stranga baráttu að hnekkja veldi þeirra. Það yrði löng og ófögur lýsing, ef lýsa ætti því til hlítar, hvern- ig Thorsfjölskyldan hefir notað pólitísk völd sín eiginhags- munum sínum til framdráttar. Það er alkunnugt, hvernig henni tókst á kreppuárunum, þegar allar lánveitingar voru miklum takmörkunum háðar, að hafa næstum ótakmarkaðan aðgang að sparifé þjóðbankans. Þetta hélzt henni uppi, unz Fram- sóknarflokkurinn skarst í málið, þótt hana vantaði margar milj. kr. til að eiga fyrir skuldum, og verulegur hluti lánanna færi bersýnilega í villubyggingar og aðrar persónulegar eyðslufram- kvæmdir fjölskyldumeðlimanna. Það er líka alkunnugt, hvernig Thorsfjölskyldan notar pólitíska aðstöðu sína til að,þiafa fulltrúa í flestum opinberum sendi- nefndum og verzlunarstofnun- um (t. d. Fisksölusambandinu). Til þessa rekja rætur Gismondi- samningurinn frægi, Spánar- gjafirnar og önnur slík við- skiptabrögð. Loks er alkunna, hvernig hún hefir komið hinum einstöku fjölskyldumeðlimum inn í ýmsar áhrifastofnanir til að tryggja ítök sín sem bezt. í því sambandi má nefna banka- ráð Landsbankans, stjórn Vinnuveitendafélagsins, stjórn Eimskipafélagsins, stjórn tog- araeigendafélagsins, stjórn Landssambands útgerðarmanna, stjórn Verzlunarráðsins o. fl. Hér er þó enn ótalið það, sem meginmáli skiptir, en það er, að Thorsfjölskyldan hefir á hverj- um tíma hagað stefnu og vinnu- brögðum Sjálfstæðisflokksins eingöngu eftir því, sem henni hefir bezt hentað, og án tillits til þess, hvort það væri í' nokkru samræmi við þá grundvallaf- stefnu, sem flokkurinn er byggð- ur á. Það skal viðurkennt, að fjölskyldan hefir sýnt mikil klókindi í því að leika þannig Á viðavangi \ Endurskoðun á lögunum um hlutafélög. Margt er það í eldri löggjög ís- lendinga, er þarfnast orðið end- urskoðunar. Ber þar ekkl sízt að nefna löggjöfina um hlutafé- lög., Hlutafélagafyrirkomulaginu er m. a. ætlað að tryggja aukna þátttöku almennings í atvinnu- rekstrinum. Hlutafélögunum hafa því verið veitt ýms hlunn- indi, sem einstaklingsfyrirtæki njóta ekki, t. d. skattaundan- þágúr. Þess hefir mög orðið vart und- anfarið, að reynt sé að misnota þessar undanþágur. Mörg hluta- félög eru raunar ekki meira en ein fjölskylda, sem hefir breytt fyrirtæki sínu í hlutafélög til að njóta þeirra hlunninda, sem slíkum félagsskap er veitt. Annað enn óhugnanlegra fyr- irbrigði er að verða álíka algengt Það er fólgið í því, að sama fjölskyldan eða sömu mennirn- ir eigi mörg hlutafélög, sem annast samskonar rekstur. Til- högúnin er þá oft þannig, að hlutafélög nr. 1 er látið selja hlutafélagi nr. 2 eignir sínar. Hlutafélag nr. 2 verður þannig stórskuldugt og fær undanþágu til að afskrifa skuldirnar. Þegar það er svo orðið skuldlaust, sel- ur það eignirnar hlutafélagi nr. 3 og þannig gengur það koll af kolli. Hér er raunverulega ekki um annað en svindlstarfsemi að ræða til að notfæra út í yztu æsar afskriftarhlunnindi skatta laganna. Það þarf að endurskoða lög- gjöfina um hlutafélögin og breyta henni til að koma í veg fyrir þessa og aðra misnotkun á hlunnindum, sem ;þau njóta. Er það væri búið, væri vel hægt að hug'sa sér að veita þelm jafn- vel enn meiri hlunnindi. Það gæti orðið almenningi talsverð hvatning til að leggjá frp,m það sparifé, sem nú hefir safnazt, i atvinnureksturinn. í ýmsum borpum er t. d. vérið að stofna hlutfélög með almennri þátttöku fil eflingar útgerðinni á þessum stöðum. Slíka hlutafélagsstarf- semi ætti að reyna að efla. En helzt ætti þá að setja ákveðna híuthafatölu, t. d. 30—50, sem skilyrði fyrir hlunnindunufn og enginn mætti fara með fleiri en t. d. 2—3 atkvæði, þótt hramlag hans væri hlutfallslega meira en það. Landbúnaðurinn og erlendi gjaldeyririnn. Því heyrist stundum fleygt, að landbúnaðurinn sé ekki þýðing- armikill atvinnuvegur, þar eð hann afli mjög lítils af erlendum gjaldeyri. Þetta má líka iðulega lesa í tólaði kommúnista, Þjóðviljan- um. Fyrir þá, sem þetta segja, væri fróðlegt að reikna það út, hve miklar væru nú gjaldeyrisinn- eignir bankanna erlendis, ef við hefðum þurft að flytja inn allar landbúnaðarafurðir, sem hér hefir verið neytt undanfarin ár. Ætli að inneignirnar skiptu þá meira en nokkrum tugum milj. í stað þess, að þær nema nokkr- um hundruðum milj. kr.? , Þeim, sem alltaf eru að hnjóða í landbúnaðinn, væri vissulega holt að hugleiða þetta. Land- búnaðurinn sparar þjóðinni ár- lega tugi málj. kr. í erlendum gjaldeyri. Hann á því drjúgan þátt í gjaldeyrisinneignunum nú. Enn þýðingarmeiri getur þó þessi þáttur hans orðið, þegar erfiðara verður um gjaldeyri en nú. Friðarskraf Mbl. Morgunblaðið heldur enn á- fram skrifum sínum um það, hve friðurinn sé mikilsverður fyrir þjóðfélágið og hve illt sé því verk þeirra, sem ekki hafi viljað gerast stuðningsmenn núv. ríkisstjórnar, Er þessum ummælum bersýni- lega jöfnum höndum stefnt að "Framsóknarflokknum, Vísir og þeim fimm Sjálfstæðisþing- mönnum, er ekki vilja styðja stjórnina. | Tíminn getur fullkomlega tek- , ið undir þau ummæli Mbl., að friðurinn sé góður og nauðsyn- legur. En stundum getur hann samt verið of dýru verði keypt- 'ur. Það finnst t. d. þjóðum þeim, sem nú eiga í stríði við nazista. Ekki vantaði friðarskrafið hjá nazistum, frekar en Mbl. nú, en samt fannst Bandamönnum, sem voru þó vissulega friðelsk- andi, óhjákvæmilegt að segja þeim og stefnu þeirra stríð á' hendur. Það sannaðist á Bandamönn- um, sem Stephan G. segir í einu kvæði sínu, að „þeir, sem stríði vilja verjast, verða stundum fyrst að berjast.“ Þetta sannast líka á þeim flokki og mönnum hér, s‘em ekki vilja kaupa friðinn við upp- lausnaröflin svo dýru verði, að dýrtíðin sé enn látin aukast og ríkið látið safna eyðsluskuldum á mestu veltitímum þjóðarinnar. Til þess að geta unnið að því að skapS þjóðinni frið og farsæld í framtíðinni, kjósa þeir heldur baráttu nú en örskamman stuíidarfrið, er aðeins gæti end- að með hruni og eyðileggingu. Búhyggindi Jóns Pá og Jóns á Reynistað. Sigurður Bjarnason skrifar nýlega mikla lofgrein í Mbl. um með flokkinn og láta hann iðu- lega vinna beint gegn grund- vallarstefnu sinni. Það virðist nú fyrst, að flokksmönnunum sé að verða ljóst, hvernig þeir séu meðhöndlaðir og séu því að byrja að veita viðnám. Annað aðalblað flokksins, Vísir, lýsir yfir þvi, að það geti ekki lengur fylgt ævintýramennsku flokks- forustunnar, og muni halda sig að hinni upprunalegu stefnu flokksins. Fimm þingmenn flokksins hafa einnig neitað að taka þátt í seinustu kúvending- unni, sem flokkurinn hefir ver- ið látinn taka. Hinir síðustu stjórnmálaat- burðir eru Ijósasta dæmi þess, að Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn fjölskylduflokkur, en er ekki raunverulegur landsmálaflokk- ur, sem gætir hags framleiðsl- uhnar og einkaframtaksins/eins og hann hefir talið hlutverk sitt. Fjölskyldan, sem ræður flokknum, þarf ekki lengur að gæta hagsmuna í sambandi við framleifcsluna, því að hún hefir selt flest framleiðslutæki sín, og framtíð einkaframtaksins á ís- landi er ekki hennar mál; enda hefir ekki annar aðili hérlendur blettað öllu meira skjöld þess (sbr. stóru síldarmálin á Hest- eyri, litlu flöskurnar á Korp- úlþsstöðum, landhelgisveiðar o. íl.). Það, sem hugur hennar girniSt nú mest, er völd, og þau er hún reiðubúin að kaupa dýru verði á kostnað framleiðslunnar og einkaframtaksins í framtíð- inni. En á kostnað sjálfs sín kaupir hún þau ekki. Reynist völdin skammvinn og endalok þeirra íslenzkt sóvétríki, eru þessir hálf-útlenflingar ekki svo rótgrónir hér, að þeir geti ekki eins notið gróðans í fram- andi landi. Það hefir hingað til mátt virða Sjálfstæðismönnum til nokkurrar vorkunnar, að þeir hafa fylgt Sjálfstæðisflokknum að málum, þótt hann væri ber- sýnilega ekki orðið annað en fjölskylduflokkur og fylgdi því hvorki upprunalegri stefnu sinni né annari stefnu í lands- málum. Reynslan frá Ameríku hefir einmitt sýnt, að vaninn er svo ríkur, að mönnum Teynist erfitt að skiljast við flokka sína, þótt þeir hafi orðið klíku ör- fárra yfirgangssamra misyndis- manna að bráð. En eftir sein- ustu atburði í íslenzkum stjórn- málum, getur þó ekkert afsak- að lengur fylgisemi Sjálfstæðis- manna við Sjálfstæðisflokkinn, sem óábyrgan fjölskylduflokk. Því fyrr, sem ævíntýri Sjálf- stæðisflokksins sem fjölskyldu- flokks lýkur, því fyrr skapast það viðnám gegn kommúnisma og tekjuhallarekstri, er þjóðin hefir nú ríkari þörf fyrir en nokkuð annað. Jón Pálmason fyrir afstöðu hans í áburðarverksmiðjumálinu. — Segir Sigurður, að Jón hafi þar sýnt mikil búhyggindi með því acf vilja fresta málinu, en þeir, sem hafi viljað hefjast handa um framkvæmdir strax, hafi hagað séY þannig, að „enginn bóndi, sem -hygginn gæti kall- ast,“ myndi hafa gert slíkt. Meðal þeirra, sem beitti sér fyrir því, bæði í landbúnaðar- nefnd og í þinginu, að strax yrði hafizt handa um framkvæmdir í áburðarverksmiðjumálinu, var Jón Sigurðsson bóndi á Reyni- stað. Mun áreiðanlega sá bóndi vandfundinn, er álítur Jón á Reynistað minni búhygginda- mann en Jón Pálmason og getur Sigurður Bjarnason reynt að gera samanburð á búskap þeirra Jónanna, ef hann heldur sig geta afsannað þá skoðun. Það voru ekki heldur búhygg- indi Jóns Pálmasonar, er réðu afstöðu hans í áburðarverk- smiðjumálinu, enda getur Sig- urður ekki réttlættþessi búhygg- indi nema með uþpspuna um að áætlun um stofn- rekstr- arkostnað hafi ekki verið fyrir hendi. Hefði Jón Pá látið stjórn- ast af búhygginduni, eins og Jón á Reynistað, myndi hann hafa fylgt því, að strax yrðu hafnar framkvæmdir, þar sem full- komnar áætlanir um stofn- og rekstrarkostnað sýndu, að verk- smiðjan gæt*i lækkað áburðar- verðið um þriðjung. Það, sem réði afstöðu Jóns Pálmasonar, var hlýðni hans við kommúnista, er heimtuðp áburðarverk- smiðj urÁálið stöðvað. Þetta sama réði líka afstöðu Sigurðar Bjarnasonar. Það væri honuiú sæmst að játa. Hitt er honum vonlaust verk að ætla að telja bændum trú um, að Jón Pálma- son sé meiri búhyggindamaður en Jón á\.Reynistað! Nýr iollur? Alþýðublaðið segir, að þing álþýðuflokksins hafi m. a. gert ivohljóðandi samþykktr „Þar sem álagning á heild- söluvörur er óhæfilega há, telur þingið rétt að leggja söluskatt á heildverzlun, þó þannig að tryggt sé, að eigi komi fram í hækkuðu vöru- verði“. # Flestum mun finnast það eðli- legt, að sé leyfð of há álagning á heildsöluvörum, eigi að lækka hana og þar með vöruverðið í landinu. Ekki er dýrtíðin það (Framháld á 8. síðu) ERLENT YFIRLIT; Skærusveítirnar og kommúnístar Eftir ýmsum fregnum að | dæma, er nú berast frá þeim löndum, sem hafa verið frelsuð undan oki nazista, mætti jafn- | vel halda, að kommúnistar hefðu verið uppistaða mótstöðuhreyf- ingarinnar þar, þar sem svo hefir stundum virzt, sem þeir bæru hag skærusveitanna sér- staklega- fyrir brjósti. Sé forsaga þessa máls aftur á móti rakin, verður annað uppi •á teningnum. Fyrsta stríðsvetur- inn ráku kommúnistar þann á- róður í löndum Bandamanna og hlutlausum löndum, er síðar komust undir kúgunarstjórn nazista, að styrjöldin við nazista væri ekkert annað en heims- valdasinnuð vitfirring. Þeir ráku þann áróður líka kappsamlega að semja ætti frið við Þjóðverja og bryddi m. a. talsvert á þessari starfsemi þeirra innan franska hersins. Allmargir franskir kom- múnistaþingmenn voru fangels- aðir af stjórnum Daladiers og Reynauds, vegna þessa áróðurs, sem talinn er hafa átt sinn þátt í lélegri fr'amgöngu franska, hersins vorið 1940. Sjálfur aðal- foringi franskra kommúnista, Thorez, var dæmdur sekur fyrir þennan áróður, en honum tókst að flýja til Moskvu og hefir hann setið þar síðan. Stjórn de Gaulle hefir nú náðað hann fyrir nokkru og er hans nú von til Frakklands innan tíðar. Kommúnistar breyttu lítt um stefnu í -þessum málum, þótt lönd þeirra kæmust undir stjórn Þjóðverja. Þannig héldu franskir og belgiskir kommúnistar uppi áróðri fyrir góðri sambúð við Þjóðverja lengi vel eftir her- námið, og ásökuðu Breta fyrir að halda styrjöldinni áfram. Þeir veittust harðlega gegn stjórnum de Gaulle og Pieriot og töldu þær vera til ills eins. Mótstöðuhreyfingin gegn Þjóð- verjum í þessum löndum átti á þeim tíma einn versta andstæð- ing sinn, þar sem kommúnistar voru.Svipuð var reynslan í Nor- egi, þar sem kommúnistar deildu á þingið fyrir að reka ekki Há- kon konung frá völdum og mynda stjórn, er gæti átt góða samvinnu við Þjóðverja. Þessi afstaða kommúnista var í fullu samræmi við afstöðu Rússa, sem höfðu á þessum tíma vináttu- samning við Þjóðverja og ráku frá' Moskvu sendiherra her- numdu landanna og neituðu að viðurkenna hinar , landflótta, löglegu stjórnir þeirra. Það var ekki fyrr en - eftir að styrjöldin hófst milli Rússa og Þjóðverja seint í júní 1941, er kommúnistar tóku að breyta afstöðu sinni og snúast til liðs við mótstöðuhreyfingar þær, sem þá voru fyrir löngu komnar á legg. Víða gerðust þó kom- múnistar ekki beinir þátttak- endur í mótstööuhreyfingunum, sem fyrir voru, heldur stofn- uðu sínar eigin móthreyfingar og skærusveitir. Þannig var það t. d. í Frakklandi, í Júgóslavíu, Grikklandi og víðar. * Yfirleitt kvað lítið að þessum skærusveitum kommúnista, nema í Júgóslaviu, þar sem þær virðast hafa haft mjög dugandi foringja. í Frakklandi kvað t. d. mjög lítið að þeim, og eins í Belgíu. Skæýuhersveitirnar, sem mest kvað að í Frakklandi, voru óháðar kommúnistum og meg- inþorri liðsmanna þeirra var úr borgaralegu flokkunum. Veru- leg þátttaka varð ekki heldur í skærusveitum kommúnista, t.d. í Frakklandi og Belgíu, fyrr en um það leyti, sem Bandamenn voru að hrekja Þjóðverja úr þessum löndum. Þá virðist sem kom- múnistar hafi gefið liðsmönnum sínum fyrirskipanir um að fylkj a sér inn í þær, og hefir það vafa- laust verið gert í þeirri von, að skærusveitirnar myndu öðlast sérréttindi síðar. » Stjórn de Gaulle tók strax þá ákvörðun, að þær skærusveitir, sem vel voru orðnar þjálfaðar og höfðu veitt virka aðstoð 1 orust- um við Þjóðverja, skyldu hafa réttindi til að ganga í herinn. Aðrar Rkærusveitir skyldu af- vopnaðar. Meðal þeirra skæru- sveita, er eigi fullnægðu skilyrð- unum um inngöngu í herinn, var þjóðvinafylkingin, er hafði deildir víða um landið og var að mestu skipuð kommúnistum. Þessi samtök höfðu heldur ekki það aðalmarkmið að berjast við Þjóðverja, heldur að hjálpa til við borgaralega stjórn, eftir að Þjóðverjar hefðu verið hraktir burtu og þó einkum að sjá um, að svokölluðum Lavalistum eða nazistavinum yrði refsað. Þegar\ að því kom að afvopna þessi samtök, brugðuát kommúnistar mjög illa við og hótuðu um skeið brottgöngu úr stjórninni. De Gaulle sat hins vegar við sinn keip og neitaði því að leyfa vopnaðan sérfélagsskap, eftir að komið hefði verið upp löglegum her og lögreglu. Sáu kommún- (Framhald á 8. síðu) Alþýðublaöið skýrir frá því 1. þ. m., xð m. a. hafi svohljóðandi tillaga verið samþykkt á nýloknu þingi Al- 'pýðuflokksins: „19. þing Alþýðuflokksins telur brýna þörf á að gerðar verði tafarlaust sérstakar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að stríðsgróði sé dreginn undan skatti, svo sem augljóst er að nú á sér stað. Verða skattsvik þessi orsök þess að skattar á almenningi eru mun hærri en vera þyrfti ella. Beinir þingið því til alþingis, að tekin verði upp nafnskráning verð- bréfa eða vaxtarskattur af þeim og nafnskráning sparifjár, en sam- tímis verði hert eftirlit með skattaframtölum os refsiákvæði skattalaganna endurskoðuð og þeim beitt til hins ýtrásta. Þá telur þingið nauðsyn bera til að gera nú þegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir fjárflótta úr landinu “ Þetta er vissulega allt satt og rétt hjá Alþýðuflokknum. En það er ekki nóg að samþykkja góðar og réttmæt- ir tillögur, þegar verkin sjálf bein- rst í aðra átt. Með því að fela í- haldsmanni fjármálastjórnina hefir álþýðuflokkurinn séð fyrir því, að sftirlit með skattamálunum mun sízt ’oatna, og illa mundi Alþýðuflokkurinn eftir því, að nauðsynlegt væri að nafnskrá verðbréf og sparifé, þegar stjórnmálasáttmálinn var gerður. Og skyldi það líka hafa verið líklegasta leiðin til að fyrdrbyggja fjárflótta úr landinu að gera Ólaf Thors að forsætisráðherra? í seinasta hefti Ægis skrifar Lúð- vík Kristjánsson grein um „Vísindi í þágu framleiðslunnar." Þar segir m. a.: „Allir virðast vera sammála úm, að lífsnauSsyn sé fyrir þjóðina að auka og endurnýja skipastól- inn, og þá ekki sízt fiskiflotann. En á það er sjaldan minnst, að í kjölfar þessarar nauðsynjar verð- ur óhjákvæmilega að hefja bar- áttu fyrir því, að atvinnutækin standi undir sér og þeir, sem við þau vinna, geti lifað við þau kjör, sem samboðin eru menningarþjóð. Ég er sannfærður um, að þessi barátta verður fyrst og fremst að beinast að því að gjörnýta állt það hráefni, sem aflast, og vinna úr því þær vörur, sem selj- anle^astar eru á hverjum tíma. Og við vinnsluna verður að beita þeirri tæknilegu kunnáttu, sem bezt er völ á. En til þess að vér verðum ekki eftirbátar um þessa hlutl, verðum vér jafnan að fylgj- ast vei með þeim nýjungum, sem upp eru á tenin^num hjá öðrum fiskveiðaþjóðum, og færa oss þær til nyt’a svo sem hérlendar að- stæður leyfa. Til þess að þetta megi verða er þ’óðinni nauðsynlegt að eignast sérmenntaða menn á öllum svið- um fiskveiðar, fiskiðnaðarfræði og fiskifræði, oa skapa þeim jafn- framt aðstöðu til kynningarstarf- semi hér heima. Það væri gáleysi, ef soara ætti um of fé til slíkra hluta, en hins ber og að gæta að fela ekki slíkt öðrum en þeim, er hafa hina beztu sérmenntun og reynslu. Þetta er vlssuléga orð, sem eru í tíma töluð og eiga brýnt erindi til valdhafanna. * * í Alþýðublaðinu sl. þriðjudag er sagt frá ræðu Jóns Axels Pétursson- ar á Alþýðusambandsþinginu, þar sem hann geröi grein fyrir því, vegna hvers ekki hefði náðst samkomulag í uppstillingarnefndinni um stjórnar- kosninguna. Jón segir: „Við Albvðuflokksmenn töldum eðlilegast að samkomulag_ næðist um það að reynt vrði með kosn- ingu forseta að komast að raun um hvoru megin hreinn meiri- hluti þingfulltrúa væri og að meirihlutiim í forsetavalinu veldi síðan fjóra fulltrúa og minnihlut- inn sína fjóra. Þessu neituðu kommúnistar, nfema með því skilyrði að þeir fengju að hafna einstökum mönn- um sem við Alþýðuflokksmenn kynnum að stinga upp á ef við yrðum í minnihluta. Þessu neit- uðum við skilyrðislaust, enda hefð- um við þá átt samkvæmt því að hafa rétt til að hafna hverjum einstökum, er okkur listi, og komm- únistar stingju upp á — og sjá allir heilvita menn hvílík enda- leysa þetta er. Við vildum láta kommúnista ráða sínum mönnum en við vildum einnig ráða því hvaða menn við veldum.“ Þetta sýnir bezt á hverju samstarf- ið hefur strandað. Það gat verið af- sakanlegt fyrir kommúnista að neita kannske 1—2 mönnum, en en að láta synjun ná til margra manna, þýddi vitanlega sama og neita alveg sam- vinnunni. I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.