Tíminn - 08.12.1944, Side 6
446
TÍMEyiy, föstiidagmn 8. des. 1944
103. blað
Ræða Hermanns Jónassonar
fFramhald af 4. síðu)
orð Morgunblaðsins fyrir hálf-
um mánuði. Halli á fjárlögum
nú mundi „hefna sín grimmi-
lega“ er versnar í ári. „Hin
grimmilega hefnd“, sem Morg-
unblaðið kallar §vo, væri fyrir-
sjáanlegt algert fjárhagslegt
öngþveiti.
Ég hefi nú leitt rök að því, að
stefna núverandi stjórnar er
framhald stjórnarstefnunnar
1942. Kjördæmamál enn á ný,
undanhald í kaupgjaldsmálum.
sama ráðleysi í dýrtíðarmálinu
Algert stefnuleysi í fjármálum.
Stjórn með slíka stjórnarstefnu
fyrirbyggir vitanlega alla ný-
sköpun atvinnulífsins eins ræki-
lega og nokkur stjórn getur gert.
Stefnan sjálf hlítir því lögmáli
að koma hér öllu í fjárhagslega
sjálfheldu áður en varir.
Sinidurþykkjaii innan
Sjálfstæðisflokksins.
En einingin í stjórnarflokkun-
um er bágborin um fleira en
fjármálastefnúna. Það er að
vísu misklið í öllum flokkum og
nokkur metingur. Ég tel hér ajls
ekki þann meting og þær orða-
■ hnippingar, sem oft eiga sér
stað milli flokksmanna, svo sem
milli Björns Ólafssonar fyrrver-
andi ráðherra og núverándi for-
sætisráðherra, eða skrif Árna frá
Múla um núverandi forsætisráð-
herra, þó að þar sé af mörgu að
taka. Það er ekki svo alvarlegt
út af fyrir sig, þó að slíkt eigi
sér stað í . flokkum.
En ágreiningur, sem nú er \
Sjálfstæðisflokknum, er um mál.
sem markar meginstefnu hvers
flokks, stefnan í fjárrmilum
ríkisins og framleiðslunar. Þetta
eru málin, sem skipta mönnum
í flokka. y4 af Sjálfstæðisflokkn-
um neitar að styðja stjórnina,
fimmmenningarnir. Ég get upp-
lýst, að nokkrir af þeim hafa
þegar sent dreifibréf út um
kjördæmin, væntanl'.ga vegna
þess, að þeir eiga ekki of greið-
an aðgang að málgögnum
flokksins. Þeir skýra þar af-
stöðu sína til stjórtiarmyndun-
arinnar. Þeir eru ekki myrkir í
máli um það,. sem er að gerast
og eru næsta harðorðir í áliti
sínu á stjói'ftarsamvinnunni og
stefnunni. Margt í bréfum þess-
um á sannarlega erindi til
manna um land allt. Það verða
síðar tækifæri til að skýra nán-
ar frá þessum bréfum. Þau
ganga nú manna á milli, það
vitið þið hlust^ndur, um öll þau
héruð, sem þau hafa verið send
í. Og Morgunblaðið sagði nýlega,
að þetta væru greindustu og
heiðarlegustu mennirnir 1
flokknum.
Sama er að segja um afstöðu
annars sjálfstæðisblaðsins, Vís-
is. Þar er einnig djúptækur á-
greiningur um meginstefnuna
og flytur blaðið svo að segja
daglega árýsir á stefnu stjórn-
arinnar.
Ófrlðurlnn í Alþýðii-
sambandinu.
Og svo er það framkoma kom-
múnista og Sjálfstæðismanna á
þingi Alþýðusambandsins. Þing-
ið hefst á því, að uppvíst verð-
ur um leynibréf formanns kom-
múnistaflokksstjórnar, Brynj-
ólfs Björnssonar, til trúrra fé-
lagsmanna víðsvegar um land.
Bréf þetta hefir vakið almenna
undrun. í samræmi við áætlún
bréfsins neyta svo kommúnist-
ar og Sjálfstæðismenn meiri-
hlutavalds til að bægja nokkrum
fulltrúum Alþýðuflokksins frá
þátttöku í þinginu, þótt kosnir
væru með sama hætti og full-
trúar, er kommúnistar vissu sér
trúa. — Landsmenn rekur minni
til, að 1937 hófst samstarf Sjálf-
stæðismanna og kommúnista
um stjórnarkosningu í verka-
mannafélaginu ^Llíf í Hafnar-
firði. Maður að nafni Hermann
Guðmundsson var kosinn for-
maður þess. Hann var flokks-
bundinn Sjálfstæðismaður, sem
Alþýðublaðið sagði að hefði ver-
ið í nazistadeild flokksins. Kom-
múnistar og Sjálfstæðismenn
ráku nú nokkra þekktustu
verkamannaleiðtoga Alþýðu-
flokksins úr félaginu 'Hlíf til
þess að tryggja sér meirihluta.
Hermann Guðmundsson .var svo
sendur út af örkinni um allt
land sem pólitískur vérka-
mannaleiðtogi Sjálfstæðis-
flokksins. Síðan segir Hermann
Guðmundsson sig úr Sjálfstæð-
isflokknum. Enginn veit, hvaða
flokki hann tilheyrir. En stað-
reynd er það, að nú er Hermann
Guðmundssón kosinn formaður
Mþýðusambandsins með at-
kvæðum kommúnista og Sjálf-
ítæðismanna.
Kommúnistar og Sjálfstæðis-
menn hlutu 4 atkvæða meiri-
iluta eftir að þeir höfðu, eins og
fyrr segir, neitað nokkrum lög-
lega kosnum Alþýðuflokks-
nönnum um aðgang að þing-
'nú. Þannig kusu þeir einlita
kommúnistastjórn, 9 manna,
’yrir Alþýðusambandið.
Alþýðublaðið 28. f. m. segir um
betta: „Þessi meirihluti var
fenginn með svikum og ofbeldi
ig stuðningi Sjálfstæðismanna“.
Það má svo sem nærri geta,
með hvað miklum heilindum
samstarfið er í ríkisstj órhinni
nilli þessara manna um almenn
nál ofan á stefnuleysið, sem áð-
jr er rakið.
IViðurlas'sorð.
Ég sný mér að lokum að nýju
ið fjármálunum. Ég tala til
peirra, fjær o_g nær, sem styðja
pessa stjórn. Ég er undrandi yf-
ir því, að ýmsir þingmenn í
itjórnarflokkunum skuli ekki
viðurkenna það nú þegar,
ivernig fjárhag þjóðarinnar og
framleiðslunnar er komið. Ég
fullyrði, að mörgum þessara hv.
bingmanna er það Ijóst,” að með
bví að láta meinsemdina halda
xfram að grafa um sig, er aug-
Ijós, að hún verður lítt lækn-
mdi áður en varir. Þeir, sem að
bessum stuðningi standa, taka á
5ig mikla ábyrgð.
Ég geri mér það ljóst, að það
er nú þegar miklum annmörk-
um háð, að ráða fram úr fjár-
nálum íslenzka ríkisins og
framleiðslunnar. En það er aug-
jóst, að það fer enn ört versn-
andi, því lengur sem haldið er
ífram á þessari brautr— Ég hefi
enga trú á því, að fjármálaá-
5tandið verði lagfært, nema með
algerðri stöðvun og síðan niður-
færslu dýrtíðarinnar, og að leið-
réttar verði nokkrar af þeim yf-
xsjón jm, sem gerðar voru aðal-
lega 1942. Án þess verður á
næstunnl ekki unnt að semja
fjárlög 'með viðunandi móti, og
ín þess er framleiðslan dauða-
læmd, ef nokkuð ber út af, sem
Eyrirsjáanlegt er.
Ég efast mjög mikið um, að
kjör verkamanna séu hér betri
m þau voru 1941—1942. Hækkað
verð til bænda hefir horfið í
’nækkað kaup og tilkostnað. Ég
pfast um, að verkamenn á ís-
landi séu nokkuð betur settir en
verkamenn í Englandi, Svíþjóð
og öörum löndum, þar sem þeir
hafa þrisvar sinnum íægra kaup
en hér. Dýrtíðarpólitík okkar
hefir verið sú, að láta undan á-
róðri, sem skapað hefir þá trú,
að það væri betra að fá 10 kr.
í kaup heldur en 5 krónur, þó
að dýrtíðin vaxi þannig, að mað-
ur kaupi sömu nauðsynjar fyrir
10 krónur og greiddar voru með
5 £r. áður. En afleiðingarnar
hafa orðið þær fyrir ríklssjóð,
sem við nú sjáum, og fyrir fram-
leiðslu landsmanna, en að lok-
um fyrir alla landsmenn.
Þegar hinar þroskuðu ná-
grannaþjóðir okkar ræða um
nýskipun sinnar framleiðslu,
sér maður fljótt, að' það sem
bær hugsa um fyrst og fremst,
er það hvernig framleiðsla
beirra geti orðið samkeppnis-
fær við framleiðslu annarra
þjóða. Við Verðum að fara að
hugsa fjármál okkar á svipaðan
hátt, þótt seint sé. í þessu landi
eru óþrotlegir möguleikar. Hvar
sem við lítum, er þörf fyrir nýtt
framtak og nýjar framfarir.
Þeir menn, sem taka á sig á-
byrgðina á því að halda áfram
fjármálastefnunni frá 1942,
verða að gera sér það ljóst, að
þeir taka jafnframt á sig þá á-
byrgð að koma í yeg fyrir þess-
ar framfarir í bráð, og ef þess-
ari fjármálastefnu verður haldið
áfram enn um skeið, þá einnig
f lengd.
Þessi fjármálasteína er að
koma öllum þjóðarbúskapnum í
algera sjálfheldu.
Brúnn kraítpappír
Sterkur — ódýr.
I
Kaupíélag Eyíirðínga
Byggingarvörudeild
\
VERZLUNIN
EDINBOR6
1. des. opnaði ég
Jólabazarínn
Éy kom me& ó-
t/rt/nni uf leikfönt/-
um ot/ allskonar
ttekifœrist/jjöfum.
Krakkar mínír, pid
vitid hvert skal
halda.
Jélasveinn Edinborgar
Ef yffur vantar
rafvirkja
þá hringið í síiua 5740. — Fljót afgreiðsla.
Vöuduð vinna.
H.f. Glóðin
Skólavörðustíg 10.
IJtlagrinn
Ný skáldsaga eftir Pearl S. Suck.
Saga konu, sem elskaði og fórnaði, líknaði og hugg-
aði sorgmædda og hrjáða meðbræður í framandi
landi, ósvikin hetjusaga, sögð á þann látlausa og nær-
færna hátt, sem þessari skáldkonu er svo laginn.
Það gefur þessari bók sérstakt gildi, að Pearl Buck er
hér raunverulega að segja sögu móður sinnar. Allir
þeir, er kynnast vilja þeim jarðvegi, sem þessi ástsæla
skáldkona er sprottin úr, mun-þvi fagna mjög útkomu
þessarar bókar.
Þetta er jólabók íslenzkra kvenna í ár.
BÓKAÚTGÁFAJV óðfvn.
/þeirra sem missa fyrirvinnu
sína, er líftrygging. Hafið þér
gert skyldu yðar og tryggt
framtíð f jölskyldunnar.
.ÖRYGGI UM FRAM ALLT“
SjóvátnjqqifÍfÍiaQ Islands
SAYO\ de PARÍS mýkir húðina ot/
styrkir. Gefur henni yndisfayran litblœ
oy ver hana kvillum.
ivoTie
SAVON
/
Raitækjavinnustofan Selíossi
framkvæmir allskonar rafvSrkJastörf.
/