Tíminn - 26.01.1945, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFPANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Sfmar 3948 og 3720. X
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A.
Sfmar 2353 og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHKEMTA
OG AUGLÝSING A SKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI. Lindarsfðtu 9 A.
Slml 2323. í
29. árg.
Reykjavík, föstudagiim 26. jan. 1945
7. blað
Glundroðinn í fisksöiu-
málunum magnast
Aileiðingarnar af sinnuleysi og káki
stjórnarinnar koma í ijós
Hinn versti glundroði er nú ríkjandi í fisksölumálunum, er
yfirleitt rekja annaðhvort rætur sínar til sinnuleysis eða kák-
ráðstafana stjórnarinnar. í ýmsum verstöðvum hefir vertíðin
enn ekki hafizt af þessum ástæðum og í nokkrum verstöðvum
er ekki annað sjáanlegt en vertíðin stöðvist, ef ekki verða tekin
upp af hálfu stjórnarinnar ný og endurbætt vinnubrögð.
Þau misfök stjórnarinnar, sem
miklu valda um þennan glund-
roða, eru m. a. þessi:
1. Nokkrum fjáraflamönnum
hér í bæ hefir tekizt að verða
á undan stjórninni og fá leigð
til fiskflutninga þau brezk skip,
er annast flutninga á kolum og
öðrum vörum hingað til lands.
Ríkisstjórnin hefir síðar reynt
að fá þessum samningum riftað
en án árangurs. Gróöinn, sem
verður af fiskflutningum þess-
ara skipa, kemur því til með að
renna til fjáraflamannanna, er
voru skjótráðari en ríkisstjórn-
in, í stað þess að hann hefði
getað runnið til fiskeigenda.
2. Vegna þess að dregið 'var
að hefja heildarsamninga við
Færeyinga, eru leigusamningar
þeir, sem ýms fisksölusamlög
voru búin að gera við færeyska
skipaeigendur, ekki enn komnir
til framkvæmda og skipin fást
ekki fyrr en frá heildarsamn-
ingum hefir verið gengið. Fyrst
nú, þegar komið er fram á ver-
tíð, er verið að hefja þessa
samninga.
3. Vegna þess að dregið hefir
verið að semja við Breta um
hraðfrysta fiskinn, hafa frysti-
húsin ekki treyst sér til þess enn
að hefja rekstur sinn, þar sem
allt er í óvissu um verð afurð-
anna. Er mjög vafasamt, að
þau starfi nokkuð fyrst um
sinn, nema sérstakar ráðstaf-
anir verði gerðar.
4. Vegna fyrirmæla stjórnar-
innar um lágmarksverð, hafa
ýms smærri skipin dregið sig
.alveg í hlé og hafa fiskflutn-
ingar sums staðar falið niður
Færeyska sendi-
nefndin
Samkvæmt tilmælum frá Fær-
eyjum hefir sendiráð Dana ósk-
að þess, að ríkisstjórn íslands
tæki við sendinefnd, er hingað
kæmi frá Færeyjum, til þess að
semja um kaup og flutninga á
nýjum fiski o. fl.
Ríkisstjórnin hefir orðið við
þessum tilmælum, og skipað sér-
staka nefnd til að annast við-
ræður þessar, ef íslgnds hálfu.
í nefndinni eru af hálfu Fær-
eyinga:
Johan Dahl, framkvæmda-
stjóri, og er hann formaður,
Daniel Klein, formaður Föroya
Fiskimannafélag, Thomas
Thomasson, formaður Föroýa
Skipara- og Navigatörfélag,
Magnús Torsheim, formaður
Föroya Arbeiderfélag. — Ritari
nefndarinnar er Hans Dais-
gaard, viðskiptafulltrúi Færey-
inga í Reykjavík, en B. Husted-
Andersen, málaflutningsmaöur
er með nefndinni sem lögfræði-
legur ráðunautur félags útgerð-
armanna í Færeyjum.
Af hálfu íslands eru í nefnd-
inni:
Agnar Kl. Jónsson, skrifstofu-
stjóri utanríkisráðuneytisins, og
er hann formaður nefndarinnar,
Gunnlaugur E. Briem, fulltrúi í
atvinnumálaráðuneytinu, Lúð-
vík Jósefsson, alþingism., Sverr-
ir Júlíusson, formaður Lands-
sambands íslenzkra útvegs-
manna, Þorleifur Jónsson, for-
maður Fiskimálanefndar, Da-
víð Ólafsson, fiskimálastjóri.
Kauphækkanir hafa aldrei veríð fleirí
en síðan núv. ríkísstjórn kom til valda
TVEIR FORINGJAR HITTAST
af þessum ástæðum, t. d. aust-
anlands, án þess að nokkuð hafi
verið gert til þess, að þessi skip
fari í flutninga á ný eða önn-
ur komi í þeirra stað.
5. Vegna þess, að stjórnin
hefir vanrækt að gera ráðstaf-
anir, er tryggi það, að allur
flutningsskipastóll landsmanna
sé notaður til hins ýtrasta fyrir
sanngjarna leigu og skipt milli
verstöðvanna, eins og heildar-
þörfinni hentar bezt, notast
hann miklu verr en þyrfti að
vera, enda ríkir nú af þessum
ástæðum hinn versti glundroði
um flutningana.
6. Vegna þess, að togarafisk-
urinn er undanþeginn verð-
jöfnunargjaldinu, er næsta von-
lítið að það nái tilætluðum ár-
angri. Eins og ráðstöfun þess
virðist eiga að vera háttað,
kemur það líka minni verstöðv**
unum að litlu eða engu haldi og
hefir jafnvel orðið þeim til
tjóns, þar sem það hefir orðið
til þess að smærri skip, sem þar
keyptu, hafa dregið sig til baka
um fiskkaupin. Er þó skylt að
bæta þetta, þar sem verðhækk-
un er heildinni til ávinnings,
þótt hún baki sumum tjón. Þetta
mætti bæta með því að láta
verðjöfnunargjaldið ná til tog-
arafisksins.
Afleiðingarnar af þessu eru
þær, að í minni verstöðvum er
útgerðin raunverulega stöðvuð,
þar sem skip fást ekki til flutn-
inga. Á öðrum verstöðvum, þar
sem búið var að leigja færeysk
skip til flutninga, liggur út-
gerðin að mestu niðri, þar sem
beðið er eftir heildarsamningum
við Færeyinga. Af þessum
tveimur ástæðum má heita, að
útgerðin "isé að mestu stöðvuð
austanlands. Jafnvel hér við
Faxaflóa er orðinn svo mikill
hörgull á flutningaskipum, að
byrjað er á því að salta fiskinn
og hafa þó Faxaflóahafnirnar
notið góðs af því, að vertíðin er
yfirleitt ekki byrjuð í Vest-
mannaeyjum, m. a. vegna verk-
falls, sem var þar um skeið( og
hafa því fleiri skip tekið fisk á
þeim en ella.
Sjá allir af þessari byrjun,
hvað framundan er, þegar ver-
tíðin fer almennt byrjuð, ef ekki
verða tekin upp ný og endur-
bætt vinnubrögð hjá ríkis-
stjórninni.
Hér í blaðinu hefir það verið
margtekið fram, hvað gera
þurfti í þessum málum og hefj-
ast tafarlaust handa um, þegar
séð varð, að brezki samningur-
inn myndi ekki fást framlengd-
ur. Það var í fyrsta lagi að
hraða samningunum við Breta,
semja við þá um sölu á fryst
um fiski og saltfiski og leigu á
flutningaskipum, svo að ein
stakir fjáraflamenn yrðu þar
ekki fyrri til. Jafnframt þurfti
einnig að semja við Færeyinga
um flutnin'gaskipin. Hér innán-
lands þurfti að taka öll flutn-
ingaskipin á leigu og setja lög
um það efni, ef þörf krafði.
Jafnhliða þurfti að stofna fisk
sölusamlög, þar sem þau voru
ekki fyrir, og síðan átti að fela
Fiskifélaginu að skipta þeim
flutningaskipum, er búið var að
afla með framangreindum ráð-
stöfunum, milli samlaganna.
Með þessu móti einu var
(Framhald á 8. slðu)
Mynd þessi var tekin af þeim Hitler og Mussolini, er þeir liittust í fyrsta
sinn eftir að kunnugt varð um morðtilraunina við Hitler í sumar. Er
þeim báðum bersýnilega mikið niðri fyrir, en œtli þeim sé þó ekki meira
niðri fyrir nú?
Útgjöld Reykjavíkurbæjar
hækiia a. m. k. um 5,5 milj.
Mestöll iitgjaldaliækkunm stafar af aukmim
rekstrarútgjölduui.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar fyrir árið 1945 var lögð
fram á bæjarstjórnarfundi í gær. í áætluninni er gert ráð fyrir
að útgjöldin verði 37.8 milj. kr. eða 5.5 milj. kr. hærri en í fyrra.
Útsvörin jyu áætluð 28.8 milj. kr. eða 3.7 milj. kr. hærri en í
fjárliagsáætluninni fyrir síðastl. ár. Vafalaust má telja, að bæði
útgjöldin og útsvörin eigi eftir að hækka í meðförum bæjar-
stjórnarinnar, ef að vanda lætur.
Afleidlng’arnar verða stóraukm dýr-
tíð, jþví allar þessar kauphækkanir
hafa áhrii ét vísitöluna
Það sést bezt, hversu fullkomlega stefna kommúnista er ráð-
andi í dýrtíðarmálunum og hve alger er uppgjöf Sjálfstæðis-
flokksins í þeim efnum, að sjaldan eða aldrei hafa orðið jafn-
margar kauphækkanir á eins skömmum tíma og þeim, sem nú-
verandi ríkisstjórn hefir farið með völd. Allar eiga þessar kaup-
hækkanir sammerkt um það, að þær munu orka til verulegrar
hækkunar á dýrtíðarvísitölunni, þótt sumar þeirra komi ekki
þannig fram fyrr en eftir að búið er að reikna út landbún-
aðarvísitöluna næsta haust. Þá má búast við stófelldri hækkun
dýrtíðarvísitölunnar af völdum þessara kauphækkana.
Þessi heildarhækkun útsvar-
anna, sem hér er gert ráð fyrir,
hlýtur be'rsýnilega að leiða til
þess, að útsvarsbyrðin á mönn-
um með lágar tekjur og miðl-
ungstekjur stórhækkar. Mun
þessi hækkun verða enn meiri
vegna þess, að ýmsir hinna nýju
skatta, sem stjórnin beitir sér
fyrir, munu einkum leggjast á
þau fyrirtæki, er borið hafa
stóran hluta útsvaranna, og
-verður því ekki hægt að leggja
eins há útsvör á þau og áður.
Útgjaldahækkanirnar, sem á-
ætlaðar eru, stafa að litlu leyti
af framlögum til aukinna fram-
kvæmda, heldur eru afleiðingar
þeirra útþennsla í kaupgreiðsl-
um, sem leiðir af ríkjandi stefnu
í fjárhaés- og dýrtíðarmálum,
m. a. launahækkunum til sam-
ræmis við afgreiðslu launa-
laganna á Alþingi. Þannig er
t. d. gert ráð fyrir því, að skrif-
stofukostnaðurinn við stjórn
bæjarins aukist um næstum
hálfa milj. kr.
Þrátt fyrir hinar stórfelldu út-
gjaldahækkanir, sem ráðgerðar
eru, er það ekki ólíkleg tilgáta,
að þær reynist of lágt áætl-
aðar, þegar til kemur, og þá
verði gripið til sama ráðs og í
fyrra, að hækka enn útsvörin,
þegar kemur fram á árið, en
þá var bætt við 2.5 milj. hækk-
un á þau til viðbótar því, sem
þau höfðu verið ákveðin í fjár-
hagsáæltuninni.
Skattþegnarnir munu vissu-
lega fá að sjá það svart á hvítu,
þegar útsvarsskráin kemur til
þeirra í vor, hver er afleiðingin
fyrir þá af þeirri fjármálastefnu,
sem nú er fylgt undir hand-
leiðslu. kommúnista og Ólafs
Thors.
Flugpóstferðir
til Ameríku
Eins og kunnugt er af frétt-
um, hefjast póstflugferðir
milli íslands og Ameríku í
þessari yiku og er póststofan
þegar farin að taka á móti
flugpósti.
Gjaldskrá yfir flugpóstsend-
ingar hefir nú verið ákveðin, og
verður tekið 90 aura gjald fyrir
hver 5 grömm, er send eru í
flugpósti. Hámarksþungi hverr-
ar póstsendingar er 2000 grömm.
Nánari reglugerð -fyrir póst-
samgöngur þessar verður vænt-
anlega birt á næstunni.
Gert er ráð fyrir að ferðir
verði tvisvar í viku og má flytja
vikulega 50 kg. af pósti hvora
leið.
Heimilt er, að senda blöð auk
bréfa með flugpóstinum, a. m.
k. fyrst um sinn. Póst- og síma-
málastjóri, Guðm. Hlíðdal, sem
hefir annazt milligöngu um þessi
mál, er nýkominn frá Ameríku.
Lotiis Zöllner
látinn
Louis Zöllner, hinn danski
kaupsýslumaður, sem verzlaði
lengi við samvinnufélögin hér
og keypti' af þeim sauðfé og
ýmsar aðrar afurðir, er nýlát
inn í Newcastle, 91 árs að aldri.
Zöllner var danskur ræðismað-
ur í Newcastle.
Þessa merkismanns mun nán-
ar getið síðar.
Kaupliækkaiilrnar.
Síðan stjórnin kom til valda j
og verkföllin leystust, er þá
stóðu yfir, hafa stjórnarblöðin
yfirleitt fylgt þeirri venju að
skýra ekki frá kauphækkunun-
um. Sést bezt á því, að blöðin
telja þessa „nýsköpun" í fjár-
hagsmálunum svo varhugaverða,
að bezt sé að halda henni
leyndri.
Kauphækkanir þær, sem orð-
ið hafa í Reykjavík síðan
stjórnin kom til valda, eru a.
m. k. þessar:
Hjá járnsmiðum í Reykjavík
hefir grunnkaúpið á viku hækk-
að úr 145 kr. í 158 kr.
Hjá skipasmiðum í Reykjavík
hefir grunnkaup á viku hækk-
að úr 150 kr. í 158 kr.
Hjá bókbindurum í Reykjavík
hefir grunnkaup á viku hækk-
að úr 145 kr. í 150 kr.
Hjá prenturum í Reykjavík
hefir grunnkaup á viku hækk-
að úr 145 kr. í 150 kr. á viku.
Hjá klæðskerum í Reykjavík
hefir grunnkaup á viku hækk-
að úr 138 í 145 kr.
Hjá blikksmiðum í Reykjavík
hefir grunkaup á viku hækkað
úr 145 kr. í 158 kr.
Auk þessara kauphækkana,
hafa flestar þessar stéttir feng-
ið aukin ýms hlunnindi, sumar
t. d. 15 og 18 daga sumarfrí. Við
grunnkaupið bætist vitanlega
full dýrtíðaruppbót.
Utan Reykjavíkur hafa a. m.
k. orðið þessar grunnkaups-
hækkanir hjá verklýðsfélögun-
um:
í Ólafsvík hefir tímakaup
hækkað úr kr. 1,75 í kr. 2,20.
Á Hvammstanga hefir tíma-
kaup hækkað úr kr. 1,90 í kr.
2,10.
Á Eskifirði hefir tímakaup
hækkað úr kr. 1,90 í kr. 2,30.
Á Djúpavogi hefir tímakaup
hækkað úr kr. 1,90 í kr. 2,30.
í Keflavík hefir tímakaup
hækkað úr kr. 2,10 í kr. 2,40.
Þar hafa járnsmiðir og fengið
kaup hækkað til samræmis við
kaup járnsmiða í Reykjavík.
Ofan á framangreint grunn-
kaup bætist svo vitanlega full
dýrtíðaruppbót.
Þá hafa vélstjórar á fiskiskip-
um í Vestmannaeyjum og Norð-
Ijirði fengið kauphækkun nýlega.
í Vestmannaeyjum var gengið
að hækkuninni eftir tveggja
daga verkfall. Á Norðfirði leyst
ist deilan með þeim sögulegu
hætti, að báðir aðilar vísuðu
málinu hingað suður, vélstjórar
til Alþýðusambandsins og út-
vegsmenn til Landssambands
útvegsmanna. Bjuggust þeir við
einbeittrK málsmeðferð þar, en
eftir fáa daga barst þeim svo
tilkynning um, að gengið hefði
verið að öllum kröfunum. Munu
útvegsmenn hafa haft orð á því
síðan, að þetta hefðu þeir getað
gert sjálfir og ekki þurft á slíkri
aðstoð Landssambandsins að
halda!
Á mörgum stöðum eru svo
kauphækkanir í aðsigi! Þannig
er t. d. búið að segju upp samn-
ingum á Dalvík, Ólafsfirði,
Hrísey, Flateýri, Þingeyri og
Bíldudal.
llin algera uppgjöf.
Eins og bezt sést á því, sem
talið er upp hér á undan, er
„kauphækkunarskrúfan“ nú í
hraðara gangi en nokkuru sinni
fyrr. Það er unnið að því af
fyllsta kappi að framkvæma
hina svokölluðu „samræmingu“,
sem Alþýðusambandið gerði
kröfu um í haust, og Vinnuveit-
endafélagið hafnaði þá á þeim
grundvelli, að hún væri ekkert
annað en almenn kauphækkun.
Síðar fékk svo Ólafur Thors
Vinnuveitendafélagið til að
ganga að henni, þegar hann
hafði fengið tilboð kommúnista
um ráðherradóm og nokkur
hlunnindi fyrir stórgróðamenn-
ina, ef Sjálfstæðisflokkurinn
tæki þá kollsteypu að falla frá
stefnu sinni ,í dýrtíðarmálinu.
Þess vegna snýst .kauphækkun-
arskrúfan nú enn hraðara en
nokkuru sinni fyrr.
Mbl. gengur að vonum illa að
verja það, að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefir þannig horfið ger-
samlega frá þeirri stefnu, sem
hann barðist fyrir í þessum
málum í haust, en þá barðist
flokkurinn fyrir stöðvun á öllum
kauphækkunum. Mbl. veit líka,
að enn verra er að afsaka þess-
ar mörgu kauplíækkanir vegna
þess, að flokkurinn beitti sér
mjög fyrir eftirgjöf bænda sið-
astl. haust.
Seinasta vörn Mbl. er sú, að
Framsóknarflokkurinn geti ekk-
ert áfellzt þessar kauphækkan-
ir, þar sem hann hafi ekki gert
neinar sérs'takar athugasemdir '
við þá tillögu Sjálfstæðisflokks-
ins í tólfmannanefndinni i
haust „að samið verði um kaup-
gjald óbreytt. Þó verði einstak-
ar breytingar gerðar til sam-
(Framhald á 8. síðu)
/ ’
f DAG
birtist á 3. sfðu grein eftir
Eystein Jónsson um sam-
tök útvegsmanna um
verzlun og iðnað. Er sér-
staklega minnst á sam-
vinnu útvegsmanna í Nes-
kaupstað.
Neðanmáls á 3. síðu er
grein eftir Guðmund Inga
skáld um Skútuöldina og
höfund hennar.
Á 4. síðu er grein um
Seyðisfjörð eftir Karl
Finnbogason, og neðan-
máls niðurlag greinar Sig-
urðar Helgasonar rithöf-
undar um danska skáldið
Jóhannes V. Jensen.
V