Tíminn - 26.01.1945, Qupperneq 7
7
7. blað
TÍMIM, föstndagiim 26. jan. 1945
4 víðavangi
(Framliald af 2. síðu)
Gróusögurnar um
búnaðarþingið.
Jónas veitist enn mjög harka-
lega að búnaðarþingsmönnum
og er lýsing hans á þeim, þegar
þeir koma til höfuðstaðarins til
að ráða ráðum sínum, einna
svipuðust því, þegar það er haft
til gamans af lakari borgurum
höfuðstaðarins að búa til sögur
um, hvernig „plata“ megi sak-
lausa og einfalda „sveitamenn“.
Hefði það einhverntíma þótt ó-
trúleg spásögn, að Jónas ætti
eftir að skemmta úrkasti kaup-
staðarbúa með skáldsagnagerð
af þessari tegund og það um
nokkra helztu forustumenn
bænda.
Ein uppáhaldssaga Jónasar
af því, hvernig búnaðarþings-
menn hafi verið „plataðir“, er
sú, að þeim hafi verið lofuð
samstjórn Framsóknarfl. og
Sjálfstæðisflokksins gegn því
að þeir féllust á 9.4% eftir-
gjöfina, en fyrir þessu hafi þeir
verið svo ginkeyptir, að þeir hafi
ekki ,gætt ahnars!
Þetta er vitanlega hreinn til-
búningur. í Framsóknar-
flokknum var lögð áherzla á
það, — enda var það öllum ljóst
á þessum tíma, — að ekkert yrði
um það sagt, hvert stjórnar-
myndunartilraunirnar myndu
leiða. Sá möguleiki var ekki
sízt fyrir hendi, að verkamanna-
flokkarnir og Reykjavíkurdeiid
íhaldsins tækju höndum saman
um að festa afurðaverðið og
felldu útflutningsuppbæturnar.
alveg niður. Hin viturlega af-
staða búnaðarþings mun ekki
sízt hafa ráðið því, að þessir
aðilar réðust ekki í slíkar að-
gérðir nú, en næsta haust getur
orðið sögulegt í þessum efnum.
Sundrungarstarf, sem
verður að hætta.
Það verk, sem Jónas vinnur
með hinum sífelldu Gróusögum
sínum um búnaðarþingsfull-
trúana, er -vissulega illt verk.
Með því er ekki aðeins skemmt
þvi úrkasti borgarlýðsins, sem
vill heyra lítið gert úr sveita-
mönnum. Með því er verið að
^á fræjum úlfúðar, tortryggni
og sundrungar meðal bænda-
sté.ttarinnar sjálfrar. Það, sem
bændastéttin þarfnast nú mest,
er að sameinast enn betur en
orðið er, svo að hún verði fær
um að standastþær árásir,sem á
hana verða gerðar. Leiðin til
þess er jekki að ófrægja og
rægja ýmsa b.eztu menn henn-
ar og stimpla þá einskonar svik-
ara við stétt sína. Sék það nokk-
ur alvara hjá Jónasi, að hann
vilji sameiningu bænda, ætti
hann tafarlaust að hætta þessu
sundrungarstarfi.
Það mun líka alltaf sjást bet-
ur og betur, að sú leið, sem bún-
aðarþingsmenn völdu, var rétt.
Hefði afurðaverðið hækkað um
9.4%, hefði sá skriður komizt á
dýrtíðina, að hún hefði orðið
óviðráðanleg. Kaupið hefði
strax stórhækkað. Verðhækk-
unin, er bændur hefðu fengið í
haust, hefði verið etin upp af
kauphækkunum í vetur, vor og
næsta sumar. Útflutnings-
framleiðslan við sjávarsíðuna
hefði alveg stöðvazt. Það, sem
búnaðarþingið gerði, var til
hags fyrir alla. Jafnframt
sýndi það enn einu sinni, að
bændur eru sú stétt, sem hefir
beztan skilning á þjóðhagsmál-
unum og mesta ábyrgðartilfinn-
ingu til að bera. Fyrir bændur
er það ekki lítilsvert atriði.
Það er og næsta óviðeigandi
hjá Jónasi að deila á ákvörðun
búnaðarþings fyrir það, að hún
hafi gert núv. stjórn auðveld-
ara að starfa. Framsóknarmenn
eða bændur munu aldrei miða
aðgerðir sínar við það, hvað sé
verst fyrir andstæðingana. Núv.
stjórn mun líka takast nógu illa,
þótt þessum erfiðleikum hafi
verið rutt úr vegi.
Ásakanirnar um stefnu-
og málefnaleysið.
Jónas leggur mikla rækt við
að halda því fram, að Fram-
sóknarflokkurinn sé bæði
stefnulaus og málefnalaus
flokkur, enda fari allt starf
hans í valdastreitu einstakra
manna. Verður þetta að teljast
næsta merkileg játning, þar sem
Jónas virðist þó eftir sem áð-
ur una því vel að vera kyr í
flokknum og gerir ekkert til
pess, hvorki í þingflokki eða
miðstjórn, að bæta úr þessu
stefnu- og málefnaleysi!
Þótt þessi tilbúningur sé al-
veg sama eðlis og Gróusögurnar
um búnaðarþingsfulltrúana,
skal honum í eitt skipti gert svo
hátt undir höfði að afsanna
hann með því að benda á
nokkur dæmi. í aðalmálinu nú,
dýrtíðarmálinu, hefir stefna
flokksins verið hrein og ákveðin.
Hann hefir beitt sér fyrir stöðv-
un og niðurfærslu og gat því
ekki átt samleið með hinum
flokkunum um stjórn síðastl.
haust. í landbúnaðarmálum
hefir flokkurinn beitt sér fyrir
10 ára ræktunaráætluninni, á-
samt ýmsum öðrum stórmálum.
:í sjávarútvegsmálum fyrir efl-
ingu Fiskimálasjóðs, eflingu
Fiskifélagsins, hvers konar fé-
lagssamtökum útvegsmanna(ol- 1
íusamlög, sölusamlög), kaupum
Svíþjóðarbátanna o. fl. Fyrir
frumkvæði hans verður frv.
um heildarlausn raforkumál-
anna lagt fyrir þingið. Fyrir
frumkvæði hans er langt komið
undirbúningi löggjafar um lausn
land- og lóðamála kauptúna og
kaupstaða á hinn æskilegasta
hátt. í menntamálum má benda
á baráttuna fyrir menntaskóla
í sveit. Þá má nefna áburðar-
verksmiðjumálið, strandferða-
skipsmálið o. fl., o. fl.
Sannleikurinn er því sá, að
enginn íslenzkur flokkur berst
nú fyrir eins mörgum lífrænum
stórmálum og Framsóknarflokk-
urinn né hefir eins glögga og
ákveðna stefnu í aðalmáli þjóð-
arinar um þessar mundir, dýr-
tíðarmálinu. Og' þetta hefir hon-
um tekizt þrátt fyrir það valda-
brölt Jónasar að halda úti
nokkurs konar Stormsútgáfu til
að ófrægja og afflytja flokkinn
og reyna þannig að eyða orku
hans í innbyrðisbaráttu í stað
þess að sameina hana til líf-
rænna átaka.
„Byltingarfrumvarpið“.
Allra broslegasti þátturinn í
öllum þessum ádeilum Jónasar
er þó sá, þegar hann fer að tala
um „byltingarfrumvarp stjórn-
arinnar", og segir að þar hafi
þeir Skúli Guðmundsson og Ey-
steinn Jónsson veitt stjórninni
bá hjálp að flytja „yfirborðs-
frumvarp“, sem „var enn meiri
árás á yfirráðastétt sparifjár-
eigenda"!
Tímanum þykir rétt að birta
hér í heilu lagi frv. þeirra Skúla
og Eysteins, svo að lesendur
hans geti kynnst þessu voðalega
byltingarfrumvarpi, það hljóð-
ar svo:
Af þeim erlenda gjaldeyri, sem
Landsbanki íslands og Útvegs-
banki íslands h.f. áttu 1. okt.
1944, skulu 85% — áttatíu og
fimm af hundraði — færast á
sérstaka reikninga í bókum
þeirra. Af þeim innstæðum má
aðeins selja gjaldeyri gegn sér-
stökum leyfum viðskiptaráðs til
kaupa á framleiðslutækjum og
efni til þeirra, svo sem skipum
og efni til skipasmíða, vélum til
skipa, landbúnaðarvélum, efni
til rafveitna og vélum og efni til
verksmiðja, einkum þeirra, er
vinna vörur úr innlendum hrá-
efnum.
Nánari ákvæði um fram-
kvæmd laga þessara skulu sett
með reglugerð.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Eins og menn sjá er öll „bylt-
ingin“ í þessu frumvarpi sú, að
reynt er að tryggja að gjald-
eyrisinneign þjóðarinnar erlend-
is fari til kaupa á framleiðslu-
tækjum, en verði ekki notuð til
að fylla landið af ýmsum skran-
varningi. Er þetta sú stefna,
sem Framsóknarflokkurinn hef-
ir alltaf haft og framfylgt, þeg-
ar hann hefir farið með völd,
og var þá vissulega annað að
heyra á Jónasi en að það væri
„bylting“ og „árás á yfirráða-
rétt sparifjáreigenda". Sést bezt
á þessu, hve örðugt honum er
að deila á Framsóknarflokkinn,
að til þess að geta gert það,
verður hann að afneita fyrri
stefnu og eigin verkum og
stimpla þau „byltingu".
Fréttaritari Ófeigs?
Jónas lýsir því yfir í Ófeigi,
að hann hafi um skeið farið í
eins konar útlegð og hætt að
mæta á fundum í þingflokki og
miðstjórn Framsóknarflokksins,
en sé nú byrjaður á því aftur,
Aíköst skurðgraína ríkisins
á síðastliðnu sumri
Frásögn Pálma Einarssonar ráöanauts
Tíminn hefir átt tal við Pálma Einarsson ráðunaut og spurt
hann eftir störfum hans síðastl. sumar í sambandi við skurð-
gröfur ríkisins og aðrar mælingar í þágu meiriháttar ræktunar-
framkvæmda. Hefir Pálmi umsjón með framkvæmdum þeim, sem
unnið er að með skurðgröfunum, og hafa því störf hans undan-
farið miðast mjög við þessar framkvæmdir.
Fer hér á eftir frásögn Pálma:
Skurðgröfurnar.
Sex skurðgröfur eru nú starf-
andi á landinu, ein flotgrafa og
fimm beltisgröfur. Þær hafa-all-
ar unnið mikið s. 1. sumar.
• í Ölfusi hafa tvær skurðgröfur
unnið. Gamla beltisgrafan, sem
unnið hefir undanfarin ár að
framræslu á mörgum jörðum,
hefir unnið í Árbæjarlandi í Öl-
fusi við framræslu til túnræktar
fyrir félag manna á Selfossi, er
hefir keypt jörðina. Hún hefir
grafið í sumar 5436 lengdarm.
eða 20183 teningsmetra.
í Svarfaðardal hefir skurð-
grafan, sem þar er, unnið að á-
veitu og framræslu á engjalönd-
um 6 jarða og framræslu til tún-
ræktar á 6 jörðum. Alls hefir
hún grafið 8723 lengdarmetra
eða 26340 teningsmetra.
í Staðarbyggðarmýrum hefir
skurðgrafan, er þar var, grafið
5922 lengdarmetra eða 23671
teningsmetra. Var unnið að á-
veitu og framræslu engjalanda
22 býla.
Ein skurðgrafan hefir unnið á
þrem stöðum í sumar: í Borg-
arnesi, á Hvannejtfri og að
Laugalandi (við Veggjalaug). í
Borgarnesi var unnið að fram-
ræslu til túnræktar, á Hvann-
eyri var unnið að framræslu á
beitilandi, en að Laugalandi
var unnið að fraihræslu og
vegagerð vegna hins fyrirhug-
aða húsmæðraskóla Mýra- og
Borgarfjarðarsýslna. Alls gróf
þessi skurðgrafa 4238 lengdarm.
eða 18269 ten.m.
í Innri-Akraneshreppi var
unnið að framræslu til tún-
ræktar á 10 jörðum, alls. grafið
7070 lengdarm. eða 33751 ten.m.
Kostnaðurinn við allar þessar
framkvæmdir hefir orðið um 400
þús. kr. Þar í er innifalið, auk
vinnu skurðgrafanna, vegagerð-
ir, flóðgarðar, stíflur og brýr á
skurðum.
Mælingar.
í Svarfaðardal, hefir verið
unnið, að áveitu á 5 jörðum, og
mælingar voru framkvæmdar á
12 jörðum, vegna túnræktar og
þurkunar.
Gerð var athugun á allmörg-
um jörðum í Hrafnagilshreppi,
með tilliti til túna- og engja-
ræktunar.
í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði,
var framkvæmd mæling vegna
engjaræktunar á 11—12 km.
löngu svæði, með það fyrir aug-
um, að sameina framræslu og
vegagerð, þannig, að vegur verð-
ur lagður á skurðbakkanum.
f Lýtingsstaðahreppi'í Skaga-
firði, er einnig áformað að sam-
eina vegagerð og túnrækt á 12
til 14 km. svæði.
í sumar var mæld upp jörðin
Syðra-Lón við Þórshöfn til rækt-
unar fyrir kaupstaðarbúa. Einn-
ig var mæld upp jörðin Hnjúkar
til útskiptingar og ræktunar fyr-
ir Blönduósbúa.
í Torfulækjarhreppi var mælt
fyrir framræslu til túna- og
engjaræktunar.
Pálmi Einarsson ráðanautur
í Staðarsveit á Snæfellsnesi
voru athuguð skilyrði til rækt-
unar og framræslu í stórum stíl,
en þar eru óvenju góð ræktun-
arskilyrði og miklir möguleikar
fyrir aukinni byggð.
Sjö jarðir verða fyrir stór-
kostlegum landskemmdum.
Pálma Einarssyni, var í sumar
falið að gera rannsókn á þeim
landspjöllum, sem verða vegna
Skeiðfossvirkjunarinnar, en við
stíflugerð stöðvarinnar fara
sjö jarðir í- Fljótunum undir
vatn, allar engjar þeirra, og
verulegur hluti túns og ræktan-
legs lands.
Rannsókn Pálma hefir leitt
það í ljós, að miklum örðugleik-
um er bundið að umbæta þann
hluta jarðanna, sem eftir verð-
ur, svo að hægt sé að halda á
þeim búrekstri, er svari til þess,
er áður vár. Kostnaður við um-
bætur myndi verða um 388 þús.
kr. miðað við núverandi verðlag.
Þarna hefir skapast alvarlegt
ástand sem ráða verður bót á.
Hér hefir stuttlega verið skýrt
frá helztu landmælingum, er
Pálmi Einarsson hefir haft með
höndum, en auk þéssa hefir
hann framkvæmt fjölda af
minni mælingum, og athugun-
um, sem hér er ekki getið.
Seinni hluta vetrar munu
verða gerðar mælingar vegna
fyrirhugaðrar framræslu í Skil-
mannahreppi og Leirársveit, en
þar eru mikil og góð skilyrði, til
aukinnar ræktunar og byggðar.
Erlent yfirllt.
(Framliald af 2. síðu)
saman. í kommúnistísku banda-
lagi gæti fljótlega svo farið, að
Þjóðverjar skákuðu Rússum og
tækju af þeim forustuna. Veik
nazistastjórn í Þýzkalandi get-
ur verið betri fýrir Rússa
en sterk kommúnistastjórn þar.
jafnframt telur hann það hlut-
verk sitt að gefa í Ófeigi „mán-
aðarlega nokkuð glöggt yfirlit
um það, sem gerist á bak við
tjöldin í öllum herbúðum flokk-
anna“. Mætti af þessu draga
þá ályktun,- að endurkoma hans
í miðstjórnina og þingflokkinn
sé að rækja þar eins konar
fréttasöfnun fyrir Ófeig, en
fróðlegt væri að vita, hvort bú-
ið væri að tryggja fréttarit-
arana í hinum- flokkunum!
Framsóknarmenn munu bíða
og sjá, hvað verða mún úr
fréttarituninni, en ekki eru
þeir henni með öllu óvanir. Vill
Jónas í síðasta Ófeigi eigna það
Hermanni Jónassyni, en í hópi
þeirra, sem kunnugir eru, hefir
þó annar verið grunaður meira
um græsku í þeim efnum. Úti-
lokað er það heldur ekki, að
minna verði úr fréttarituninni
fyrir Ófeig en fyrirhugað er og
að það hafi góð áhrif á frétta-
ritarann að koma aftur í hóp
fyrri samherja úr þeirri útlegð,
sem hann hafði sjálfur dæmt
sig í, en þótti svo hyggilegast
að hætta. Myndi það verða
mörgum fagnaðarauki eftir að
hafa séð reiðlag hans á þeirri
.helbrú, sem hann hefir reynt
fák sinn á að undanförnu. Leið-
in af þeirri háskabraut er að
fylgja heilræðum Ingimars.
Nýjar, fallegar
tvöfaldar kápur
teknar upp í dag.
H. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
f A.WÁEE TÍMAWS V
Innlendur:
18. janúar, fimmtudagur:
Hefldsalar kærðlr.
Sakadómara hafa borizt kær-
ur frá viðskiptaráði á 4 heild-
sölufyrirtæki til viðbótar við
pær tvær kærur, sem áður voru
komnar. Sjá nánar um þessar
kærur í síðasta blaði.
19. janúar, föstudagur:
Færeyskri skfps-
höfn bjargað.
Færeyska seglskipið „Activ“
bað um aðstoð, er það var statt
um 200 sjómilur suðaustur af
Vestmannaeyjum. Segl skipsins
höfðu rifnað og hjálparvélar
þess svo litlar, að það gat ekki
haldið áfram ferð sinni, enda
veður hið versta. Ms. Fagriklett-
ur kom skipinu til hjálpar, en
gat í* fyrstu ekkert aðhafst. Um
kvöldið var kominn svo mikill
leki að Activ, að skipverjar
sáu ekki annað fært en yfirgefa
3að. Var þá yfirbygging þess að
mestu brotin. Fagriklettur tók
skipverja og fór með þá til hafn-
ar. Activ var á leið til Englands
með ísfisk frá Akranesi.
20. janúar, laugardagur:
Afmælf
Seyðisfjarðar.
Haldið var hátíðlegt 50 ára
afmæli Seyðisufjarðarkapstað-
ar. Fjölmenn samkoma var
haldin í barnaskólahúsinu. Þar
fluttu ræður helztu forráða-
menn bæjarfélagsins. Fjöldi
heillaóska bárust við þetta tæki-
færi.
Nýjum vélbát var hleypt af
stokkunum í Vestmannaeyjum.
Er hann 65 smál. að stærð, bú-
inn öllum nýtízku tækjum.
21. janúar, sunnudagur:
Ðavíð Stefánsson
liylltur.
Akureyringar hylltu þjóð-
skáldið Davíð Stefánsson á
fimmtugsafmæli hans. Nemend-
ur Menntatskólans fóru blysför
heim til hans. Sjaldan hefir
sést svo margt fólk úti í einu
á Akureyri. Mannfjöldlnn, sem
hyllti skáldið er talinn hafa
verið um 3000. Bæjarstjórn færði
honum skrautritað ávarp og 20
þús. kr. að gjöf.
22. janúar, mánudagur:
Herklaskoðun.
Allsherjar berklaskoðun hófst
í Reykjavík, þátttaka varð mjög
almenn og mættu nokkuð á
fjórða hundrað manns fyrsta
daginn eða svlpað og búist hafði
verið við.
Leikflokkur frá Akureyri kom
til Reykjavíkur og mun sýna
þar Brúðuheimili Ibsens.
23. janúar, þriðjudagur:
Færevsli
sanminganefnd.
Samninganefnd kom hingað
frá Færeyjum til þess að ræða
viðskipta og atvinnumál við ís-
lendinga. Þessir menn eiga sæti
í nefndinni: Husted-Anders-
sen, hæstaréttarlögmaður, Da-
niel Klein, form. sjómannafé-
lags Færeyja, Thomas Thomas-
sen, form. skipstjóra og stýrl-
mannafélags Færeyja, Jóhan
Dahl, framkv.stj. og Magnús
Tórsheim form. verkalýðsfél.
Færeyja.
------------------— ------------------—---— --------—
Hérmeð þakka ég öllum, er minntust mín með gjöf-
um og heíllaóskum á sjötugsafmœli mínu, pann 30. þ. m.
Háafelli, 31. des. 1944
GUÐNÝ MAGNÚSDÓTTIR
Tilkynníng
frá leigugörðum bæjarins
um áburðarpantanir
Pöntuuum garölefgjenda á tilbúnum á-
burði verður veftt móttaka í skrifstofu
minnf, Austursttræti 10, 4. liæð, næstu
virka daga frá kl. 10—12 f. h. og 1—3 e. h.,
nema laugardaga, bá aðeins frá kl. 10—12
f. h.
Rækhmarráðunautur bæjaríns.
Nokkra vana
flskflökunarmenn
vantar. Talið við verkstjórann i fsbirninum.
Sími 3259.
FISKIMÁLANEFXD.
íþróttufélag hvenna
Aðalfundur
félagsins verður haldinn þriðjudaginn 30. þ. m. kl. 9 e. h. stund-
víslega í Félagsheimili V. R. við Vonarstræti. —
Áríðandi að allar félagskonur mæti.
rWWWWWWWWWWW'
4 ÚTBREIÐIÐ TIMANN ♦