Tíminn - 13.03.1945, Blaðsíða 6
6
'ÍÍMÍM, þrigSJndagfim 13. marz 1945
20. hlað
DAlVARMENNEyG:
Guðný Guðnadóitír
húsfreyja að Snartarsiöðum í Núpasveit
Milliliðagr óðin n
þarf að hverfa
Guðný Guðnadóttir, húsfreyja
að Snartarstöðum í Núpasveit,
lézt að Landakotsspítala 29.
ágúst síðastl. eftlr stranga
sjúkdómsraun, 62 ára að aldri.
Hún var jarðsett að Snartar-
stöðum 14. sept. að viðstöddu
fjölmenni úr víðlendu héraði.
Guðný var fsedd að Hóli á
Melrakkastéttu 15. júní 1882,
dóttir merkishjónanna Priðnýj-
ar Friðriksdóttur og Guðna
Kristjánssonar frá Leírhöfn og
ólst upp hjá foreldrum sinum
til 18 ára aldurs. Tvítug giftist
hún Ingimundi Sigurðssyni
bónda að Snartarstöðum. Bjuggu
þau stórbúi á jörð þeirri til
dauðadags. Ingimundur dó
sumarið 1935. Þeim hjónum
Guðnýju og Ingimundi varð 5
barna auðið. Þrjú þeirra Guðni,
Sigurlaug og Sigurður búa að
Snartarstöðum, en Friðgeir er
kaupfélagsstjóri á Eskifirði. Eina
dóttur, Friðnýju, misstu þau því
nær fullvaxta.
Snartarstaðaheimili hefir um
langt skeið verið landskunnugt
fyrir gestrisni og höfðingsskap,
en sett í miðju héraðs við verzl-
unarstað þess, Kópasker. Hús-
rúm þótti mikið á því heimili
og „hjartarúm" engu síður. Þar
þekktist enginn munur æðri eða
óæðri. Greiðastan aðgang að því
hjálpfúsa rausnarheimili áttu
jafnan þeir, sem mest voru
hjálparþurfi. Blessun hvíldi yfir
heimili og búi, enda unnu hjón-
in og börn þeirra, er þau kom-
ust á legg, samhent að giftu
þess.
Guðný Guðnadóttir var góð-
um gáfum gædd, víðsýn og
„Hallveígarstaðir"
Það hefir lengi verið áhuga-
mál Kvenfélagasambanda ís-
lands að koma upp myndarlegu
kvennaheimili í Reykjavík.
Þegar Bandalag kvenna var
stofnað 1917 sköpuðust betri
skilyrði til að hrinda þessu máli
í framkvæmd en það var samt
ekki fyrr en árið 1925 að hafizt
var handa um fjársöfnun til
þess að koma upp kvennaheim-
ili í Reykjavík, sem ákveðið var
að heita skyldi Hallveigarstaðir,
eftir fyrstu húsfreyju á íslandi,
Hallveigu Fróðadóttur, konu
Ingólfs Arnarsonar.
Nú um nokkurt skeið hefir
verið hljótt um þetta mál, þar
til nú fyrir skömmu, að fjáröfl-
unarnefnd birti ávarp í blöðum.
Búið er nú að fá allstóra lóð
á góðum stað í Reykjavík undir
bygginguna og um 100 þús. kr.
eru þegar í sjóði.
Aðaltilgangur með stofnun
heimilisins er, að þar verði mið-
stöð fyrir alla kvenfélagastarf-
semi í Reykjavík og kvenfélaga-
sambönd, salir til fundarhalda
og samkvæma.
Að Hallveigarstöðum er ætl-
unin að stúlkur, sem koma ó-
kunnugar til Reykjavíkur geti
átt athvarf og fengið ýmiskonar
aðstoð við útvegun vinnu o. fl.
Þá verður þar einnig gistihús og
matsala fyrir konur, sem eru
gestir í bænum og ennfremur
smáíbúðir fyrir einhleypar kon-
ur. Einnig er ætlazt til að á
Hallveigarstöðum verði starf-
ræktur vinnuskóli fyrir stúlkur,
þar sem áherzla sé lögð á þjóð-
lega vinnu.
Fjáröflunarnefnd Hallveigar-
staða hefir nýlega skýrt tíðinda-
mönnum blaða og útvarps
frá fyrirætlunum í sambandi við
fjáröflun til heimilisins, en í
nefnd þeirri eiga sæti: Frú Guð-
rún Jónasson, form., og auk
hennar frúrnar Laufey Vil-
hjálmsdóttir og Kristín L. Sig-
urðardóttir. Hafa þær látið búa
til spjöld, sem verða til sölu í
bókaverzlunum. Lágmarksverð
á spjaldi er 10 kr.
Kvenfélagasamband íslands
hefir skrifstofu í húsi Búnaðar-
félagsins. Verður þar tekið á
móti gjöfum og einnig hjá
nefndarkonunum.
Konurnar heita á alla góða
íslendinga að liðsinna þessu
áhugamáli þeirra, svo draum-
urinn um veglegt kvennaheim-
ili á íslandi geti rætzt.
óvenju þroskuð og hafin yfir
hleypidóma. Hún var glaðvær og
ung í anda og gervileg í sjón.
Allir, sem hana þekktu, báru til
Guðný Guðnadóttir
hennar óskorað traust, enda
nutu margir ráða hennar og
fylgis. Og það var jafnan bezt,
er kgldast blés á móti. Guðný
stundaði ekki langar skólagöng-
ur í æsku, lífið var hennar skóli.
Og í þeim skóla lauk hún hæsta
prófi. För hennar var harla góð,
enda mun minningin um Guð-
nýju á Snartarstöðum lifa lengi.
B. H.
V estmaimaey i abr éf
(Framhald af 4. síðu)
sleikja til þess að segja fyrir
um, hvar vatnið væri“. Upp úr
þessu stöðvaði Ársæll prentun
á blaðinu.
* * *
Ýmis orð falla um hin-
ar skattfrjálsu gjafir tekjuhárra
aðila til góðgerðastarfsemi, því
að í sjálfu sér er hér einungis
um ráðstöfun á skattpeningum
að ræða. Þegar Jóhann Jósefs-
son þingmaður Eyjanna á næst-
liðnu vori gaf 10 þús frá verzl-
un sinni, Brynju, til SÍBS var
haft eftir Gunnari félaga hans
í Eyjum: ,.Hann hlýtur að hafa
átt sparibauk, og líklega er
hann búinn að eiga hann lengi.“
* * *
Nýlega hljóp af stokkunum
nýr bátur í Eyjum, 63 smál. sem
heitir Kári. Eigendur eru Sig-
urður Bjarnason skipstjóri
Svanhól, Þórarinn Guðjónsson
mágur hans, Jóhann Sigfússon
og Óskar Jónsson. Þetta er
traust og fagurt skip og er þess
óskað, að það verði eigendun-
um arðgæft og launi þeim bjart-
sýni og stórhug. Kaupverð mun
hafa verið 600 þúsund.
Nýlega birtist 1 Morgunblað-,
inu athyglisverð grein um bygg-
ingarlag sænsku bátanna, sem
verið er að byggja, eftir hinn
aldna sægarp, Þorstein Jónsson
skipstjóra í Laufási. í grein
þessari bendir hann réttilega á,
að góð reynsla sé á bátum
og skipum byggðum í Eyjum,
fyrir traustleika og gott bygg-
ingarlag, og bendir hann sér-
staklega á, hve traust og gott
sjóskip vélskipið Helgi hefir
reynzt. í þessu sambandi rifj-
ast upp öll sú óvild og fyrir-
greíðsluleysi, sem eiganda skips-
ins var sýnd meðan á smíði um-
rædds skips stóð og verið var
að koma því á flot og þar á
meðal, að hann einn allra
þeirra, sem nýsmíðað skip settu
á flot, var svikinn um bygging-
arstyrk, En á þeim rúmum fimm
árum, sem skip þetta hefir ver-
ið í notkun, er rekstur þess bú-
inn að afla um miljónar skatt-
tekna í ríkis- og bæjarsjóð.
* * *
Á þjóðmálafundi þeim, sem
þingmaður Eyjanna hélt hér 8.
nóvember, brýndi hann raust-
ina og kvað sér ósárt, þótt fé
yrði með sköttun sótt til þeirra,
er drægju fé sitt út úr fram-
leiðslu, og þótti það orð í tíma
talað, þótt atvinnufyrirtæki
hans í Eyjum hafi ekki lifað
eftir því þoðorði. Jafnframt tal-
aði hann um það með miklum
fjálgleik, hve örðugt og hættu-
legt væri að búa undir þeirri
reykvísku smásjá, og skildu
fundarmenn ekki glöggt, hvað
hann meinti. En þessi ummæli
hafa rifjazt upp að nýju í sam-
bandi við afskipti verðlagsyfir-
valdanna af heildsölu hans í
Reykjavík. H. B.
Þó 'að annars gæti yfirleitt
meira nú á tímum en skynsam-
legra athugana í sambandi við
fjármál og afkomu almenn-
ings, má þó oft heyra óánægju-
raddir út af hinu gífurlega
fjármagni, sem kaupmanna-
stétt landsins og ýmsum iðnrek-
endum hefir áskotnazt, einkum
nú á stríðsárunum.
Og það er vissulega vorkunn-
armál, þó að óbreyttum borg-
urum, hvort sem þeir eru sjó-
menn, verkamenn, iðnaðar-
menn, kennarar, skrifstofu-
menn eða eitthvað annað, finn-
ist kynlegt og e. t. v. ekki laust
við að vera dálítið ósanngjarnt,
að heildsalar skuli hljóta marg-
falt hærri tekjur fyrir milliliða-
starfsemi sína, heldur en t. d.
kennararnir, sem alla ævina
eru að reyna að miðla þjóðinni
þekkingu, sem hún kemst ekki
hjá að tileinka sér, ef hún á að
geta borið nafnið menningar-
þjóð. Það eru heldur engin
undur, þó að almenningi virð-
ist eitthvað bogið við þá stað-
reynd, að smákaupmaðurinn
skuli venjulega vera tekjudrýgri
en sjómaðurinn í áhættusömum
siglíngum og hlutur skrifstofu-
mannanna og embættismanna
þjóðarinnar yfirleitt ærið mikið
rýrari, heldur en iðnrekenda
ýmissa tegunda, sem starfrækja
„efnagerðir“ eða aðrar hlið-
stæðar og álíka arðsamar stofn-
anir.
Þessi samanburður á afkomu-
möguleikum þjóðfélagsþegn-
anna og gagnrýni í sambandi við
þann samanburð,' á fullan rét
á sér. En það er sannarlega
lítið unnið með því einu sam-
an að vera óánægður með milli-
liðagróða kaupmanna. Og það
getur heldur ekkl talizt heppi-
leg lausn á þessu máli, að al-
menningur varpí öllum sínum á-
*
Arsþíng Skarphéðíns
Héraðssambandið Skarphéð-
inn hélt ársþing sitt að Stokks-
eyri 8. janúar síðastl. Á þing-
inu mættu 45 fulltrúar frá 18
ungmennafélögum á sambands-
svæðinu. Forseti þingsins var
kjörinn Þorsteinn Sigurðsson,
Vatnsleysu.
Margar nefndir störfuðu og
hin ýmsu félagsmál voru rædd
ítarlega. Meðal ályktana þings-
ins voru þessar:
1. Stjórn sambandsins falið
að beita sér fyrir því, að hér-
aðssambandið sendi hóp í-
þróttamanna á landsmót U. M.
F. í. vorið 1946 og heimilast að
leggja til hliðar kr. 1500,00 af
tekjum þessa árs í því skyni.
2. Að hefja byggingu fullkom-
ins íþróttavallar að Þjórsártúni
á næsta vori. — Vallarstæðið,
stærð hans og gerð, skal sam-
bandsstjórn ákveða í samráði
við íþróttafulltrúa ríkisins.
3. Þorsteini Einarssyni íþrótta-
fulltrúa vottað þakklæti fyrir
vel unnin störf í þágu íþrótta-
mála þjóðarinnar á liðnum ár-
um.
4. Skorað á sambandsfélögin
að hefjast handa um söfnun ör-
nefna, hvert í sinni sveit, og
ljúka drögum fyrir næsta vor.
5. Að fela stjórn sambands-
ins að ráða leiðbeinanda í leik-
list fyrir þau félög á sambands-
svæðinu, er þess óska á næsta
vetri, ef hún telur það tiltæki-
legt vegna kostnaðar og heim-
ilar henni nokkurt fjárframlag
í því skyni.
6. Að gefnu tilefni var skorað
á sýslumennina á sambands-
svæðinu að hlutast til um, að
veitingahús eða opinberir veit-
ingastaðir, fái ekki undir nein-
um kringumstæðum leyfi til vín-
veitinga.
í stjórn sambandsins voru
hyggjum á herðar stjórnarvalda
ríkisins, því að þó að svo kunni
í fljótu bragði að virðast, að
verðlagseftirlit tryggi neytend-
ur gegn of hárri álagningu, þá
hefir reynslan sýnt, að það er
býsna erfitt í framkvæmd.
Lausnin er líka miklu einfald-
ari og nærtækari. Með því að
Vera félagsmenn í kaupfélög-
um og verzla við þau, tryggja
neytendur sér sannvirði á þeim
vörum, sem þeir kaupa. Um
„gróða“ í venjulegum skilningi
er aldrei að ræða hjá kaupfé-
lögum, þvi að tekjuafgangi, sem
verða kann af rekstri þeirra, er
skylt að skipta á milli félags-
mannanna í réttu hlutfalli við
gerð kaup. Það, sem neytand-
inn þarf að greiða fyrir dreif-
ingu vörunnar, er þá aðeins sá
kostnaður, sem á enga lund
verður umflúinn, þ. e. a. s.
húsaleiga, hófleg laun til starfs-
manna og því um líkt.
Alveg sama máli gegnir með
iðnaðinn. Með því að auka og
efla kaupfélögin og gera þeim
fært að taka nauðsynlegan iðn-
að í sínar hendur, er í mörg-
um tilfellum hægt að gera
hvorttveggja í senn, afnema
hinn óeðlilega gróða, sem á
honum hefir hvílt, og hefja hann
til vaxandi gengis um öll nýtízku
vinnubrögð og afköst, en það
hefir auðvitað úrslitaþýðingu í
þá átt að gera vörurnar ódýrar.
Að þessu athuguðu er það
ljóst, að almenningur hefir fyrst
og fremst um að sakast við
sjálfan sig, ef þjóðfélagið er í
því horfi, að efnaleg afkoma
einstaklingsins er betur tryggð
með því að selja í heildsölu
kjóla, innflutta frá Ame-
ríku, heldur en t. d. að gerast
háskólakennari, og arðsamara
að framleiða og selja skóáburð
og litað sykurvatn, heldur én að
draga fisk úr sjó. g.
Pétur Gautur
og ríkisstjórnfn
(Framhald af 3. slðu)
Pétur Gautur vildi vinna það
til ríkis og valda í sölum Dofr-
ans að leggja af sinn fyrri bún-
ing og hætti og lét binda á sig
hala eins og þursarnir höfðu.
Ólafur Thors vann það til ríkis
og valda að taka kollsteypuna,
sem frægt er orðið, og lét binda
á sig hala kommúnismans.
Þrátt fyrir allan vanmátt
sinn og manndómsleysi var Pét-
ur Gautur óþreytandi í grobb-
inu. Hann átti það #il að liggja
úti á víðavangi og góna upp í
loftið og sjá sjálfan sig þeysa
með fríðu föruneyti í skýjum
himins. Þrátt fyrir getuleysi
ríkisstjórnarinnar í því, sem
mestu skiptir, er hún iðin að
hæla sér. Fyrst pantaði hún
heillaóskir frá pólitískum vanda-
mönnum og auglýsti þær kapp-
samlega. Og alla tíð er forsætis-
ráðherrann óþreytandi að tala
um þau stórmerki, sem urðu
þegar hann myndaði stjórnina.
Þar með var virðing Alþingis og
sæmd endurreist, þjóðin varð
gagntekin af glaðri hrifningu
og skyndilega ánægð aftur með
þingræðið, svo að þjóðskipulagi
íslendinga var borgið á þeim
degi. Þannig segist Ólafi Thors
frá.
í Soría María er setið
að sumbli með kóngi og prins.
Slík er sjálfsblekking Péturs
Gauts.
Halldór Kristjánsson.
kosnir Sigurður Greipsson,
Haukadal, formaður, Eyþór Ein-
arsson , Gröf, ritari, og Þórður
Loftsson, Bakka, gjaldkeri.
Saniband ísl. samvinnufélaga.
SAMYINNUMENN:
Vöndun framleiðsluvaranna er eitt af grund-
vallarskilyrðunum fyrir því að þær séu seljan-
legar á erlendum markaði með viðunandi verði.
1
SAVOW de PARÍS mýUir húðina og
styrkir. Gefur henni yndisfagran litblæ
og ver hana kvillum.
JVOJI0
SAVON
Eldhús-skápar
Með nokkurra daga fyrirvara geta nú viðskiptavinir
vorir fengið hjá oss eldhússkápa, hver við sitt hæfi.
S0GIN H.F., H0FÐATÚN 2
Sími 56J2.
Lög og reglur
um skóla- og menningarmál á Is-
landi fást nú hjá bóksölum. —
Yerð kr. 25.00.
Raítækjavinnustof an Selfossi
framkvæmir allskonar rafvirkjastörf.
ORÐSENDING TEL KAUPENDA TtMANS.
Ef kaupendur verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vin-
samlega beðnir að gera afgreiðslunni þegar aðvart.