Tíminn - 13.03.1945, Síða 8
ÐAGSKRÁ er bezta íslenzha tímaritið um
þjóðfélafismál.
8
13. MARZ 1945
f*eir, sem vílja kynna sér þjjóðfélagsmál, Itm-
lend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá.
REYKJAVÍK
20. blað
y ammámTtímams V
7. marz, miffvikudagur:
JVý sókn.
Vesturvígstöðvarnar: Her-
sveitir úr 3. ameríska hernum
brutust að Rín norður af Ko-
blens og áttu eftir 11 km. ófarna
til borgarinnar. Hersveitir úr 1.
hernum voru"3 km. frá Bonn.
Vörn Þjóðverja er sögð mjög lé-
leg á öllu svæðinu milli Kölnar
og Koblens.
Austurvígstöffvarnar: Her Zu-
kovs átti eftir 19 km. ófarna til
Stettin. Rússnesk blöð sögðu, að
lokasóknin gegn Berlín -væri í
þann veginn að hefjast.
Rúmenía: Ný stjórn hefir ver-
ið mynduð í Rúmeníu og
standa aðeins róttækir flokkar
að henni. Forsætisráðherrann
heitir Grodza.
Júgóslavía: Ný stjórn hefir
verið mynduð í Júgóslavíu. Tito
er forsætisráðherra, en dr. Su-
basic, er var forsætisráðherra
Londonstjórnarinnar, er utan-
ríkismálaráðherra. Ráðherrar
eru alls 22, þar af 12 úr fyrri
stjórn Titos og 6 úr stjórn Su-
basic.
✓
8. marz, fimmtudagur:
♦ Farið yfir Rín.
Vesturvígstöffvarnar: Til-
kynnt, að daginn áður hafi 1.
herinn náð óskemmdri járn-
brautarbrú yfir Rín hjá Reim-
achen, 20 km. suður af Bonn, og
sé þegar búinn að ná öruggri
fótfestu austan árinnar. Barizt
var i borginni Bonn, Godesberg
og Xantes.
jBýrland: Sýrlendingar og Li-
banonmenn hafa lýst yfir óá-
nægju sinni, þar sem þeim hef-
ir ekki verið boðið á San Fran-
cisco-ráðstefnuna, þrátt fyrir
stríðsyfirlýsinguna gegn Þjóð-
verjum og Jöpunum.
Fréifir irá Hellissandi
(Framhald af 1. síðu)
rannsókn á öllum aðstæðum
þarna, og mun henni ljúka á
komanda vori. Það mun óhætt
mega fullyrða, að Rif er heppi-
legasti staðurinn til hafnar
vgerðar á allri leiðinni frá Pat-
reksfirði og suður fyrir Snæ-
fellsnes.
— Ætla Hellissandsbúar sér
aff koma útgerðinni í annaff horf
og fá stærri báta?
— Jú, það er áhugamál allra
Hellissandsbúa að koma útgerð-
inni í annað og betra horf, fá
stærri og tfleiri báta, sem gætu
stundað dragnótaveiðar á
sumrum. En vegna hinna slæmu
hafnarskilyrða á Hellissandi er
óframkvæmanlegt að hafa þar
stærri báta en 4—6 smál. og svo
litlir bátar geta ekki stundað
dragnótaveiðar á sumrum. Þeir
geta aðeins stundað línuveiðar á
vetrum, en eins og kunnugt er,
þá er ekki um línuveiðar að
ræða að sumrinu. Hellissands-
búum finnst það hart að sjá
báta frá öðrum verstöðvum
sækja alla sumarveiði síria upp
við landsteinana hjá sér, en geta
sjálfir ekki hagnýtt sér neitt af
þeim gæðum, er þarna liggja,
vegna þess, að ekki er hægt að
gera út, nema smábáta frá
Hellissandi. Góð höfn er því
frumskilyrði fyrir því, að út-
gerð geti aukizt frá Hellissandi
en slíka höfn er ekki hægt að
gera þar vegna aðgrynnis.
Biínaðarþmg . . .
(Framhald af 1. síðu)
stjórn Búnaðarfélags íslands að
láta fara fram endurskoðun á
lögum, er heimila ríkisstjórn-
inni að flytja inn sauðfé til slát-
urfjárbóta (lög nr. 27, 8. sept.
1931) og öðrum lögum er fjalla
um innflutning búfjár. Síðan
leggi stjórnin hið endurskoðaða
lagafrumvarp fyrir næsta reglu-
legt Alþingi.
Búnaðarþing óskar viðbótar
og breytinga á eftirtöldum at-
riðum:
1. Heimilað verði að flytja inn
sæði úr erlendum kynbótagrip-
um.
2. Sett verði tryggilegri á-
kvæði en nú eru um einangrun
erlends búfjár, sem kynni að
verða flutt til landsins.
Búnaðarþing ályktar að leggja
til, að við væntanl'ega endur-
skoðun búfjárræktarlaganna
verði sett í lögin ákvæði er
heimili kynblendingsræktun, og
sett ýtarleg fyrirmæli um blönd-
un erlendra búfjárkynja við ís-
lenzkt búfé.“
Þá hefir búnaðarþingið sam-
þykkt ýtarlegt álit um fram-
haldsnám búfræðinga, sem gert
er ráð fyrir að standi í eitt ár,
og geri þá færari um að gegna
ýmsum trúnaðar- og leiðbein-
ingastörfum í þágu landbúnað-
arins, en búast má við vöntun
, á slíkum mönnum á næstu ár-
um nema sérstakar ráðstafanir
verði gerðar.
Fleiri samþykkta búnaðar-
þings verður getið síðar.
Skil^rðin eru svo erfið á Hell-
issandi, að á flestum öðrum
verstöðvum á landinu hefði svo
erfiðri baráttu verið hætt og
fólkið flutt sig til annarra staða,
þar sem lífsbaráttan er ekki eins
hörð. Það má því segja, að
byggð sé ennþá á Hellissandi
vegna þess, að þar eru duglegir
sjómenn, sem tekið hafa tryggð
við þennan stað og ekki viljað
gefast upp. Þeir hafa lagt á sjó-
inn í náttmyrkri skammdegis-
ins, oft í tvísýnu veðri og orðið
að sæta sjávarföllum til þess að
komast að og frá landi. Óhætt
mun að segja það, að flestir
yngri menn myndu vera farnir
og hinir gömlu sjógarpar einir
eftir, ef það væri ekki vonin um
bætt skilyrði, sem héldi þeim
heima. En þau skilyrði skapast
fyrst og fremst með hafnargerð
á Rifi.
— Hvernig er afkoma fólks á
Hellissandi?
— Afkoman er yfirleitt sæmi-
leg, en gæti verið miklu betri.
Menn gætu haft margfalt meiri
tekjur, ef hægt væri að gera
út stærri báta, sem stundað
gætu veiöar allt árið. Atvinna
vill því oft verða lítil á sumrin,
þegar línuveiðarnar hætta að
vorinu, en þær hefjast ekki aft-
ur fyrr en að haustinu. Fólk
verður því að leita annað eftir
vinnu yfir sumartímann og
þannig flyzt margt fólk af
staðnum fyrir fullt og allt.
— Hvernig er samgöngum
háttaff viff Hellissand.
— Þær eru ákaflega erfiðar
enn, sem komið er.. Aðalsam-
göngurnar eru yfir sumarið um
Fróðárheiði, en sá vegur er ó-
fær á veturna. Sjósamgöngurn-
ar eru þá eina leiðin þangað og
oft ófær líka vegna þess hvað
algengt er, að ekki sé hægt að
ná sambandi við milliferðaskip-
in frá landi vegna hafnleysis.
Samgöngumálin verða bezt
leyst með því að ljúka við veg-
inn fyrir Snæfellsjökul, því yfir
Fróðárheiði er ekki hægt að
gera veg, sem tryggur er að
vetrarlagi.
— Hvernig er meff affflutn-
inga á sjó til þorpanna við
Breiffa'fjörð?
— Samgöngur á sjó eru mjög
erfiðar og verða skipin oft að
fara framhjá í báðum leiðum.
Þetta er mjög bagalegt fyrir
íbúana í þessum þorpum. Eina
leiðin til að bæta úr þessum e^f-
iðleikum eins og nú standa sak-
ir, tel ég þá að S. í. S. setji upp
birgðastöð í Stykkishólmi og
fluttar verði allar þungavörur
þangað. Þar yrði hafður ca. 50
smál. vélbátur, er annaðist
flutninga til hinna hafnanna,
en slíkur bátur gæti komizt upp
að bryggju á eftirtöldum stöð-
um: Hellissandi, Ólafsvík, Búðar
dal, Flatey og Króksfjarðarnesi.
Ég tel því, að ekki megi drág-
ast mikið lengur en orðið er, að
þessu skipulagi verði ko’/iið á
og gæti það létt mikið undir með
kaupfélögunum á þessum stöð-
um og sett aukinn myndar- og
menningarbrag á rekstur þeirra.
Landráðaskrií Þjóðvíljans
íslendlngar vilja ekkerí á sig leggja fyrir
liinar sameinuðn |ijóðir"
Þótt Þjóðviljinn sé nú stöðugt
að afneita því, að flokkur hans
hafi viljað láta íslendinga fara
í styrjöldina, getur. hann þó
eigi fullkomlega leynt innstu
hugrenningum sínum. Þánnig
segist honum ' í forustugrein
síðastl. sunnudag um afstöðu
Tímans, Alþýðublaðsins og
Vísis:
„Þessi möndulblöff hamra
sífellt á því í greinum sínum,
sem þau vita aff eru þýdd á
erlend mál, aff íslendingar
vilji ekkert á sig leggja fyrir
hinar sameinuffu þjóffir."
Tíminn, Alþýðublaðið og Vís-
ir hafa haldið því fram, að ís-
lendingar væru búnir að færa
nægar fórnir til þess að eiga
rétt til þátttöku í samstarfi
sameinuðu þjóðamia. Má þar
nefna • herverndarsamninginn,
manntjón af völdum styrjald-
arinnar o. fl., o. fl. Það er áreið-
anlegt, að hér hafa þessi blöð
ek’ki aðeins túlkað eigin af-
stöðu, heldur alls meginhluta
þjóðarinnar. Það má líka telja
víst, að hefði þjóðin staðið fast
á þessum málstað, myndi þáft-
taka hennar hafa vérið viður-
kennd, án stríðsyfirlýsingar.
En það var hér sem eining
þjóðarinnar var rofin af komm-
únistum og nú seinast með
þeirri yfirlýsingu Þjóðviljans, að
framangreind afstaða sýni, „að
íálendingar vilji ekkert á sig
leggja fyrir sameinuðu þjóðirn-
ar,“ og þeir aðilar, sem haldi
henni fram, séu möndulblöð og
möndulmenn, þ. e. hliðhollir
Þjóðverjum og Japönum. Að
dómi Þjóðviljans og hyskis hans
var stríðsyfirlýsing’’ eða annað
jafngilt henni, eina gilda fórn-
in og allt annað möndulafstaða
eða fylgi við málstað Þjóðverja
og Japana enda þótt íslendingar
Merkilegur dómur *. . .
(Framhald af 1. síðu)
Sá samanburður, sem fjár-
veitinganefnd hefir hér gert á
útgjöldum ríkisins 1^39 og 1945,
er hinn óvéfengjanlegasti vitn-
isburður um fjármálastjórn
Sjálfstæðisflokksins. Hann fékk
fjármálastjórnina fyrra hluta
ársins 1939 og síðan hafa Sjálf-
stæðismenn verið óslitið fjár-
málaráðherrar og þannig ráðið
mestu um- Tíkisútgjöldin. Al-
menningur fær bezt á þessu séð,
hversu Sjálfstæðismenn hafa
orðið að ómerkja í verki öll um-
mæli sín um fjársukk og óhófs-
eyðslu fyrirrennara sinna í fjár-
málastjórninni, þar sem þeir
hafa ekki einu sinni getað hald-
ið í horfinu, heldur hækkað laun
og fjölgað embættum í svo stór-
um stíl, að hin beinu rekstrar-
útgjöld ríkisins hafa jnargfald-
ast. Og þetta hafa þeir því frek-
ar gert, þar sem þeir hafa aldrei
á þessu fimm ára fjárstjórnar-
tímabili sinu gert minnstu til-
raun til að draga úr hinum
beinu rekstrarútgjöldum og geta
því eigi fært sér það til afsök-
unar, sem þeir þó stundum
reyna að gera, að aðrir flokkar
hafi fellt eða stöðvað sparnaðar-
og niðurskurðartillögur þeirra.
Þegar menn minnast fyrri
gífuryrða Sjálfstæðisflokksins
um sukk og óreiðu fjármálaráð-
herra Framsóknarflokksins og
allra kosningaloforðanna um
niðurskurð óhófseyðslunnar, ef
Sjálfstæðismenn fengju fjár-
málastjórnina, þá mun niður-
staðan vissulega verða á þá leið,
að aldrei hafi nokkur flokkur
ómerkt eins fullkomlega fyrri
yfirlýsingar og loforð og Sjálf-
stæðisflokkurinn í þessu máli.
Þjóðin ætti að geta dæmt það
mjög auðveldlega af þessu, hve
mikið má leggja upp úr yfir-
lýsingum og loforðum þeirra
manna, — sem nú ráða mestu í
Sjálfstæðisflokknum. Hún ætti
líka að geta lært af þessu, hvort
þ'essum mönnum muni treyst-
andi til að hafa fjármálastjórn-
ina á«hendi.
hefðu ekkert gagn unnið sam-
einuðu þjóðunúm með yfirlýs-
ingu, nema þá þeim þeirra, sem
kynnu aff vilja fá hér hernaffar-
bækistöffvar, ásamt Bretum og
Bandaríkjamönnum.
Það er ekki ofsagt, að þessi
málflutningur Þjóðviljans á
sama tíma og við erum að reyna
að fá þátttöku íslands viður-
kennda, án stríðsþátttöku, séu
landráð af verstu tegund og
auðsjáanlega ekki miðuð við
annað en að spilla fyrir því að
þátttaka fáist viðurkennd.
íslenzku kommúnistarnir hafa
hér enn á ný sannað óvéfengj-
anlega landráðaeðli sitt. Þeir
hafa fyrst viljað koma landinu
í styrjöldina, svo að fleiri aðil-
ar gætu átt hér tilkall til hern-
aðarbækistöðva. Þeir hafa reynt
eftir megni áð ófrægja hina ís-
lenzku afstöðu, og spilla fyrir
því, að hún fengist viðurkennd.
Slíkum iandráðamönnum verð-
ur þjóðin að víkja úr þingi og
ríkisstjórn og gera þá áhrifa-
lausa með öllú. Annars verða
dagar hennar sem sjálfstæðrar
þjóðar fljótt taldir.
Miklir vatoavextír
Um seinustu helgi var þíff-
viffri um allt land og olli þaff
miklum leysingum og vatna-
vöxtum í ám og vötnum.
Vátnsföll flæddu langt út fyr-
ir farvegi sína og /umferffa-
truflanir urffu víffa.
Skemmdir af vatnavöxtum
þessum munu þó hvergi hafa
orðið teljandi, nema í Borgar-
firði og Skagafirði. Hvítá í
Borgarfirði flæddi yfir bakka
sína neðan til í héraðinu og lok-
aði veginum á tveim stöðum
vestan og austan Hvítárvalla,
þar sem hún flæddi yfir veg-
inn með miklum klakaburði.
HjáFerjukotssíki flæddi áin yfir
veginn og brúin á síkinu
skemmdist nokkuð. í Norðurár-
dal varð mikill vöxtur í Norðurá
og Bjarnadalsá og flæddi yfir
veginn hjá Hraunsnefi. Mjólk-
urflutningar stöðvuðust ‘því á
þessum leiður, en hins vegar
var alltaf fært fram í Hvítár-
síðu og upp í Reykholtsdal.
Brúin á Andakílsá hjá Grund
skemmdist svo að hún er ekki
akfær.
í Skagafirði kom jökulhlaup
í Hjaltadalsá nálægt Hólum og
sprengdi upp nokkurn hluta af
steyptri brú, svo að hún verður
ekki akfær um sinn. í gær fékk
blaðið þær upplýsingar hjá
vegamálastjóra, að dregið hefði
úr flóð'unum svo að vegir myndu
nú víðast hvar vera orðnir ak-
færir aftur. Skemmdir hafa þó
nokkrar c.rðið á vegl'am. sem
flætt hefir yfir, með því að
ofaníburði hefir sópað burt í
flóðinu.
Rændafundur
(Framhald a) 7. síðu)
grundvelli þeim fyrir verði á af-
urðum lándbúnaðarins, sem
lagður var af sexmannanefnd-
inni.“
Áburffarverksmiffjumáliff.
„Fundurinn harmar það, að
Alþingi Jiefir frestað aðgerðum
um stofnun áburðarverksmiðju,
sem hann telur eina hina mestu
lytfistöng landbúnaðarins. Vill
hann því leyfa sér að skora á
Alþingi og ríkisstjórn að hraða
sem mest framkvæmdum 1 því
máli.“
Vegamál.
„Fundurinn beinir þeirri á-
skorun til hins háa Alþingis, að
þegar á þessu ári verði veitt fé
til þess að gera brú á Laxá í
Lóni.
Þá vill fundurinn eindregið
mælast til þess við hið háa Al-
þingi, að það ákveði að Jökulsá
í Lóni verði næsta áin, sem brú-
Skólalíf
í Eton
(A YANK AT ETON)
\
Mickey Rooney
Freddie Bartholomew,
Tina Thayer.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NÝJA Eíó—,
Bænda-
uppreísnin
Söguleg mynd frá Svensk
Filmindustri. — Leikstjóri
Gustaf Molander. — Aðal-
hlutverk:
LARS HANSON,
OSCAR LJUNG,
(VA DAHLBECK.
Bönnuff yngri en 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
DÁÐIR
VORU DRÁGÐAR
Saga Nólseyjar-Páls
og fleiri afreksmanna.
er m e r k bók og
skemmtileg.
TJARNARBÍÓ
SAGA3\ AF
WASSEU LÆKNI
(The Story of Dr. Wassell)
Cary Cooper,
Laraine Day.
| Sýnd kl. 6,20 og 9.
| Bönnuð fyrir börn.
SILFURDROTTNINGIN
(The Silver Queen)
Priscilla Lane,
j George Brent, Bruce Cabot.
j Sýnd kl. 5.
Bönnuð yngri en 12 ára.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Álf li ó 11
Sjónleilcur í 5 þáttum eftir J. L. HEIBERG.
27. sýning
annað kvöld klukkan 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4.
JVÆSTSÍÐASTA SÝIXLAG.
Byggingarsamvinnufélag Reykjavíkur.
Aðalfundnr
verður í Sambandshúsinu uppi fimmtudaginn 15. marz n. k. kl.
8,30 síðdegis.
Dagskrá:
Affalfundarstörf samkvæmt félagslögunum.
Stjórnin.
Ú R B Æ N U M
Skemmtisamkoma.
Næsta skemmtun Framsóknarmanna
í Reykjavík verður n. k. föstudag (16.
marz) í Sýningaskálanum. Hefst hún
eins og venjulega með Fi'amsóknar-
vist kl. 8,30. Skemmtiskrá þarf ekki
að auglýsa. Flestir vita, hve ánægju-
legt er að vera á þessum samkomum.
Ábyrgst er, að allir fái sæti við spila-
borðin, sem komnir eru stundvíslega
í spilasalinn. Vegna takmarkaðs hús-
rúms hefir undanfarið orðið að neita
fjölda mörgu góðu fólki um aðgang.
Og þar sem sennilegt er, að þetta verði
seinasta Framsóknarskemmtunin á
þessum vetri, þá eru Framsóknarmenn
sérstaklega minntir á, að tryggja sér
aðgöngumiða sem allra fyrst á af-
greiðslu Tímans. Sími 2323.
Árni Kristjánsson pianóleikari
hélt Beethoven-tónleika síðastliðinn
sunnudag í Gamla-Bíó fyrir fullu
húsi og við ágætar undirtektir á-
heyrenda. Viðfangsefni hans voru:
Sónata op. 27 nr. 2 eis-moll (Tungl-
skinssónatan), Sónata op. 109 E-dúr,
32 tilbrigði í c-moll og Sónata appas-
sionata op. 57 f-moll.
Samkór Reykjavíkur
heldur samsöng kl. 11,30 i kvöld í
Gamla Bíó. Á söngskránni eru lög
eftir innlenda og erlenda höfunda, 12
talsins. Söngstjóri kórsins er Jóhann
Tryggvason en við hljóðfærið er Anna
Sigríður Björnsdóttir.
uð verður fyrir fé úr brúarsjóði,
þegar byggð hefir verið búin á
Jökulsá á Fjöllum.
Ennfremur vill fundurinn ein-
dregið óska þess, að á næstu
fjárlögum verði tekin upp 50
þús. kr. fjárveiting til Lóns-
heiðarvegar.“
Dómur fyrir árás.
Nýlega var kveðinn upp í Hæsta-
rétti dómur í málinu RéttvTsin gegn
Kristjáni Helga Benjamínssyni, bíl-
stjóra, Meðalholti 4. Hæstiréttur stað-
festi dóm undirréttar, er dæmdi Krist-
í ján til að greiða Bergi Pálssyni, sjó-
manna, Öldugötu 19, 1700 krónur í
skaðabætur fyrir áverka, er Helgi
veitti Bergi. Ennfremur var honum
gert að taka út 15 daga varðhald og
greiða málskostnað' allan.
Kvenfélagiff Hringurinn
hélt aðalfund sinn nýlega. Stjórn
félagsins var öll endurkosin. Á fund-
inum var“gerð grein fyrir fjárhag fé-
lagsins. — Tekjur Barnaspítalasjóðs
námu á árinu kr. 508.987,03. Hæsti
tekjuliður eru gjafir er samtals nema
kr. 185.598,40, söfnun Fjáröflunar-
nefndar kr. 134.536,30, og tekjur af
útiskemmtun krónur 94.851,04. í sjóði
var frá fyrra ári'kr. 183.026,01 og er
því sjóðseign Barnaspítalasjóðs kr.
692.013,04. — Byggingaframkvæmdir
munu ekki hefjast fyrr en allmiklu
meira fé hefir verið safnað. Þess skal
getið, að allar gjafir, sem gefnar eru
í spítalasjóðinn á þessu ári eru skatt-
frjálsar.
Kleppsspítalinn stækkaffur.
í ráði er að hefja allmiklar bygg-
ingarframkvæmdir á Kleppi í vor.
Hefir húsameistarí ríkisins gert teikn-
ingu að viðbótarbyggingunni. Þar á
að vera deild fyrir mjög órólega sjúk-
linga og á hún að rúmá 33 sjúklinga,
karla og konur. í annarri deildinni
verður rúm fyrir 16, en i hinni rúm
fyrir 17 sjúklinga. Þá verða sérstök
herbergi fyrir þá sjúklinga, er einnig
eru haldnir smitandi sjúkdómi. Stærð
þessa húss verður 35.30 metrar að
lengd og 14.90 m. á breidd, tvær hæðir.