Tíminn - 20.03.1945, Page 8
DÆGSKRÁ er bezta íslenzha tímaritið wm
þjóðfélagsmál.
8
REYKJÆVtK
Deirf sem viljju hynna sér þjóðfélagsmál, ínn-
lend og útlend, þurfa að lesa Dagshrá.
20. MÆRZ 1945
22. blað
f AWNÁLL
15. marz, fimmtudagur:
Sókn 7. hersins.
Vesturvígstöðvarnar: Sjöundi
ameríski herinn hóf sókn á 80
km. svæði milli Hagenau og
Saarbriicken. Þriðji herinn fór
suður yfir Mosel og varð vel
ágengt. Miklar loftárásir, eink-
um á herstöðvar hjá Berlín.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tilkynntu, að þeir hefðu klofið
varnarsvæði Þjóðverja í Austur-
Prússlandi í tvennt.
Frakkland: Hæstiréttur Frakka
dæmdi Esteva flotaforingja í
ævilangt fangelsi fyrir samvinnu
hans við Vichystjórnina og Þjóð-
verja.
16. marz, föstudagur:
Friðarboði hafnað.
Bretland: Brezka"stjórnin til-
kynnti, að henni hefði nýlega
borizt tilmæli frá Þjóðverjum
um friðarumleitanir fyrir milli-
göngu sænsks manns. Tilmæl-
um þessum var strax hafnað.
Vesturvígstöðvarnar: Þriðja
ameríska hernum varð vel á-
gengt í sókninni sunnan Moselle,
og eins 7. hernum í sókninni í
inn í Saar. Tók hann borgina
Hagenau. Sameinuð sókn þess-
ara herja stefnir vörnum þjóð-
verja í Saar í mikla hættu.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tilkynntu, að lokið væri gagn-
sókn Þjóðverja hjá Balatonvatfti
í Ungverjalandi, án nokkurs
árangurs.
Noregur: Upplýst var, að síð-
astliðinn miðvikudag hafi aðal-
járnbrautarstöðin í Noregi ver-
ið sprengd upp og er það stærsta
skemmdarVerkið, sem unnið hef-
ir verið i Noregi af andstæðing-
Skrifin iim
smjörmálið
(Framhald af 1. síðu)
Búnaðarþings á þennan hátt.
í fyrsta lagi hefir Búnaðar-
þing ekki andmælt smjör-inn-
flutningi, heldur aðeins æskt
þess, að ekki yrði flutt inn
smjör, nema í samráði við Bún-
aðarfélagið. Myndi engum þykja
ósanngjarnt, ef skortur væri hér
á vinnuafli og flytja þyrfti inn
erlenda verkamenn, þótt Al-
þýðusambandið vildi hafa hönd
í bagga um innflutninginn og
tryggja að hann yrði þess ekki
valdandi, að íslenzkir verka-
menn misstu atvinnu sína. Á
sama hátt vilja búnaðarsam-
tökin vitanlega fá að hafa íhlut-
un um, hve mikið smjör verður
flutt inn, svo að tryggt sé, að ís-
lenzkri framleiðslu verði ekki
alveg bolað af markaðinum.
í öðru lagi hefir Búnaðarþing
aðeins farið fram á það, að
verðlagið á innflutta smjörinu
yrði það sama og innlenda
smjörinu, svo að innlendu fram-
ieiðslunni verði ekki þannig
komið fyrir kattarnef. Þá kröfu
myndi Alþýðusambandið einnig
gera, ef erlendir verkamenn yrðu
fluttir inn að ráði, að þeir ynnu
ekki fyrir lægri kauptaxta en
íslenzkir verkamenn. Með því að
hafa sama verð á ameríska
smjörinu og íslenzka smjörinu,
væri síður en svo okrað nokkuð
á neytendum, því að þeir fengju
verðið að fullu bætt í vísitöl-
unni. Hins vegar er ekki fjarri
lagi að telja það okur, að taka
verð ameríska smjörsins inn í
vísitöluna, þar sem skömmtun
er á því, og lækka hana þannig
um 2 i/á stig, eins og stjórnin
ætlar að gera um næstu mán-
aðamót. Verkamaður, sem hef-
ir 500 kr. grunnkaup, tapar
þannig 50 kr. í þá fjóra mánuði,
sem þetta verðlag gildir, en hins
vegar fær hann í staðinn 7 kr.
verðlækkun á einu smjörkílói!
Það myndi vissulega talið okur,
ef bændur stæðu að slíkri ráð-
stöfun!
Það má kannske segja, að það
sé klókt að „snuða“ neytendur
þannig með fölsun á vísitöiunni,
en mikilmannlegt er það ekki.
Heiðarlegra væri að ganga
hreinlega til verks. Hálfu verra
verður líka þetta „snuð“, þegar
TÍMAWS V
um Þjóðverja.
Kyrrahafsstyrjöldin: Tilkynnt
að Bandaríkjamenn hefðu nú
alveg náð Iwo-jima á vald sitt.
17. marz, laugardagur:
Norðmeim myrtir.
Norcgur: Þjóðverjar til-
kynntu, að 14 Norðmenn hefðu
verið teknir af lífi vegna
skemmdarverkanna, er unnin
voru á miðvikudaginn, þegar
aðaljámbrautarstöðin í Osló var
sprengd upp.
Vesturvígstöðvarnar: Þriðji
herinn brauzt in£ í Coblens og
hefir náð meirihluta borgarinn-
ar. Sókn hans sunnan Moselle
gekk vel. Sjöundi herinn hefir
hafið skothríð á Saarbrúcken.
Mikil loftsókn gegn þýzkum
borguni.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
hófu sókn við Balatonvatn í
Ungverjalandi. Harðar orustur
við Danzig og Königsberg.
18. marz, sunnudagur:
Sótt til Mains.
Vesturvígstöðvarnar: Þriðji
herinn hefir náð 25 km. af vest-
urbökkum Rínar fyrir sunnan
Moselle á vald sitt. Her*sveitir
úr honum sóttu hratt fram til
Mains og átti ófarna 30 km.
þangað. Sjöundi herinn nálgað-
ist Saarbrúcken. Bandarískar
flugvélar gerðu stærstu dagárás
á Berlín til þessa.
Austurvígstöðvarnar: Víða
harðar orusiur, en þó engar telj-
andi breytingar á vígstöðunni.
Finnland: Lauk kosningum til
þingsins, en úrslit ekki kunn
ennþá.
Nýtt rithöfiiiidafélag
(Framhald af 1. síðu)
að smala í félagið til þess að
tryggja yfirráð sín. Voru þeirra
á meðal Haraldur Sigurðsson
prófarkalesari, Karl ísfeld rit-
stjóri, Gísli Ásmundsson próf-
arkalesari og Jón Óskar, er mun
vera tónlistarnemi og Sverrir
Kristjánsson „sagnfræðingur".
Vegna mótmæla gegn þessum
inntökubeiðnum var frestað að
taka ákvörðun um þær, þar til
síðar á fundinum, er stjórnar-
kosningu væri lokið. Við for-
mannskosninguna fékk Halldór
Stefánsson rithöfundur 15 atkv.,
Guðmundur G. Hagalín 10 atkv.
og einn seðill var auður. Aðrir
stjórnarmeðlimir voru á sarba
•hátt kosnir úr klíku kommún-
ista. Guðmundur G. Hagalín
gaf þá yfirlýsingu þá, er áður
greinir, fyrir hönd 12 félags-
manna. Þessir menn voru Davíð
Stefánsson, Jakob Thorarensen,
Kristmann Guðmundsson, Elín-
borg Lárusdóttir, Friðrik Á.
Brekkan, Þórir Bergsson, Óskar
A. Guðjónsson, Kjartan Gísla-
son frá Mosfelli, Gunnar M.
Magnúss, Sigurður Helgason og
Ármann Kr Einarsson.
Þessir menn efndu síðan til
fundar og stofnuðu nýtt félag,
Félag íslenzkra rithöfunda. For-
maður þess er Guðmundur G.
Hagalín, ritari Sigurður Helga-
son, gjaldkeri Jakob Thoraren-
sen og meðstjórnendur Gunnar
M. Magnúss og Kristmann Guð-
mundsson.
Er það vissulega ekki vonum
fyrr, að hinir frjálslyndari rit-
höfundar brjóta sig undan of-
ríki kommúnista í Rithöfunda-
félaginu.
þess er gætt, að með þessu er
einstök atvinnugrein, smjör-
framleiðslan, lögð í einelti og
unnið að þvi að koma henni í
rúst, vegna óstjórnar á öðrum
sviðum. Þess vegna eru mótmæli
bændanna sjálfsögð og crðlileg.
Það, sem þarf er alhliða lækk-
un dýrtíðarinnar og þó myndi
það sýna sig, að íslenzka smjör-
framleiðslan myndi vera full-
komlega samkeppnisfær við er-
lenda smjörframleiðslu, bæði
hvað snertir verðlag og gæði,
eins og lika var fyrir styrjöldina.
Hrakmennskuskril Mbl.
(Framhald af 1. síðu)
þann rökstudda grun, að þann-
ig hafi greinarhöfundarnir
hugsað sjálfir, þegar þeir voru í
stjórnarandstöðu, enda bentu
þá ýms verk þeirra í þá átt.
Þessi blaðaskrif sýna og ljós-
lega, að sú stjórnmálaspilling,
að stimpla alla andstæðinga
sína fjandmenn þjóðarinnar,
hefir náð tökum á sumum
helztu forvígismönnum stærsta
stjórnmálaflokksins í landinu.
Þessi stjórnmálaspilling hefif
verið kappsamlega stunduð af
einræðisflokkum álfunnar, naz-
istum og kommúnistum, enda
getur hún ekki til annars leitt
en einræðis og kúgunar, þar
sem hún nær að festa rætur.
Þessi sífelldu glæpabrigsl í garð
stjórnarandstöðunnar verða þá
fyrr eða síðar notuð til þving-
unar- og ófrelsisráðstafana,
enda þekkjast slíkar aðdrótt-
anir hvergi meðal þeirra þjóða,
þar sem lýðræðið er orðið fast
í sessi. Menn deila þar að. vísu
oft hart um málefni og stjórn-
málaleiðtoga, en að ganga svo
langt að beru andstæðingunum
á brýn, að þeir vilji þjóð sinni
allt hið versta, þekkist yfirleitt
ekki. Sérstakar undantekning-
ar í þessum efnum eru þó þeir
menn, sem vitað er um, að eru
í beinni hlýðnisafstöðu við er-
lent stórveldi, eins og t. d. naz-
istar í Bretlandi og Bandaríkj-
unum.
Það er og augljóst mál, að þeir
stjórnarflokkar, er telja sig
þurfa að beita slíkum vopnum
gegn andstæðingum sinum,
hafa ekki kost góðrar máls-
varna. Þess vegn^ verða þeir að
grífTa til þessa örþrifabrigsla
einræðisflokkanna. Það eitt
mætti vera mönnum mikið al-
vörumál. Það er því alveg sama
frá hvaða sjðnarmiði er litið á
þetta mál: Þessi skrif eru stjórn-
málaspilling af versta tagi.
Stærsti „hrak“-
spádómurmu.
Hvað er svo satt um þær
hrakspár, sem stjórnarsinnar
eru að bera á Tímann í þessu
sambandi? Tíminn hefir nokk-
uru sinnum skýrt frá frásögn-
um erlendra blaða og erlendum
fréttaskeytum um þetta mál,
eins og yfirleitt öll önnur íslenzk
blöð hafa gert og þá ekki sízt
Mbl. Seinast skýrði Tíminn í
desembermánuði síðástl. frá
viðtali, er blöðin áttu við ís-
lenzka sendiherrann í London,
þar sem hann spáði verðlækkun
á fiski i Bretlandi. Öll hin
Reykjavíkurblöðin sögðu líka
frá þessu. Samkvæmt þessum
upplýsingum, sem engan veginn
hafa verið spádómar Tímans,
hefir hann hvatt til þess, að
þjóðin yrði búin undir það að
mæta þeim erfiðleikum, er
verðlækkuninni myndi fylgja.
Sem betur fer er þessi verð-
lækkun enn ekki komin fram,
kannske helzt vegna þess, að
stríðið hefir dregizt meira á
langinn, en forustumenn Banda-
manna gerðu ráð fyrir í fyrra.
En stríðinu mun ljúka og þá
mun það sjást, hvort hér hefir
verið um hrakspár að ræða.
Þær upplýsingar og spár, sem
Tíminn hefir birt í þessu sam-
bandi, eru þó næsta lítilfjörleg-
ar í samanburði við ummæli nú-
verandi forsætisráðherra, Ólafs
Thors, í áramótaboðskap hans
31. des. 1943. Þar segir orðrétt:
„Um hið háa verðlag á höfuð-
útflutningsvöru okkar, skal það
eitt sagt, að það mun ekki
standa deginum lengur eftir að
Bretar og aðrar þjóðir að nýju
hefja fiskveiðar að ófriðarlok-
um. 'Og þá mun verðfallið fyrr
en varir verða svo mikið, að
óvíst er, hvort við fáum meira
en y5 eða Vio hluta þess verðs,
er við nú berum úr býtum.“
Hvað segir Mbl. um þennan
spádóm í stjórnartíð Björns
Þórðarsonar? Felast í þessum
spádómi hrunvonir og óheilla-
óskir stjórnarandstæðingsins?
Eða er hér aðeins verið að búa
þjóðina Undir það, sem koma
muni, að vísu með fullsterku
orðalagi?
Sá, sem skrifaði forustugrein-
ina í sunnudagsblað Mbl., má
gerzt um þetta vita, því að hann
er Ólafur sjálfur eða einhver
handgengin málpípa hans.
Er ástæða til
gleðiláta?
Það ber vissulega að fagna
því, hve störf sendinefndarinn-
ar hafa lánazt vel og hve góð-
an skilning Bretar hafa enn
sýnt í samningum við okkur.
Hins vegar er það alveg ástæðu-
laust fyrir stjórnarsinna að vera
neitt sérstaklega státna. Störf
sendinefndarinnar eru ekki
þeirra verk. Þótt nefndin hafi
fengið því áorkað, að verð sjáv-
arafurðanna verður að mestu
óbreytt, mun hagur útgerðar-
innar.fara versnandi vegna að-
gerða stjórnarinnar. Stjórninni
tókst ekki að afstýra hækkun
olíuverðsins. Kaupgjald hefir
hækkað í mörgum verstöðvum.
Skattai' hafa verið hækkaðir á
útgerðinni. Veltugjaldið hindrar
verðlækkun á útgerðarvörun-
um. Framleiðslukostnaður út-
gerðarinnar verður því mun
meiri í ár en í fyrra og afkoman
að sama skapi lakari.
1 Þó er hér ótalið það, sem al-
varlegast er. Þrátt fyrir hið hag-
stæða stríðsverð þarf að greiða
25—30 milj. kjr. úr ríky.ssjóði
til dýrtíðarráðstafana, svo að
framleiðslan stöðvist ekki alveg.
Fé til þessara ráðstafana skrap-
ar ríkisstjórnin saman með
hinni gífurlegustu áfengissölu,
sem hér hefir þekkzt, og ein-
hverri mestu skattpíningu, er
sögur herma.
Kannske eru stjórnarsinnar,
þrátt fyrir þetta, hreyknir af
ástandinu? Kannske hefir Mbl.
búizt við því, að Ólafur myndi
ekki einu sinni geta hangið við
völd þe/man tíma? En þjóðin
er áreiðanlega ekki ánægð og
ánægjan mun verða enn minni,
þegar allar afleiðingar þessarar
stjórnarstefnu koma í ljós.
Búnaðarþing
(Framhald af 1. síðu)
Afleiðingin af því að þannig
hefir verið snúizt við tillögum
og gerðum Búnaðarþings í
þessu máli, hlýtur að verða sú,
að kostnaður við framleiðsluna
hækkar í stað þess að hann
hefði getað lækkað verulega, ef
fordæmi Búnaðarþings hefði
verið fylgt.
í tilefni af því hvernig vikizt
hefir verið að gerðum Búnaðar-
þings að þessu leyti, þykir á-
stæða til að lýsa því yfir, að
Búnaðarþing endurtekur sam-
þykkt síðasta Búnaðarþings um
að ekki komi til mála að bænd-
ur færi niður verð á afurðum
sínum á nýjan leik, fyrr en til-
svarandi lækkun hafi farið fram
á launum og kaupgjaldi.
Telur Búnaðarþing því sjálf-
sagt, að verð á landbúnaðar-
vörum verði ákveðið á þeim
grundvelli, sem lagður er af sex-
manna-nefndinni, og að vísjtala
landbúnaðarvara vérði reiknuð
út á sama hátt og undanfarið
til verðákvörðunar varanna,
enda þótt viðkomandi ákvæði
um dýrtíðarráðstafanir yrðu þá
úr gildi fallin.
Með tilliti til þess viðhorfs,
sem nú er í þessum málum, á-
kveður Búnaðarþing að auka-
Búnaðarþing komi saman á
næsta sumri eigi síðar en í
fyrrihluta september n* k.“
Ályktun þessi var samþykkt
með 18:2 atkvæðum. Þeir, sem
greiddu atkvæði á móti, voru
Sveinn Jónsson á Egilstöðum og
Kristján Karlsson á Hólum.
í næstu blöðum Tímans verð-
ur sagt frá öðrum ályktunum
Búnaðarþings, sem ekki hefir
áður verið sagt frá.
Fylgízt með
Allir, sem fylgjast vilja með
almennum málum, verða að lesa
Tímann.
fr—~GAMLA BÍÓ-. — ..—■,
ENGINN ER ANN-
ARS RRÓÐIR
í LEIK
(Somewhere I’II Find You)
CLABK GABLE
LANA TURNER
Robert Sterling.
Sýnd kl. 5, 7 og 9. •
Bönnuð börnum innan 16 ára.
.— nýja eíó»—.
GÆÐINGIJRINN
GÓÐI
(„My Friend Flicka")
Mynd í eðlilegum litum,, gerð
eftir sögu O’Hara, er birtist i
styttri þýðingu í timaritinu Úr-
var. — Aðalhlutverk:
Roddy McDowall
Rita Johnson
Preston Forster.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
I----------------------I
BERNSKIJBREK
OG
ÆSKIJÞREK,
hin vlnsæla ævisaga
Wiiiston Churchills
; forsætisráðherra Breta,
fæst nú aftur í góðu bandi.
TJARNARBÍÓ
SAGAN AF
WASSEL LÆKM
(The Story of Dr. Wassell)
Cary Cooper,
Laraine Day.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð yngri en 14 ára.
SILFURDROTTNIN GIN
(The Silver Queen)
Priscilla Lane,
George Brent, Bruce Cabot. j
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð yngri en 12 ára. j
Sala hefst kl. 11
Ú R B Æ N U M
Samkóma.
Framsóknarfélögin héldu skemmti-
samkomu sl. föstudagskvöld í Sýn-
ingaskálanum, er hófst á hinni vin-
sælu Framsóknarvist. Meðal skemmti-
atriða var það, að Kjartan Ó Bjarna-
son sýndi Ijómandi fallegar kvikmynd-
ir, en Pálmi Hannesson útBkýrði þær.
Mátti segja, að sýning sú • öll væri
„andlaxn^sska”, þar sem sýnt var
margt það fegursta og sérkennilegasta
úr sveitum landsins, og frá Þórsmörk.
Sýningaskálinn var þéttskipaður og
varð að neita fjölda manns um að-
gang. Skemmtunin var öll hin á-
nægjulegasta.
Ekki er ennþá víst, hvort hús fæst
fyrir eina Framsóknarskemmtun enn
á vetrinum. En ef það fsést, verður
þess getið hér í bæjarfréttunum, en
sennilega ekki annars staðar.
Málverkasýning
Örlygs Sigurðssonar, sonar igurð-
ar Guðmundssonar skólameistara, var
opnuð í Hótel Heklu síðastl. laugar-
dag. Hafa þegar skoða^ sýninguna
mörg hundruð manns og. myndirnar
flestar seldar. Alls eru á sýningunni
40 málverk og milli 10” og 20 teikn-
ingar. Örlygur dvelur nú í Ameríku
við listnám og sendi hann myndirnar
hingað að vestan. Sýningin verður
opin 'alla þessa viku.
Sölvi Blöndal
hagfræðingur er nýkominn heim
frá Svíþjóð. Hann lauk þar hagfræði-
prófi fyrir nokkru, 'en vann að, því
seinustu mánúði að kýnna sér fyrir-
ætlanir Svía um ráðstafanir á sviði
atvinnu- og framleiðslumála að styrj-
öldinni lokinni. Skipulagsnefndin í
atvinnumálum hafði fengið hann til
þess starfs.
Flokkaglíma,
sem Glímuráð Reykjavíkur efndi til,
fór fram siðastl. laugardagskvöld. Úr-
slit urðu þau, að í þyngsta flokkf
sigraði Guðm. Ágústsson glímukong-
ur, hlaut 3 vinninga. í næstþyngsta
flokki vann Steinar Guðmundsson,
einnig úr Ármanni, hlaut 5 vinninga.
í næstléttasta flokki vann Sig. Hall-
björnsson úr Ármanni, hlaut 7 vinn-
inga og í léttasta flokki varð Stein-
grímur Jóhannesson úr Í.R. hlutskarp-
astur, hlaut 5 vinninga. Þetta er fjöl-
mennasta kappglima, sem lengi hefir
verið háð hér.
Umferðaslys
varð á Kópavogshálsi síðastl. föstu-
dag. Vildi það þannig til: Þrjár fisk-
flutningabifreiðar óku hver á eftir
annarri og lenti fyjsta bifreiðin, G 302,
út af veginum og valt tvær veltur
áður en hún stöðvaðist. Bifreiðin, sem
næst kom, G 71, var þá stöðvuð og
rakst þá þriðja bifreiðin, G 180, aftan
á Vörupall G 71 með þeim afleið-
ingum, að húsið lagðist saman og
meiddust tveir menn, sem 1 bifreið-
inni voru, mikið.
Viðgerðaverkstæðið Sylgja
hefir komið á stofn brýnsluvark-
stæði fyrir alls konar sagarblöð. Hefir
fyrirtækið fengið sérfróðann mann til
að annast vélarnar, en þær eru mjög
vandvirkar og nákvæmar. Eigandi
verkstæðisins er Baldvin Jónsson. Hef-
ir hann áður annazt viðgerðir ýmissa
smávéla, svo sem skrifstofuvéla. sauma
véla og bókbandsvéla.
Happdrætti
Norrænu hallarinnar.
Norrænafélagið hefír eins og áðúr
er sagt frá i blaðinu, efnt til happ-
drættis til ágóða fyrir byggingarsjóð
hinnar fyrirhuguðu norrænu hallar
við Þingvaliavatn. Eru vinningarnir
ársdvöl við háskóla á Norðurlöndum
og ferð fyrir tvo til allra höfuðborga
Norðurlanda Happdrættismiðarnir
fást í mörgum verzlunum og einnig
í skrifstofu Tímans.
Hitaveituspjöll.
Nýlega var brotizt inn í skiftistöð
hitaveitunnar í Öskjuhlíð og unnin
þar skemmdarverk. Var eyðilagður ör-
yggissíml, sem liggur upp að Reykjum
og gefur til kynna, þegar geymarnir
fyllast. Einnig voru brotnar rúður í
skúr þar skammt frá. Vegsummerki
sýndu, að þarna hefir útlendingur
verið á ferðinni í fylgd með íslenzk-
um kvenmanni.
Fjársöfnun skíðadagsráffs
gekk vel. Alls hafa safnazt á skíða-
deginum yfir 31 þús. krónur fyrir
merkjasölu. en þó eru tvö þús. kr. af
upphæðinni gjafir. Verður þessari fjár
hæð varið til að styrkja fátæk börn
til skíðaiðkana.
Affalfundur
U. M. F. Reykjavíkur
var haldinn síðastl. föstudag. For-
‘maður félagsins, Stefán Runólfsson
frá Hólmi, gaf skýrslu um störf þess
á liðnu starfsári. Um sextíu manns
hafa æft íþróttir á vegum félag6ins
á seinasta ári og efnt hefir verið til
stórfellds happdrættis í því skyni að
afla fjár til byggingar væntanlegs fé-
lagsheimilis.
Stjórn félagsins skipa: Stefán Run-
ólfsson frá Hólmi (endurkosinn), Helgi
Sæmundsson (endurkosinn), Kristín
Jónsdóttir (endurkosin), Daníel Ein-
arsson og Grímur Norðdahl.
Ný götunöfn.
Þessum götum og torgum á Mel-
unum hafa verlð gefin nöfn.
Gatan suður af Elliheimilinu horn-
rétt á Hringbraut heitir Furumelur.
Gatan sunnan Grenimels og samhliða
heitir Hagamelur. Gatan austan Furu-
mels milli Víðimels og Hagamels heitir
Espimelur. Gatan austan Espimels og
samhliða heitir Birkimelur og liggur
frá Hringbraut til suðvestúrs meðfram
torgi að austan er nefnist Melatorg
og endar_að sunnan í torgi, er gefið
hefir verið nafnið Hagatorg. Þá hefir
gata, sem liggur milli Lindargötu og
Sölvhólsgötu verið nefnd Skuggasund.
Sendiherrarnír . . .
(Framhald af 1. síðu)
varðandi stríðsyfirlýsingarmál-
ið og þjóðin ekki að þarflausu
leynd því, sem gerzt hefir, þótt
einhverjum myrkramönnum
kunni að vera það óhagkvæmt.
Það myndi kveða niður óþarfan
grun og kviksagnir, enda á þjóð-
in rétt á að fá fulla vitneskju
um annað eins stórmál og þetta.