Tíminn - 27.03.1945, Síða 1
s
KITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON.
ÚTGEFFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKJKURINN.
Símar 2353 og 4373.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITST J ÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9A.
Símar 2353 Og 4373.
AFGREIÐSLA, INNKEIMTA
OG AUGLÝSINGASKREFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A.
Sími 2323.
29. árg.
Reykjavík, þriðjndagiim 27. marz 1945
24. blað
„Stjórninni er alvara“ að
halda skruminu áíram
»
Furðuleg yfirlýsing um smíði 50 báta, en enn
r hefir ekkert verið undirbúið.
Ríkisstjórnin er ekki alveg hætt nýsköpunargumi sínu. Nýlega
hefir hún látið tilkynna, fyrst í Þjóðviljanum og síðan í útvarp-
inu og hinum stjórnarblöðunum, að hún hafi ákveðið að láta
smíða 50 vélbáta innanlands á 1—2 árum, 35 smál. og 55 smál.
að stærð. Við nánari athugun kemur svo i íjós, að raunverulega
er hér ekki um annað að ræða en að nýbyggingarráð er að leita
eftir því, hvort einstaklingar eða félög vilja kaupa slíka báta og
fer smíðin alveg eftir því, hvað margar slíkar umsóknir berast!
Aðaliundur Byggíng-
arsamvinnufélags
Reykjavíkur
Byggingarsamvinnufélag
Reykjavíkur hélt aðalfund
sinn 19. þ. m. Var þar ákveðið
að hefjast handa um nýbygg-
ingar í sumar og verður að
likindum byggt á lóðum, sem
félagið fær fyrir sunnan
Miklubraut.
Á fundinum flutti formaður
félagsins, Guðlaugur Rósin-
kranz, skýrslu um starfsemina
á liðna árinu, sem var með
minna móti, því þá höfðu ekki
neinir óskað eftir að byggja. Þá
flutti Þórif Baldvinsson húsa-
meistari fróðlegt erindi um nýj-
ungar í byggingu íbúðarhúsa.
Mikill áhugi rikti meðal fund-
armanna um nýbyggingar á
þessu ári og komu fram á fund-
inum umsóknir frá 30 manns,
er óskuðu eftir íbúðum í sumar.
Alls hafa nú borist 50 slíkar
umsóknir.
Gerði formaður félagsins grein
fyrir lóðum, sem fengjust, en
þær eru sunnan Miklubrautar
og ennfremur fyrir lánum. Lof-
að hefir verið ríkisábyrgð á lán-
um fyrir allt að 60% af bygging-
arkostnaði, er greiðist á 25 ár-
um.
Þá hefir verið hafizt handa
um útvegun byggingarefnis og
gerðar teikningar að væntanleg-
um íbúðum. Er kostnaðarverð
100 fermetra íbúða áætlað 112
þús. kr. og 116 þús. kr., eftir því,
hvernig húsin eru.
Stjórn félagsins var endur-
kosin, en hana skipa: Guðlaug-
ur Rósinkranz yfirkennari for-
maður, Elías Halldórsson skrif-
stofustjóri, Ólafur Jóhannesson
lögfræðingur, Vilhjálmur
Björnsson verzlunarmaður og
Guðmundur Gíslason bygginga-
meistari.
Hví stoínar Rvíkurbær ekki hlutafé-
lag um útgerð eins og aðrir bæir gera?
FRÆGIR HERSHÖFÐINGJAR
Bruni í Hafnarfírði
í gærmorgun um kl. 9 kvikn-
aði í trésmíðaverksmiðju Jó-
hannesar Reykdal í Hafnarfirði.
Hús þetta er stórt tvílyft stein-
hús. Kom eldurinn upp í þurrk-
klefa á annari hæð og varð
hæðin alelda á skammri stundu
og brann hún öll og þak hússins
féll niður. Vélar og annað, sem
var á þessari hæð, skemmdist
eða eyðilagðist í eldinum.Einnig
urðu miklar skemmdir af
vatni á vélum og efnivið á neðri
hæðinni.
Þegar slökkvilið Hafnarfjarð-
ar kom á vettvang var eldurinn
orðinn mjög magnaður. Slökkvi-
lið var einnig kvatt frá Reykja-
vík, en þegar það kom á stað-
inn var að mestu búið að ráða
niðurlögum eldsins.
Ókunnugt er um upptök elds-
ins, en málið er i rannsókn.
Þegar Þjóðviljinn sagði fyrst
frá þessu undir fyrirsögn, er
náði yfir alla forsíðuna, var ekki
hægt að álíta annað en að ríkis-
stjórnin væri búinn að full-
ganga frá þessu máli, búið væri
að útvega efni og vélar, semja
um smíði bátanna og yfirleitt að
gera annað það, er slíkar á-
kvarðanir þurfa að byggjast á.
Þegar svo forsætisráðherrann
segir frá þessu undir frekar lítið
áberandi fyrirsögn í Mbl. síðastl.
sunnudag, upplýsir hann eftir-
farandi:
Ekki hefir enn verið samið
um smíði bátanna og ekki er
fullvíst, hvort skipasmíðastöðv-
arnar geti annað þessu verki.
Ekki er búið að útvega efni í
bátana og ekki víst, hvernig það
muni ganga.
Ekki er búið að útvega vélar í
bátanna og ekki víst, hvort það
muni takast.
Ekkert ,er enn vitað um það,
hvað bátarnir muni kosta.
Engir bátar verða smíðaðir að
tilhlutun stjórnarinnar, nema
fyrirfram sé tryggt, að hægt
sé að selja þá einstaklingum eða
félögum.
í samræmi við þetta síðast-
nefnda auglýsir svo nýbygging-
arráð í sunnudagsblöðunum, að
ríkisstjórnin hafi að vísu ákveð-
ið að láta smíða þetta marga
báta, en „tilskilið sé, að ríkis-
stjórnin geti selt þessa báta éin-
staklingum, félögum eða stofn-
unum til reksturs“, og í sam-
ræmi við það auglýsir ráðið svo
eftir umsóknum um bátana. M.
ö. o. það fer alveg eftir því, hvað
margar öruggar umsóknir ber-
ast hvað margir bátar verða
smiðaðir, og ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um þessa 50 báta
er því alveg út í bláinn. Flestir
munu svo geta gert sér í hug
arlund, hvort umsækjendur
munu telja umsóknir sínar bind-
andi meðan ekkert er t. d. vit
að um verð bátanna, véla o. fl.
Hér hafa menn því enn á ný
fengið gott dæmi um starfs-
hætti stjórnarinnar, eins og
kommúnistar vilja hátta þeim.
Það er varpað fram hinum og
þessum tölum um ýmsa nýsköp-
un og þær kallaðar óhagganleg-
ar ákvarðanir, án þess þó að á
nokkurn hátt hafi verið tryggt,
að við þetta verði staðið. Með
þessu háttalagi er reynt að
halda við þeirri falstrú, að
stjórnin sé að vinna að ný
sköpun, enda notar Þjóðviljinn
umrætt tækifæri til að skrifa
forustugrein undir fyrirsögn-
inni: Stjórninni er alvara. Jú,
vissulega er stjórninni alvara að
halda áfram nýsköpunargumi
sínu, en annað fá menn heldur
ekki merkt af þessari óundir
búnu látalætis ákvörðun.
Hitt er svo annað mál, að allt
þarf að gera til að styrkja og efla
skipasmíðar innanlands. En
til þess þarf vissulega önnur og
haldkvæmari vinnubrögð en hér
eru viðhöfð og þó fyrst og fremst
að vinna bug á dýrtíðinni. Að
gerðir ríkisstjórnarinnar í því
máli eru vissulega ekki til þess
fallnar að efla skipasmíðaiðn
aðinn, eins og t. d. kauphækkun-
in hjá skipasmiðum hér og
víðar.
Hér á myndinni sjást, talið frá vinstri, Bradley hershöfðingi, sem er yfir-
stjórnandi 1., 3. og 7. Bandaríkjahersins á vesturvígstöðvunum, Montgo-
mery marskálkur, sem er yfirstjórnandi 9. ameríska hersins og herja Breta
og Kanadamanna, og Dempsey hershöfðingi, er stjórnar 2. brezka hernum
undir yfirumsjón Montgomerys. Montgomery er klœddur í peysu og með
kollhúfu á höfðinu, enda er hann oftast þannig búinn á vígstöðvunum.
For setak jörið:
Allir Slokkar styðja Svein
Björnsson nema komm-
únistar
Þeir treystast þó ekki til að liafa sérstakan
frambjóðamla.
Það er nú upplýst mál, að þrír stjórnmálaflokkar, Framsókn-
arflokkurinn, Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa
lýst yfir því, að þeir muni styðja Svein Björnsson í forsetakosn-
ingunni í vor, en fjórði flokkurinn, Kommúnistaflokkurinn, hefir
iýst yfir því, að hann muni ekki bjóða fram á móti Sveini.
Benda því allar líkur til þess, að Sveinn verði sjálfkjörinn, en
hann hefir nú lýst yfir því, að hann muni gefa kost á sér.
Forráðamenn Reykjavíkur alveg
sinnulansir nm efling'u
útgerðarinnar
Að undanförnu hefir staðið kátbrosleg deila milli Sjálfstæðis-
maniia og kommúnista í tilefni af kaupum Reykjavíkurbæjar
á Svíþjóðarbátum. Báðir þessir aðilar þykjast vilja láta kaupa
til bæjarins sem mest af þessum og 'öðrum veiðiskipum, en báðir
virðast hins vegar jafn áhugalausir fyrir því að skapa fjárhags-
grundvöll fyrir bátakaupin. Virðist þó t. d. liggja beint við, að
bæjarstjórn Reykjavíkur fylgdi í þessum efnum fordæmi þeirra
sveitar- og bæjarstjórna, sem gengizt hafa fyrir stofnun út-
gerðarhlutafélaga með almennri þátttöku manna í hlutaðeig-
andi sveitar- eða bæjarfélagi.
í sérstakri greinargerð, sem
Þjóðviljinn hefir birt um málið,
kemur það ljóst fram, að kom-
múnistar eru engan veginn á-
nægðir yfir því, að veita Sveini
Björnssyni þannig óbeinan
stuðning. Þar er því borið við,
að minni hætta stafi af forset-
anum nú en áður, þar sem kom-
ið hafi verið á þingræðisstjórn
í landinu. Ennfremur er sagt,
að engin fjöldasamtök hafi
skapazt um annan frambjóð-
anda.
Af þessum ummælum Þjóð-
viljans er ljóst, að kommúnistar
hefðu gjarnan viljað bjóða fram
gegn Sveini Björnssyni, og
sama hefir vafalaust vakað fyrir
þeim hluta Sjálfstæðisflokks-
ins, er kaus annað forsetaefni
eða skilaði auðum seðlum í for-
setakjörinu • 17. júní síðastl.
Þessi partur Sj álfstæðisflokksins
var reiður Sveini vegna þess, að
hann setti Ólaf Thors af og
myndaði utanþingsstjórn 1942,
og hugði því á hefndir, eins og
líka sýndi sig á Lögbergi. And-
úðin gegn þeirri framkomu
(Framhald á 8. síðu)
t DAG
birtist á þriðju síðu fyrri hluti
greinar um nokkur umbótamál
sjávarútvegsins eftir Kristján
Jónsson frá Garðsstöðum.
Ofan máls á 4. síðu er grein
eftir frú Laufeyju Vilhjálms-
dóttur um byggingu Hallveigar-
staða.
Minnmgarathöfn
um þau, sem fórust með e.s.
Dettifossi fer fram í Dómkirkj-
unni í Reykjavík í dag og hefst
kl. 2 e. h. Um leið fer fram út-
för þeirra Davíðs Gíslasonar,
stýrimanns, Jóns Bogasonar,
bryta og Jóhannesar Sigurðs-
sonar, búrmanns. Minningarat-
höfninni verður útvarpað.
Bær brennur
Prestsetrið að Torfastöðum í
Biskupstungum, Árness. brann
til kaldra kola aðfaranótt síð-
astliðins sunnudags. Þegar fólk-
ið í íbúðarhúsinu varð eldsins
fyrst vart, var fjósið, sem var í
útbyggingu frá íbúðarhúsinu,
brunnið til kaldra kola og grip-
irnir, sem þar voru inni, kafn-
aðir úr reyk. Eldurinn læsti sig
brátt í íbúðarhúsið, sem var úr
timbri og brann það á skammri
stundu, en miklu af húsbúnaði
varð þó bjargað. Milli fjóss og
íbúðarhúss var heyhlaða, sem
einnig brann til kaldra kola, en
nokkru af heyinu varð þó bjarg-
að. Ekki er vitað með vissu um
upptök eldsins. Tjón af eldinum
er mjög tilfinnanlegt og hefir
fólkinu verið skipt niður á bæ-
ina í nágrenninu til bráða-
birgða.
Fordæmi annarra
bæjar- og sveitafélaga
í sjóþorpum víða úti um land
hefir fyrir nokkru verið hafizt
handa um stofnun slíkra félaga,
t. d. á Reyðarfirði, á Eyrarbakka
og í Keflavík. Hafnafjarð-
arbær hefir nýlega samþykkt að
leggja fram eina milj. kr„ sem
hlutafé í slíkt félag, ef bæjar-
búar legðu jafnmikið á móti.
Akureyrarbær hefir og nýlega
ákveðið að gangaát fyrir stofn-
un slíks félags, en tillaga um
það var fyrst borin fram í Degi,
enda hafa Framsóknarmenn
víðast beitt sér fyrir slíkum
samtökum og þannig afsannað
mæta vel, hve óréttmætur er
sá áróður, að þeir séu andvígir
sjávarútveginum. — Mun Akur-
eyrarbær leggja fram 200 þús.
kr. í hlutafé, og Kaupfélag Ey-
firðinga mun hafa ákveðið að
leggja fram jafnháa upphæð.
Má gleggst af því marka, hve
mikilsvert það er'fyrir kauptún
og kaupstaði áð hafa eflt svo
kaupfélagsverzlunina, að hún
sé þess megnug að geta veitt
atvinnulífi þeirra mikinn styrk,
eins og K. E. A. gerir bæði hér og
á mörgum öðrum sviðum. Ætl-
unin mun, að önnur fyrirtæki
og einstaklingar leggi fram
jafnmikið hlutafé og Akureyr-
arbær og K. E. A. samanlagt eða
um 400 þús. kr.
Almennt útgerðar-
hlutafélag í Reykjjavík
Það leikur ekki á tveimur
tungum, að framtíð Reykjavík-
ur veltur fyrst og fremst á efl-
ingu útgerðarinnar. Það er og
jafn vafalítið, að fjöldi manna
myndi vafalaust vilja styðja að-
alatvinnuveg bæjarins, en telur
sig ekki hafa aðstöðu til þess,
eins og nú er ástatt. Með stofn-
un almenns útgerðarhlutafélags
myndi þeim verða þetta auð-
sótt. Ótrúlegt ætti það ekki
heldur að þykja, að hin mörgu
gróðafyrirtæki, sem hér hafa
risið upp seinustu árin, myndi
láta rífleg framlög af hendi
rakna til slíks félagsskapar.
Þá ætti bærinn að geta lagt
fram ríflegt framlag til slíks fé-
lagsskapar. Þótt hann setti sér
ekki hærra mark en að vera
hálfdrættingur á við Hafnar-
fjarðarbæ, miðað við fólks-
fjölda á báðum stöðunum, yrði
hér um tálsvert myndarlegt
framlag að ræða eða um 4 milj.
kr. Bæjarfélagí, sem jafnar nið-
ur útsvörum, er skipta mörgum
tugum milj. kr„ ætti vissulega
ekki að verða skotaskuld úr því,
að leggja þetta fé fram, ef sæmi-
legi væri stjórnað á öðrum svið-
um. Með jafnmiklu eða talsvert
meira framlagi frá borgurun-
um og einstökum fyrirtækjum,
myndi hér vera skapaður veru-
legur grundvöllur fyrir stór-
aukna útgerð. ^
Morgunblaðið skýrir öðru
hvoru frá því, að vel gangi að
safna fé til byggingar Sjálfstæð-
ishússins og Þjóðvlljinn segir,
að hlutafjársöfnuninni fyrir
prentsmiðju Sosíalistaflokksins
miði ágætlega. Allar líkur
benda þó til, að hlutafjársöfn-
un til eflingar útgerðinni í bæn-
um ætti að ganga mörgum sinn-
um betur. Þar ættu alllr að geta
lagzt á eitt. Undir góðri forystu
og með samstilltu átaki allra
flokka ætti vissulega að geta
náðst glæsilegur árangur.
Félagsstofnun, scm
ekki mií dragast.
Það, sem hér hefir verið nefnt,
styður þannig allt að því, að
Reykjavíkurbær ætti að fylgja
fordæmi margra annarra
sveita- og bæjarfélaga og hefj-
ast handa um stofnun útgerð-
arhlutafélags, er stofnað væri
með framlagi bæjarins og al-
mennri þátttöku borgaranna í
bænum. Því fyrr sem slíkt félag
er stofnað, verða líkurnar meiri
fyrir því, að veruleg framlög fá-
ist og framkvæmdir geta þá líka
hafizt fyrr. Hér er vissulega um
mál að ræða, sem bæjarfulltrú-
ar kommúnista og Sjálfstæðis-
manna ættu að sinna meira
heldur en því karpi,hvort frekar
skuli kaupa 10 eða 15 Sviþjóðar-
báta meðan ekki er tryggður
fj árhagsgrundvöllur fyrir kaup-
in. —
ÖUum mætti vera ljóst, að
sjávarútvegurinn hefir verið og
verður „lífæð Reykjavíkur“ (en
ekki Sjálfstæðisflokkurinn, eins
og Bjarni Ben. hefir haldið fram
og frægt er orðið!) Verði sjáv-
arútvegur Reykvíkinga ekki
aukinn og efldur, mun Reykja-
vík eiga dapurlega framtíð fyr-
ir höndum. Það er þvi vissulega
ískyggilegt, að forráðamenn
Reykjavíkurbæjar skuli vera
eftirbátar annarra með undir-
búning á þessu sviði og skuli enn
ekki hafa hafið neinn raunhæf-
an undirbúning að eflingu út-
gerðarinnar. Má gleggst á því
marka, hve heppilegt það muni
vera að hafa íhaldsmenn og
kommúnista fyrir helztu for-
ustuiienn og hve mikið er að
marka „nýsköpunar“-glamur
þeirra. Með því að herða kröf-
urnar um auknar aðgerðir bæj-
arvaldanna, ætti þó enn að vera
hægt að koma því til lei$ar, að
þeir hæfust handa fyrr en það
verður of seint og hagnýttu m.
a. það úrræði, sem hér hefir
verið bent á. En lengi má það
ekki dragast úr þessu.
TlMINN
kemur næst út seinni hluta
næstu viku.