Tíminn - 13.04.1945, Side 8
ÐAGSKRÁ er bezta íslenzha tímaritið um
þjóðf élagsmííl.
8
9
REYKJAVÍK
Þelr, sem viljja hynna sér þjóðfélagsmál9 im*-
Iend og útlend, þurfa að lesa Dagshrá.
13. APRÍL 1945
27. blað
fAMÁLL
9. apríl, mánudagur:
Königsberg tckin.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tilkynntu töku Königsberg. Þeir
tilkynntu einnig, að þeir væru
komnir inn í miðja Vínarborg.
Vesturvígstöðvarnar: Kan-
adamenn unnu á í Hollandi og
áttu eftir 15 km. í Zuidersee.
Bandamenn voru 5 km. frá
Hannover og 5 km. frá Bremen.
Eldar miklir loguðu í báðum
þessum borgum, en eigi er upp-
lýst um eldsupptök. Vörn Þjóð-
verja við Bremen var hin harð-
asta. Bandamenn þrengdu að
innikróaða hernum í Ruhrhéraði
og sóttu inn í Essen. Vasaor-
ustuskipinu Graf von Spee var
sökkt í loftárás á Kiel."
10. aprU, þriðjudagur:
Ilaimovcr tekin.
Vesturvígstöðvarnar: Banda-.
menn tóku Hannover, eina af |
stærstu borgum Þýzkalands.
Þeir voru 8 km. frá Braun-
schweig og 90 km. frá Hanjborg,
en þeir hafa byrjað sókn þang-
að. í Hollandi voru harðir bar_-
dagar og eins við Bremen. Á
miðvígstöðvunum fóru Banda-
menn inn í Erfurt og tóku
Nordhausen, sem er 195 km.
frá Berlín. Frakkar voru 15 km.
frá Stuttgart.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
höfðu náð % hlutum Vínar á
TÍHAMS V
vald sitt. Þeir sóttu fram fyrir
vestan Vín.
Ítalía: Bahdamenn hófu stór-
sókn þar og varð allmjög ágengt.
Bretland: Tilkynnt var, að
manntjón Breta í styrjöldinni
til febrúarloka væri 687 þús.
manns, þar af 216 þús. fallnir,
en hinir særðir, týndir eða tekn-
ir til fanga. Manntjþn alls
brezka sam'veldisins nam 1.023
þús., þar af 307 þðs. fallnir.
11. apríl, miðvikudagur:
Sótt til Elbe.
Vesturvígstöðvarnar: Banda-
menn tilkynntu, að þeir væru
komnir að Elbe 5 km. norður af
Magdeburg, en þaðan eru tæpir
100 km. til Berlínar. í Braun-
schweig var harizt af hörku.
Bandamenn sóttu fram hjá Er-
furt til Halle, sem er 25 km. frá
Leipzig. Bandamenn tóku Co-
burg, 80 km. frá landamærum
Tékkóslóvakíu. í Ruhrhéraðinu
Itóku þeir Essen og Bockum. í
Hollandi og við Bremen geisuðu
•harðir bardagar.
Austurvígstöðvarnar: Þjóð-
verjar héldu aðeins einu iðnað-
arhverfi í Vín, sem Rússar
höfðu umkringt. Rússar höfðu
sótt alllangt vestur fyrir borg-
ina.
Spánn: Spánska stjórnin sleit
stjórnmálasambandi við Japani,
vegna meðferðar þeirra á Spán-
verjum í löndum, sem Japanir
hafa hertekið.
..Aðalatvlnunvcgur
Breta“
(Framhald af 1. síðu)
til þeirra miklu framfara, sem
orðið hafa á sviði landbúnaðar-
íns í Bretlandi vegna styrjald-
arinnar, höfum við líka fyllstu
ástæðu til að .vona, að áætlanir
okkar um verulega aukningu
landbúnaðarframleiðslunnar frá
því, sem nú er geti staðizt.
Það er einnig önnur ástæða
fyrir því, að við þurfum að leggja
meiri áherzlu á það en áður, að
fullnægja matvælaþörf okkar.
Við höfum af fúsum vilja látið
af hendi innstæður okkar er-
lendis, en þær uku mjög á tekjur
landsins og hjálpuðu til þess að
viðhalda jafnvægi utanríkis-
viðskiptanna. Við eyddum þess-
um innstæðum, án þess að
hugsa okkur um, meðan við
börðumst einir undir fána frels-
isins. Eftir styrjöldina mun end-
urreisn og aukning útflutnings
okkar verða helzti og nauðsyn-
legasti þátturinn i velmegun
þjóðarinnar. Sérhver smálest
matvæla, framleiddra í landinu,
mun ekki einungis hjálpa til að
bætat það tjón, sem við urðum
fyrir með missi innstæðanna er-
lendis, heldur mun hún óbeint
auka kaupgetu okkar á erJ.
markaði, svo að við getum ekki
einungis keypt matvæli, heldur
einnig hráefni, sem eru aftur
frumskilyrði fyrir verzlun og
iðnframleiðslu.
Landbúnaðarmálin verðskulda
því að vera einn meginþáttur
viðreisnarstefnunnar eftir stríð-
ið. Landbúnaðar, sem byggist á
heilbrigðum og traustum grund-
velli, er einn veigamesti þátt-
urinn í þjóðlífi voru. Velmegun
landbúnaðar verður ekki síður
til hagsældar fyrir borgirnar en
sveitirnar, því að hann eykur
hgilbrigði og hreysti allrar þjóð-
arinnar, bæði andlega og líkam-
lega. Við verðum að skoða land-
búnaðinn sem aðalatvinnuveg
Bretlands (the first of British
índustries) og byggja upp alla
aðra atvinnuvegi okkar á þeim
grundvelli.“
Þessi ræða Churchills mætti
verða mörgum umhugsunarefní,
er gera lítið úr landbúnaðinum
hér, því að vissulega er margt
sameiginlegt með landbúnaði
okkar og Breta.
d .
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Vinnið ötullega fgrir
Tímann.
Laiidsbókasafiiið
fa»r ...
(Framhald af 1. síðu)
Bretar á seinustu árum gert
mikið að því að mynda þannig
mörg sinna dýrmætustu hand-
rita af ótta við það, að þau fær-
ust vegna loftárása.
Landsbókasafnið hefir nú
gert tilraun til þess að fá frá
Ameríku fullkomin tæki til að
microfilma handrit, en óvíst er,
hvort það tekst að svo stöddu.
Þessi tækni á eflaust mikla
framtíð fyrir sér hér á landi
eins og annars staðar. Útbúnað-
ur þessi gerir það kleift, að
maður, sem býr t. d. úti á landi,
getur með auðveldu móti lesið
og notfært sér dýrmæt handrit
heima hjá sér, þó þau séu geymd
í Reykjavík eða erlendis. Hand-
ritalán milli landa falla niður,
því að filmurnar koma fræði-
mönnum að sama gagni og
frumritin.
Yerzlnnarsamnliignr
gerðnr við Svía
(Framhald af 1. síðu)
Vilhjálmur frestaði hins vegar
skipun nefndarinnar, því að
hann var þá á förum úr stjórn-
inni. Núverandi stjórn virðist
eigi hafa verulegan áhuga fyrir
þessu máli, því að hún frestaði
skipun-nefndarinnar á þriðja
mánuð. Virðist hún ekki hafa
haft verulega trú á viðskiptum
við Svía, en reyndin hefir nú
sýnt, að þetta trúleysi hefir ekki
verið á rökum reist.
Ekkert hefir ríkisstjórnin enn
sagt um það, hvort Svíar fást til
að smíða fyrir okkur togara, en
Tíminn telur sig hafa ástæðu
til að ætla, eins og líka var sagt
frá í seinasta blaði, að þeir muni
fáanlegir til að smíða 15—25
slík skip. Hvers vegna heldur
stjórnin þessu leyndu? Eru stór-
útgerðarmennirnir eitthvað
tregir í „nýsköpuninni“ ?
IdLLÁ I i/A H 4:T»|
cmffriiJEÍ
Núðln
Vörumóttaka til Stykkis-
hólms árdegis á morgun.
Sundrungarsfarísemi
kommúnista í KRON
(Framhald af 1. síðu)
meira kappi en áður, að safna
óvirkum flokksmeðlimum sínum
inn í félagið. Sigfús Sigurhjart-
arson, sem á sæti í stjórn félags-
ins, tók að sér að veita þessari
starfsemi forstöðu, en flokkur-
inn lagði honum til fastan
starfí/.iann, Guðberg Kristins-
son, til að safna mönnum inn í
félagið. Munu nokkur hundruð
manna hafa gengið inn í félagið
frá áramótum og fram að deild-
arfundum fyrir atbeina þessarar
áróðursstarfsemi, og er þar und-
antekningarlítið um fólk að
ræða, sem er áhangandi kom-
múnistum. Söfnun þessari var
svo hugvitslega hagað, að aðal-
áhersla var lögð á að safna
mönnum inn í deildirnar, sem
kommúnistar töldu sig líkleg-
' asta til að vinna, og mátti á því
sjá, að hér var verið að hugsa
um annað meira en að auka við-
skiptin við félagið.
Á fyrsta deildarfundinum^
sem haldinn var, kom ásetning-
ur kommúnista líka fljótt í ljós.
Þar voru eingöngu kosnir einlit-
ir Moskvukommúnistar á aðal-
fundinn. Þetta varð til þess, að
hafinn var í næstu deild nokk-
ur viðbúnaður gegn þessum að-
förum kommúnista. Fóru því
leikar svo, að kommúnistar biðu
þar lægra hluta.
vJMeyðarkalIið“—
scnt út.
Theódór frá kosningu og kjósa
flokksbundna kommúnista í
þeira stað. Þeir hafa þá 'feng-
ið hreinan meirihluta í stjórn-
inni og geta ráðið öllu í félag-
inu, sem þeir vilja.
Það getur áreiðanlega hver
sagt sér það sjálfur, hvort það
sé gert til að auka „einingu“ í
félaginu að breyta styrkleika-
hlutföllunum í stjórninni frá
því, sem verið hefir, og í það
horf, að einn flokkur hafi þar
algeran meirihluta! Slíkt er
vissulega vissasti vegurinn til
sundrungar, en ekki einingar.
Á KRON nð vcrða
flokkstæki kom-
múnista?
Það sézt vissulega bezt af því,
sem hér hefir verið greint, að
fyrir kommúnistum vakir það
ekki að auka „einingu" í félag-
inu, þótt þeir nefni starfsemi
sína því nafni. í raun réttri er
hér um hina verstu sundrungar-
starfsemi að ræða, er ekki getur
leitt til nema ills eins. Markmið
hennar er bersýnilega að gera
KRON að einu af flokkstækjum
kommúnista eins og verkalýðs-
félögin eru þegar orðin. Og þessi
leikur verður áreiðanlega ekki
léikinn í KRON einu, heldur í
hverju kaupfélagi landsins, þar
sem kommúnistar fá þf/í við
komið.
Þegar hér var komið sögu,
greip kommúnista æði mikið og
það var þá, sem „neyðarkallinu"
fræga var útvarpað. Jafn-
framt var svo hafinn hinn ákaf-
asti áróður í Þjóðviljanum og
bar dregin upp sú mynd af
bessu, að vondir Framsóknar-
og Alþýðuflokksmenn væru að
eyðileggja „eininguna“ í Kron,
og nú yrðu allir kommúnistar
og aðrir „góðir samvinnumenn“
að gera sitt ítrasta til að slá
skjaldborg um „eininguna" þar!
Til sönnunar um vonsku Fram-
sóknarmanna og Alþýðuflokks-
manna í Kron, voru svo birtar
skammagreinar um kommún-
ista, er Jónas Jónsson hafði
skrifað fyrir löngu síðan, og
ekki höfðu þá eða síðar haft
minnstu áhrif á samstarfið í fé-
laginu! Annað var ekki hægt
að finna Framsóknarmönnum
og Alþýðlflokksmönnum í KRON
til óhelgis né sanna „sundrung-
arstarf" þeirra þar með öðrum
hætti!
Niðurstaðan af öllum þessum
„neyðarköllum" kommúnista
hefir svo orðið sú, að allmargir
kommúnistar, sem voru í félag-
inu, hafa smalað inn í það kon-
um sínum og börnum og hafa
um og yfir 100 slíkar inntöku-
beiðnir verið lagðar inn í hverri
deild sama daginn og deildar-
fundurinn var haldinn. Með
þessum aðförum hefir kómmún-
isturn tekizt að vinna kosning-
arnar í flestum deildum hingað
til.
„Einmgin“.
Menn munu geta fengið bezta
yfirsýn um raunverulegt eðli
þeirrar „einingar“, sem kom-
múnistar þykjast hér vera að
berjast fyrir, með því að athuga
skipun félagsstjórnarinnar. Hún
er skipuð níu mönnum, þrír eru
kommúnistar, tveir Alþýðu-
flokksmenn, tveir Framsóknar-
menn og tveir utanflokkamenn.
Virðist þessi skipun stjórnar-
inar vissulega hinn ákjósanleg-
aisti einingargrundvöllur, og
hlutur kommúnista hefir hér á-
reiðanlega ekki verið fyrir borð
borinn, ef miðað er við tölu fé-
lagsmanna og viðskipti þeirra
áður en „smalamennskan“
hófst.
Á aðalfundinum, sem nú
stendur fyrir dyrum,' eiga þrír
menn að ganga úr stjórninni,
Sveinbjörn Guðlaugsson, sem er
kommúnisti, Felix Guðmunds-
son, sem er Alþýðuflokksmaður,
og Theódór Líndal, sem er utan-
flokkamaður. Kommúnistar fara
ekki 'dult með það, að markmið
þeirra sé að fella þá Felix og
Samvinnumenn hafa oft á
undanförhum áratugum þurft
að verja félagsskap sinn gegn
árásum andstæðinga, er sótt
hafa að honum utan frá og hafá
þá líka komið til dyranna sem
hreinir andstæðingar. Við slíka
menn er gott að berjast. Hitt er
verra, þegar árásirnar eru gerð-
ar innan frá, og þeir, sem að
þeim standa, látast ‘ vera „vin-
ir“ og „velunnarar” samvinnu-
.hreyfingarinnar. Mörgum
mönnum- er þannig farið, aö
þeir vara sig ekki á slíkum and-
stæðingum. Hinar grímuklæddu
árásir innan frá hafa líka
reynst - mörgum félagsskap
hætfulegastar, eins og saga
verkalýðshreyfingarinnar sann-
ar bezt.
Það er gegn þvílíkri hættu,
sem allir sannir samvinnumenn
þurfa nú að berjast með sama
áhuga og kappi og forvígismenn
samvinnusamtakanna börðust
gegn andstæðingum sínum áður
fyrr. Samvinnumenn þurfa að
rísa sem einn maður gegn
sundrungarstarfsemi og ein-
ræðisbrölti kommúnista í KRON
og hverju því öðru samvinnufé-
lagi, þar sem á því bryddir. Það
verður að kveða niður þetta
háskalega tilræði gegn sam-
vinnuhreyfingunni og hindra á
allan hátt, að það verði til að
stöðva vöxt hennar og þroska.
Kommúnistum má aðeins einu
sinni takast að setja þann svip
á samvinnuhreyfinguna í Rvík,
að viðskipti hennar dragist stór-
lega saman á hinum mestu
veltutímum, vegna þess að meira
er hirt um að fjölga óvirkum
félagsmönnum en að auka við-
skiptin.
Þess vegna þurfa allir sam-
vinnumenn í Reykjavík að taka
nú höndum saman og kveða svo
rækilega niður sundrungarstarf
og einræðisbrölt kommúnista í
KRON, að þeir dirfist ekki að
halda þvi áfram. Það myr.di
verða óumræðilegur styrkur
fyrir samheldnina í KRON á
komandi árum og jafnframt
styrkur fyrir samvinnuhreyf-
ingi^a annars staðar, því að
kommúnistar þyrðu þá síður að
efna til sundrungar þar. Það
er enn tækifæri til að afstýra
tilræði kommúnista og það er
vel hægt, ef enginn liggur ú liði
sínu í þeim deildum, þar sem
enn er eftir að kjósa. Sérhver
sá, sem ekki vill láta KRON
verða flokkstæki kommúnísta
með tilheyrandi sundrungu og
hrörnandi viðskiptum, verður
að leggja lóð sitt á metaskál-
arnar til að afstýra því, að svo
verði.
GAMLA BÍÓf
Eyðimerkurævín-
týri TARZANS
(Tarzan’s Desert Mystery)
Aðalleikarar:
Johnny Weissmuller,
Nancy Kelly.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
f N Ý J A B í Ó f
JACK L0ND0N
Amerísk stórmynd, er sýnir
merka þætti úr ævi hins heims-
kunna rithöfundar,
Jack London.
Aðalhlutverkin leika:
Susan Hayward,
Michael O’Shea.
Bönnuð börnum yngri en 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
^-- »
BERNSKEBREK
OG
ÆSKUÞREK,
hin vinsæla ævisaga
Winston Churchills
forsætisráðherra Breta,
hefir nú verið send til
flestra bóksala á landinu.
Aðeins fá eintök eru til.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Kaupmaðurínn í F eneyjum
Gamanleikur í 5 þáttum, eftir William Shakespeare.
Sýning sunnndagskvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 á morgun.
ATHS. Ekki sva.rað í síma fyrr en eftir kl. 5.
Aðgangur bannaður fyrir börn.
TJARNARBIO
ÓBOÐNIR
GESTIR
(The Uninvited)
Dularfull og spennandi reim-
leikasaga.
Ray MiIIand,
Rpth Hussey,
Gail Russell.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Ú R B Æ N U M
Skemmtisamkoma.
Skemmtun Framsóknarmanna í Sýn-
ingaskálanum í kvöld hefst með Fram-
sóknarvist. Þeir, sem komnir eru í
spilasalinn kl. 8,30 fá sæti við spila-
borð, en óvíst um þá, er síðar koma.
Allir aðgöngumiðar voru upppantaðir
í-gærmorgun. Verða þeir að sækjast
á afgreiðslu Tímans fyrir kl. 4 í dag,
annars verða þeir seldir öðrum.
Frá Leikfélaginu.
Að gefnu tilefni vill stjórn Leikfé-
lagsins vekja athygli á þvi, að þýð-
ingarlaust er að hringja til einstakra
leikara eða stjórnarinnar til þess að
fá frátekna aðgöngumiða að sýningum
félagsins.
Ungmennafélag Reykjavíkur
heldur gestamót í samkomusal nýju
Mjólkurstöðvarinnar við Laugaveg, n.
k. laugardagskvöld kl. 9,30. Nokkrir
ungmennafélagar hafa æft gamanleik,
sem verður sýndur á samkomunni.
Gísli Kristjánsson svig- og
göngumeistari í. R.
Um seinustu helgi hélt íþróttafélag
Reykjavíkur innanfélags skíðamót að
Kolviðarhóli. í svigi karla bar Gísli
Kristjánsson sigur úr býtum á 107,7
sek. 2. Guðmundur Samúelsson á 115,4
sek. Skíðagöngu (tæpl. 7 km.) vann
Gísli Kristjánsson á 29 mín. og 17 sek.
2. Gunnar Hjaltason á 31:23,0 mín. í
stökki fullorðinna var Guðmundur
Samúelsson beztur og fékk 196.6 stig.
2. Magnús Björnsson 189,8 stig. í
svigi kvénna varð Sigrún Sigurðar-
dóttir hlutskörpust á 65,8 sek. Önnur
varð Guðmúnda Andrésdóttir á 77,6
sek. í stökki drengja varð hlutskarp-
astur Grímur Sveinsson með 202,5 stig.
2. Guðni Sigfússon með 200,5 stig.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
hélt aðalfund sinn nýlega. Var stjórn
félagsins og varastjórn öll endurkosin.
Stjórnin er þannig skipuð: Tómas Vig-
fússon formaður, Guðmundur Hall-
dórsson ritari, og Gissur Sigurðsson
gjaldkeri. Meðstjórnendur eru Einar
B. Kristjánsson og Ársæll Sigurðsson.
Endurskoðendur voru kjörnir Jón
Guðjónssoh og Torfi Hermannsson. —
Félagar í Trésmíðafélaginu eru nú um
400 að tölu. 35 húsasmíðanemendur
voru teknir í félagið á seinasta ári, en
í ár verða þeir a. m. k. 40.
Aðalfundur
slysavarnad. „Ingólfur“
var nýlega haldinn í V. R. Vonarstr.
4. Formaður deildarinnar Sigurbjörn
Einarsson dósent, gjaldkerinn Þor-
grimur Sigurðsson skipstj og Ársæll
Jónsson kafari, fluttu skýrslur um
störf deiidarinnar og hag. Tekjur
hennar urðu á síðastl. ári kr. 27.450,40
og afhenti deildin kr. 20, 587,80 til
Slysavarnáfél. íslands, en það er %
teknanna, eins og lög félagsins mæla
fyrir. í stjórn voru kosnir eftirtaldir
menn: Formaður sér Jakob Jónsson,
gjaldkeri ÞorgrSmur Sigurðþson og
meðstjórnendur Sæmundm- Ólafsson
stýrimaður, Ársæll Jónsson kafari og
Henry Hálfdánarson skrifstofustjóri.
Þeir Sigurbjörn Einarsson dósent og
Árni Árnason kaupmaður, sem fyrir
voru í stjórninni báðust undan endur-
kosningu.
Aðalfundur félags
ísl. tónlistarmanna
var nýlega haldinn í Reykjavík. Var
stjórn félagsins öll endurkosin, en
hana skipa: Árni Kristjánsson form.,
Hallgrímur Helgason ritari og Björn
Ólafsson gjaldkeri. Þá. var kosin rit-
nefnd blaðs tónlistamanna „Tónlistin",
og eru í henni Páll ísólfsson, Guðm.
Matthíasson, Árni Kristjánsson og
Hallgrímur Helgason, ritstjóri blaðs-
ins. Á fundinum gaf Páll ísólfsson
styrk sinn til ráðstöfunar úthlutunar-
nefndar félagsins.
Áheit á Strandakirkju:
Frá konu á Austurlandi kr. 10, frá
Austfirðingi kr. 5,00. frá N. N. kr. 7,00
og gamalt áheit frá konu í Strandas.
kr. 30,00.
Gestir í bænum. )
Davíð Jónsson hreppstjóri á Kroppi
í Eyjafirði. Sigurður J. Líndal, Lækja-
móti, Haraldur Kristinsson, Núpi,
Dýrafiröi, Karl Hjálmarsson kaupfé-
lagsstjóri Þórshöfn og Svavar Jó-
hannsson, sýsluskrifari, Patreksfirði.
Systrabrúðkaup.
Á páskadag voru gefin saman í
hjónaband að Bár i Flóa af sira Sig-
urði Pálssýni í Hraungerði Sigríður
Kristjánsdóttir og Kristján Finnboga-
son frá Hítardal. Ennfremur Ragna
Þorgerður Kristjánsdóttir og Ármann
Sigurðsson járnsmiður frá Stoksseyri.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
á Patreksfirði ungfrú Hulda Péturs-
dóttir og Svavar Jóhannsson sýslu-
skrifari. ,
Félag hljóðfærasala.
Þann 10. þ. m. var stofnað í Reykja-
vík Félag hljóðfærasala, og er til-
gangur félagsins að vernda réttindi
þeirra, sem um margra ára skeið hafa
verzlað með hljóðfæri og músikvörur
og hafa haft umboð fyrir merkustu
hljóðfæraverksmiðjur ýmissa landa.
Formaður félagsins var kosinn Stur-
laugur Jónsson stórkaupmaðm- og
meðstjómendur þau Helgi Hallgríms-
1 son og frú Anna Friðriksson.