Tíminn - 20.04.1945, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.04.1945, Blaðsíða 4
4 TÍMITCN, föstndagmn 20. apríl 1945 29. blað V i ð iamar mál Eftir P á 1 Zóphóníasson Enn eru komin sumarmál. Sumardagurijin fyrsti, þessi sér- stæði, íslen^d hátíðisdagur, er á morgun. Veturinn er liðinn, og sumarið fer í hönd. Veturinn þessi hefir verið hagstæður bændastéttinni. í orrustunni við hann hafa engir bændur særzt, allir hafa þeir borið hærri hlut. Sumpart kemur þetta af því, hve veturinn tók bændur mild- um höndum, en sumpart líka af því, að bændur voru betur brynjaðir fyrir orrustuna í haust en oft áður. En enn þarf undir- búningur bænda undir veturinn að batna, því að ekki er þess að vænta, að næstu vetur verði eins mjúkhentir á þeim og þessi var. En nú kemur blessað sumarið, og hvernig verður það? Og hvað færir það bændastéttinni? Þetta veit enginn, en líklega hefir þó sjaldan í sögu þessa lands verið eins mikil óvissa yfir afkomuskilyrffum bændanna á komandi sumri og nú er um þessi sumarmál. Gróður er nú að vísu kominn meiri en venju- lega á sumarmálum, og haldist tíðarfar líkt og það hefir verið, þá má vonast eftir því, að slátt- ur geti byrjað snemma og spretta orðið góð. Og yrði það, þá gæti það lengt heyskapar- tímann og aukið eftirtekjuna af starfi hvers einstaklings, sem við heyskapinn fæst. En verða þá vorverkin afstaðin, þegar slátturinn þarf að byrja? Á það hefir stundum og sums staðar viljað bresta, og það er óhætt að fullyrða, að árlega undanfar- in ár hafa bændur í heild átt minna, fóffurgildi í heyjunum aff haustnóttum en þurft hefði að vera, ef þeir hefffu byrjaff fyrr aff slá. Aldrei hefir litið eins ill'a út með að fá nauðsynlegan fólkskraft til að nytja jarðirn- ar og nú, og því getur verið hætt við, að grasið verði orðið sláttuhæft áður en vorverkun- um, sem gerast þurfa fyrir slátt- inn, er lokið. En vel að merkja: þurfi nú öll þessi verk, sem menn vilja koma frá áður en byrjað er að slá, að ljúkast áð- ur. Tún spretta oft misfljótt, og vit gæti verið í því að slá hluta af túninu áður en öll vorverkin væru afstaðin, og fara síðan aft- ur að sinna þeim og hætta slætti á meðan. Þetta hafa ein- staka menn gert, t. d. ekki rúið fé og rekið á fjall, fyrr en þeir hafa verið búnir að slá og hirða þann hluta túnsins er fyrst og bezt spratt. Og þeim hefir gef- izt það prýðilega. Þetta ættu bændur að athuga, ef svo vorar og sprettur sem nú lítur út fyrir. Samhliða því, sem útlit er fyr- ir, að erfitt verði að fá fólk til sveita, bæði í vor og sumar, er útlit fyrir, að aldrei hafi bænd- ur þurft að láta meira en nú af afurðum sínum til þess að greiða kaupið með. Veltur því á miklu, að eftirtekjan eftir hvern mann verði mikil. Bændur hafa sýnt einlægan og ákveðinn vilja til að reyna að tryggja það, að eftirtekjan geti orðið sem mest. Þeir hafa viljað fá vélar til þess að stækka túnin og auka vél- slæga landið verulega. Þeir hafa flutt inn fyrstu stórvirku beltis- dráttarvélarnar og jarðýturnar, og af þeim lærði ríkið að nota þá í sína þágu, t. d. við vega- gerð. Bændur hafa í nokkur undanfarin ár sýnt meiri vilja á því að umskapa jarðir sínar en nokkur önnur stétt í þjóðfé- laginu hefir sýnt á nýsköpun. En þeir hafa átt við mikla erf- iðleika að etja. Ekki hafa þeir fengið nema örlítinn hluta af þeim jarðvinnsluvélum, er þeir hafa beðið um. Og þó þeir hafi látið þær vélar, sem þeir hafa getað fengið, margar hverjar, vinna í vaktaskiptum meðan hægt hefir verið, hafa þeir af þessum ástæðum ekki getað gert nema hluta af þeirri nýrækt, sem þeir ætluöu sér að gera. Og erfiðleikarnir á nýræktinni hafa verið meiri. Áburð hefir vantað, og allar tilraunir til þess að skapa aðstöðu til þess að fara að vinna hann hér í landinu hafa verið drepnar af mönnum, sem mikið. tala um nýsköpun, en gera minna að henni í fram- kvæmd en bændur gera. Og enn hefir fræið, sem fengizt hefir, ekki verið sem heppilegast fyrir okkar staðhætti. Túnin hafa því stækkað minna en æskilegt hefði verið og bændur hefðu viljað. En nokkuð hefir þó allt- af miðað. Og árlega fjölgar þeím býlum í landinu, sem komast á það stig, að túnin verði það stór, að það borgi sig að nota á þau heyvinnuvélar. Vegna þessa fer þeim bændum fjölgandi, sem reyna að ná sér í þær. Með því vilja þeir auka afköstin eftir manninn, sem að heyskap geng- ur, og gera sér frekar mögulegt að halda bústofni sínum óskert- um. í ár hefir nærri sjötti hver bóndi beðiö um einhver stærri heyvinnutæki, og áttundi hver um sláttuvél. En það er nú eitthvað annað en að þeir fái það, sem þeir biðja um. Það er ekki helming- ur þeirra bænda, sem sláttuvél- ar hafa pantað, er fá þær. En á sama tíma, sem bændur fá ekki nema örlítinn hluta af þeim jarðyrkjuáhöldum, sem þá vanhagar um og þeim eru lífs- nauðsyn að fá, eigi þeir að geta gert slægjuland sitt véltækt og nægjanlega stórt, og ekki helm- ing af þeim heyvinnuvélum, sem þeir panta og biðja um að fá, þá er auglýsing eftir auglýsingu í blöðunum um það, að ríkis- stjórnin útvegi þeim, er vilji, báta og skip, en menn eru treg- ir að taka á móti. Og svo er sagt, að bændurnir vilji ekki taka þátt í nýsköpun stjórnarinnar, og þeir víttir fyrir. Jafnvel eins einlægir og ákveðnir jarðrækt- armenn og formaður Búnaðar- sambands Eyfirðinga, Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri Ræktunarfélags Norðurlands, er víttur fyrir þá stefnu, sem hann fylgir í þessum málum í búnað- arsambandinu, og talið, að hún ýti ekki nægilega undir „nýsköp- un“ bændanna. Er hægt að hugsa sér öllu meiri öfugmæli og öllu meiri ósvífni í garð bænda? í vetur sem leið var víða ódýr- ara að gefa fóðurbæti en hey. Miklar líkur eru til þess að eins jgeti þetta orðið næsta vetur. Lélegar engjar eiga alls ekki að nytjast af dýru kaupafólki í sumar. Það er of dýr heyskapur. En fá bændur þá fóðurbæti? Maís, sem þeir hefðu þurft að nota í vetur, er nú nýkominn, og orkar það ekki tvímælis og er auðsannað, hvenær sem vera skal, að ein af orsökunum til þess, að minni mjólk hefir verið á Reykjavíkurmarkaði í vetur en margir hafa óskað, er sú, að bændur fengu of lítinn fóður- bæti. Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið. En athugi bænd- ur í tíma að fá sér fóðurbæti eða eigi hann vísan að haust- nóttum, þá má víða halda bú- stofninum þó reytingsengjarnar séu ekki slegnar. En enginn skyldi á haustnóttum setja á ó- fenginn fóðurbæti, þó von væri um að fá hann síðar að vetrin- um. Engar lélegar reytings- engjar á að slá í sumar ,og geti bændur ekki í tíma tryggt sér fóðurbæti, þá er betra aff fækka bústofninum en heyja lélegu engjarnar. Enn bætist það á aðra óvissu um búskap bændanna, að eng- inn veit nú, svo kunnugt sé, orpið, sundur grafið af vatns- farvegum og sums staðar með lónum eða flóðum. Efst í Land- eyjum eru aurar miklir, sem myndazt hafa af framburði Markarfljóts og Þverár, sem renna sitt á hvað, ýmist til austurs eða vesturs. Tveir hreppar eru í Landeyj- um. Austur-Landeyjahreppur er fyrir austan Affall, en Vest- ur-Landeyjahreppur er fyrir vestan Affall. Flatarmál Land- ,eyja er ca. 40500 ha. (lík stærð og á öllum túnum landsins). í báðum hreppum Landeyja munu vera um 100 býli. Heyafli hefir verið þar 45—48 þús. heyhestar. Féanaður hefir verið þar 550 —600 nautgripir, 7500—8000 fjár og ca. 2500 hross. (Stuðst við nýjasta fasteignamat og bún- aðarskýrslur eftir 1940). Meðal- tal á býli verður sem næst: Heyafli 450—480 heyhestar, 5 —6 nautgripir, 75—80 kindur og ca. 25 hross, allt miðað við vordaga. Við það bætast lömb og folöld. Landeyjum fylgja engar af- réttir, verður því fénaður að ganga að mestu allt sumarið í heimahögum. Auk þess gengur margur fénaður úr Fljótshlíð í efri hluta I^andeyja. Land- eyjar eru því í örtröð af beitar- fénaði, kemur það verst niður á kúm og sauðfé, og svo auð- vitað á hrossunum á vetrum. Landið er sums staðar graslaust, rótnagað og útsparkað alla tíma ársins, enda eru þar stór svæði komin i flög með uppblæstri og sandfoki. Ræktun er þar víffa örffug vegna vatnaágangs og bleytu, því að landið er flatt og framræsla slæm. Landeyjar liggja vel við samgöngum, lofts- lag er hlýtt og milt, næturfrost eru mjög sjaldgæf, landið er jafnlent og grjótlaust. Væri land í Landeyjum vel með farið og hæfilega beitt, gæti það verið grösugt og vel fallið til rækt- unar, ef vatn hamlaði ekki. Fyrr á öldum hafa verið skóg- ar miklir efst í Landeyjum. Njáll á Bergþórshvoli og Gunnar á Hlíðarenda áttu skóg saman í Rauðuskriðum og ráku þar skógarhögg. Kolur ver'r.stjóri Hallgerðar að Hlíðarenda drap Svart, húskarl þeirra Bergþóru og Njáls á Bergþórshvoli, er hann vann að skógarhöggi í Rauðuskriðum. Nú eru Rauðu- skriður (Dímon) skóglaust svæði og landið þar í kring aurar ein- ir, sem vötnin hafa flætt yfir. Gerður hefir verið garður mik- ill milli Markarfljóts og Dímons, til þess að varna því, að vötnin renni fram á sandana og niður að byggðinni. Slík fyrirhleðsla á að koma fram yfir vatnafar- vegi alla leið upp til Fljótshlð- ar. Nokkurt hik hefir verið á þeim framkvæmdum um sinn, og veit ég eigi hvað því veldur. Heppnist þessi fyrirhleðsla sam- einar hún vötnin í einn farveg, þ. e. Þverá og Markarfljót, með Álum og Affalli, sem þar eru einnig og falla suður um Land- eyjar. Við það léttir vatnaá- gangi af Landeyjum, og er mikið við það unnið, en samt er eftir að ræsa fram nokkur svæði, sem mýrlend eru og vatnsfull. Verði vötnin sett í einn far- veg, koma upp víðáttumiklir vatnafarvegir og sandsvæði, er græða þarf upp, svo að frá þeim komi ekki sandfok og land- spjöll og mun það takast, ef vötnin verða ekki til fyrirstöðu. Framtíð og ræktun Landeyja byggist á, hvort vötnin verða beizluff og landiff ræst fram. Takist það, skapast mikil og góð búnaðarskilyrði í Landeyj- um, svo að þar getur myndast ein glæsilegasta sveit landsins. Búskaparlagi þar þarf að breyta. Landeyjar eru undir örtröð af beitarfénaði, sauðfé og hross- um. Sá fénaður pínir þar ár- lega af landinu yfir 5 milljónir fóðureininga. Það er meira en gróður þess þolir að missa að skaðlausu. Grasið gengur til þurrðar, landinu hrakar. — En hvað fæst aftur í staðinn? Kjöt, sem er dýrt að framleiða og of mikið af til neyzlu í landinu. Þessu verður að breyta. Það verður að fækka beitarfénaffi og minnka kjötframleiffslu, en auka ræktun og framleiðslu á jarffarávöxtum, mjólk og eggj- um. III. — Sem lognsléttuhaf hvílir Landeyjaþing og leggjast að fjallanna ströndum. Sem safírar greyptir í silfurhring um suðurátt hálfa ná Eyjarnar kring. En Þverá að vestan sér byltir í böndum að brotnum og sandorpnum löndum. E. B. Rangæingar eru margir hreyknir af fornri frægð, en ætli að fornaldarglorían verði til þess að bæta lífskjör bænd- hvaða verð bændur koma til með að fá fyrir þæb afurðir, sem heyið, sem þeir afla, á að um- setjast í. Enn hefir ríkisstjórn- in ekkert látið uppi um það, hvaða stefnu hún ætlar sér að fylgja í þeim málum. En eins og málum er nú komið, er það fyrst og fremst komið undir gerðum hennar, hvort verðið verður í samræmi við dýrtíðarkaupið eða ekki. Þetta allt hvað með öðru mun að einhverju leyti orsök þess, að síðari hluta vetrarins hafa boð- izt fleiri jarðir til kaups en dæmi eru til áður. Sýnir það, hver óhugur er í mönnum hvað búskapinn snertir. Og það er vorkunn eins og útlitið er. En hinu má þó aldrei gleyma, aff engin er sú atvinna til, sem þroskar manninn betur en land- búnaffur gerir, engin atvinna til, þar sem menn eru eins sjálfs síns herrar og í bóndastöðunni, og engin starfsgrein til, þar sem menn geta lifað eins á sínu og við búskapinn. Allt eru þetta viðurkennd og óumdeild sannindi, hjá öllum sem eitthvað þekkja til mál- anna. Á morgun er sumardagurinn fyrsti. Þá er mönnum óskað gleðilegs sumars hér á landi, og þess vil ég óska sveitafólkinu ís- lenzka. Ég vil vona, að betur rætist úr erfiðleikum þeim, er nú virðast vera framundan, en á horfLst. Hann hefir fyrr geng- ið upp með bakka, svo að útlitið hefir orðið ískyggilégt, og þó orðið lítið úr. Eins getur orðið enn. En þegar útlitið er orðið ljótt, þarf maðurinn, sem í ferð ætlar, að haga sér eftir því. Hann setzt ekki um kyrrt, sé ferðin nauðsynleg. 0§>.það gera bændurnir ekki yfirleitt. En þeir búa sig undir að mæta þeim hryðjum, sem úr bakkanum geta komið, og það er mín sum- arósk til allra, sem í sveitum búa, að þeim megi takast það. Geti þeir það, þá verður sum- arið þeim gleðilegt, því að mesta gleði hvers manns er að sigrast á erfiðleikunum, sem mæta hon- um. Síðasta vetrardag 1945. ORÐSENÐING tíl kaupenda Tímans. Ef kaupendur Tímans verffa fyrir vanskilum á blaffinu, eru þeir vinsamlega beffnir aff snúa sér STRAX til ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR, afgreiffslumanns, anna í Rangárvallasýslu á kom- andi tímum? Ég veit ekki, hvort lestur t. d. Njálu vekur fram- faraþrá, stórhug og sannan hér- aðsmetnað ungra manna, til þess að mynda félög og hrinda i framkvæmd velferðarmálum sveitanna, sem Njálssaga gerist mest í. Það er ekki nóg að lesa um hreystiverk Gunnars á Hlíð- arenda, vitsmuni Njáls á Berg- þórshvoli, góðmennsku. Hösk- uldar Hvítanesgoða,. undir- hyggju Marðar á Hofi, eða búra- hátt Oddkels 1 Kirkjubæ. End- urreisn Rangárvallasýslu bygg- ist á óeigingjörnum störfum, og manndómi líkum þeim, sem Kol- skeggur sýnir í fylgd við bróffur sinn og virffingu fyrir loforffum og lögum landsins. Eigin hags- munir líðandi stundar stang- ast víða við framtíðarvelferð komandi kynslóða. Það var gleðilegt að sjá áhuga íslendinga við atkvæðagreiðslu í sjálfstæðismáli lands og þjóð- ar liðið vor. Vonandi er, að allir landsmenn verði eins samhuga í því að vernda og rækta sveitir og önnur nytjalönd landsins, svo að þau fari ekki í auðn, af vanhugsuðum búnaðarháttum, eða af völdum náttúruaflanna, ef hægt er við að gera. Land- eyjar eru í hættu, nytjalönd þeirra eru undir ánauðaroki, vatnaágangs, sandfoks og of- beitar . Þar þarf því að taka upp skipulagsbundna landvörn, með fyrirhleðslu, takmörkun beitar og ræktun. Ríkið kostar rekstur jarð- ræktartilraunastöðvar á Sáms- stöðum i Fljótshlíð, þar eru gerðar vísindalegar jarðræktar- Á HVERJU lifa Reykvíkingar? Auð- vitað á ýmsu. Ókunnugir kynnu að geta sér þess tll, að flestir lifðu á fisk- veiðum, því að stórútgerðin í Reykja- vík hefir oft verið umsvifamikil og i margra munni. En fjarri fer því, að svo sé. Stærsta atvinnugrein Reyk- víkinga er iðnaður, þ. e. a. s. frá hon- um hafa fleiri Reykvíkingar lifsfram- færi sitt en nokkurri annari atvinnu- grein. Því miður eru ekki fyrir hendi nýjar tölur um atvinnuskiptingu Reyk- víkinga, en tölur frá aðal-manntalinu 2. desember 1940 eru nýkomnar frá Hagstofunni. Þær sýna atvinnuskipt- inguna í höfuðstaðnurn eins og hún var snemma á öðru ári styrjaldar- innar, nálega sjö mánuðum eftir komu brezka setuliðsins hingað. í REYKJAVÍK áttu þá heima 38196 manns. Þessum mannfjölda hefir Hag- stofan skipt í átta atvinnustéttir, og eru þá konur og börn og annað skyldu- lið talið í stétt með þeim, sem atvinn- una stunda. Koma þannig fram við hverja atvinnugrein, bæði þeir, sem að henni vinna og skyldulið þeirra. En nú er bezt að virða fyrir sér niður- stöðuna. L ANGF J ÖLMENN ASTIR eru þeir, sem af iðnaði lifa. Þeir eru rúml. 13 þúsundir talsiiis, meira en 34% af öll- um bæjarbúum. í þessum flokki er allt það fólk, sem hefir lífsframfæri sitt af fagvinnu (t. d. alls konar smíðum), svo og þeir, er að því vinna, að fram- leiða alls konar iðnaðarvörm-, án þess að hafa til þess iðnpróf. NÆST fjölmennastir eru þeir, sem á „samgöngum" lifa. Ekki vcit ég með vissu, hvaða störf eru talin í þessum flokki, en þykist þó vita, að það séu t. d. bifreiðastjórar, skipshafnir far- þega- og flutningaskipa, starfsfólk pósts og síma. En fjöldi þessa fólks er um 5800 eða um 15% af bæjarbúum. Á VERZLUN lifa rúmlega 5100 eða nokkuð yfir 13% bæjarbúa. í FJÓRÐA flokki eru þeir, sem lifa á „opinberri þjónustu." En í þeim flokki er talin, að sögn Hagstofunnar, „ýmiss konar opinber starfsemi, svo sem við heilbrigðismál, kennslumál, trúmál, listir og vísindi, umboðsstjórn, dómsmál o. fl.“ í þessum flokki eru sjálfsagt ekki taldir þeir opinbérir starfsmenn, sem vinna að verzlun og samgöngumálum. En á hinni opinberu þjónustu, eins og hún er þarna talin, lifa 10% af bæjarbúum. í FIMMTA flokki er fiskimannastétt bæjarins. í henni eru rúmlega 3500 manns eða rúmlega 9% af bæjarbúum. Þar fyrir neðan telst: „ÓSTARFANDI FÓLK" (um 8%), tilraunir, byggðar á jarðvegi, áburðarblöndun, sæði o. fl., sem Landeyingum og mörgum fleir- um er þörf á að kynnast. í Fljótshlíðinni er einnig skóg- ræktarstöð, sem mikið má læra af. — Það er skemmtilegt fyrir Landeyinga að hugsa til þess, að skáldjöfurinn Einar Benedikts- son skuli segja að Landeyjarnar séu „sem safírar greyptir í silfurhring". Þeim ætti að vera það metnaður og hvöt, að vernda gimsteininn, sem þeim hefir verið trúað fyrir. Sveitina þar sem þeir eru fæddir og upp- aldir, sveitina sem óðalsréttur þe;irra og Jframtíðarvonjir eru tengdar við. Hvað sér E. B. í Landeyjum, sem knýr hann til þess að líkja landi þeirra við demant? Þar er ólgandi Þverá og svartir sandar, þar eru aurar, moldarflög og sandfokssvæði, með tryppahóp- um og Landeyjafé. Að sönnu geta skepnurnar verið skemmti- legar og einnig landið, ef vel er að því búið. Ég býst við, að E. B. hafi séð lengra en almennt gerist. Honum hefir birzt sýn inni á huldum löndum ókominna tíma, þegar moldin er hætt að fjúka, búið er að binda vötnin, græða upp sandana, klæða aur- ana og Rauðuskriður birkikjarri. Þegar búið er að ræsa fram mýr- arnar, byggja býlin, rækta land- ið og skipta því í tún, garðlönd og akra, með skógarbeltum til skjóLs óg prýði. Þegar búskap- urinn er rekinn af frjálsu, glöðu og menntuðu bændafólki, sem elskar landið, gróður þess og (Framhald á 5. síöu) en það eru þeir, „sem lifa á eftirlaun- um, ellistyrk eða sveitarstyrk, svö og þeir, sem lifa á eignum sínum." „PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA" (8%), en í þessum flokki teljast „innanhúss- hjú“, svo og þeir, sem vinna við ræst- ingu og snyrtingu, veitingastörf, skemmtanir og þess háttar. í þessum flokki eru því -til dæmis vinnukonur og þjónustufólk 1 gistihúsum, matsöl- um og veitingahúsum. Á LANDBÚNAÐI lifa 1%% bæjar- búa. Eru það þeir, sem ræktað hafa bæjarlandið og ef til vill opinberir starfsmenn, sem að búnaðarmálum vinna. ÞETTA VAR fyrir rúmlega fjórum árúm. Síðan hefir bæjarbúum fjölgað um nokkrar þúsundir og auðvitað margur skipt um atvinnu. Ýmsir munu fara nærri um, í hvaða átt breyting- arnar hafa stefnt í aðalatriðum. En hér er um athyglisverðan fróðleik að ræða, sem sitthvað mætti út af leggja, þótt eigi verði það gert hér. Snúum nú að öðru efni. ÉG MAN ÞÁ TÍÐ, að Guðrún var algengasta kvenmannsnafn og Jón algengasta karlsmannsnafn hér á landi. Vera má, að þetta haldist enn, en þó efast ég um, að svo sé meðal yngstu kynslóðarinnar. Ég var rétt áðan að líta yfir nöfn fermingarbarna í Reykjavík einn sunnudag á þessu vori. Guðrúnar eru þar nokkuð margar eða sex alls. En níu fermingarstúlkur bera nafnið Erla, og eru þær flestar í hópnum, er svo heita. Jóns nafn er ekki áberandi í þessum hópi. Þarna koma fyrir ýms nöfn, sem lítt eða ekki tíðkuðust fyrir nokkrum áratug- um, svo sem Baldur, Birgir, Fjölnir, Haukur, Edda, Sjöfn, Auður, Hörður, Hulda, Viðar, Þór og fleira. Allt eru þetta vel íslenzk nöfn, og flest kunn úr íornum sögum, þótt sum hafi eigi verið notuð sem mannanöfn fyrr en nú. Ekki er ástæða til að amast við, að slík nöfn séu upp tekin, en geta verður þess, að sum forn nöfn eru erfið í beygingu, og hæfir að minnsta kosti ekki annað en að hverjum sé kennt að beygja sitt eigið nafn. ÖNNUR TEGUND mannanafna hef- ir þó einnig verið tekin upp á síðari árum. Það eru útlend nöfn eða nafn- skrípi, og er illt til þess að vita. Bezt kann ég við hin alþýðlegu nöfn, er hefð hafa hlotið í málinu og tungu- tömust eru. En þess ættu foreldrar fyrst og fremst að gæta að gefa ekki barni sínu nafn, sem því gæti þótt leiðinlegt að bera, þegar það kemst til vits og ára. — Ljúkum við svo þessu tali í dag. Heimamaður. Laxveiðin enn Sæmundur Stefánsson skrifar alllangt mál enn í Tímann vegna laxveiða. í fljótu bragði virðist það vera svar til mín, en þegar betur er aðgætt, snýr hann nær eingöngu geiri sínum að Árnesingum. En um þá sagði ég, að það væri spor í réttari átt hjá þeim að taka laxinn á 1—2 stöðum í Ölfusá, heldur en að leggja net og girðingar um alla ána allt í sjó út. Þetta sér nær hver maður, að er rétt og Sæmundur virðist á sama máli. Hitt er annað mál, ef Árnes- ingar misnota þessa aðferð. Verða þeir og Sæmundur þá að útkljá það sín á milli, og ekki sízt þar sem Sæmundur mun vera einn af aðalmönnum í fé- lagi manna, er hefir á leigu ár í ofanverðri Árnessýslu. Ég nenni ekki að vera að karpa við S. S., þar sem við er- um líka á sama máli í meginat- riðum, en það er að forðast sem mest netaveiði, helzt að afnema hana alveg. Höfuðatriðið fyrir mér í lax- veiðimálunum er að stórauka laxa stofninn 1 ánum með klaki og góðri meðferð ánna. Þó að með því móti kunni hér og hvar að hafast nokkru færri krón- ur upp úr ánum fáein fyrstu árin, þá mun það færa marg- faldan ágóða þegar stundir líða fram. V. G. tltbrciðlð Tímann!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.