Tíminn - 20.04.1945, Side 8

Tíminn - 20.04.1945, Side 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzka tímaritið um þjjóðfélagsmál. 8 REYKJAVÍK Þeir, sem vilfa kynna sér þjóðfélagsmál, inn« lend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá. 20. APRÍL 194S 29. blað ? AMALL TIMAWS 16. apríl, mánudagur: Kari/.t í Niiruberg. Vesturvígstöðvarnar: Sjöundi Bandaríkjaherinn fór ' inn í Niirnberg. Hersveitir úr þriðja hernum sóttu allt að tékknesku landamærunum austur af Hof. Hersveitir úr sama her voru 8 km. frá Leipzig og 40 km. frá Dresden. Barizt var harðlega á Elbevígstöðvunum. Austurvígstöðvarnar: Þjóð- verjar tilkynntu, ' að Rússar hefðu hafið mikla sókn á Kust- rinvígstöðvunum og náð þar landssvæði vestan Oder. Rússar sögðu hins vegar ekkert frá þessu. Bandaríkin: Truman ávarpaði báðar deildir Bandaríkjaþings ■ og lýsti yfir því, að hann myndi gera sitt ýtrasta til að fylgja fram stefnu Roosevelts forseta.! 17. apríl, þriðjudagur: Leipzig uiiikrmgd. Vesturvígstöðvarnar: Bánda- menn tilkynntu, að Leipzig væri umkringd, barizt væri í Nurn- berg og Halle og í úthverfum Chemnits. Hafin var lokaárásin á Magdeburg. Harðar orrustur geisuðu austan Elbe. Banda- menn unnu á í Hollandi og við Bremen. Framsveitir Breta voru 30 'km. frá Hamborg. — Til- kynnt var, að Model hershöfð- ingi, sem stjórnaði vörninni í Ruhr, hefði fyrirfarið sér. AustUr vígstöðvar nar: Þ j óð- verjar sögðu, að Rússar hefðu hafið nýja sókn til Berlín og farið yfir Neisseána. Rússar sögðu ekkert frá þessu, en skýrðu frá framsókn í Austur- ríki. Bretland: Skýrt var frá auk- inni kafbátasókn Þjóðverja við Bretland. «, 18. aprfl, miðvikudagur: Magdeburg tekin. Vesturvígstöðvarnar: Banda- menn tóku Magdeburg. Barizt var ákaft á Elbevígstöðvunum. Bretar tóku Lúneburg og áttu eftir 25 km. til Hamborgar. Kanadamenn hafa sótt til Suid- ersee á þremur stöðum og voru 30 km. frá Amsterdam. Banda- menn hafa tekið Halle og Leip- zig að mestu. í Núrnberg voru harðir götubardagar. Austurvígstöðvarnar: Þjóð- verjar sögðu frá harðri sókn Rússa vestan Oder og Neisse á Berlínarvígstöðvunum, en Rúss- ar minntust ekki á hana. Rúss- ar tilkynntu, að þeir væru 15 km. frá Brunn i Tékkóslóvakíu. Ítalía: Sókn Bandamanna á ítalu miðaði vel áfram. Þeir voru fáa km. fi*á Bologna. Ú R B Æ N U M Vorhátíð norrænufélaganna. í kvöld gangast norrænu félögin í Reykjavík fyrir vorhátíð að Hótel Borg. Félögin sem standa fyrir sam- komunni eru: Norrænafélagið, Færey- ingafélagið, ísl.-sænska félagið Sví- þjóð, Nordmannslaget, félag frjálsra Dana á íslandi og Dansk-íslenzka fé- lagið og félagið „Dannebrog". Sendi- herrar og ræðismenn Norðurlandanna munu tala á samkomunni. Kammermusik verður í Menntaskólanum kl. 6 síð- degis á morgun. Eru það fyrstu hljóm- leikar af þremur, sem áformaö er að halda. Verður á þessum hljómleikum flutt eitt af höfuðverkum Bachs í Kunster Fuga. Verkið var samið 1749, en aldrei lokið við það til fulls. Verkið verður allmikið stytt í flutningnum. Það er strokhljómsveit dr. Viktors von Urbantschitchs sem flytur verkið, Sig- ríður Björnsdóttir leikur á Cembalo, en Páll ísólfsson skýrir verkið áður en hljómleikarnir hefjast. Arngrimur Kristjánsson skólastjóri dvelur nú í Englandi og kynnir sér þar skipan skólamála. Norsk Tiden í London birti viðtal við Arngrím, þar sem hann segir frá ís- lenzkum skólamálum og söfnun is- lenzkra barna til erlendra. Drengur brennist af vitissóda.' Fyrir nokkrum dögum vildi það slys til í Reykjavík, að 10 ára gamall drengur brenndist mikið á vítissóda. Var hann að leika sér i þvottahúsi með öðrum dreng, er slysið varð. Alvar- legust eru brunasárin í augunum og í kringum þau. íþróttahús háskólans verður reist sunnan og vestan á há- skólalóðinni, hliðstætt hinu væntan- lega þjóðminjasafni. Ráðgert er, að bygging íþróttahússins hefjist í næsta mánuöi. Byggður verður fullkominn leikfimissalur með tilheyrandi böðum karla og kvenna, herbergi fyrir um- sjónarmann og kennara og áhalda- geymsla. Komið hefir til orða að byggð verði seinna sundlaug, tennis- og badmintonsalur. — Gísli Halldórsson og Sigvaldi Thordarson hafa gert teikningar að húsinu. Hlutafélagið „Grózka“ er nú að undirbúa aukna ræktun í Laugarási og hyggst að láta byggja a. m. k. eitt gróðurhús í viðbót við þau, sem eru þar fyrir. í þessu skyni hefir verið ákveðið að auka hlutafé félags- ins nokkuð og hafa félagar i náttúru- lækningafélaginu forgangsrétt að kaupunum, enda afurðirnar aðallega ætlaðar félagsfólki,. og þá hluthöfun- um sjálfum. — Áhugi er mikill meðal félagsmanna um þessar framkvæmdir. Fjáreigendafélag Reykjavíkur hélt aðalfund sinn nýlega. Stjórnin gaf skýrslu um störf félagsins á liðnu ári bg gerði grein fyrir fjárhagsaf- komu. — í stjórn félagsins voru kosn- ir: Formaður Sigurður Gislason lög- regluþjónn, endurkösinn, ritari Christ- ian Zimsen. lyfjafræðingur, gjaldkeri 1 Sólmundur Einarsson og meðstjórn- endur þeir Gestur Guðmundsson, Reykjahlið' og Karl Ágústsson, Lauga- læk. —' Varastjórn: Varaformaður Hjörleifur Guðbrandsson, Grettisgötu ■20, ritari Ragnar Þ. Jónsson, Bústöð- um, gjaldkeri Ti-yggvi Guðbrandsson, ráðsmaður við Kleppsbúið. — Endur- skoðendurStefán Thorarensen, lög- regluþjónn og Daníel Kristinsson, Út- j skálum við Suðurlandsbraut. j Leikfélag Reykjavíkur sýnir næstkomandi sunnudagskvöld kl. 8 „Kaupmanninn í Feneyjum" eft- ir William Shakespeare. Þessi vinsæli gamanleikur verður sýndur' nokkrum sinnum ennþá. Trúlofun. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, Lambalæk, Fljótshlið og Albert Guð- mundsson, Nesjum, Miðnesi. | Trúlofun. j Nýlega hafa opinberað trúlofun sína j ungfrú Kristbjörg Jónsdóttir, Yzta- ! Felli, Þingeyjars. og Ingolf Kristjáns- son, Háaleitisv. 24. I i Á Arnarhól er þessa dagana verið að vinna að því að fylla upp gryfjur og laga til á túninu. Trúlofun. Nýlega opinberuðu trúlofun sína ungfrú Guðrún Jónsdóttir, Suðurgötu 92, Akranesi og Sveinn Benediktsson, Skuld, Akranesi. ! Hjónaband. j Nýlega voru gefin saman i hjóna- j band hjá borgardómara ungfrú Katrín j Ólafsdóttir (Ketilssonar, prests í Hvíta- nesi) og stud. juris Árni Garðar Krist- insson (Ásgrímssonar, járnsmiðs í Hrísey). Afmæli Stefán Jónsson, Öndólfsstöð- um í Reykjadal, verður 85 ára 22. þ. m. Þessa merka manns verður nánar getið hér í blað- inu síðar. Fjölmenn jarðarför Jarðarför Kristjáns Ólafsson- ar bónda að Seljalandi fór fram í fyrradag (síðasta vetrardag), að viðstöddu óvenjulegu fjöl- menni. Við húskveðjuna fluttu ræður þeir séra Jón Guðjóns- son prestur að Holti og séra Sveinbjörn Högnason, prestur að Breiðabólsstað. Þeir fluttu einn- ig báðir ræður í kirkju. Vígður var heimagrafreitur að Selja- landi og var jarðað þar. Minningargrein um þennan stórmerka mann birtist í næsta blaði. (Jm ¥Íða vcrold Launakjör bænda í Bandaríkjunum. Árið 1939 voru bújarðir í Bandaríkjunum taldar 6.096.799, en af þeim voru 5.968.755 taldar í ábúð. Meðalframleiðsla á bú- jörð, sem var talin í ábúð, nam 1.309 dollurum. Á 4.600.000 bú- jörðum nam andvirði fram- leiðslunar innan við 1500 doll- ara. Á aðeins 58 þús. bújörðum var andvirði framleiðslunnar 10 þús. dollarar eða meira. Á 166 þús. jörðum nam andvirði framleiðslunnar frá 4—6 þús. dollurum og á 89 þús. jörðum frá 6^—10 þús. dollurum. Á þessum tíma var afkoma bænda bezt í vestur- og norð- vesturríkjunum, en verst í suð- urríkjunum. Síðan styrjöldin hófst, hafa framleiðslutekjurnar mikið auk- ist, en almennt er búizt við, að þær lækki aftur eftir stríðið, nema komið verði á stóraukinni vélanotkun. Tillögur jafnaðarmanna um alþjóðasamvinnu. Jafnaðarmannaflokkarnir í Bretlandi, Frakklandi, Belgíu, HoIIandi. Ítalíu, Noregi, Tékkó- slóvakíu, Póllandi, Spáni og Palestínu hafa nýlega birt eins- konar stefnuyfirlýsingu í al- þjóðamálum í sambandi við hina r fyrirhuguðu ráðstefnu í San Francisco. Efni hennar fjallar um alþjóðlegt eftirlit með hergagnaframleiðslu, al- þjóðqrlögreglu og alþjóðlega yf- irstjórn fjárhags- og atvinnu- mála. Þá er lagt til, að sérhvert ríki í hinu nýja þjóðabandalagi v'erði að hafa viss ákvæði um skyldur og réttindi' í stjórnar- skrá sinni. Lagt er á móti því, að einstakt stórveldi geti haft synjunarrétt í nýja þjóðabanda- laginu, eins og ákveðið var á Krímarfundinum. Aukin skógrækt í Bretlandi. Bretar hafa fyrir nokkru gengið frá 50 ára áætlun um aukna skógrækt í Bretlandi. Skóglendi þar er nú talið um 3 milj. ekra,.en ætlazt er til að það nái yfir 5 milj. ekra. Mun verða dregið úr sauðfjárrækt á nokkrum stöðum, svo að hægt verði að auka skóglendið. Þykir líklegt, að skógræktin muni veita fleiri mönnum atvinnu en sáuðfjárræktin. Auk þess mun hún spara stórum meira skips- rúm. Telja Bretar, að slíkt geti komið sér vel á styrjaldartím- anum, enda mun hin fyrirhug- aða aukning skógræktarinnar miðuð við það m. a., að Bretar geti sjálfir framleitt meira timbur undir slíkum kringum- stæðum en verið hefir til þessa. Kostnaðurinn við þessar auknu skógræktarframkvæmdir Breta, er áætlaður 41 milj. sterl.pd. fyrstu 10 árin. Framkv. á Akranesi (Framhald af 1. siðu) — Hvernig hefir vertíðin ver- ið það sem af er? — Hún var ágæt fram til 15. febr., en síðan hafa yfirleitt ver- ið stirðar gæftir og lítill afli. Nú er því orðið örðugt að halda fólkinu við framleiðsluna, vegna þess að eftirspurnin er mikil eftir vinnukrafti og kaupið hjá sjómönnum er tæplega eins mikið og í landi, nema þegar mikill afli er. Útkoman hlýtur því að verða sú, að bátarnir hætta veiðum, og eru nú þegar 2 bátar hættir og búizt við að fleiri hætti innan skamms. Hæstu hlutir á Akranesi munu þó vera orðnir svipaðir og í fyrra. — Hverjar eru helztu fram- kvæmdir á seinasta ári? Á síðastl. vori var opnuð sund- laug, sem bæjarbúar höfðu byggt, og var hún gefin bænum. Sundlaugin heitir Bjarnalaug, eftir Bjarna heitnum Ólafssyni skipstjóra. Mikið af fé því, sem gefið var til byggingarinnar, var gefið til minningar um hann. Laugin ær hituð upp með kæli- vatni frá rafstöðinni. Nú er verið að byggja verka- mannabústaði á Akrapesi, og er fólk flutt í 6 íbúðir, en alls er áformað að húsin verði 10 með 20 íbúðum. Nýr viti var byggður á Flös- inni, en ljósaútbúnaður hefir ekki fengizt í hann ennþá. Fyrir nokkru er lokið við bygg- ingu á stóru og vöndúðu í- þróttahúsi, sem er skammt frá sundlauginni. Gólfflötur húss- ins er 13X24 metrar og leiksvið 13X6 metrar. íþróttafélögin á Akranesi byggðu húsið og mun það kosta um 300 þús. kr. Hraðfrystihús, stórt og vand- að, tók til starfa á Akranesi í febr. síðastl. Mun það geta hrað- fryst um 20 smál. fiskflaka á sólarhring. Húsið stendur á góð- um stað við höfnina. Það er eign Heimaskaga h.f.. Hrað- frysting er að verða mikil at- vinnugrein á Akranesi, en raf- magnsleysi gerir þó allan iðnað hér erfiðan. Á döfinni er sjúkrahússbygg- ing yfir 20 sjúklinga. Verður væntanlega byrjað á bygging- unni í sumar. — Stunda Akurnesingar mik- ið landbúnað? — Jú, hér hefir lengi verið stundaður landbúnaður öðrum þræði. Mikið og gott ræktunar- land er í nágrenni bæjarins. Annars eru vaxandi erfiðleikar fyrir bæjarbúa að stunda land- búnað. Beztu garðalöndin hverfa nú óðum undir húsabyggingar. — Er mikill áhugi fyrir raf- magnsmálunum? — Já, Akraneskaupstaður hefir bundizt félagsskap við Borgarfjarðar- og Mýrasýslu og Borgarneshrepp um . virkjun Andakílsár. Vinna við þáð er að hefjast og er það Almenna byggingarfélagið í Reykjavri^ sem hefir tekið verkið að sér. Vélar til virkjunarinnar verða fengnar frá Svíþjóð, og ef allt gengur að óskum ætti rafmagn frá virkjuninni að vera komið hingað eftir eitt og hálft ár eða svo. Orka stöðvarinnar er áætl- uð um 5000 hestöfl og ætti Akra- nes að geta fengið rafmagn til ljósa, suðu og iðnaðar, og jafn- vel eitthvað til upphitunar. í fyrstu verða settar upp tvær vélasamstæður, en síðar er hægt að auka orku stöðvarinnar um helming. Skníull stækkaður (Framhald af 1. síðu) er hinn mesti smekkmaður á allan frágang. Eigandi og ritstjóri Skutuls er Hannibal Valdimarsson skóla- stjóri. l^aðið fylgir Alþýðu- flokknum að málum, en ritstjór- inn virðist þó óragur við að halda fram eigin skoðun sinni, ef því er að skipta. Virðist hann yfirleitt eiga meira sameiginlegt méð jafnaðarmönnum á Norð- urlöndum og í Bretlandi en margir foringjar Alþýðuflokks- ins hér syðra. Er ekki ósenni- legt, að það geti skapað Skutli nokkra sérstöðu meðal blaða- kos.ts Alþýðuflokksins. Þegar Fjölnir fórst (Framhald af 1. síðu) um, komu sér því vel fyrir þá. Þegar í land kom, var skip- brotsmönnum tekið tveim hönd- um, og fengu þeir föt og góða aðhlynningu á sjómannaheim- ilinu í Londonderry, en þaðan var haldið samdægurs til Fleet- wood. Jón Sigurðsson skipstjóri bað blaðið sérstaklega að geta um hinar ágætu viðtökur, sem skip- brotsmennirnir fengu, er þeir komu í land á írlandi. G A M L A B í Ó * * N Ý J MORDSÉRFRÆÐ- IJVGFRIjMV (Kid Glove Killer) Spennandi amerísk leynilög- reglumynd. Van Heflin, Marsha Hunt, Lee Bowmann. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 12 ára. * RERNSKXJRRFK OG ÆSKUÞREK, hin vinsæla ævisaga Winston Chnrchills forsætisráðherra Breta, hefir nú verið send til flestra bóksala á landinu. AÖeins fá eintök eru til. í ó DROTTNDÍG RORGARIXNAR („The Woman of the Town“) Tilkomumikil og spennandi mynd. Aðalhlutverkin leika: Claire Trevor, Albert Dekkar, Barry Sullivan. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 12 ára. TJARNABBÍÓÍ* ATLAATS ÁLAR (Western Approaches) Kvikmynd í eðlilegum litum um þátt kaupskipa í orrustunni um Atlantshafið, Ieikin af brezkum farmönnum. ' Aukamynd: Norsk mynd frá Jan Mayen Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 12 ára. LEIKFELAG REYKJAVIKUR Kaupmaðurínn í Feneyjum Gamanleikur í 5 þáttum, eftir William Shakespeare. Sýning' á suimudagskvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir á morgun (laugardag) frá kl. 4—7. ATHS. Ekki svarað í síma fyrr en eftir kl. 4yz. Aðgangur bannaður fyrir börn. SKUTULL á ísafirði hefir nýlega stækkað, svo að blaðið flytur nú tvöfalt meira éfni en áður. Jafnframt hafa verið gerðar þær breytingar á blaðinu, að það flytur miklu fjölbreyttara efni en áður og við hæfi lesenda hvar sem ér á landinu. Blaðið leggur sérstaka áherzlu á að fylgjast vel með því, sem gerist á hverjum tíma og hefir í því skyni tryggt sér aðstoð manna í Reykjavík. Blaðið flytur ýtarlegar fréttir af Vestfjörðum, og er því nauðsynlegt öllum Vestfirðingum. Flugsamgöngur við Vestfirði tryggja að blaðið kemst reglulega og fljótt til kaupenda hvar sem er á land- inu. Skutull hefir komið út í 22 ár og jafnan getið sér orð fyrir einarðlegan málflutning. SKLTLLL á ermdi til allra iaiidsiuaiiiia. Hringið í síma 5020 og gerizt áskrifendur að Skutli. Myndasýning Síðastl. föstudag var opnuð í Hótel Heklu sýning á myndum,1 er listmálararnir Gunnlaugur Scheving, Snorri Arinbjarnar og Þorvaldur Skúlason hafa gert af atburðum úr Njálu. Hefir Gunnlaugur Scheving gert 24 myndir, Þorvaldur Skúlason 24 og Snorri Arinbjarnar 23. Sýningin mun verða opin í 10 daga. Myndir þessar verða í hinni nýju útgáfu Helgafells af Njálssögu, sem Halldór Kiljan Laxness annast um. Verður það fyrsta útgáfa fornritanna með myndum eftir íslenzka lista- menn. Ágóðinn af sýningunni mun renna til Tónlistarhallarinnar. Listamennirnir hafa og gefið henni frummyndirnar. 4- Bækur Menníngarsj. Nýlega komu út á forlagi Menningarsjóðs tvær nýjar bækur: Ljóðmæli Hannesar Hafsteins í útgáfu Vilhjálms Þ. Gleðilegt sumar! Þorsteinn Finnbogason Gullsmiður, Vitastíg 14. Gleðilegt sumar! Liverpool Gíslasonar og ritar hann all- langan formála fyrir bókinni, — og fjórða og síðasta bindi skáldsögunnar „Anna Karen- ina“, eftir Tolstoj, í þýSingu Karls ísfelds. Báðar þessar bækur heyra undir útgáfubækur Menningar- sjóðs 1944, en afgreiðsla þeirra tafðist vegna prentaraverkfalls- ins.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.