Tíminn - 24.04.1945, Síða 7
30. blaðf
TÍMEVN, liriðjutlaglim 34. apríl 1945
7
Höíðingleg
dánargjöí
Hinn 5. febr. s.l. andaðist á
Kristneshæli Alexander Stef-
ánsson, fyrv. bóndi á -Torfastöð-
um í Vopnafirði, 35 ára að aldri.
Hann var fæddur á Seyðisfirði
14. des. 1909, sonur hjónanna
Stefáns Alexanderssonar og
Antoníu Antoníusdóttur, er
lengst bjuggu á Háreksstöðum á
Jökuldalsheiði. Ólst hann fyrst
upp hjá foreldrum sínum, en
fór snemma frá þeim til að
vinna fyrir sér. Hingað til
Vopnafjarðar fluttist hann vor-
ið 1924 og var fyrst í vinnu-
mennsku á ýmsum stöðum, þar
til árið 1932, að hapn fór að búa
á Torfastöðum og keypti þá jörð.
Bjó hann þar til vorsins 1944, er
hann varð að bregða búi, vegna
vanheilsu.
Alexander var óvenjulegur
atorkumaður, bæði duglegur og
keppinn, en hagsýnn að sama
skapi. Það þótti í mikið ráðizt,
er hann keyti Torfastaði, og
spáðu margir illa fyrir þvi, því
að maðurinn var efnalaus og
varð að kaupa allt 1 skuld. En
Alexander var sjálfur bjartsýnn
á þetta ,og með óvenjulegri hag-
sýni, reglusemi, þrifnaði og at-
orku tókst honum á fáum ár-
um að greiða skuldir sínar, en
jafnframt að stórbæta jörð sína.
Blessaðist búskapur hans svo
vel, að nú, er hann lézt, voru
eigur hans virtar á um 80.000
kr., og hefir hann nú gefið mest-
allt þetta fé til barnafræðslu
og heimavistarbarnaskóla hér í
sveitinni.
Alexander hafði mikinn á-
huga fyrir framfaramálum og
vildi verða þeim að liði. Sýndi
hann það bæði með hinum
miklu framkvæmdum heima
fyrir (girðingar, túnrækt o. s.
frv.), en þó sérstaklega með
þessari rausnarlegu gjöf. Hann
hafði sjálfur lítinn kost átt á því
að læra í uppvextinum. Harm-
aði hann það mjög og langaði
til að vqrða öðrum að liði í því
efni. Og þar sem hann var alla
ævi einhleypur- maður, fannst
honum hann bezt geta varið
eignum sínum á þennan hátt,
enda samrýmdist það mjög vel
stórbrotinni lund hans og höfð-
ingsskap. Hefir hann með verk-
um sínum á Torfastöðum og þó
sérstaklega með þessari ráð-
stöfun eigna sinna, reist sér
þann minnisvarða, er seint mun
gleymast Vopnfirðingum.
Jakob Einarsson.
Alþjóðamál Indíána
(Framhald af 4. síðu)
heyrnarlausir nota nú til þess að
gera sig skiljanlega. Sennilega
hefir enginn þáttur Indíána-
menningarinnar náð slíkri út-
brejiðslu meðal hvítra manna
sem notkun tákna, sem þangað
eiga rót sína að rekja og notuð
eru í ýmsum myndum.
Nú er svo komið, að á lífi eru
aðeins tiltölulega fáir Indíánar,
er leiknir eru í notkun merkja-
málsins forna. Og þessir fáu
Indíánar, sem auðnazt hefir að
læra það til hlítar af eldri kyn-
slóð, sém nú er komin undir
græna torfu, eru flestir hnignir
á efri ár. Sá tími nálgaðist óð-
um, að allir leiknustu kunnáttu-
mennirnir safnist til feðra sinna
inn á veiðilöndin miklu. Takist
alls ekki að endurlífga þetta
táknmál Indíánanna áður en
svo er komið, verður heimurinn
innan skamms einu merkilegu
menningarfyrirbæri fátækari —
menningarfyrirbæri, sem um
langan aldur var heilum kyn-
flokki uppfylling þess draums,
er hugsjónamenn meðal hvítra
þjóða hafa barizt fyrir síðustu
mannsaldra en með fremur litl-
um árangri — draumsins um al-
þjóðamál, er geri hiinum fjar-
skyldustu þjóðúm kleift að tal-
ast við, eins og samlandar væru.
TÍMINN
Þeir, sem fylgjast vilja með
almennum málum vcrða að lesa
Kosningar í Bretlandi
(Framhald af 2. síBu)
falið að mynda stjórn fyrir
kosningjar, eftir að ráðherrar
; afnaðarmanna og frjálslynda
flokksins hefðu farið úr stjórn-
inni, myndi hann samt reyna
að mynda hana á sem breiðust-
um grundvelli, og eftir kosning-
ar myndi hann reyna að mynda
dj óðstj órn aftur, ef það, félli þá í
hlut hans að mynda stjórn.
Jafnaðarmenn og frjálslyndir
líta svo á, að Churchill hafi með
þessu reynt að skapa sér breið-
ari grundvöll í kosningabar-
áttunni en flokksgrundvöllinn
einan og sé með því að hindra
það, að kosið sé um hreinar
flokkslínur. Líklegt þykir, að
Churchill muni takast með
þessum hætti að ná í flokks-
brotið, sem fylgdi MacDonald úr
Verkamannaflokknum, og muni
sonur hans, Malcolm MacDon-
ald, nú taka aftur sæti í stjórn-
inni. Einnig þykir líklegt, að
Churchill muni innbyrða brotið
úr frjálslynda flokknum, er
fylgdi John Simon, og sonur
Lloyd George, sem hefir talið
sig „óháðan“ fylgismann frjáls-
lynda flokksins, hefir lýst yfir
því, að hann muni gegna áfram
í nýrri stjórn embætti kolamála-
ráðherrans, en hann hefir gegnt
því um skeið, ef Churchill
óski þess. Líklegt þykir og, að
utanflokkamenn eins og Hore-
Belisha, fyrv. hermálaráðherra,
og Vernon Bartlett, hinn kunni
blaðamaður, muni slást í sveit
með Chprchill.
Sá orðrómur hafði kvisazt, að
jafnvel myndu ýmsir ráðherrar
Verkamannaflokksins brjóta
bann flokks’ins og verða í kosn-
ingastjórn Churchills. Einkum
var þar tilnefndur Ernest Be-
vin verkamálaráðherra, en hann
gegnir því ráðherraembætti sem
íhaldsmenn eiga verst með að
skipa. Þetta var m. a. dregið af
bví, að Bevin hefir oft unað
flokksböndunum illa, og þeir
Churchill eru góðir kunningjar.
Þessi orðrómur varð til þess, að
Bevin hélt nýlega ræðu á fjöl-
mennum flokksfundi, þar sem
hann lýsti þetta alger ósannindi.
Hann lýsti sig eindregið -fylgj-
andi öllum samþykktum Verka-
mannaflokksins og skoraði á í-
haldsflokkinn að ganga hrein-
lega til' leiks en vera ekki að
villa á sér heimildir með neinu
„samsulli“. Hann fór mjög
hörðum orðum um íhalds’flokk-
inn, sagði t. d. að stefna hans
í utanríkismálum hefði verið
næstum búin að leiða brezku
þjóðina og alla heimsmenning-
una í glötun, og Baldvin hefði
unnið fyrir hann seinustu þing-
kosningar með hreinum lygum.
Þá kvaðst Bevin vilja segja
vini sínum Churchill það, að
þótt hann hefði gert mikið,
hefði ekki verið „eins manns
stjórn“ í Bretlandi á stríðsárun-
um, og þótt hann væri áhrifa-
mikill nú, væri hann ekki
áhrifameiri heldur en Lloyd
George var árið 1918. Var
Bevin hinn hvassorðasti, eins og
hans er vandi, enda má óhætt
segja, að þessi ræða hans hafi
hleypt miklu lífi í kosningabar-
áttuna. Margir forráðamenn
íhaldsflokksins hafa síðan hald-
ið ræður til að svara honum, og
foringjar Verkamannaflokksins
hafa endurgoldið í sömu mynt.
Auk þeirra flokka, sem hér
hafa verið nefndir, hafa sam-
vinnuflokkurinn, óháði verka-
mannaflokkurinn og Common-
Wealthflokkurinn haldið flokks-
þing sín nýlega. Samvinnu-
flokkurinn, en hann skipa
fulltrúar frá kaupfélögunum,
ákvað að hafa bandalag við
Verkamannaflokkinn áfram, en
krafðist öllu róttækari stefnu.
Hann hefir nú sjö þingmenn á
þingi og er Alexander flota-
málaráðherra einn þeirra. Ó-
háði verkamannaflokkurinn,
sem hefir fjóra þingmenn á
þingi, ákvað að ganga í Verka-
mannaflokkinn, þegar hann
hefði dregið ráðherra sína úr
ríkisstjórninni. — Common
Wealth-flokkurinn ákvað að
bjóða ekki fram gegn Verka-
mannaflokknum, þar sem það
gæti hjálpað íhaldsmönnum.
Flokkur þessi, sem var stofnað-
ur á stríðsárunum, hefir unn-
ið sér allmikið fylgi.
Eins flokks er enn ógetið, og
það er kommúnistaflokkurinn.
Hann hefir undanfarið biðlað
eftir samvinnu við Verka-
mannaflokkinn, en þeim til-
mælum hans hefir alltaf verið
hafnað. Forvígismenn Verka-
mannaflokksins segjast líta á
kommúnistaflokkinn sem er-
lendan flokk og vilja því ekki
hafa neitt samneyti við hann.
Þessu til sönnunar benda þeir á,
að flokkurinn barðist fyrir því,
að Bretar semdu frið við Þjóð-
verja meðan vináttusáttmáli
Rússa og Þjóðverja var í gildi.
Þegar mest reyndi á brezku
þjóðina í loftárásunum miklu
1940, kenndu kommúnistar
„heimsvaldastefnu" Churchills
um styrjöldina og kölluðu for-
ingja Verkamannaflokksins
hlýðin peð í „heimsvaldatafli“
hans. Flokkurinn var þá al-
mennt fyrirlitinn í Bretlandi, en
hefir heldur aukið fylgi sitt aft-
ur síðan Rússar lentu í styrjöld-
inni. Hann varð þó nýlega að
tilkynna, að hann myndi ekki
geta haft frambjóðendur nema í
20 kjördæmum, en áður var
hann búinn að lýsa yfir því, að
hann myndi hafa frambjóð-
endur í 50 kjördæmum.
„Undír skílningstré“
Umsóknír um styrki
Tímaritið „Helgafell“ telur að
sér megi treysta. Fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðsluna hafði það
skoðanakönnun meðal reyk-
vískra kjósenda og komst að
þeirri niðurstöðu, að 49,8% vildu
slíta sambandinu og stofna lýð-
veldi. Á þessum „vísindum“
sínum byggði Magnús Ásgeirs-
son baráttu sína gegn lýðveldis-
stofnun á íslandi og fullu frelsi
þess. Það má svo sem treysta á
kenningar „Helgafells“! Og svo
mikið finnst Magnúsi um þessi
sannindi, að hann féll í stafi
yfir því, að „gamlir danne-
brogsmenn og Helgakversját-
endur verði til þess að beita
sér fyrir fyrstu byltingu á ís-
landi, gegn gömlum konungi
sínum, af guðs náð“ eins og
hann komst að orði.
Hinn ritstjóri „Helgafells"
talaði um það, „hvort vér eig-
um að hrifsa þennan rétt til
vor að hætti uppreisnarmanna“.
Þessa menn grunaði það víst,
ekki, að 98% allra íbúa íslands
vildu vera frjálsir, og að landið
yrði óháð og fullvalda. Þessir
ágætu menn ættu ekki að vera
að skrifa um þjóðmál, þegar þeir
eru svona utan við veruleikann
og þekkja svo lítið.hug þjóðar-
innar, sem þessi ummæli þeirra
bera vitni um. X.
úr Kanadasjóðnum
Samkvæmt skipulagsskrá fyr-
ir Kanadasjóð til styrktar ís-
lenzkum námsmönnum, verður
ársvöxtum sjóðsins öllum, eða
hluta þeirra, varið til þess að
styrkja íslenzka náms- og fræði-
menn til háskólanáms í Kanada.
Námsmenn, er leggja stund á
fræðigreinar er hafa sérstaka
þýðingu fyrir atvinnulíf á ís-,
landi, skulu að öðru jöfnu ganga
fyrir um styrkveitingar.
Umsóknir um styrki úr sjóðn-
um, ásamt námsvottorðum og
meðmælum, skulu sendast for-
sætisráðherra fyrir 1. júlí n. k.
Nýir kaupendur
Nýir kaupendur að Tímanum
geta fengið siðasta jólablað
Tímans ókeypis, meðan upp-
lagið endist, láti þeir afgreiðsl-
una vita að þeir óski þess.
í jólablaðinu er mjög margt
læsilegt: skáldsögur, ferðasög-
ur, kvæði og ýmsar frásagnir,
greinar og myndir. — 64 bls.
alls.
Svanga-rógur
Piltur frá Svanga í Skorra-
dal mun oft notaður sem eyðu-
fyllir í Þjóðviljanum. Varð mér
litið yfir eina grein hans þar s.
1. laugardag, þar sem hann er
að ausa auri forustumenn sam-
vinnufélaganna síðastliðin tutt-
ugu ár fyrir að þeir hafi verið í
samvinnu við Framsóknarflokk-
inn í landinu. Veit þá þessi pilt-
ungur ekki, að það eru að mestu
leyti sömu mennirnir, sem mest
og bezt hafa byggt upp sam-
vinnufélögin undanfarinn ald-
arfjórðung og fremst hafa stað-
ið í Framsóknarflokknum? Og
veit ekki líka þessi komma-
piltur, að samvinnufélögin hafa
tekið mestum og beztum fram-
förum hér á landi undanfarinn
aldarfjórðung, — að þar hafa
Framsóknar- og samvinnumenn
verið svo vel að verki sem vinstri
hendi hjálpar hinni hægri og
lyft Grettistökum til hjálpar og
sjálfbjargar íslenzkri alþýðu.
Óskar Þórðarson getur ekki
bent á nein félagssamtök, er
hafi verið eins farsæl íslenzkum
almenningi til efnalegrar við-
reisnar síðan þetrta land byggð-
ist.
í Borgarfirðinum, þar sem Ó.
Þ. ætti að vera kunnugastur,
hefir t. d. kaupfélagið verið
hreinasti bjargvættur héraðsins
nú síðustu 1—2 áratugina, m. a.
vegna mjólkuriðnaðarins, sem
það hefir komið upp og rekið
með hinum mesta myndarskap
síðari árin.
Það þarf svanga menn til
þess að hafa lyst á róginum um
samvinnufélögin frá Svanga-
piltinum og hans líkum.
Kári.
Á víðavangi.
(Framhald af 3. síðu)
tala um að setja fund og loks
var hann settur.
Fyrsta mál á dagskrá var að
deildarstjórnin flutti skýrslu.
Hún var fáorð og fólst í því einu
að starf deildarstjórnarinriar
hefði ekkert verið. Fundarstjóri
kallaði, að orðið væri laust um
skýrslu deildarstjórnarinnar!
Aðeins ys og þys frá fundar-
gestum, er kepptust við að
„kjósa“ og ruku síðan á dyr
jafnóðum. Loks kom einn kom-
múnisti upp í ræðustólinn. En
enga setningu heila heyrðu
fundarmenn fyrir ákafanum að
skila útfylltum kjörseðlum upp
að deildarstjórnarpallinum. —
Næsta mál á dagskrá var að
kjósa nýja deildarstjórn og full-
trúa á aðalfund Kron. Þá var
meginþorri fundarmana búinn
að kjósa og fjöldi þeirra búinn
að skila seðlunum. Svona hélt
fundurinn áfram í fullkominni
ómynd og ómenningu, þar til að
honum var slitið og voru þá eft-
ir í salnum sjö menn fyrir utan
„deildarstjórnina“ á pallinum!
Næsta kvöld leit ég snöggv-
ast í dyr Listamannaskálans
og var þá deildarfundur aftur,
er sagt var að hefðu sótt 5—600
manns. Inni í skálanum blasti
við Jóhannes Kr. Jóhannes-
' son, sem hafði stigið upp á stól
og var þar að syngja fyrir á að
giska 1—200 kommúnista. — Ég
fór hið bráðasta út og hugsaði:
Ætli hún sé nokkuð eftirsókn-
arverð þessi „einingar“menning,
sem kommúnistar eru að inn-
leiða í samvinnufélagsskapinn
í höfuðstaðnum?
Kronfélagi.
Illt umtal.
Frá þvi var nýlega sagt í
Ófeigi, að Eysteinn Jónsson og
Jón Pálmason hefðu talað illa
hvor um annan í Húnaþingi.
Jón hefir nú svarað þessu í ísa-
fold og segist ekki vita til þess,
að Eysteinn hafi talað illa um
sig þar. Hins vegar minnist hann
ekki á það, hvort hann hafi tal-
að illa um Eystein!
GÆFAN
fylgir trúlofunarhringum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Tímann.
Gerist áskriíendur, séuð þið
það ekki ennþá. Bimi 2323.
Askrlltargjald Timaus
utan Rvíkur og Hafnarfjarðar
er kr. 30.00 árgangurinn.
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.
Sendið nákvæmt mál.
Sent mót póstkröfu.
Kristleifur Þorsteínsson
ÚR BYGGÐUM
BORGARFJARÐAR
Kristleifur á Stóra-Kroppi er
einhver allra athafnasamasti
fræðimaðurinn í alþýðustétt
þeirra er nú lifa. Flestir þekkja þann yfirgripsmikla og
mikilsverða þátt, sem hann hefir lagt til Héraðssögu Borg-
arfjarðar. En þar er síður en svo allur ávöxturinn af starfi
Kristleifs á vettvangi þjóðlegra fræða. Á víð og dreif eftir
Kristleif, sem ekki voru teknar í héraðssöguna.
Þessum ritgerðum hefir sonur höfundarins, Þórður
Kristleifsson kennari safnað saman og búið undlr prent-
un. Birtast þær í bók Kristleifs. Úr byggðum Borgarfjarð-
ar, sem út komu á síðastliðnu sumri. Þetta er stór bók
og fjölskrúðug og geymir mikinn sögulegan fróðleik, þjóð-
lífslýsingar og ættfræði. Er öllum þeim, sem þjóðlegum
fróðleik unna, áreiðanlega mikil þökk í útkomu þessarar
bókar.
Bókaverzlun
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJU H.F.
Ráðningarstofa
landbúnaðarins
er tekin til starfa í samvinnu við Vinnumiðlunar-
skrifstofuna í Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10, og
starfar þar frameftir sumri hvern virkan dag frá
kl. 9,30—12 og 1—5 undir forstöðu Metúsalems Stef-
ánssonar fyrv. búnaðarmálastjóra.
Vinnuveitendur og verkafólk, er leita vil aðstoðar
Ráðningarstofunnar um ráðningar til sveitastarfa,
lengri eða skemmri tíma, gefi sig fram sem fyrst og
láti Ráðningastofunni í té sem ýtarlegastar upplýs-
ingar um allt, er ráðningar varðar.
»
Nauðsynlegt er að bændur hafi umboðsmenn í
Reykjavík, er veitt geta nákvæmar upplýsingar um
viðkomandi heim ili, þarfir þess, kaupboð og kröfur,
svo og til að undirskrifa samninga, ef á þarf að
halda.
Sími skrifstofunar er 1327.
Búnaðarfélag íslamls.
Aðvörun
Að gefnu tilefni eru menn varaðir við að kaupa
skúra eða aðrar byggingar, sem reistar hafa verið án
leyfis bæjarráðs eða byggingarnefndar í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur.
Er brýnt fyrir mönnum, að athuga vandlega hvers-
konar lóðarréttindi fylgja húsum, er þeir hafa í huga
að kaupa, og jafnframt hvort húsin séu reist með
leyfi byggingarnefndar.
BORGARSTJÓRIM.
ADV0RUN
Að gefnu tilefni skal því enn lýst yfir, að það er
stefna bæjarráðs Reykjavíkur, að fjárlægja alla setu-
liðsskála úr lögsagnarumdæminu svo fljótt sem við
verður komið. Eru menn þvi alvarlega varaðir við að
kaupa slíka skála í því skyni að láta þá standa, eða
til flutnings á ahnan stað innan lögsagnarumdæmis-
ins. Menn geta ekki vænzt leyfis bæjarráðs tll þess
konar ráðstafana.
Borgarstjórínn.