Tíminn - 01.06.1945, Side 6
6
TÍMCVN, föslndagiim 1. júní 1945
40. blað
Mmningarorð:
Kjartan Sigurjónsson
söngvari.
Fjársölnun tíl skípa-
kaupa S. I. S.
11. maí hefir löngum verið
merkur dagur á umliðnum öld-
um. Oft hefir hann verið gleð-
innar dagur fyrir þá, sem hafa
heimt vini sína heim úr lang-
dvalar útivist — en hann hefir
líka verið sorgarinnar og t.ár-
anna dagur fyrir þá, sem ekki
hafa heimt sína kærustu vini
aftur, aldrei fengið að sjá þá
framar á þessari jörð. Og enn
endurtekur sig þessi harmsaga
11. maí 1945, þegar sú sorgar-
fregn er flutt með öldum ljós-
vakans um land vort, að Kjart-
an Sigurjónsson söngvari frá
Vík sé látinn. Það eru ekki að-
eins þeir nánustu elskendur
hans, foreldrar, eiginkona og
aðrir vandamenn, sem eiga um
sárt að binda. íslenzka þjóðin
öll hefir misst einn af sínum
gimsteinum. Við, sem kynnt-
umst þessum mæta og vel gefna
unga manni, tregum að sjá á
bak honum á blómaskeiði lifs-
ins, aðeins 25 ára-.
Ég var svo heppinn að kynn-
ast Kjartani heitnum þann
stutta tíma, sem hann dvaldi
hér hjá okkur í Landeyjum,
þegar hann var að koma á stað
söngkór Krosskirkju.
Ég ætla ekki að rekja ætt
Kjartans hér, aðeins skal þess
getið, að hann var runninn af
skaptfeiiskum og rangeyskum
stofni, sem má kenna við hina
alkunnu og merku Skógaætt
undan Eyjafjöllum.
Kjartan var glæsimenni að
vallarsýn. Hann var beinvaxinn
og herðibreiður, með skýr og
fögur augu undir dökkum brún-
um. Og voru þau spegill göf-
ugrar sálar. Hnakkinn, klædd-
ur tinnusvörtum lokkum, var
svo fagur og tilkomumikill, að
maður jafnvel þekkti Kjartan
af hnakkasvip hans úr stórum
hópi manna. Framkoman var
prúð, þýð og viðfelldin, svo um-
gengni öll var aðlaðandi. Sem
kennari var hann mjög vinsæll
sínum nemendum, laginn að
laga misfellurnar, — en þegar
hann sjálfur söng með sinni al-
kunnu, þýðu og fögru rödd, sem
ég gleymi aldrei, var yndi á að
hlýða.
Það sannaðist á Kjartani, að
gott er með góðum að vera. Það
var lærdómsríkt að kynnast
honum, þótt ekki væri nema
fáa daga. Hvað mundi um lengri
leiðir? En nú er komið á leiðar-
enda. Okkur, er ekki skiljum til-
gang lífsins, finnst dauða hans
hafa borið að fyrir örlög fram.
En í gegnum allan missi, er það
bezta huggunin að vita það,
að hér hefir fallið góður dreng-
ur, sem allir trega, sem til
þekktu.
Að síðustu leyfi ég mér fyrir
hönd þeirra, er kynntust þér í
okkar sveit, að þakka þér við-
kynninguna, þakka þér kennsl-
una, þakka þér einsönginn,
þegar þú söngst í kirkjunni okk-
ar kæru hin alkunnu vers: Víst
ert þú Jesús kóngur klár, o. s.
frv. Því gleymum við aldrei.
Svo bið ég frelsarann, Jesúm
Krist, að þerra tregatárin —
en þig, kæri vinur, fel ég í al-
föður hönd. Þar fær þú ' að
syngja með englum og útvöldum
Guði til dýrðar. Og við, sem
tregum þig, hlökkum til að
komast í þann eilífðarkór. Og
minnumst þess: Að stutt og fljót
er stundin nauða, en stór og
löng er eilífðin. Hér til dauða, ef
dyggur stríðir, dýrðarkrónu
færð um síðir.
Hafðu svo þökk fyrir síðustu
kveðjuna, er þú sendir mér frá
London, — úr þínum síðasta á-
fangastað og og allt annað. í
Guðs friði, góði vinur.
Guðni Gíslason.
I Yidjum l^innar
(Framhald af 3. síðu)
og prentfrelsi ríkti í Þýzka-
landi. En það valdi sjálft leið
blekkingarinnar og ósannind-
a"nna. Þjóðverjar skipuðu sér
að miklu leyti að lokum í öfga-
flokkana tvo, flokk kommúnista
og nazista. — Báðir þessir
flokkar reyndu að blekkja fólkið
og svíkja það. Það vildi láta
blekkja sig og nú hefir það upp-
skorið eins og það hafðl sáð.
Það trúði á lygar nazista og
stórveldisdrauma þeirra. Það
gekk vitandi vits að því að kúga
aðrar þjóðir og hneppa þær í
fjötra — en það gleymdi þeim
eilífa sannleika, að eins og menn
sá, svo munu þeir uppskera.
Það er sama fólkið og börn
þess, sem í dag sveltur í Þýzka-
landi, og það, sem á dögunum
fyrir 1933 „greiddi atkvæði“
með Hitler.
Það er sama fólkið, sem í dag
flýr brennandi borgir og kasl-
ar sér í straumharðar ár til þess
að leita á náðir Bandaríkja-
manna og Breta, sem ætlaði sér
að leggja lönd þeirra í auðn
og hneppa fólkið þar í fjötra.
Það er sama fólkið, sem hyllti
Molotov óstjórnlega í Berlín,
þegar hann kom þangað til að
„endurnýja" vináttuna við naz-
istanna, sem nú flúði undan
herskörum þessa „góðvinar"
vestur á bóginn. Og svona mætti
lengi telja.
Hvert einasta dæmi sem tek-
ið er, sannar aðeins, að hinn
mikli meistari hafði rétt fyrir
sér, er hann sagði:
„Með sama mæli og þér mæl-
ið öðrum mun yður mælt verða“.
V.
Vopnin í baráttunni undan-
farin ár hafa verið lygi, rógur,
svik, undirferli, morð og blekk-
ingar. Upprunalega voru þessi
! vopn tekin upp af kommúnist-
[ um og sett í mjög vel skipu-
lagt kerfi af þeim. Nazistarnir
lærðu þar að hagnýta þau með
hinni alkunnu snilligáfu Þjóð-
verjans til að útfæra alla hluti
út í æsar. Og svo meistaralega
hefir Þjóðverjum tekizt að beita
þessum vopnum sínum, að aldrei
fyrr í sögu mannkynsíns hafa
lygi og blekking skipað slikt
hásæti og á þeirra dögum.
Ef einhverjum skyldi hafa
dottið það í hug að kommún-
istar hefðu hér séð sig um hönd
og þeir horfið frá þessum skipu-
lögðu blekkinga- og lygakerfum
sínum, þá fer sá alveg villur
vegar.
Kommúnistar halda alveg
sama strikið og áður í þeim
efnum. Þar er um ekkert frá-
vik að ræða. Og þeir munu ekki
sjá — eða ekki vilja sjá —
hverjar afleiðingarnar verða,
þó þöer standi nú lifandi upp-
málaðar fyrir augum þeirra um
gervalt Þýzkaland.
Þeir hugsa sem svo, þó illa
færi fyrir Þjóðverjum þá þarf
ekki aö fara illa fyrir okkur.
En einmitt þessi skoðun er
sú, sem öllum einræðisþj óðum
hefir að falli orðið.
Það virðist ríkja í tilverunni
órjúfanlegt lögmál, sem er
þanníg, að hið illa eyði sér
sjálft. Það framleiðir sjálft þau
öfl, sem að lokum leggja það
að velli. Um stund getur lygin
hreykt sér hátt, og verið glæsi-
leg, og margir eru þeir, sem þá
laðast til fylgis við hana. Slíkt
var ástandið frá 1939—1941,
meðan Hitler og Stalin voru
vinir og Bretland stóð eitt og
yfirgefið. Þá hafði lygin og
blekkingin náð hámarki. En svo
kom fallið — og fallið varð
mikið. Og undarleg eru þau ör-
lög eins hins „mesta“ manns,
Fyrir rúmum tveimur árum
hóf Samband ísl. samvinnufé-
laga fjársöfnun til skipakaupa.
Tilgangur þeirrar fjársöfnunar
er að S. í. S. eignist og reki
hentug flutningaskip, sem fyrst
og fremst annist vöruflutninga
fyrir samvinnufélögin. Á því er
hin mesta nauðsyn, því að kaup-
skipafloti íslendinga er enn allt
of lítill. Verður því alltaf að
flytja mikinn hluta vara að og
frá landinu með útlendum
leiguskipum. Sambandið og
samvinnufélögin annast nú um
helming innflutningsins í mat-
vörum og fóðurvörum og veru-
legan hluta innflutningsins af
flestum öðrum nauðsynjavörum.
Sambandinu og samvinnufélög-
unum er því full nauðsyn á að
eignast flutningaskip til þess að
geta tryggt landsmönnufn þess-
ar vörur. Samvinnufélögin
keppa að því að hafa vörurnar
eins ódýrar og unnt er. Þess
vegna verða þau að reyna að
hafa allan kostnað við vöru-
dreifinguna sem minnstan. í
kostnaðarverði vörunnar eru
flutningar mjög stór liður. Miklu
máii skiptir því fyrir félögin að
fá" flutninga þessa með sann-
virði og fá þá sem hagkvæm-
asta fyrir félagsmenn. Þess
vegna þurfa samvinnufélögin
að eignast flutningaskip.
Fjársöfnun þessari er hagað
á þann veg, að gefin hafa verið
út stofnfjárbréf, mismunandi að
fjárhæð, sem seld eru þeim, sem
leggja vilja fram fé til skipa-
kaupanna. Bréf þessi eru að
upphæð kr. 100, kr. 500 og 1000
kr. Verði ekki búið að nota féð
til skipakaupa 5 árum eftir að
núverandi Evrópustyrjöld lýkur,
skulu stofnfjárbréfin endur-
greidd. Að 25 árum liðnum get-
ur hver aðill sem er, Sambandið
eða stofnfjáreigandi, sagt stofn-
fénu upp með eins árs fyrirvara.
Að öðru leyti fer um endur-
greiðslu þessa stofnfjár eftir á-
kvæðum samvinnulaganna um
útborgun stofnsjóðseigna, eftir
því sem við getur átt. Þangað
til ráðizt verður í skipakaup,
verður fé það, sem safnast, á-
vaxtað í vörzlum Sambands ísl.
samvinnufélaga og ber það á-
byrgð á þvi. Þann tíma greiðir
Sambandið vexti af fénu jafn-
háa innlánsdeildarvöxtum S. í.
S. á hverjum tíma. Þegar
rekstur skipa er byrjaður, á-
kveður aðalfundur Sambands-
ins vexti af stofnfénu árlega,
eftir rekstursafkomu skipanna.
Aldrei mega vextir af stofnfénu
vera hærri en 1 y2% ofan við
innlánsvexti í bönkum. Stofn-
fjáreigendur ábyrgjast stofn-
kostnað og rekstur skipanna
aðeins með stofnfé sínu. Að
öðru leyti ber S. í. S. ábyrgð á
skuldbindingum vegna skip-
anna og á rekstri þeirra.
Stofnfjárbréf má ekki selja
nema með leyfi stjórnar S. í. S.
Hér er um nauðsynjamál að
ræða, sem allir samvinnumenn
ættu að vinna gagn, hver eftir
sinni getu. Með framkvæmd
þess er unnið að því, að sam-
vinnumenn eignist sín eigin
flutningaskip og jafnframt að
íslendingar eignist kaupskipa-
flota, sem fullnægir allri flutn-
ingaþörf þeirra. Margir hafa
þegar stutt mál þetta vel og
drengilega og hafa keypt stofn-
fjárbréf. En fleiri þurfa að bæt-
ast í hópinn. Allar upplýsingar
um söfnunina er hægt að fá hjá
Sambandsfélögunum eða hjá
Sambandi ísl. samvinnufélaga.
Því er treyst, að hver og einn
samvinnumaður leggi fram sinn
skerf í skipakaupasjóðinn. Það
er ekki aðalatriði að framlögin
séu stór, heldur hitt, að sem
flestir séu með, því að margt
smátt gerir eitt stórt.
sem á síðari tímum hefir uppi
verið, að enginn skuli trúa því
að hann sé dauður, þegar það
er opinberlega tilkynnt. Svo al-
gert er gjaldþrot þess kerfis
orðið, sem Hitler hefir notað
á öllum stjórnarferli sínum, að
þegar það tilkynnir hans eigið
lát, þá trúir því enginn. Menn
búast við að líka það séu svik
og blekking. Er ekki kominn
tími til þess að þetta kerfi verði
afmáð af jörðunni að fullu og
öllu? En það mun hægara sagt
en gert.
Meðan eldur rógs og lyga log-
ar í hverju byggðarlagi, hversu
smátt og stórt sem það er, lifir
rótin að spillingunni. Meðan
vegizt er á með vopnum ódreng-
skapar, óheilinda, blekkinga og
lyga, er engin von um frelsun
úr þessu helvíti. Fyrsta sporið
verður að vera djarfieg tilraun
til að útrýma lyginni og lygur-
unum — fyrst hinum opinberu
lygurum og lygi þeirra — þá
fyrst mun birta í mannheimi,
en fyrr ekki, þá mun mannkyn-
ið losna úr viðjum lyginnar,
sem flestir hafa verið fjötraðir
í allt til þessa.
Borðbútiaður:
Matskeiðar plett 2.65
Matgafflar — 2.65
Borðhnífar — 2.40
Teskeiðar — 2.00
Smjörhnífar — 5.00
Borðhnífar, ryðfríir 5.65
Ávaxtahnífar, plast 1.25
Kökuhnífar — 3.25
Tertuspaðar — 3.25
K. EINARSSON
& BJÖRNSSON H.F.
Bankastræti 11.
Gum-Grípper,
nýtt amerískt efni, lagfærir
falskar tennur, sem tolla illa eða
særa góminn.
Berist á á þriggja mánaða
fresti. Einfalt og þægilegt.
Leiðarvísir :á íslenzku. Tólf
króna túba endist heilt ár.
Sendum um land allt.
Seyðisfjarðar Apótek.
Aýkomið:
Hvítt
Kadettutau
H. Toft
Skólavörðustíg 5. — Sími 1035.
ORÐSENDEVG
til kanpenda Tímans.
Ef kaupendur Tímans verða
fyrir vanskilum á blaðinu, eru
þeir vinsamlega beðnir að snúa
sér STRAX tU
ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR,
afgreiðslumanns,
Samband ísl. samvlnnufélaga,
KAUPFÉLÖG:
Munið að senda oss verðskýrslur yðar I byrjun
hvers mánaðar.
KOLTJARA
BLAKKFERNIS
KARBOLINUM
Kaupfélag Eyíirðínga
RyggingavörudeUd.
' J
Listanaannaþins' 1945
Listsýning
/
í Sýningarskála listamanna.
Opin daglcga kl. 10—22.
Aðalíundur
Útvegsbanka íslands h. f. verður haldinn í húsi bankans
í Reykjavík föstudaginn 8. júní 1945, kl. 2 e. h.
Dagskrá:
1. Skýrsla fulltrúaráðsins um starfsemi Út-
vegsbankans síðastliðið starfsár.
2. Framlögð endurskoðuð reikningsuppgerð fyr-
ir árið 1944.
3. Tillaga um kvittun til framkvæmdastjórnar
fyrir reikningsskil.
4. Kosning tveggja endurskoðunarmanna.
5. Önnur- mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir í skrif-
stofu bankans frá 4. júní n. k. og verða að vera sóttir
í síðasta lagi daginn fyrir fimdinn. Aðgöngumiðar
verða ekki afhentir nema hlutabréfin séu sýnd. Úti-
bú bankans hafa umboð til að athuga hlutabréf, sem
óskað er atkvæðisréttar fyrir, og gefa skilríki um það
til skrifstofu bankans.
Reykjavík, 1. maí 1945.
F. h. fulltrúaráðsins.
Stefán Jóh. Stefánsson.
Lárus Fjeldsted.
itarfsitill kur
vantar á Klcppsspítalann.
Lpplýsingar í síma 2319.
T f M IIV IV er víðlesnasta anglýsingablaðið!