Tíminn - 29.06.1945, Blaðsíða 4

Tíminn - 29.06.1945, Blaðsíða 4
4 TÍmTViV. íöstndaglnm 29. júní 1945 48. blað Nokkur Sigurðnr Jónsson á Arnarvatnli orð um lækníngar á mæðíveíkí Frá störfum Prestastefnu ©g áljktuuui Islands 1945 Þegar mæðiveikin var ílutt inn í landið og breiddist út í sauðfjárstofni landsmanna, stóðu bændur svo berskjaldaðir fyrir, að þeir vissu ekkert ráð sjúklingunum til bjargar. í Mý- vatnssveit — þar^, sem ég er bú- settur — fylgdu menn þeirri reglu strax og veikin barst þangað, að slátra hverri veikri kind, sem í ljós kom á veturna allt fram að vordögum, en hættu þá slátrun, ef vera mætti að nýj- um sjúklingum á þeim tíma árs, entist lífsþróttur til að koma? upp lambi, og lifa vlð nokkur þrif yfir sumarið. Gekk það þó að sönnu allmisjafnlega. Á þennan hátt hagaði ég mér með fé mitt. Um miðjan vetur í fyrra hætti ég að slátra, þó að nýr sjúkling- ur kæmi í ljós. Lágu til þess ýms- ar orsakir, en þó einkum sú, að ég vissi um lækningatilraunir, sem þá voru byrjaðar, og sem ég ásetti mér að kynnast, og reyna sjálfur, ef mér litust þær þess verðar. Ég bjóst við, að þeir, sem sýndu þann áhuga að hefja bar- áttu við veikina, fengju að vera óáreittir við þær tilraunir, og eðlilegt var, að beðið væri með alla dóma um þær, þangað til unnizt hefði nauðsynlegur tími til að hægt væri að draga álykt- anir af því sem reynt væri. En reynslan varð önnur. í vetur var bæði í blöðum og útvarpi gert óp mikið að Sigurjóni Péturssyni á Álafossi fyrir mæðiveiki^- lækningar hans. Þar voru með- al annarra vísindamenn að verki, en ágæti og hlutleysi vís- indamennsku þeirra duldist víst fleirum en mér. Ég heyri áamt nú í sumar, að ýmsir, sem höfðu fengið sér meðalið „Ála“ hafi hætti við að nota það, af ótta við að það væri stórhættulegt, og dræpi nálega hverja kind, sbr. skýrslu pVófessors N. Dung- als í Morgunblaðinu í vetur. Mun þetta vera eina afrek prófess- orsins í þessum fjársýkismálum, síðan lauk hinum frægu rann- sóknum hans á veikinni í Deild- artungu. í blaðaskrifum þeim, sem urðu um þetta efni í vetur var nafn mitt nefnt í sambandi við lækn- ingar með meðalinu Ála. Kom þar fram lýsing á tveim sjúkling- um, sem ég reyndi að lækna vorið 1944. Þetta var án minnar tílhlutunar, en að vísu velkomið mín vegna. En ég hafði ekki búizt við að birta neitt um mína reynslu fyrr en eftir þennan vetur — taldi ekki tíma kominn til þess fyrr. Vil ég nú í sem allra stytztu máli skýra frá reynslu minni af meðalinu Ála, og I öðru lagi af lyfi því, sem Guðm. læknir Gíslason hefir að tilhlutun fjársýkivarnanna framleitt og gert tilraunir með tvo síðastliðna vetur. Ætla ég þá fyrst að minnast á meðalið Ála og rekja í fám orðum efni vottorðs þess er Sigurj. Péturss. birti í Vísi í vet- ur: í apríllok 1944 tók ég tvær ær og gaf þeim meðalið sam- kvæmt fyrirsögn. Önnur ærin greinilega veik frá því á Þorra, hin frá áramótum og orðin mikið veik. Ólíklegt, samkvæmt áður- fenginni reynslu, að sú ær mundi lifa til hausts og tvísýnt um hinaL Ær þessar réttu við, tóku eðlilegum og góðum sumarþrif- um, voru með væna dilka og voru sjálfar feitar og fallegar í haust. Þetta ástandj þeirra hélzt óbreytt í vetur. Þær höfðu góð þrif, var sleppt með lömb sín, eins og öðrum ám eftir burð í vor, og sú, sem veikari var í fyrra kom nú í fyrsta sinn tví- lembd. Hún er sýnilega með stórbiluð lungu og þarf gætilega meðferð. f Frá því í nóvember og fram í aprílbyrjun voru teknir af og til smáhópar til inngjafar. Sumt voru sjúklingar frá fyrra vetri, en nýir sjúklingar, þegar á vet- urinn leið. Alls var 30 ám gef- inn Áli í vetur. Þegar húsvist er nú lokið í vor og öllum ám sleppt, er útlit kindanna þannig, að því er ég fæ bezt séð: 21 þríf- ast eins og alheilbrigðar kindur og útlit þeirra er allt eðlilegt.! 2 eru uppdregnir ræflar — önnur : átti þó 2 frísk lömb. 7 eru á ýmsum stigum þarna á milli, koma allar vel upp lömbum og sumar þrífast vel að holdum, en hafa allar biluð lungu og ná ekki aftur eðíilegri öndun. í þessum tveim síðarnefndu flokk- um eru nær eingöngu ær, sem vitað er að búnar eru að hafa veikina um langan tíma. Engin- kind hefir farizt við inngjöf eða af völdum meðalsins hjá mér. Þá vil ég í öðru lagi víkja að meðali því, sem Guðm. læknir Gíslason hefir framleitt og gert lækningatilraunir með nú þrjú síðustu misserin. Samkvæmt skýrslu þeirri, er hann gaf stjórnarnefnd sauðfjárveiki- varnanna í lok síðasta árs, hafði sézt meiri og minni árangur til bóta á fulíum tveim þriðju hlut- um þess fjár, sem meðalið var reynt á veturinn og vorið 1944. Ég ^ét sprauta meðalinu í 10 ær í fyrra sumar. Þær þeirra, -sem ekki voru þá þegar orðnar mjög illa farnar, þrifust eftir þetta sæmilega og sumar mjög vel — ein, sem var dauðvona ræfill rétti alveg við. Dilkum þeirra fór einnig eðlilega fram Ég setti 7 þessar ær á vetur. Einni varð að slátra í febrúar vegna skyndilegrar blæðingar af blóðtappa í lungum. Á þremur fór mæðin að taka sig upp aftur, þegar kom fram um miðjan vet- ur, en við endursprautun kom- ust þær aftur í samt lag. Á hinum þremur bar ekki á neinu afturkasti, og voru þær svo end- ursprautaðar líka. Leið svo vet- urinn, að ær þessar þrifust eðli- lega, og var sleppt eins og öðrum ám í vor og voru þá með vel þroskuðum lömbum. Nokkrar ær, sem veiktust í vetur voru sprautaðar þessu meðali, og að einni undantekinni virtust þær eftir það þírífast eðlilega. Og állt gekk vel um sauðburðinn með lömb þeirra. En í vetur reyndi ég öllu meira varnarskammta, sem settir voru í gemlinga og ungár ær, þær, sem komið hefir í ljós, síðan þær voru valdar sem lífskindur, að mæður þeirra voru orðnar veik- ar, áður en lömbin voru tekin frá þeim — þó að enginn vissi það þá. Enn er eigi kominn tími til að neitt verði sagt um árangur af þessu. Til viðbótar þessari skýrslu skal ég svo taka þetta fram: Á síðastliðnum vetri hefi ég orðið, eins. og áður er sagt, að slátra einni kind-vegna mæði- veikinnar, önnur vanhöld eru ekki nema eitt veikt og van burða-fætt lamb,- Enda þótt ég hafi hætt vetrar slátrun og sjúk- lingar frá tveim vetrum séu nú í hjörðinni, hefi ég ekki neitt vorið síðan veikin kom í fé mitt, átt eins fáa illa farna sjúklinga eða með vanþrifum eins og nú. Þetta er staðreynd, sem ekki verður hnekkt. Meðalið Áli hefir verið reynt hér hjá örfáum bændum og á fáum kindum í stað. Meðal G. G. hefir mikið verið notað og með ekki síðri árangri en í fyrra eftir því sem ég veit bezt. Um tilraunir með bæði þessi meðul verða, sennilega birtar skýrslur, og skal ég því ekki fara lengrá hér, en að segja frá eigin reynslu, og þá aðeins því, sem hlýtur að koma fram, þegar ég eins og aðrir sem falið hefir verið að reyna meðalið Ála; gef Mæðiveikivarnanefnd skýrslu á tilsettum tíma. Ég tel mig hafa séð mjög at- hyglisverðan árangur af notkun beggja þessara umræddu með- ala — árangur, sem hefir þegar fjárhagslega þýðingu fyrir mig. Ég fæ ekki annað séð, en hver og einn sem berjast þarf nú við mæðiveikina muni geta náð sama árangri, — eða svipuðum —eins og ég. Þess vegna segi ég frá minni reynslu, það sem hún nær, og árg tel það augljóst, að nú er komið með varnarmálin inn á leið, sem verður að kanna til fulls.Hvort heppnazt hefir að allækna kindur af mæðiveikinni fullyrði ég ekkert um — til þess Prestasteínan var haldin hér í bænum dagana 20.—22. júní. Varvhún fjölsótt mjög, eins og verið hefir síðustu árin. Ber það vott um aukinn starfs- áhuga kirkjunnar manna, að þeir sækja svo vel, hvaðanæfa af landinu þessa árlegu sam- komu prestastéttarinnar, eins og verið hefir síðustu árin. Prestastefnan hófst með guðs- þjónustu í Dómkirkjunni, eins og vant er, og prédikaði þar sr. Magnús Jónsson prófessor. Á eftir voru prestar allir til altaris, en að því loknu hófust störf prestastefnunnar. Var hún sett í kapellu háskólans. Þar las biskup landsins ritning- arkafla og flutti bæn, en söng- málastjóri með aðstoð Þórarins Guðmundssonar annaðist söng- stjórn. Að þessari athöfn lokinni var farið yfir í kenslustófu guð- fræðideildar. Flutti biskup þar ávarp til prestastefnunnar, — hvatti hana til starfs og árvekni og lýsti þeim miklu verkefnum, sem hinir nýju/tímar hlytu að hafa í för með sér fyrir kirkjuna, bæði hér á landi og um allan kristinn heim. Þá gaf hann skýrslu um kirkjulegt starf, og kirkjulega viðburði á árinu, sið- an síðasta prestastefna var háð. Einn uppgjafaprestur hafði lát- ist, (sr. Hallgrímur Thorlacius er enn of stuttur tími liðinn. Hitt dylst ekki, að tekizt hefir með meðulum að stöðva veikina eða lama svo, að það getur haft mikla fjárhagslega þýðingu. Og mér sýnist engin fjarstæða nú, að vænta þess, að veikin verði yfirbuguð eða fé varið fyrir henni á svipaðan hátt og orðið hefir að staðreynd um aðra bú- fjársjúkdóma, svo sém bráða- pestina og margt fleira. Sauðfjárveikivarnirnar hafa Guðm. lækni Gíslason í þjónustu sinni, sem fastan starfsmann og tilraunastjóra. Einnig hefir for- stöðunefnd varnanna falið mörgum bændum að gera til- raunir með meðalið Ála, og gefa um það skýrslu. Ég álít, að stjórn mæðiveikivarnanna sé á réttri leið, að láta vinna þannig að lækningatilraunum á veikinni, og vil því hvetja hana fastlega til að halda áfram eftir þeirri stefnu. Bölsýni og óþol þeirra, sep veikin herjar harðast, er skiljanleg, en á ekki að verða þess valdandi að neinsstaðar sé gripið ttl haldlausra örþrifa- ráða. Við eigum að sýna þann metn- að sem sauðfjárræktarþjóð að bjarga hinum innlenda fjár- stofni, annað er okkur ekki sæm- andi. Leiðin í mæðiveikivarnar- málunum er lækning á veik- inni. frá Glaumbæ) 3 prestsekkjur, — og nú nýlega ekkja Jóns Helga- sonar biskups. Ein kirkja hafði verið vígð, á Staðastað, en und- irbúningur væri hafinn að nokkrum öðrum, — og smíði hafin við sumar þeirra. — Átján prestaköll eru óveitt (prestslaus) og er það 2 færra en á sama tíma sl. ár. Eru settir prestar í 6 þeirra, en 12 þeirra er þjónað af nágrannaprestum. Þrír prest- ar höfðu látið af prestsskap, af vanheilsu eða öðrum ástpeðum. Nokkrar umræður urðu um skýrslu biskups, og þá einkum um framkvæmd laga/ sem sett höfðu vefið á sl. Alþingi varð- andi kirkjuleg málefni. Næsta dag hófust fundir með sameiginlegri bænastund í kap- ellu háskólans kl. 9V2, — en síðan var tekið fyrir aðalmál prestástefnunnar: „Starfshættir kirkjunnar á komandi tíð.“ Höfðu þar framsögu biskupinn, sr. Friðrik, Hallgrímsson dóm- prófastur og sr. Sigurjón Guð- jónsson í Saurbæ. Öllum bar framsögumönnunum saman um, að í ýmsu þyrfti að bæta um fyrri starfsaðferðir, — og auka störf, eftir breyttum og nýjum tímum. Mesta athygli vakti hug- mynd biskups um að reisa. „kirkjuhús“ í Reykjavík, sem orðið gæti miðstöð kristilegs starfs á öllum sviðum. Talaði hann fyrir því af miklum áhuga og skilningi, og taldi vel fram- kvæmanlegt, ef vilji væri fyrir hendi.Fé til þess ætti einkum að koma frá 3 aðilum, frá presta- kallasjóði, frá prestunum, og frá söfnuðunum. Hugmynd þessi er í alla staði góð og tímabær, — og mundi það auka mjög á sam- hæfingu starfskrafta kirkjunn- ar, ef slík miðstöð kæmi upp í höfuðstað landsins. Urðú umræður miklar um þetta aðalmál fundarins, og var þeim haldið fríram síðari hluta dagsins og megniö af fundar- tíma hins síðasta fundardags. Var þar komið víða við, en allar lýstu ræður manna áhuga og skilningi á því, að með breyttum tímum er þörf nýrra og breyttra starfshátta í mörgu, enda þótt hinar gömlu starfsaðferðir kirkj- unnar hljóti jafnan að halda gildi sínu. í fundarlok voru sam- þykktar nokkrar tillögur í sam- bandi við þetta mál, og voru þessar helztar: Kirkjuhús. Prestastefna íslands telur byggingu kirkjuhúss í Reykja- vík, er verða skal miðstöð hins kirkjulega starfs í framtíðinni, hið mesta nauðsynjamál og þakkar biskupi áhuga hans og forgöngu í því máli. Samþykkir prestastefnan að hefja þegar nauðsynlegan und- irbúning að frekari framgangi málsins með því: 1. Að fara þess á leit, að prest- arnir bindist samtökum um að leggja fram allt að 1000 krónum hver til hinnar væntanlegu byggingar og greiðist þetta fé til biskups á þessu og næsta ári (1945 og 1946). 2. Að skora á kirkjuráð að verja til byggingarinnar að minnsta kosti 100 þúsund krón- um af tekjum Prestakallasjóðs á þessu ári. 3. Að prestar landsins beitist fyrir frjálsum samskotum með- al safnaða sinna til hins fyrir- hugaða kirkjuhúss nú þegar. 4. Að fela biskupi að vinna að því, að ríkisstjórnin taki upp á næstu fjárlög ríflega fjárveit- ingu til byggingar kirkjuhúss í Reykjavík, meðal annars með tilliti til þess að skrifstofum biskupsembættisins yrði komið fyrir í húsinu. 5. Að fela biskupi að athuga aðrar tiltækilegar og hagkvæm- ar leiðir til fjáröflunar. Kristindómsfræðsla. Prestastefna íslands telur það höfuðnauðsyn að efla kristileg áhrif og auka fræðslu í trúar- legum og andlegum efnum í öll- um skólum landsins æðri sem lægri, og að sem hæfastir menn veljist jafnan til þeirra starfa, svo og að fyrirlestrar um trú og siðgæði verði öðru hvoru fluttir í æðri skólum landsins. Vill prestastefnan sérstaklega leggja úherzlu á þetta nú i sam- bandi við endurskoðun þá, sem nú fer fram á skólakerfi lands- ins og þær breytingar, sem væntanlega -verða lögfestar í þeim efnum innan skamms. Telur prestastefnan, að íhlut- un kirkjunnar um kristindóms- kennslu í skólum og val manna til þeirra starfa ætti að vaxa að verulegum mun frá því, sem nú er. Felur hún biskupi að ræða málið við fræðslumálastjórnina. Útvarp í þágu kirkjunnar. Prestastefna íslands telur æskilegt og heppilegt að út- varpsmessur og flutningur er- inda í útvarp um trúarleg og siðferðileg efni verði framvegis skipulagt af biskupi í samráði við útvarpsráð, og skorar á kirkjustjórnina að hlutast til um, að slík lausn málanna megi takast sem fyrst. Þá voru einnig samþykktar í sambandi við þetta og þnnur mál, er fram komu á presta- stefnunni, ýmsar fleiri tillögur, og skal hér getið hinna helztu: 1. Mælt var með kirkjubygg- ingarfrumvarpi Gísla sýslu- (Framhald á 7. slðu) handa alifuglum. Það gerir sama gagn. Við skynjum lítið eðlishætti ánamaðka hér á landi, enda þó að ekki verði stigið svo fæti á jörðu, að ekki búi þar ánamaðk- ar undir, sístarfandi að skapa grundvöll jurtagróðursins og þar með menningu fólksins í land- inu. Sumir áætla, að um 18 tonn af ánamaðkamold mynd- ist árlega í hverri ekru (4046 m2) lands."í>ó er þetta lítilsvert hjá því, sem ágæt lífsskilyrði eru fyrir ánamaðka, eins og t. d. sumstaðar í Ameríku. Þar er talið, að þeir framleiði allt að 600 tonn á ári í eini ekru, af nýrri mold. Er þá áætlað að til þess þurfi 250000 til 1500000 ánamaðka. Er þetta góður sTíerf- ur,sem þeir leggja fram til rækt- unar jarðargróðans og velmeg- unar fólksins. III. Undravert er, hvað ánamdSk- urinn getur afrekað miklu í þágu jurtanna, þegar á það er •litið, að hann skortir ýms þau líffæri, sem algeng eru á flest- um öðrum dýrum. Hann vantar bæði höfuð, augu, tennur, fæt- ur og bein, eða annað í þeirra stað. Fyrir mannasjónum virð- ist þetta nægilegt tií að álíta hann gagnslausa skepnu, í dýra- ríkinu, og ekki þesslega að vera mönnum að miklu liði við rækt- un jurtagróðurs. En þrátt fyrir líffæraskortinn hefir hann náð svo mikilli útbreiðslu um lönd og álfur að undrun sætir. Engar torfærur virðast honum um megn að yfirstíga. Honum er leikur einn að komast yfir vatnsföll og fjallgarða, enda mun hann útbreiddur í. hverju landi, svo langt sem grös gróa. Hvar sem hann tekur sér ból- festu, er hann sístarfandi og ó- þreytandi að þroska jurtagróð- 'urinn og klæðá landið. Hann er eins og bóndi, sem ræktar ábúð- arjörð sína út í yztu æsar og prýðir hana á alla lund. Sama ánamaðkategund er í Japan, Spáni og austanverðum Bandaríkjunum. Virðist þetta benda á, að í fyrndinni hafi ver- ið samband, með einhverjum hætti, milli þessara landshluta. Lífsþol ánamaðksins og egg- hnoðanna er fraipúrskarandi. Ef ánamaðkur er skorinn sund- ur verður hver partur að nýj- um ormi, nema ef skorið er af báðum endum hans. Getur hann þá heldur ekki smogið gegnum moldina. Þess vegna hefir nátt- úran kennt moldvörpunni að bíta af báðum endum ána- maðksins. Hún geymir hann svo í fylgsnum sínum sem matar- forða. Því að hann er uppá- haldsfæða hennar. Þegar ánamaðkurinn tekur til sín fæðuna opnar hann ginið, sem er kjálkalaust, og skýtur um leið kokinu ofurlítið fram, legg- ur síðan munnopið utan um fæðuna og mjakar henni ofan í kokið, vélindið og þarmana. Munnvöðvarnir eru svo sterkir, að hann getur dregið, án fyrir- hafnar, rotnuð jurtablöð ofan í moldina. í vélindanu eru 6 kirtl- ar, sem gefa frá sér slímkend- an vökva, sem leysir í sundur fæðuna. í aftari hluta ána- maðksins er eins konar fóarn og állra aftast vöðvamaginn (þarmurinn). Þar tfer meltingin aðallega fram. Smá sandkorn, eins og í fóarni fugla, eru þar til staðar, sem mylja fæðuna ennttó betur. Ánamaðkurinn andar gegnum húðina eins og skordýrin. í staðinn fyrir fætur hefir hann örsmáa bursta á kviðnum. Með þeim spyrnir hann í .moldina, þegar hann smýgur gegnum hana. Hann er undra fljótur í ferðum, og spyrnir sterklega á móti, ef í hann er togað. Hjá flestum dýrum, sem missa sjón eða heyrn, þroskast aðrir eiginleikar að sama skapi. Þetta þekkja menn vel af eigin reynd. Svona er það með ánamaðkinn. í uppbót fyrir 'vöntun hinna ytri líffæra hefir hann öðlazt ákaf- lega næma tilfinningu og er sér- staklega næmur fyrir áhrifum ljóss og hita og hvers konar hreyfingu í grend við hann. Hann skynjar vel, hvað hann er ofarlega í jarðveginum og hvað hann þarf að skríða djúpt ofan í jörðina til að forðast frostið. Hann verður þess var, þegar skógarþrösturinn hoppar á gras- fletinum. Tilfinningin segir til að einhver hætta sé á ferðum og smýgur hann þá lengra ofan í grassvörðinn. Þetta skynjar þrösturinn. Hann staldrar við stundarkorn og veltir vöngum þar, sem hann hyggur að ána- maðkur sé undir fótum sínúm. Meðan þessi kyrrð varir heldur ánamaðkurinn að hættan sé lið- in hjá og færir sig aftur ofar í grasrótina. En þá stingur þröst- urinn, eins og örskot, nefinu of- an í grasíð og dregur hann upp. Hefi ég oft verið sjónarvottur að þessari aðfeyð þrastarins. Ánamaðkurinn er tvikynja. Það er, að karlkyns og kvenkyns kynfæri eru á sama einstakling. Æxlunin verður því með víxl- frjóvgun milli tveggja einstakl- inga. Annars eru líffæri ána- maðksins mjög margbrotin og flókin. Yrði hér of langt mál að útskýra það nánar. Hér á landi var það gamall siður, þegar menn stóðu uppi ráðalausir og varnarlausir gagn- vart sjúkdómum og hvers konar faraldri, að leita til náttúrunn- ar kringum sig og sækja til hennar læknislyf, ef þess var kostur. Þá var meðal annars fundin upp aðferð til að nota ánamaðka sem meðal við ýms- um kvillum, eins og t. d. ámu- veiki og lungnabólgu. Þá voru ánamaðkarnir látnir í lérefts- dulu og hún síðan lögð við meinsemdina, eða takverkinn og látnir vera þar, þangað til þeir drápust. Þessi aðferð, til að nota ímyndaðan lækniskraft ánamaðksins, má skoða sem nokkurskonar fyrirboða þess, sem siðar hefir komið í ljós. Ný- lega hefir verið seyddur úr ána- maðkinum olíukendur vökvi, sem talinn er að muni hafa mik- inn lækniskraft. En þó er þetta ekki enn rannsakað til hlítar. Á þessu, sem öðru, má marka, hve mikið nytjadýr ánamaðkurinn er í búskap náttúrunnar o’g mannanna. íslendingar hafa hingað til gefið ánamaðkinum lítinn gaum og þekkja þvi lítið inn i starf hans í jarðveginum og gagnsemi fyrir jurtagróðurinn. Væri því ekki úr vegi að gera nú þegar gangskör að því, að rannsaka lifnaðarhætti hans, lífsskilyrði og útbreiðslu á land- inu, bæði í ræktaðir og órækt- aðri jörð. Hér skal því nefna hið- allra nauðsynlegasta, sem kæmi til greina í þessu efni og menn gætu framkvæmt án mikils kostnaðar eða fyrirhafnat. í fyrsta lagi skyldi athuga hvar áijuamaðkar finast hæst frá sjávarmáli, í hinum ýmsu hlutum land^ins. í öffru lagi skyldi rannsaka, í hvaða jarðvegi ánamaðkar ná mestum þroska, bæði í úthögum og í ræktaðri mold. í þriffja lagi mætti athuga það, hvort áraskipti séu að því, hve mikið er af ánamöðkum. Ef svo reynist, þá að gera sér grein fyrir, hvað veldur því. Er einkum tvennt, sem að þessu getur stutt. Ánamaðkar geta drepizt að vetri til vegna þess að frost nær framar venju lengra ofan í jarðveginn og ger- ir út af við maðkinn, þar sem hann liggur í dvala. Ef mikið vatn sýgur venju fremur ofan í jarðveg og situr um lengri tíma þar, sem ánamaðkur heldur sig, er það hættulegt lífi hans. Get- ur þetta 0. fl. orsakað, að ána- maðkar fækka sum ár. í fjórffa lagi. Hvað tefur út- breiðslu ánamaðka í mismun- andi jarðvegi og stendur þeim fyrir þrifum. í fimmta lagi. Hvaða hættur steðja helzt áð ánamöðkum, á hverjum stað, sem er athugað- ur. Margt fleira en það, seja hér er nefnt, gæti komið til greina við nána athugun, sem snertir líf og starf þessa merkilega dýrs, og þörf væri að fræðast um. , G. D.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.